Tíminn - 01.11.1975, Blaðsíða 10
10
TÍMINN
Laugardagur 1. nóvember 1975.
HEILSUGÆZLA
Slysavaröstofan: sími 81200,
eftir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreið: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100,
Hafnarfjörður, slmi 51100.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
varzla -apóteka i Reykjavik
vikuna 31. okt. til 6. nóv. er I
Háaleitis-apóteki og Vestur-
bæjar-apóteki. Það apótek,
sem fyrr er nefnt, annast eitt
vörzlu á sunnudögum, helgi-
dögum og almennum fri-
dögum.
Sama apotek annast nætur-
vörzlufrá kl. 22 að kvöldi til kl.
9 að morgni virka daga, en til
kl. 10 á sunnudögum, helgi-
dögum og almennum fridög-
um. Athygli skal vakin á þvi,
að vaktavikanhefst á föstudegi
og að nú bætist Lyfjabúð
Breiðholts inn i kerfið i fyrsta
sinn, sem hefur þau áhrif, að
framvegis verða alltaf sömu
tvöapotekin um hverja vakta-
viku i reglulegri röð, sem
endurtekur sig alltaf óbreytt.
Kópavogs Apótek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opið kl. 9-12 og sunnu-
daga er lokað.
Hafnarfjörður — Garðahrepp-
ur.Nætur- og helgidagavarzla
upplýsingar lögregluvarðstof-
unni, simi 51166.
A laugardögum og helgidög-
um eru læknastofur lokaðar,
en læknir er til viötals á
göngudeild Landspitala, simi
21230.
Heimsóknartimar á Landa-
kotsspitala:
Mánudaga til föstud. kl. 18.30
til 19.30.
Laugard og sunnud. kl. 15 til
16.
Barnadeild alla daga frá kl. 15
til 16.
Upplýsingar um lækna- og
lyfjabúöaþjónustu eru gefnar i
simsvara 18888.
LÖGREGLA OG
SLÖKKVILIÐ
Reykjavik: Lögreglan simi
11166, slökkvilið og sjúkrabif-
reið, simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200, slökkvilið og sjúkrabif-
reið, simi 11100.
Hafnarfjöröur: Lögreglan,
simi 51166, slökkviliö simi
51100, sjúkrabifreið, simi
51100.
Rafmagn: 1 Reykjavik og
Kópavogi I sima 18230. 1
Háfnarfiröi, simi 51336.
Bilanavakt borgarstofnana.
Simi 27311. Svarar alla virka
daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8
árdegis og á helgidögum er
svarað allan sólarhringinn.
Tekiö er við tilkynningum um
bilanir á veitukerfum borgar-
innarog i öðrum tilfellum sem
borgarbúar telja sig þurfa að
fá aðstoö borgarstofnanna.
Vaktmaöur hjá Kópavogsbæ.
.Bilanasími 41575,. simsvari.
Kirkjan
Háteigskirkja: Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.30 Sr. Jón
Þorvarðsson. Messa kl. 2.
Allra-heilagramessa: Sr. Arn-
grimur Jónsson.
Hafnarfjarðarkirkja: Barna-
samkoma kl. 11. Sóknarprest-
ur.
Innri-Njarðvikurkirkja:
Sunnudagaskólikl. ll.árd.Sr.
Ólafur Oddur Jónsson.
Asprestakall Barnasamkoma
kl. 11 I Laugarásbiói. Messa
kl. 2 að Norðurbrún 1. Sr.
Grlmur Grimsson.
Langholtsprestakall: Barna-
samkoma kl. 10.30. Sr. Árelius
Nielsson. Guðsþjónusta kl. 2.
Ræöuefni: I minningu látinna.
Sr. Sigurður Haukur Guðjóns-
son.
Dómkirkjan: Messa kl. 11.
Allra sálna messa, minninga-
dagur látinna. Páll Gröndal
leikur einleik á selló i mess-
unni. Sr. Þórir Stephensen.
Fjölskyldumessa kl. 2. For-
eldrar fermingarbarna eru
vinsamlega beðin að mæta við
messuna. Predikunarefni:
Ferming og fermingarundir-
búningur. Sr. Óskar J.
Þorláksson. Barnasamkoma
kl. 10.30 I Vesturbæjarskóla
við öldugötu. Hrefna Tynes.
Hallgrimskirkja: Messa kl.
11. Sr. Karl Sigurbjörnsson.
Fjölskyldumessa kl. 2. Sr.
Ragnar Fjalar Lárusson.
Neskirkja. „ . Barna-
samkoma kl. 10:30. Sr.
Guðmundur Óskar Ólafsson.
Guðsþjónusta kl. 2. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Digranesprestakall: Barna-
guðsþjónusta i Vighólaskóla
kl. 11. Messa fellur niður
vegna viðgerðar á kirkjunni.
Þorbergur Kristjánsson.
Laugarneskirkja: Messa kl. 2.
Barnaguðsþjónusta kl. 10.30.
Sr. Garðar Svavarsson.
Árbæjarprestakall: Barna-
samkoma i Arbæjarskóla kl.
10.30. Guðsþjónusta i skólan-
um kl.2. Sr. Guðmundur Þor-
steinsson.
Kársnesprestakall: Barna-
guðsþjónusta i Kársnesskóla
kl. 11 árd. Messa fellur niður i
Kópavogskirkju vegna við-
gerðar. Sr. Arni Pálsson.
Kirkja Óháða safnaðarins:
Messa kl. 2 (Hinn árlegi
kirkjudagur safnaðarins hefst
með messunni en á eftir verða
kaffiveitingar I Kirkjubæ). Sr.
Emil Björnsson.
Grensáskirkja: Barnasam-
koma kl. 10.30. Guðsþjónusta
kl. 14. Sr. Halldór S. Gröndal.
Stokkseyrarkirkja. Guðsþjón-
usta kl. 2. Allra heilagra
messa. Sóknarprestur.
Eyrarbakkakirkja. Barna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Sókn-
arprestur.
Fíladelfia: Sunnudagaskól-
arnir byrja kl. 10.30. Safnað-
arguðsþjónusta kl. 14. Almenn
guðsþjónusta kl. 20. Vakn-
ingarvikan byrjar. Ræðumað-
ur Gunnar Sannerland. Sam-
komur áfram alla vikuna kl.
17 og 20.30. Filadelfía.
Mosfellskirkja: Guðsþjónusta
kl. 2, Sr. Bjarni Sigurðsson.
Bústaðakirkja: Barnasam-
koma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
2. Sr. Ólafur Skúlason.
Frikirkjan Reykjavik: Barna-
samkoma kl. 10.30. Guðni
Gunnarsson. Messa kl. 11. (at-
hugið breyttan tima). Sr. Þor-
steinn Björnsson.
Frikirkjan i Hafnarfirði:
Barnasamkoma kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2. Safnaðar-
prestur.
Breiðholtsprestakall: Messa
kl. 2 i Breiðholtsskóla. Barna-
samkoma kl. 10.30. Sr. Lárus
Halldórsson.
Prestar Reykjavik og ná-
grenni hádegisverðafundurinn
er á mánudag i Norræna hús-
inu.
SigSingar
Skipadeild S.Í.S.
Disarfell fór i gær frá Oskars-
hamn til Riga og siðan til Is-
lands. Helgafell fer væntan-
lega I kvöld frá Reykjavfk til
Norðurlandshafna. Mælifell er
I Cardiff, fer þaðan til Avon-
mouth. Skaftafell er væntan-
legt til New Bedford á morg-
un. Hvassafell er i Svendborg,
fer þaðan 4/11 til Gautaborgar
og Larvikur. Stapafell er i
Reykjavik. Litlafell fór I gær
frá Eskifirði áleiöis til Liver-
pool. Saga fór 27. þ.m. frá
Sousse áleiðis til Keflavikur.
Afmæli
90 ára er i dag 1. nóvember,
Benedikt Jónsson, Asi Hvera-
gerði. Hann verður i dag
staddur að Gili i Mosfellssveit.
Blöð og tímarit
5. hefsti Verðlaunakross-
gáturitins er nýkomið út. 1 þvi
eru 12 heilsiðukrossgátur. 1
opnu svokallaðri er ein stór
krossgáta. þ .e. hún tekur
yfir 2 blaðsiður og eru
verðlaun veitt fyrir ráðningu
hennar. I. verðlaun eru
segulbandstæki, að verðmæti
um 20.000 krónur. II. verðlaun
eru Stóra blómabókin, Stóra
fuglabókin og Stóra skordýra-
bókin, stórkostlegar lit-
prentaðar bækur i útgáfu
Fjölva. III. verðlaun eru svo
3000 krónur i peningum. I
heftinu er lika skrá yfir
vinningshafa i 3. og 4. hefti.
Frágangur á blaðinu er
snyrtilegur og kostar það nú
kr. 250 með söluskatti.
Félagslíf
Laugard. 1/11 kl. 13.
Um Gálgahraun. Fararstj.Jón
I. Bjarnason.
Sunnud. 2/11 kl. 13.
Úlfarsfell-Lágafell. Fararstj.
Jón I. Bjarnason.
Brottfararstaður B.S.I.
( v e s t a n v er ð u ) Allir
velkomnir.
Laugardagur 1. nóv. kl. 13.30
Ferö I hraunhellana v. Bláfjöll
undir leiðsögn Einars Ólafs-
sonar. Nauðsynlegt er að hafa
ljós meðferðis. Fargjald greitt
v. bilinn. Brottfararstaður:
Umferðarmiðstöðin (að aust-
anverðu)
Sunnudagur 2. nóv. kl. 13.00
Gönguferð frá Elliðavatni um
Hjalla. (hæg og góð göngu-
leið), greitt v. bilinn.
Brottfararstaður: Umferðar-
miðstöðin (að austanverðu).
Ferðafélag tslands, öldugötu
3, S. 19533 Og 11798.
Hlutavelta og Flóamarkaður
verður haldinn laugardaginn
1. nóv. kl. 2 i Hljómskálanum.
Kvenfélag Lúðrasveitar
Reykjavikur.
Basar Blindrafélagsins.
Blindrafélagið Hamrahlið 17,
heldur sinn árlega Basar
laugardaginn 1. nóv. kl. 1 e.h.
Margt góðra muna, t.d.
prjónavörur, leikföng, kökur,
skyndihappdrætti með 3-400
vinningum. Komið og gerið
góð kaup og styrkið um leiö
gott málefni. Basarnefnd
Blindrafélagsins.
I.O.G.T.Svava nr. 23. Fundur
2. nóv. kl. 14.
Kvenfélag óháða
safnaðarins: Kirkjudagur
safnaðarins verður næst-
komandi sunnudag. Félags-
konur, sem ætla aö gefa
kökur, eru góðfúslega beðnar
aö koma þeim á laugardag kl.
1-5 og sunnudag kl. 10-12.
■li
2069
Lárétt
1) tslenzk.-6) Lifstið.- 7) Spé,-
9) Mann.- 11) 51.- 12) Sagður,-
13) Skel.- 15) Sveig.- 16)
Kona.- 18) Embættismenn,-
Lóðrétt
1) Riki,- 2) Nánar,- 3) 55,- 4)
Stök,- 5) Móri,- 8) Stafurinn,-
10) Keyrðu.-14) Veik,-15) Ól.-
17) Efni,-
X
Ráðning á gátu nr. 2068
Lárétt
1) Framför,- 6) Tál,- 7) Alt.- 9)
Ósk,- 11) Kú.- 12) KK,- 13)
Krá,- 15) Lái,- 16) Rói,- 18)
Raustin.-
Lóðrétt
1) Frakkar.-2) Att.- 3) Má,- 4)
Fló.- 5) Rakkinn,- 8) Lúr,- 10)
Ská.-14) Áru.-15) Lit,- 17) Ós.-
ROYAL
SKYNDIBÚÐINGARNIR
ÁVALLT FRÉMSTIR
ENGIN SUÐA
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragðtegundir
RJP 8296
Menntamálaráðuneytið,
28. október 1975.
Styrkir
til háskólanáms i Danmörku
Dönsk stjórnvöld bjóða fram fjóra styrki handa Is-
lendingum til háskólanáms iDanmörku námsárið 1976-
77.
Einn styrkjanna er einkum ætlaður kandidat eöa stú-
dent sem leggur stund á danska tungu, danskar bók-
menntir eða sögu Danmerkur og annar er ætlaður
kennara til náms við Kennaraháskóla Danmerkur. All-
ir styrkirnir eru miðaðir við 8 mánaða námsdvöl en til
greina kemur að skipta þeim, ef henta þykir. Styrk-
fjárhæðin er áætluð um 2.030 d.kr. á mánuði.
Umsóknum um styrki þessa skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 1.
desember n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást I ráðu-
neytinu.
# AAINNIS-
mm m b Stórmeistara
penmqur
Skáksamþand Islands og Taflfélag
Reykjavlkur hafa, í tilef ni af 50 og 75 ára
afm'ælum sinum, látið slá minnispening
tileinkaðan Friðrik Olafssyni, alþjóðleg-
um stórmeistara I skák.
Er hér um að ræða upphaf að sérstakri
minnispeningaserlu um Isl. stórmeistara
I skák, sem fyrirhugaðer aðhalda áfram
með eftir þvi, sem tilefni gefast. Næsti
peningur yrði helgaður Guðmundi Sigur-
jónssyni.
Upplag peningsins er takmarkaö við 100
gull-, 500 silfur- og 1000 koparpeninga,
sem allir verða númeraðir. Peningurinn
er stór og mjög upphleyptur. Þvermál 50
mm, þykkt 4,5 mm og þyngd um 70 gr.
Þeir sem kaupa peninginn nú eiga for-
kaupsrétt að sömu númerum slðar, eða I
einn mánuð eftir að næsti péningur kem-
ur út.
Peningurinn er teiknaður af Halldóri
Péturssyni listmálara, en sleginn hjá IS-
SPOR hf„ Reykjavik, I samvinnu við
SPORRONG I Svíþjóð.
Pöntunum er veitt móttaka hjá Söludeild
Svæðismótsins að Hótel Esju, Samvinnu-
bankanum, Bankastræti 7, Verzl.
Klausturhólum Lækjargötu 2 og hjá fé-
lögunum.