Tíminn - 17.01.1976, Blaðsíða 11
Laugardagur 17. janúar 1976.
TÍMINN
11
Umsjón: SigmundLr O. Steinarsson
KELLY Á
SÖLULISTA
★ Peter Cormack fró keppni í 2 mónuði
★ Bobby Charlton tekur fram skóna
Lundúnaliðið Arsenal hefur sett skozka landsliðs-
manninn Eddie Kelly á sölulista — félagið hefur
látið i ljós, að það vilji fá rúmlega 100 þús. pund
fyrir hann.
Kelly, sem var fyrirliði Ar-
senal-liðsins i byrjun keppnis-
timabilsins, hefur gengið erfið-
lega að halda sæti sinu i Arsenal-
liðinu að undanförnu. — Ég hef
engan áhuga á að fara frá
Lundúnum, sagði Eddie Kelly,
sem er uppalinn hjá Arsenal á
Highbury.
# PETER CORMACK, hinn
snjalli leikmaður Liverpool, er
kominn á spitala, þar sem hann
verður skorinn upp við brjósklosi
i hné. Cormack verður þvi frá
keppni næstu tvo mánuðina.
Q ALAN BALL, fyrirliði Ar-
senal og enska landsliðsins, var i
sviðsljósinu i vikunni, þegar
viðtal var haft við hann i
sjónvarpsþætti. Þar sagði hann,
að fyrrverandi félagar hans i
landsliðinu væru fifl.
# RODNEY MARSH er
komirin til Bandarikjanna, þar
sem hann mun leika með liðinu
Tampa Bay Rowdies frá Ohio
næstu fjögur árin.
# SUNDERLAND hefur keypt
Roy Greenwoodfrá Hull fyrir 140
þús. pund. Greenwood þessi er
mikill markaskorari — hefur
skorað 9 deildarmörk fyrir Hull á
keppnistimabilinu. Þá má geta
þess, að Sunderland hefur hug á
að selja þá Vic Halom og Billy
Hughes.
# Miklar likur eru á þvi, að
Sheffield United selji enska
landsliðsmanninn Tony Currie á
næstunni — þá væntanlega fyrir
350 þús. pund. Arsenal og Everton
eru tilbúin til að greiða þessa
upphæð fyrir Currie, og vitað er,
að Leeds-liðið hefur lengi haft
áhuga á Currie.
#BOBBY CHARLTON hefur nú
tekið fram skóna — þessi fyrrum
Manchester United-kappi og
enska landsliðsins hefur ákveðið
að leika með irska liðinu Water-
ford út keppnistimabilið.
Charlton mun áfram búa á Eng-
landi, en hann mun bregða sér
yfir til frlands i hverri viku til að
leika með Waterford. Ekki er
vitað hvað Charlton fær mikla
peninga fyrir þetta — en það
hlýtur að vera dágóð upphæð.
# GEOFF HURST, sem lék
með Bobby Charlton i HM-
keppninni 1966, og skoraði þá
þrjú mörk — ,,hat-trick” i úrslita-
leiknum gegn V-Þýzkalandi á
Wembley, hefur einnig sýnt
áhuga á að leika á frlandi. Hurst,
sem leikur nú með W.B.A. hefur
fengið tilboð frá Cork Hibernians
EDDIE KELLY....... kaupir eitt-
hvert Lundúnalið hann?
um, að koma og leika með liðinu.
Hurst sagðist koma til Cork ef
hann fengi 150 pund fyrir hvern
leik, sem hann léki með þvi. Ósk
Hurst er nú i athugun.
# GEORGE BEST hefur
einnig verið á ferðinni i Irlandi —
hann er gestaleikmaður hjá Cork
Celtic, sem mætir Bobby
Charlton og félögum hans i
Waterford eftir nokkra daga.
Best og Charlton verða þá mót-
herjar. -SOS.
VIÐ ERUAA
ÁKVEÐNIR í AÐ
BERJA Á
ÍR-INGUM
— segir Sigbjörn Gunnarsson, liðsstjóri KA
— Við erum ákveðnir i að berja
á IR-ingum, segir Sigbjörn
Gunnarsson liðsstjóri KA-liðsins,
þegar liðin mætast i hinum
þýðingarmikla leik i annarrar
deildar keppninni i handknatt-
leik.
Þessi tvö topplið deildarinnar
mætasti Laugardalshöllinni i dag
klukkan sex og má búast við
fjörugum og spennandi leik. KA-
liðið þarf að leggja IR-liðið að
velli til að eiga möguleika á að
vera áfram með i baráttunni i
deildinni.
1R sigraði KA þegar liðin mætt-
ust á Akureyri i vetur — nú er
stóra spurningin: Endurtaka IR-
ingar sigurinn eða tekst leik-
mönnum KA að berja á þeim?
„Marteinn myndi
styrkja Dundee-
liðið mikið"
— segir Jim McLean, framkvæmdastjóri Dundee United, sem
hefur boðið AAarteini að skrifa undir atvinnumannasamning
— Marteinn Geirsson er mjög
góður leikmaður. Hann myndi
styrkja United-liðið mjög mikið
sagði Jim McLean, fram-
kvæmdastjóri Dundee United,
sem hefur boðið Marteini að
gerast atvinnumaður I Tannadice
— herbúðum Dundee United.
Skozku blöðin hafa skrifað
Fjör
í Firð-
inum
Það verður örugglega mikil
stemmning og fjör i Firðinum á
sunnudagskvöldið kl. 8, þegar þar
verða leiknir tveir stórleikir i 1.
deiidarkeppninni i handknattleik.
Þá mætast Valur og Haukar og
siðan Vikingur og FH.
i dag verða leiknir tveirleikir i
deildinni i Laugardalshöllinni kl.
3.30. Fram mætir Gróttu og Ar-
mann leikur gegn Þrótti.
ICELANDIC FOOTBALLER,
Martinn Geirsson, and his
wife, Hugrun, in Dundce
wh.ere he is to have trials for
Dundee United.
mikið um komu Marteins til Skot-
lands — hann hefur verið
myndaður bak og fyrir og hafa
birtzt margar myndir af honum i
blöðum i Skotlandi. Marteinn
dvelst hjá United-liðinu þar sem
hann æfir að kappi með þvi.
tþróttasiðan hefur frétt að Mar-
teirin sé ekki allt of spenntur fyrir
þvi tilboði, sem hann fékk. Það er
mjög óliklegt að Marteinn taki
boði United-liðsins. Marteinn
sagði áður en hann hélt til Skot-
lands, að hann væri ekkert hrifinn
af þvi að leika með Dundee-liðinu.
— Það er allt i lagi, að ræða við
forráðamenn félagsins, sagði
Marteinn þá.
Eins og fyrr segir, þá hefur
koma Marteins til Skotlands
vakið athygli, og er sagt, að Jim
McLean, hafi ekki verið hrifinn af
þvi. Hann er hræddur um að
önnur félög „steli” Marteini frá
honum. Það kom fram i skozka
blaðinu „The Scotsman”, að
stórliðin Celtic, Hibernian og
Glasgow Rangers hafi áhuga á aö
sjá Marteinn leika — og að þau
mvndu strax senda „njósnara ” til
Dundee, ef Marteinn léki æfinga-
leik með Dundee United.
Hér á myndinni til hliðar, sést
Marteinn ásamt konu sinni, Hug-
rúnu Pétursdóttur, þegar þau
komu til Tannadice. -SOS
„Ákveðnir
að leggja
Stúdenta að velli''
— segir Kolbeinn Pólsson, fyrirliði
KR-liðsins, sem leikur sinn fyrsta
heimaleík ó morgun
— Við erum ákveðnir i að leggja
stúdenta að velli og vera áfram
með i baráttunni um tslands-
meistaratitilinn. Leikurinn hefur
mikla þýðingu fyrir okkur, þvi að
ef við töpum honum, erum við
STADAN
Staðan er nú þessi i 1. deildar-
keppninn: i körfuknattleik:
Armann 5 5 0 496-416 10
ÍR 7 5 2 616-526 10
ÍS 6 4 2 478-472 8
KR 5 3 2 438-379 6
U’MFN 6 3 3 482-473 6
Valur 6 2 4 489-529 4
Fram 5 1 4 350-397 •»
Snæfell 6 0 6 378-544 0
Stigahæstu menn:
Kristinn Jörundsson, ÍR.....156
Kristján Agústss., Snæf.....143
Jinimu Rogers, Arm..........137
Kolbeinn Kristinss., IR.....130
Carter „Trukkur”,KR.........129
Bjarni Gunnar, Stúd.........121
húnir að missa af lestinni. sagði
Kolbeinn Pálsson. fyrirliði og
þjálfari KR-liðsins i körfuknatt-
leik. sem leikur sinn fyrsta
heimaleik i nýju íþróttahúsi
llagaskólans á morgun kl. 1.30.
Curtis „Trukkur" Carter leikur
með KR-liðinu. en hann var i
leikbanni, þegar KR-ingar töpuðu
fyrir Njarðvikingum um sl. helgi.
Þri'r aðrir leikir verða leiknir i 1.
deildarkeppninni urn helgina.
Valsmenn mæta Njarðvikingum
á Seltjarnarnesi i dag kl. 2 og
strax á eftir leika Ármenningar
gegn Fram-liðinu. Armenningar
verða svoaftur á ferðinni á morg-
un. þegar þeir bregða sér upp á
Skaga og leika gegn Snæfelling-
um. -SOS.
KOLBEINN PALSSON... og
félagar hans verða I sviðsljósinu
um helgina. Þá mæta þeir
stúdentum, sem hafa alltaf verið
KR-ingum erfiðir.