Tíminn - 24.10.1975, Blaðsíða 5
Föstudagur 24. október 1975.
TÍMINN
5
Svíar hjálpa
Alþýðuf lokknum
Framkvæmdastjóri sænska
sósialdemókrataflokksins
hefur upplýst i viðtali við
sænska „Aftonbladet”, að
Alþýðuflokkurinn á tslandi sé
meðal þeirra flokka, sem notið
hafa fjárhagslegrar fyrir-
greiðslu af hendi bróöurflokks
sins i Sviþjóð.
Ástæðan til þess, að þetta er
upplýst, eru mikiar umræður i
kjölfar þess atburðar, er upp
komst, að sænskir sósial-
demókratar höfðu afhent
finnskum flokksbræðrum sin-
um álitlega peningafúlgu, sem
átti að vera styrkur til
finnskra krata.
Ekki upplýsir „Aftonblad-
et” hvaða aðili af hálfu Al-
þýðufiokksins á tslandi hafi
tekið við peningum, en hins
vegar er upplýst, að Sten And-
erson, framkvæmdastjóri
sænska sósialdemókrata-
flokksins, hafi afhent þá.
Höfuðið að veði
Þegar
blaðamenn
frá
Þjóðviljanum
leituðu til
Gylfa Þ.
Gislasonar út
af þessu máli,
þvertók hann
fyrir, að nokk-
ur fötur væri fyrir fréttinni, og
kvaðst reiðubúinn að leggja
höfuð sitt að veði fyrir þvi, að
ekkert væri hæft i þessu.
Ef að likum lætur mun Gylfi •
halda höfðinu, því að rannsókn
mála af þessu tagi getur verið
torsótt. Helzta hætta Gylfa
felst i þvi, að Vilmundur
nokkur Gylfason (Gislasonar)
sem sýnt hefur mikinn áhuga
á þvi að fletta ofan af spillingu
stjórnmálaflokkanna, fari að
skipta sér af málinu. Þá fyrst
má Gylfi fara að vara sig. Að
visu getur hann huggað sig við
það, að Vilmundur hefur af
einhverjum ástæðum aldrei
gagnrýnt Alþýðuf lokkinn
opinberlega fyrir spillingu af
neinu tagi. Það er þess vegna
ekki vist, að hann kanni þetta
mál. Og þá heldur Gylfi
væntanlega höfðinu.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
Frá og með 25. þ.m. verða opnar á laugardögum verzlanir eftirtalinna aðila
FRÁ KL. 9- -12 F.H.
Félag matvörukaupmanna Vörumarkaðurinn
Félag kjötverzlana Kaupgarður
Hagkaup Mjólkursamsalan í Reykjavík
GERIÐ VERÐSAAAANBURÐ
Kaffi 1/4 kg. 115 kr.
Ljóma smjörliki 1/2 kg. 125 kr.
Flórsykur 1 Ibs. 105 kr.
River hrísgrjón 91 kr.
Libby's tómatsósa 146 kr.
Cheerios 145 kr.
Snak Corn Flakes 500 gr. 192 kr
Jakobs tekex 84 kr.
Fiesta eldhúsrúllur 203 kr. s
Regin WC pappír 24 rl. 1288 kr\
Vex 3 kg. 567 kr. ^
Dixan 10 kg. 3.740 kr. Az
Ármúla 1 a
Simi 86111
Einbýlishús
meö húsbúnaði óskast til leigu fyrir er-
lendan verkfræðing.
Upplýsingar gefur Almenna verkfræði-
stofan, Fellsmúla 26, simi 3-85-90.
JJíns jLjrsUMis
1975
Álþjóðlegt sweðismót í ReyJgavík
Zonal Toumament in Reykjavik
SkSsambandlslands
* TaflféíagEeykjavíkur
AAIKIL FRIÐSEAAD
3. umferð
Timman — Parma,
1/2—1/2, 19 leikir
Liberzon — Jansa,
1/2—1/2, 23 leikir
Murray — Ostermeyer,
1/2—1/2, 24 leikir
Friðrik — Laine,
1—0, 32 leikir
Hartston — Ribli,
0—1, 39 leikir
Zwaig — Björn,
1/2—1/2, 35 leikir
Hamann — van den Broeck,
biðskák
Poutiainen sat hjá.
Biðskák úr 2. umferð
Ribli — Poutiainen,
1—0, 41 leikur
Þriðja umferð svæðismótsins
var mjög dauf. Friðsemdin sat i
fyrirrúmi, og aðeins tvær skákir
unnust, en ein fór i bið. t mótum
sem þessu eru keppendur oft
hræddir við að hætta einhverju,
þvi þeir hugsa aðeins um að
komast áfram i millisvæðamót.
Taka þeir þvi frekar jafntefli en
að tefla i tvisýnu. 3. umferðin
var einkennandi fyrir slikan
hugsunarhátt.
Timman og Parma sömdu
jafntefli i flókinni stöðu eftir að-
eins 19 leiki.
Liberzon og Jansa fylgdu
þekktum leiðum og sömdu jafn-
tefli eftir 23 leiki. Jansa hefur
aðeins einn vinning og Liberzon
á verri biðskák gegn Ostermey-
er, svo að jafnteflin duga þeim
varla til að komast á milli-
svæðamót.
Murray og Ostermeyer þrá-
léku i flókinni stöðu eftir 24 leiki.
Timaskortur átti vafalaust sinn
þátt i þeirri ákvörðun.
Friðrik vann fljótt peð gegn
Laine, og skipti siðan upp I auð-
unnið endatafl.
Hartston tefldi einkennilega
gegn Rigli. Helzt mátti halda,
að hann gæti ekki gert upp við
sig, hvort hann ætti að tefla til
jafnteflis eða vinnings. Eng-
lendingurin skipti snemma upp i
endatafl, sem var örlitið óhag-
stætt fyrir hann, en skyndilega
hóf hann sókn upp á lif og dauða,
sem endaði með skelfingu.
Zwaig beið átekta gegn Birni,
en sá siðarnefndi gaf engin færi
á sér. Jafntefli voru mjög eðli-
leg útslit.
Hamann fékk mjög hagstæða
stöðu i byrjun gegn van den
Broeck. Miðtaflið tefldi Daninn
þinsvegar veikt, en i endatafl-
inu lék Belgiumaðurinn af sér.
Biðskákin virðist gefa Hamann
góðar vinningsvonir.
Poutiainen, sem sat hjá, til-
kynnti i lok umferðarinnar, að
hann gæfi biðskákina við Ribli
úr 2. umferð.
Staðan eftir 3 umferðir:
Ribli 2 vinninga (af 2 mögul.),
Friðrik, Timman, Parma,
Zwaig og Hartston 2 v., Hamann
11/2 v. og biðskák, Poutiainen 1
v. (af 2), Jansa 1 v., Murray 1/2
v. og eina óteflda skák (af 2),
Liberzon 1/2 v., eina biðskák og
eina óteflda, Ostermeyer 1/2 v.
og biðskák, Björn og Laine 1/2
v., van den Broeck 0 v. og bið-
skák.
Ilvitt: Hartston Svart: Ribli
Sikileyjar vörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3a6 Najdorf-af-
brigðið er alltaf vinsælt.
6. Be3 — Leikur, sem heldur
mörgum leiðum opnum. 6. —
Rg4 7. Bg5 er óhagstætt svört-
um. 6. — e6> 7. Df3 Aörar leiðir
eru 7. Be2, 7. f4 og 7. BC4. 7. —
Dc7 8. 0-0-0 Rbd7 9. Bc2 b5 10. a3
Bb7 11. Dh3 Be7Ekki 11. — Rxe4
12. Rxe6 o.s.frv.
12. f:l d5 13. exd5 Rxd5 14.
Itxd5 Bxd5 15. Dg3 — Hvitur á
ekki um annað að velja en fara
út i örlitið óhagstætt endatafl,
þvi annars verður sókn svarts á
drottningarvæng óstöðvandi.
15. — Dxg3 16. hxg3 0-0 17. g4
Hfd8 18. Hh3 — Byrjunin á
rangri áætlun, sem verður
banabiti hvits. Ef hvitur tvö-
faldar hrókana á d-linunni, er
ekki að sjá, að svartur eigi auð-
velt með að vinna skákina.
18. — Hac8 19. Hdhl Rf8 20.
Bd3 g6 21. Kbl Bp5 22. c3 e5
23. Rc2 Bxe3 24. Rxe3 Ba2+
25. Kc2 Bb3+ 26. Kxb3 Hxd3 27.
Re2Meira viðnám veitti 27. Hel
ásamt Hhhl.
27. — a5 28. g5 — Hvitur gat
reynt að forðast liðstap með 28.
Hcl, en staða hans hefði þá ver-
ið heldur óskemmtileg.
28. — Hd2 29. Re3 a4+ 30. Kb4
Hxb2+ 31. Ka5 Kg7 32. Hlh2 Hb3
33. Rg4 Hxa3 34. Rxe5 H3xc3 35.
14 a3 36. Hxc3 Hxc3 37. g4 Re6 38.
IIf2 — Hvitu peðin eru dauðans
matur.
38. — Rxf4 39. Kxb5 Eða 39.
Hxf4 a2 40. Hfl Ha3+ 41. Kxb5
alD o.s.frv.
39. — Rd;i og Hartston gafst
upp, þvi hann verður a.m.k.
tveim peðum undir i hrókaenda-
taflinu.
Hvitt: Friðrik Svart: Laine
Fjögurra riddara tafl
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rc3 Rc6 4.
Bb5 Rdl 5. Bcl Rxf3+ 6. Dxf3
Be7 7. (13 0-0 8. g4 d5 9. Rxd5
Rxd5 10. Bxd5 c6 11. Bb3 Be6 12.
h4 Bxb313. axb3 f6 14. Be.l a(l 15.
Ke2 HfT 16. DI5 g6 17. De6 Dd6
18. Dxdtl Bxdfi 19. llafl He8 20. f4
cxf4 21. Bxfl Bxf4 22. Hxf4 Kg7
23. Hhfl IleeT 24. d4 b(> 25. Kd3
11(17 26. g5 fxg5 27. Hxf7+ Hxf7
28. Hxf7 + Kxf7 29. hxgó Ke6 30.
Ke3 Kd(> 31. e5+ Ke(> 32. Ke4 og
svartur gafst upp.
van den Broeck
a b c a t 1 g h
I kvöld verður 4. umferð tefld
á Hótel Esju kl. 17-22. Þá tefla:
Jansa-Murray, Parma-Liber-
zon, Björn-Timiman, Laine-
Zwaig, van den Broeck-Friðrik,
Ribli Hamann, Poutiainen-
Hartston. Ostermeyer situr hjá.
Bragi Kristjánsson
Ungverski stórmeistarinn Ribli og Finninn Poutiainen tefla saman I
annarri umferð. Skák þeirra fór i bið og lauk henni siðan meö sigri
Ribli, þar sem Finninn gafst upp án frekari taflinennsku.