Tíminn - 11.11.1975, Síða 2
2
TÍMINN
Þriðjudagur 11. nóvember 1975.
\
25
20
15
10
6 -
■#=!
163 H17 506 505 409
SAMR5MT GAGNFRÆÐAPRdF 1975
Dreifing meÖaleinkunna
Sanrtals luku profi
2185 nemendur.
150
•inkumir
Ma&altal MÖalaiiOajnna 4,87.
Síðustu gagnfræðingamir
útskrifast vorið 1977
INNTÖKUSKILYRÐI i mennta-
skóla, verzlunarskóla eða hlið-
stæðar námsbrautir I öðrum
skólum og framhaldsdeildir
gagnfræðaskóla verða sem hér
greinir:
Menntaskólar, verzlunarskól-
ar og hliðstæðar námsbrautir i
öðrum skólum:
a) Meðaleinkunn i samræmd-
um greinum verði 5 eða hærri
b) Meðaleinkunn i skólaprófs-
greinum verði 5 eða hærri
c) Meðaltal meðaleinkunna (i
a- og b-lið) verði 6 eða hærra.
Framhaldsdeildir gagnfræða-
skóla
a) Meðaleinkunn i samræmd-
um greinum verði 4,5 eða hærri
b) Meðaleinkunn i skólaprófs-
greinum verði 4,5 eða hærri
c) Meðaltal meðaleinkunna (i
a- og b-lið) verði 5,5 eða hærra.
Reglur þessar gilda um þá
nemendur, sem taka landspróf
miðskóla og samræmt gagn-
fræðapróf vorið 1976.
Sjúkra- og endurtökupróf i
samræmdum greinum fara
fram i júnimánuði 1976, eins og
verið hefur undanfarin ár, og
verður það i siðasta sinn sem
endurtökupróí af þessu tagi
verða haldin.
Þá er áætlað að 10. bekkur
falli niður frá og með skólaárinu
1977—78, og útskrifast þvi sið-
ustu gagnfræðingarnir með
sama hætti og tiðkazt hefur vor-
ið 1977.
Landspróf miðskóla og sam-
ræmt gagnfræðapróf vorið 1975
voru haldin með hefðbundnum
hætti i mai sl. vor. Arangur varð
svipaður og undanfarin ár.
Samræmd próf i islenzku II
(málfræði, setningafr., hljóðfr.,
stafsetningu og greinamerkja-
setn.), dönsku, ensku og stærð-
fræði voru þau sömu á lands-
prófi og gagnfræðaprófi, og
voru úrlausnir metnar á sama
hátt i báðum prófunum.
Auk þess voru haldin sam-
ræmd próf i sögu, náttúrufræði
og eðlisfræði i landsprófsdeild-
um.
Einstakir skólar sáu hins veg-
ar um próf i islenzku I (ritgerð,
bókmenntum og bragfræði) og
landafræði.
Linuritin hér tii hliðar sýna
dreifingu meðaleinkunna nem-
enda.
Fjögur umferðarslys
Gsal-Reykjavik — Fjögur um-
ferðarslys yrðu á Stór-Reykja-
vfkursvæðinu um helgina, en eng-
in alvarleg. A laugardag varð
fullorðinn maður fyrir bil á Borg-
artúni, og mun hann hafa fót-
brotnað. Hann var lagður inn á
Landakotspitala. Um kl. 17 varö
lOára telpa fyrirbil á Nesvegi, cn
hun fékk að fara heim til sin að
rannsókn lokinni.
A sunnudaginn varð bilvelta á
Hafnarfjarðarvegi, og hafði öku-
maðurinn, sem var stúlka, misst
stjórn á bilnum vegna hálku. Hún
hlaut óveruleg meiðsl. A sunnu-
dag varð fullorðin kona fyrir bil á
gatnamótum Dunhaga og Hjarð-
arhaga, en hún meiddistlitið sem
ekkert.
,Nafnlausi lið-
hlaupinn'
reyndist vera
Þjóðverji
Gsal-Reykjavik— Maðurinn, sem
um nokkurt skeið hefur gist
fangageymslu lögreglunnar á
Keflavikurflugvelli og neitað að
segja til nafns, en sagzt vera
bandariskur liðhlaupi úr Vietnam
— er nú farinn til sins heima. Það
losnaði um málband hans hjá út-
lendingaeftirlitinu og i Ijós kom,
að hann var Willy Penker, 25 ára,
að aldri. Willy er Þjóöverji og fór
utan á vegum v-þýzka sendiráðs-
ins.
Dómkvaddir menn meti
Happdrætti Hóskólans:
Níu milliónir á nr. 48009
skemmdirnar á Eyrabakka
t GÆR var dregið i 11. flokki
Happdrættis Háskóla Islands.
Dregnir voru 11,475 vinningar að
fjárhæð 103,500,000 krónur.
Hæsti vinningurinn, niu milljón
króna vinningar, komu á númer
48009. Trompmiðinn og tveir
miðar til viðbótar voru seldir i
AÐALUMBOÐINU i Tjarnargötu
4 og hinir tveir miðarnir voru
seldir i umboðinu á ÞINGEYRI.
500,000 krónur komu á númer
4074. Trompmiðinn og tveir miðar
til viðbótar voru seldir hjá Verzl-
un Valdimars Long i HAFNAR-
FIRÐI. Sá fjórði á ISAFIRÐI og
fimmti miðinn á BLÖNDUÓSI.
200,000 krónur komu á númer
29279. Trompmiðinn var seldur i
GRINDAVtK en hinir miðarnir af
þessu númeri voru seldir á
SUÐUREYRI.
50,000 krónur:
323 — 605 — 1036 — 7347 —
8092 — 9010 — 9658 — 10004 —
10694 — 11643 — 11712 — 11930 —
12726 — 12784 — 14810 — 16359 —
20638 — 27295 — 28765 — 28832 —
31227 — 34940 — 36127 — 36856 —
36858 — 38736 — 40752 — 41132 —
42603 — 42836 — 46597 — 47189 —
48008 — 48010 — 50660 — 51332 —
52317 — 53891 — 57460 — 59111 —
59122 — 59140.
Mó-Reykjavik.— Það, sem nú er
mest aðkallandi á Eyrarbakka er
að fá niðurstöðu um, hvernig
hægt er að endurbyggja vegg
frystihússins, sem brotnaði i ó-
veðrinu, og einnig að finna leiðir
til að fjármagna kaup á nýjum
b'átum i stað þeirra, sem fórust,
sagði Þdr Hagalin, sveitarstjóri
á Eyrarbakka, I viðtali við Tim-
ann i gær.
A fundi með þingmönnum
Suðurlands á föstudaginn var,
var ákveðið að óska eftir þvi, að
dómkvaddir menn yrðu fengnir
til að meta eigna- og mannvirkja-
tjón, áfall atvinnulifsins og þá
fjármagnsþörf, sem þyrfti til
endurreisnar. Er vonazt til, að
þessir menn verði skipaðir i dag.
Að undanförnu hafa verið á
Eyrarbakka menn frá Viðlaga-
tryggingu að meta þær skemmd-
ir, sem tryggingin kemur til með
að bæta.
Þá sagði Þór, að ljóst væri, að i
næstu framtið yrði að gera veru-
legt átak til að bæta hafnarað-
stöðu á Eyrarbakka. Það væri
ekki hægt fyrir menn þar að búa
sifellt við það að bátar þeirra
skemmdust i höfninni. Siðastliðin
tvö og hálft ár hefði t.d. einn bát-
ur frá Eyrarbakka verið tvö ár i
slipp vegna tjóns, sem hann hefði
orðið fyrir i höfninni.
Slikt væri alls ekki hægt að búa
við, og einnig yrði að fá brú yfir
ölfusárósa til að útgerð stærri
skipa gæti hafizt frá Eyrarbakka,
með hafnaraðstöðu i Þorlákshöfn.
Með brú þar styttist leiðin milli
Eyrarbakka og Þorlákshafnar
úr 50 km i 15.
Portúgal er annað bezta
viðskiptaland íslendinga
Áhugi er á frekari viðskiptum landanna
Oó-Reykjavik.Portúgal er ann-
að bezta viðskiptaland Islend-
inga. A þessu ári munu Portú-
galir kaupa af okkur vörur fyrir
um 6 milljarða króna, en við
kaupum af þeim fyrir aðeins um
300 millj. kr. Bezta viðskipta-
land Islendinga eru Bandarikin,
og i þriðja sæti eru Sovétrikin.
A tímabilinu janúar- septem-
ber var flutt út til Portúgals
fyrir 5.584 millj. kr., en innflutn-
ingur þaðan nam 287 millj. kr.
Má gera ráð fyrir að i árslok
verði tölurnar svipaðar og
greinir hér i upphaíi.
A fyrrgreindu timabili nam
útflutningur til Bandarikjanna
8.773 millj. kr., en innflutningur
þaðan 4.389 millj. kr. 1 árslok
munu þessar tölur hækka nokk-
uð, þannig að við seljum fyrir 10
milljarða kr. til Bandarikjanna
i ár og flytjum inn þaðan fyrir
rúml. 5 milljarða kr.
Útflutningur til Sovétrikjanna
nam i janúar-september 4.095
millj. kr., en innflutningur það-
an 5.172 millj. kr. 1 árslok eru
Enn finnst dautt
fé í Ölfusi
PÞ—Sandhóli— Ekki eru öll kurl
komin til grafar enn, og talið að
ekki hafi enn fundizt allt það fé,
sem fórst i sjávarflóðinu i ölfusi á
dögunum. Þegar er vitað að um
20-30 kindur hafa farizt frá félags-
búinu Króki og 18 kindur frá Þor-
láki Kolbeinssyni á Þurá. Þá
vantar fé frá Arnarbæli og Þór-
oddsstöðum, eins og áður hefur
komið fram i fréttum hér i blað-
inu.
Allt er á kafi i vatni ennþá á
þessum slóðum og ómögulegt
fyrir bændur að vita, hve miklu fé
þeir hafa tapað, fyrr en þeir taka
það á gjöf i vetur.
tölurnar áætlaðar þannig, að
Sovétrikin kaupa af okkur fyrir
5 milljarða króna á árinu, en við
kaupum af þeim fyrir 7
milljarða kr.
Þessar upplýsingar komu
fram á fundi, sem ólafur Jó-
hannesson viðskiptaráðherra
hélt með blaðamönnum i gær.
Satt bezt aö segja kom það
mönnum talsvert á óvart, hve
mikilvægt viðskiptaland Portú-
gal er okkur. Þeir kaupa nær
eingöngu saltfisk af Islending-
um, og greiða fyrir hann i hörð-
um gjaldeyri, en innflutningur
þaðan er óverulegur, miðað við
kaup þeirra á okkar afurðum.
Það, sem Islendingar kaupa frá
Portúgal, eru veiðarfæri, vefn-
aðarvara, vin og ávextir.
A ráðherrafundi EFTA, sem
haldinn var i Genf i siðustu viku,
notuðu fulltrúar landanna tæki-
færið til að ræða saman um
frekari verzlunarviðskipti. Is-
lenzku fulltrúarnir létu i ljós á-
huga á að liðka fyrir innflutn-
ingi portúgalskra vara eftir
þeim reglum, sem hér gilda.
Portúgalirnir töldu, að þeir
gætu aukið útflutning til Islands
á landbúnaðarafurðum, og
höfðu aðallega áhuga á að selja
okkur vin, grænmeti, kartöflur
og ávexti.
Nautakjötið á nýja
lága verðinu í dag
FRA OG MEÐ deginum i dag
vcröa verulegar veröbreytingar á
nautgripa- og kindakjöti, eins og
frá hefur verið sagt i fréttum
Timans. Kiiulakjöt hækkar i veröi
um 4—6%, en nautgripakjöt lækk-
ar allt aö 38%, miðað við heild-
söluverð.
Þessar vcrðbreytingar hafa
verið samþykktar af ríkisstjórn-
inni og aðilum i sex-manna-
nefndinni, þannig að niður-
greiðslur vcrða teknar upp á
nautgripakjöti, en lækkaðar á
kindakjöti að sama skapi. Heild-
arupphæö niðurgreiðslna úr rikis-
sjóði breytist ekki. Nokkrar til-
færslur hafa vcrið gerðar i verð-
flokkuin nautgripakjöts, þeim
hefur verið fækkað úr 10 i 8.
Holdanautakjöt var áður i I. og
II. verðflokki, en nú er það allt i 1.
verðflokki. Meðal heildsöluverð
á holdanautakjöti I heilum og
hálfum skrokkum var áður kr.
480, en er nú 317 kr. á kg., lækkun-
in nemur 34%. Smásöluverð á
þessu kjöti miðað við heila og
hálfa skrokka eru nú 418 kr. hvert
kg: Verðið i 2. verðflokki i heilum
og hálfum skrokkum eru 348 kr. I
smásölu, en 264 kr. hvert kg. i
heildsölu. Sambærilegt heildsölu-
yerð áður var kr. 430 á kg. Lækk-
unin nemur um 38%.
Skráðer i fyrsta sinn hjá Fram-
leiðsluráði smásöluverð á naut-
gripakjöti, hliðstætt og gert hefur
verið varðandi kindakjöt. Sem
dæmi má nefna að steik úr mið-
læri i II. verðflokki kostar nú kr.
579. Gullass kostar kr' 1200 kr.
hvert kg. og betri flokkur af hakki
kostar 768 kr. hvert kg.
Samkvæmt verðlagsgrundvelli
landbúnaðarafurða er gert ráð
fyrir að framleiðendur fái kr. 349
fyrir hvert kg af kjöti, sem fer i
III verðflokk, heildsöluverð á
sambærilegu kjöti, sem er nú i II.
verðflokki er 264 kr., niður-
greiðsla á hvert kg eru kr. 160.
Niðurgreiðslur eru mismunandi
miklar, lægst i 8. verðflokki kr. 50
á kg., en i 1. verðflokki kr. 178 -
á kg.
Nokkur verðhækkun er á kinda-
kjöti vegna þessara ráðstafana.
Hryggur hækkar úr 486 kr. hvert
kg. i 519 kr. Kóteiettúr úr 533 kr. i
561 kr. Súpukjöt kostaði áður 424
kr. en nú kr. 451. hækkunin nemur
6,4%.
Innbrot á
Króknum
Gó-Sauðárkróki. Brotizt var
inn i verzlunina Vöku á
Sauðárkróki aðfaranótt
laugardags. Ekki er vitað til
að neinu hafi verið stolið i
verzluninni, en þar voru eng-
ir peningar geymdir. Hins
vegar tókst þjófunum að
opna bilskúr, sem er við
verzlunina, og stela þar bil.
Billinn fannst mikið
skemmdur niðri á hafnar-
garði, og úr honum hafði
verið stolið myndavél, sem
að verðmæti var ekki undir
100 þúsundum króna. Ekki
hefur hafzt upp á þjófunum,
en málið er i rannsókn.