Tíminn - 08.11.1975, Síða 7

Tíminn - 08.11.1975, Síða 7
TÍMINN 7 Laugardagur 8. nóvember 1975. Útgefandi Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit- stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:' Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla- son. Ritstjórnarskrifstofur i Edduhúsinu viö Lindargöty, simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aöalstræti 7, simi 26500 — afgreiöslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö I lausasölu kr. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuöi. EHaöaprent h‘.L Reynslan verði látin ráða Undanfarna daga hefur staðið yfir heldur lág- kúruleg leiksýning á fjölum Alþingis, sem Gylfi Þ. Gislason, formaður Alþýðuflokksins, hefur fært i búning. Er hér átt við þær maraþonumræð- ur, sem átt hafa sér stað um frumvarp Gylfa um breytingar á lögum um Framkvæmdastofnun rikisins Taldi Gylfi klókt að flytja tillögu um að leggja framkvæmdaráð stofnunarinnar niður og setja embættismann yfir hana, i von um, að þessi tillaga riðlaði stjórnarliðinu, en sem kunnugt er börðust þingmenn Sjálfstæðisflokksins gegn Framkvæmdastofnuninni, er hún var sett á lagg- irnar i tið vinstri stjórnarinnar. í þessu sambandi er rétt að rif ja upp, að næsta móðursýkisleg hræðsla greip um sig meðal þing- manna Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins, er frumvarp um Framkvæmdastofnun rikisins kom fram á sinum tima, einkum vegna ákvæðis um framkvæmdaráð stofnunarinnar. Töldu þing- menn þessara flokka, að með skipan þess væri verið að koma á póiitisku eftirlitsmannakerfi, er hefði hættulega mikil völd. Það er siður en svo óeðlilegt, að þingmenn stjórnarandstöðu á hverjum tima hafi aðrar skoðanir en stjórnarflokkar, ekki siist, þegar bryddað er á nýmælum eins og Framkvæmda- stofnun rikisins var á sinum tima. En verra er, þegar menn neita að viðurkenna, að þeim hafi skjátlazt. Hrakspárnar um Framkvæmdastofn- unina hafa ekki rætzt. Reynslan hefur ekki leitt i ljós, að hinir svokölluðu pólitisku eftirlitsmenn, eða kommissarar, hafi misnotað aðstöðu sina á einn eða annan hátt. A.m.k. hefur Gylfa Þ. Gisla- syni vafizt tunga um tönn, þegar hann hefur verið beðinn að nefna dæmi um slikt. Enda er störfum stofnunarinnar hagað svo, að hver einasta lán- veiting er borin undir kjörna stjórn Fram- kvæmdastofnunarinnar til samþykkis. í stjórn- inni eiga sæti bæði fulltrúar rikisstjórnarinnar og stjórnarandstöðunnar. Gagnrýni Gylfa Þ. Gislasonar er þvi marklaus, og einungis sett á svið i von um að geta valdið óróa innan stjórnarliðsins. Hefur málflutningur þessa fyrrverandi ráðherra verið á svo lágu plani, að hann hefur ekki skirrzt við að hlaupa með hráar kjaftasögur upp i ræðustól Alþingis til að reyna að koma höggi á Framkvæmdastofnun- ina. Slikum mönnum er vorkunn, en varla flýtir hegðun af þessu tagi fyrir þvi, að Gylfi setjist i ráðherrastól á ný. Þeim dýrmæta tima Alþingis, sem varið hefur verið til að þvarga um Framkvæmdastofnunina, hefði verið betur varið til annarra hluta. Ólafur Jóhannesson, formaður Framsóknarflokksins, sagði i upphafi umræðna um þetta mál, að merg- ur málsins væri sá, að menn ættu að dæma um stjórnarfyrirkomulag Framkvæmdastofnunar- innar eftir þeirri reynslu, sem fengizt hefði, en ekki eftir spám, sem hafðar voru uppi, áður en Framkvæmdastofnunin tók til starfa. í samræmi við það, og i samræmi við stjórnar- sáttmála núverandi rikisstjórnar, verður innan tiðar lagt fram frumvarp á Alþingi um breyting- ar á lögum um Framkvæmdastofnunina, sem byggt verður á þeirri reynslu, sem fengizt hefur af störfum hennar. ERLENT YFIRLIT Juan Carlos fær vandasamt hlutverk Enginn veit hvað hann ætlast fyrir Juan ('arlos de Borbón í GREIN, sem Jónas Jóns- son skrifaði i sambandi við forsetakosningar, komst hann svo að orði, að ákveðinn mað- ur væri tilvalinn forseti, ef kjósendur hefðu þá hugmynd, að forsetinn ætti að vera sömu hæfileikum og menntun búinn og svissneskur hótelþjónn. Það er ekki ofmælt, að Juan Carlos de Borbón prins, sem verður fyrst um sinn eftir- maður Francos á Spáni, sé öll- um þeim kostum húinn, sem prýtt geta svissneskan hótel- þjón. Hann er myndarlegur maður i sjón og ber sig vel, enda þjálfður i mörgum iþróttum. Hann kann allar umgengnisvenjur út i yztu æs- ar og er vel að sér i tungumál- um, talar t.d. bæði ensku og frönsku. Hann hefur aflað sér mikillar menntunar og þjálfunar til þess að búa sig undir leiðtogastarfið að þessu leyti. Hins vegar eru menn al- veg ófróðir um skoðanir hans og hvernig hann sé liklegur til að reynast, þegar til þess kemur, að hann verður að taka ákvarðanir. Hann hefur forðazt að taka afstöðu til mála eins og frekast hefur verið kostur, eða að láta nokk- uð uppi um það, hvernig hann hyggist stjórna, þegar hann tekur við völdum af Franco. Sumir halda þvi fram, að þetta stafi m.a. af þvi, að hann hafi engar sjálfstæðar hug- myndir i þessum efnum. Aðrir telja þetta merki um klókindi. Prinsinn telji rétt að flika ekki fyrirætlunum sinum fyrir- fram, enda gæti það leitt til þess, að hann væri að óþörfu búinn að afla sér ýmissa óvina, áður en hann hlyti völd- in. ÚR ÞESSU fæst fyrst skor- ið, þegar prinsinn tekur endanlega við völdum af Franco. Enn hefur hann að- eins tekið við völdunum til bráðabirgða. Það þarf ekki mikinn kunnugleika til að fullyrða, að sjaldan hefur ungur og óreyndur maður tekið við erfiðara og flóknara starfi en Juan Carlos, þegar hann sezt endanlega i stól Francos. Hvað sem menn vilja um Franco segja, hefur hann haldið fastar um stjórnvölinn sem einræðisherra en flestir kollegar hans fyrr og siðar. Þvi er næsta erfitt að átta sig á, hvað tekur við eftir fráfall hans. Siðustu stjórnarár hans hafa verið að myndast sundurlausir hópar til hægri og vinstri og i miðiö, sem allir búa sig undir það að hrifsa völdin, þegar Franco fellur frá. Juan Carlos verður að sýna mikla stjórnvizku, ef koma á i veg fyrir að algjör upplausn komi til sögu, þegar Franco fellur frá. Ástandiö i Portúgal er vissulega vis- bending um það. JUAN Carlos Alfonso Victor Maria de Borbón y Bordón fæddist i Rómaborg 5. janúar 1938. Faöir hans er Don Juan, sonur Alfonso konungs, sem afsalaöi sér völdum 1931. Samkvæmt spænskum erfða- venjum er Don Juan nú rétt- borinn til konungserfða á Spáni, þvi að eldri bræður hans hafa forfallazt, og heldur Don Juan fast fram þessum rétti sinum, en Franco ákvað að sniðganga hann og velja heldur son hans til konungs. Astæöan var m.a. sú, að Don Juan gerði tilraun til þess, rétt eftir sfðari heimsstyrjöldina, að komast til valda og steypa Franco af stóli. Það hefur Franco ekki fyrirgefið honum. Arið 1947 voru sett lög á Spáni um endurreisn konungdóms- ins, en Franco heimilað að ákveða, hvenær þau kæmu til framkvæmda og hver ætti að hljóta konungdóminn. Franco ákvað það fyrst 1969, hver ætti að verða konungur eftir sinn dag, en konungdæmið yröi ekki endurreist fyrr en við frá- fall hans. Val hans féll á Juan Carlos. Faöir hans hefur enn ekki samþykkt þessa útnefn- ingu, heldur telur sig hinn réttboma arftaka. Vel getur svo farið, að þetta eigi eftir að valda meiri ágreiningi milli þeirra feðga en þegar er orð- inn. Þótt Franco drægi það til ársins 1969 að tilnefna Juan Carlos sem rikisarfa, hafði hann fengið augastað á honum miklu fyrr. Hann náði sam- komulagi um það við Don Juan 1954, að Juan Carlos héldi áfram námi sinu á Spáni, en fram að þessum tima hafði hann gengið i skóla i Sviss og á ttaliu. Franco hefur lagt áherzlu á, að Juan Carlos fengisem viðtækasta menntun með tilliti til væntanlegs starfs hans. Hann hefur lagt stund á stjórnfræöi, hagfræði, og tungumál við ýmsa háskóla. Hann hefur stundaö nám við herskóla allra þriggja deilda landvarnanna, þ.e. landhers- ins, flughersins og flotans. Yfirleitt hefur Juan Carlos hlotið þann dóm aö vera drjúgur og samvizkusamur námsmaður. Jafnhliða þessu margbreytta námi hefur hann svo stundað iþróttir af miklu kappi. Siöan Franco tilnefndi Juan Carlos sem rikisarfa, hefur hann teflt honum fram i vax- andi mæli við ýms hátiðleg tækifæri, eins og t.d. vigslu mannvirkja. Juan Carlos þyk- ir hafa leyst slik verkefni snoturlega af hendi. Þá hefur hann ferðazt mikið, bæði innanlands og utan. Siðustu misserin hefur hann verið lat- inn fylgjast nákvæmlega með öllum stjórnarathöfnum. Franco hefur bersýnilega haft mætur á honum og viljað búa hann sem bezt undir starf sitt. Juan Carios er lika talinn hafa gætt þess vel að sýna Franco tilhlýðilega virðingu. Sambúð þeirra er sögð hafa verið mjög vinsamleg. Arið 1962 kvæntist Juan Carlos Soffiu, dóttur Páls Grikkjakonungs og Friðrikku drottningar hans. Þau eiga tvær dætur og einn son. Soffia ér sögð ráðrik og skapmikil eins og móðir hennar. Þvi er haldið fram, aö Friörikka hafi haft óheppileg áhrif á mann sinn, og þó einkum á Konstantin son sinn, og eigi hún sinn þátt i þvi, að hann hrökklaðist frá völdum. Af þessum ástæðum hefur Soffia sætt nokkurri gagnrýni, en ekki þykir hafa borið neitt á þvi hingað til, að hún skipti sér af stjórnmálum. Erfitt er að spá þvi, hvort Juan Carlos muni haldast nokkuð betur á völdunum en Konstantin mági hans. Af hálfu vinstri manna hefur ver- ið lýst yfir þvi, að þeir muni ekki viðurkenna endurreisn konungdæmisins, nema það veröi samþykkt i þjóöarat- kvæðagreiðslu. Bæði leiötogar jafnaðarmanna, og kommúnista hafa lýst yfir þvi, að þeir muni sætta sig viö slik úrslit. í augum þeirra eru það litil meðmæli með Juan Carlos, að hann hlýtur vald sitt úr hendi Francos. Senni- lega biöa þeir þó átekta, áður en þeir snúast harkalega gegn honum. Það mun hins vegar valda honum gagnrýni meðal hægri manna, ef hann reynir eitthvað að vingast við vinstri öflin. Juan Carlos verður að þræða vandrataða leið, ef hon- um á að haldast á völdunum til lengdar. Þ.Þ. — a.þ.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.