Tíminn - 22.10.1975, Qupperneq 3
Miðvikudagur 22. október
TÍMINN
3
Gatnagerð
í Breiðholti:
Lægsta til-
boðið var
36,6 millj.
— kostnaðar
áætlun nam
nærri 54
milljónum
BH-Reykjavik. — Tilboð i gatna-
gerð milli Stekkjarbakka við
Hamrastekk og Vesturhóla, gerð
ræsa og undirganga undir
Stekkjarbakka og vegleiðara,
voru opnuð hjá Innkaupastofnun
Reykjavikurborgar I gær kl. 11.
f.h. Lægsta tilboðið barst frá
Ástvaidi & Halldóri sf. og var það
upp á kr. 36.602.222.- en
kostnaðaráætlun gatnamála-
stjóra og Fjarhitunar h.f. hljóðar
upp á kr. 53.928.000.00. Alls bárust
niutilboðog voru sex þeirra lægri
en kostnaðaráætlunin.
Hér verða talin upp tilboðin,
sem bárust i þeirri röð sem þau
voru opnuð:
1. Völur sf. kr. 45.118.990.-
2. Aðalbraut hf. kr. 45.411.323.-
3. Miðfell hf. kr. 48.218.060,-
4. Ýtutækni hf. kr. 41.685.473,-
4. Sveinn Skaftason, kr.
63.590.800,-
6. K.R. Vinnuvélar h.f. kr.
65.626.768.-
7. Þórisós hf. kr. 54.028.430,-
8. Hlaðbær hf. Fjölvirkinn h.f. kr.
52.875.673.-
9. Astvaldur & Haíldór hf. kr.
36.602.222,-
Læknaritarar
lýsa stuðningi við
kvennaf rídaginn
SJ-Reykjavik „Fundur i Félagi
islenzkra læknaritara lýsir full-
um stuðningi við kvennafridaginn
og hvetur sem flestar konur til að
mæta á fundinum 24. október,
þótt ekki teljist stætt á að allir
læknaritarar leggi niður vinnu
þennan dag.”
Þessi samþykkt var gerð á
fundi i Félagi islenzkra læknarit-
ara 16. október sl., en meirihluti
læknaritaranna i félaginu er
fylgjandi kvennafrideginum. Að
sögn formanns félagsins, Berg-
ljótar Guðmundsdóttur, varð það
að samkomulagi, að hver og einn
læknaritari yrði að vega það og
meta, hvort fært væri að hann
legðiniður vinnu. Hún sagðistt.d.
ekki telja rétt að allir læknaritar-
ar á Landakoti, þar sem neyðar-
vakt er þann 24., legðu niður
störf, en það þýddi ekki að kon-
urnar i félaginu vildu ekki leggja
áherzlu á vinnuframlag islenzkra
kvenna.
Bóti stolið
við Ægisgarð
gébé—Rvik.—Ungur piltur nem-
andi i menntaskólanum að
Laugarvatni, varð fyrir þvi óláni
að vatnabát hans var stolið ný-
lega. Báturinn lá við legufæri
vestur við Ægisgarð, og er siðast
vitað meö vissu að þár var hann
fyrir viku siðan. Báturinn, sem
gerður er fyrir utanborðsmótor,
er trébátur, hvitur að ofan, grænn
að neðan og með grænum þóftum.
Þegar pilturinn kom til höfuð-
borgarinnar i gær og ætlaði að
huga að bát sinum, þá var hann
horfinn og tilkynnti hann þegar
rannsóknarlögreglunni um stuld-
inn. Eru allirþeir, sem geta gefið
einhverjar upplýsingar um þetta
mál, beðnir að láta rannsóknar-
lögregluna i Reykjavik vita.
Svæðismótið í r S k< r a ii k
FRIÐRIK i: Ribli n 3 mmm* mmmm "
2. Pouriainen T
VANN 3. Hartston m t T 1
4. Hamann 1
BJÖRN 5. Friörik ~0 1
6. Zwaig T A
B.K. Reykjavik.— önnur um- 7. Timman T %
ferð svæðamótsins i skák var tefld i gær. úrslit urðu sem 8. Liberzon ■
hérsegir: Friðrik vann Björn i 311eik. Hartston vann Van den 9. McMurray ■
Broeck i 24 leikjum. Jafntefli gerðu Jansa og Timman i 24 10. Ostermeyer O
leikjum, sömuleiðis Parma og Zwaig I 27 leikjum. Þá gerðu 11. Jansa o %
ogjafntefliLaineog Hamann i 24 leikjum. 12. Parma 1 %
Biðskákvarð hjá Ostermey- er og Liberzon og hefur Oster- 13. Björn 0 0 WL
meyer peð yfir. Biðskák varð einnig hjá Ribli og Pouriainen 14. Laine 0 14 ru
og er staðan tvisýn og flókin. 15. VandenBroeck o o LU
Fundur námsmanna á
Austurvelli
Uppástunga um, að verkfalli I heimspekideild verði haldið áfram, var samþykkt I einu hljóði. Tlma-
mynd: Gunnar.
— AAótmælt skerðingu námslána
— Verkföll í mörgum deildum Háskólans
VSÍ REIÐUBÚIÐ TIL AÐ
HEFJA S AMNING A VIÐRÆÐU R
FB-Reykjavik. Vinnuveitenda-
samhand tslands hefur lýst sig
reiðubúið til að hefja nú þegar
viðræður við verkalýðs-
hreyfinguna og rikisstjórnina um
ástand og horfur i efnahags- og
kjaramálum þjóðarinnar og leiðir
til lausnar aðsteðjandi vanda. t
þessum efnum má engan tima
missa, að þvi er segir I fréttatil-
kynningu frá VSt.
Framkvæmdastjórn VSl hélt
fund i gær, þar sem samþykkt
var ályktun þess efnis, aö alvar-
lega horföi nú i efnahagsmálum
Islendinga og þjóöin héldi áfram
að lifa um efni frám, gjaldeyris-
vargsjóðir væru þrotnir og er-
lendar skuldir hlæðust upp.
„Verðbólgan geysist áfram,
kaupmáttur rýrnar, rekstrar-
grundvöllur atvinnuveganna er
að bresta og vaxandi hætta á
stöðvun atvinnugreina og at-
vinnuleysi”, segir í ályktuninni.
Ennfremur segir, aö von um að
ástandiö i efnahagsmálum og
greiðslugeta atvinnufyrirtækja
breyttist til batnaðar eftir aö
tvisvar sinnum hefði verið gengið
til heildarsamninga milli aðila
vinnumarkaðarins, hafi brugðizt.
Þá segir i ályktuninni, að
miðstjórn ASl hafi beint þvi til
sambandsfélaga sinna, að þau
segi upp kjarasamningum þannig
aö þeir renni úr gildi á áramót-
um. Samningaumleitanir séu þvi
skammt undan. „Forysta ASl
hefur bent á, að nauðsynlegt sé,
að takast á við orsakir vandans i
efnahags- og kjaramálum, en
hætta aðglima við afleiöingarnar
einar saman. Varað hefur verið
við afleiðingum meiriháttar
kauphækkana, þ.e. sivaxandi
verðbólgu, gengisfellingum og at-
vinnuleysi, og sagt að hóflegar
kauphækkanir með viötækum
hliðarráðstöfunum mundu skila
raunhæfari árangri.
1 samþykkt miðstjórnar ASl 18.
sept. s.l. sagði að stefnt skuli
að þvi, að fullreynt verði á ára-
mótum, hvort samningar geti
tekizt án verkfallsátaka. Þjóöin
stendur nú á timamótum. Ef ekki
tekst skynsamlega til um skipan
efnahags- og kjaramála á næstu
mánuðum. er vá fyrir dyrum. 1
þeim efnum eru allir i sama báti,
vinnuveitendur, launþegar og
stjórnvöld.
Vinnuveitendasamband Islands
telur miklu varða, að sameinast
verði um samræmt átak i efna
hags- og kjaramálum og telur aö
heildarlausn verði ekki við
komið, nema með samvirku
samráði og ákvörðunum aðila
vinnumarkaðarins og rikis-
valdsins.
gébé—Rvik. — Verkföll voru i
nokkrum deildum i Háskóia ts-
lands i gær, en sem kunnugt er
mótmæla námsmenn nú
skerðingu námslána. Umræðu-
fundir voru i gærdag hjá háskóla-
nemum og fjölmennur fundur
haldinn i Arnagarði á eftir, þar
sem haldnar voru ræður. Þar var
samþykkt i einu hljóði að halda
verkfalli áfram i heimspekideild,
en i dag var búizt við að guðfræöi-
nemar myndu bætast í hópinn og
jafnvel nemar úr læknadeild, við-
skipta- og lagadeildum. Akveðið
er að fjöldafundur verði klukkan
13:30 á Austurvelli i dag I mót-
mælaskyni. Einn af ræðumönnum
á fundinum i Arnagarði sagði i
gær: Stúdentar hafa verið
kallaðir þrýstihópar, nú við skul-
um þá sýna það á fundinum á
Austurvelli og þrýsta vel á! Var
þessu tekið nieð dynjandi lófa-
taki.
Farið var þess á leit við kenn-
ara i heimspekideild, verkfræði-
og raunvisindadeild, þjóðfélags-
fræðideild og hjúkrunarfræði-
deild, að þeir myndu ekki mæta
til kennslu meðan á verkföllum
stæöi, og hafa þeir að sögn for-
manns Stúdentaráðs tekið þess-
um tilmælum vel.
Fundurinn á Austurvelli hefst
kl. 13:30 I dag, en fyrst munu
námsmenn safnast' saman við
skóla sina og ganga fylktu liði í
fundinn. Kjörorð fundarins er:
Efnahagslegt jafnrétti til náms.
Kjarabaráttunefnd náms-
manna hefur harðlega vitt þann
villandi fréttaflutning, sem ráðu-
neytin hafa haft um afgreiöslu
námslána. t bréfi frá mennta-
málaráðuneytinu segir meðal
annars, að rlkisvaldið hyggist
láta ganga til haustlána 240
milljónir króna. Ekki er þar þó
tekið fram, að þar af eru 40
milljónir sem sjóðnum voru
tryggðar 25. marz s.l. Kjara-
baráttunefnd heldur þvi einnig
fram, að þar sem ekki annað er
tekið fram, gæti skilizt á bréfi
ráðuneytisins að öll vandamál
lánasjóðsins væru leyst, en þvi fer
þó fjarri að svo sé. T.d. nægir
þessi upphæð ekki til úthlutunar
óskertra haustlána og 100
milljónir koma fyrst til afgreiöslt
i janúar. At þessu leiðir, aö nu tær
hver námsmaður sem svarar
70-80 þúsund krónum lægri
upphæð i haustlán en orðiö hefði,
ef fylgt hefði verið fyrri reglum
og venjum — og nemur þvi skerð-
ingin allt að 50% að meðaltali.
Tíminn er
peníngar