Tíminn - 17.01.1976, Blaðsíða 16
(
Laugardagur 17. janúar 1976.
METS&UBÆKim
Á ENSKU I
VASABROTI t
fyrirgóöan mat
$ KJÖTIÐNAÐARSTÖÐ SAMBANDSINS
Síuvindlingar auka stórlega
líkur ó hjartasjúkdómum
Reuter/London. Brezkt visinda-
timarit birti frétt þess efnis i gær,
að þeim reykingamönnum, sem
reyktu svokallaða „filter”vind-
iinga væri hættara við þvi að fá
hjartasjúkdóma, heldur en þeim,
Pravda:
Harðarór-
ásirá Kína
Reuter/Moskva. Pravda, hið
opinbera máigagn sovézku
stjórnarinnar, réöist i gær
harkalega á kínverska
leiðtoga undir forystu Maos,
sem blaðið sagði að hefði náð
völdum i landinu með ofbeldi.
Lýsti Pravda þeirri von sinni,
að sannir kinverskir föður-
landsvinir steyptu núverandi
leiðtogum i Kina af stóli.
Loks fór
aðsnjóa í
Innsbruck
Reuter/Innsbruck. Undirbún-
ingsnefnd vetrarolympiuleik-
anna, scm fram fara i Inns-
bruck i Austurriki, glöddust
ákaflega i gær, er snjóa tók
þar annan daginn I röð. t Inns-
bruck er nú jafnfallinn 20 til 30
cm snjór, og dugir hann vel til
að hægt sé að halda þar hina
fyrirhugðu leika. Illa horfði
hins vegar um tima, þvi að
ekkert snjóaði f Innsbruck, og
var þvi gripið til þcss ráðs að
flytja snjó þangað á vörubii-
um.
Mesta
sjótjón
sögunnar
Reuter/Osló. Eigendur risafiutn-
ingaskipsins Berge Istra, sem
ekkert hefur spurzt til frá þvf 29.
des. sl. hafa gefið upp alla von um
björgun þess.
Skipið var 227,556 tonna og á þvi
32 manna áhöfn. Siðast spurðist
til þess er það var á siglingu um
Kyrrahafið, á leið til Japan frá
Braziliu.
Forstjóri skipaútgerðarinnar,
sem gerir skipið út, sagði i gær,
að skipið væri tryggt fyrir 27
milljónir dollara, og þvi væri hér
um að ræða mesta skipsskaða
allra tima.
sem reykja venjulega vindlinga,
þ.e.a.s. án filters. Hins vegar er
það ekki dregið i efa, að siuvind-
lingar dragi úr lfkum á þvi að
reykingamenn fái lungnakrabba-
mein.
Sian dregur úr skaðlegum
áhrifum vissra efna i vindlingun-
um, en eykur hins vegar stórlega
gasmyndun, en gasið getur svo
aftur valdið hjartasjúkdómum
hjá viðkomandi reykingamönn-
um.
Það er dr Nicolas Wald, sem
stendur fyrir rannsóknum þeim,
sem leitt hafa framangreind við-
horf i ljós. Eru niðurstöður til-
rauna hans byggðar á saman-
burði á söluaukningu siuvindlinga
siðustu 20 árin og fjölgun hjarta-
sjúkdómstilfella á sama timabili.
Dr. Wald telur liklegt, að 3 af
hverjum fjórum reykingarmönn-
um i Bretlandi reyki nú siu-
vindlinga. Þetta þýðir, að hinn
venjulegi reykingamaður fær nú
minna af tjöru i lungun, en hins
vegar eykst stórlega magn mon-
oxide gass, með þeim afleiðing-
um, að likaminn verður ber-
skjaldaðri fyrir hjartasjúkdóm-
um heldur en ella.
í venjulegum vindlingum án siu
dregst súrefni inn i vindlinginn
gegnum gljúpan pappirinn, en
svo er ekki i siuvindlingum. Þar
er pappirinn ekki eins gljúpur, en
það aftur leiðir til aukinnar og
hraðari myndunar mon-
oxide-gassins.
Anker Jörgensen:
Sósíaldemókratar
dragi úr
við kommúnista
Reuter/Kaupmannahöfn. Anker
Jörgensen, forsætisráðherra
Danmerkur, lýsti þvi yfir i
viðtali við danska rikisútvarpið
i gær, að það væri skoðun sin, að
sósialdemókratar i Evrópu ættu
að hætta samvinnu og samstarfi
við þá kommúnistaflokka i
Evrópu, sem fylgdu Moskvu-
stjórn að málum.
Jörgensen verður gestgjafinn
á fundi leiðtoga evrópskra
sósialdemókratiskra flokka.
Hann sagði i útvarpsviðtalinu,
að greina bæri á milli þeirra
kommúnista, sem fylgdu
Moskvustjórn að málum og
hinna, sem gerðu það ekki. „Við
megum ekki gleyma þvi, að það
eru margs konar kommúnista-
flokkar starfandi i Evrópu,”
sagði hann.
Jörgensen vildi ekki útiloka
samstarf við þá kommúnista-
flokka, sem ekki fylgdu
Moskvustjórn að málum, en
kvaðst I raun litt hlynntur slik-
um hugmyndum.
Aukin samskipti
sósialdemókrata og
kommúnista i Evrópu verður
helzta umræðurefnið á fundi
sósialdemókrataleiðtoganna, og
mun franski sósialdemókratinn
Francois Mitterand hefja
umræðurnar.
Enn streyma flóttamenn
fró Angola til S.-Afríku
Reuter/Walvis-Bay, Suðvestur-
Afriku. 34 skipsfarmar af
flóttamönnum frá Angola eru á
leiðinni til Walvis flóa i Suður-
Afriku til viðbótar þeim 2,700
flóttamönnum, sem þangað komu
i fyrradag, en neitað var um land-
gönguleyfi af hálfu suður-afriskra
yfirvalda.
Flóttamennirnir 2,700 komu á
24 skipum og bátum til Suður-
Afriku. Búizt er við, að þeir, sem
nú eru á leiðinni verði komnir til
Suður-Afriku á mánudaginn. Þeir
koma frá Benguela, að þvi er
hafnaryfirvöld þar skýrðu frá.
Þeir, sem komu frá
Mocamedes i fyrradag, segja, að
nú geysi þar harðir bardagar
milli FNLA og UNITA, sem
barizt hafa saman gegn MPLA,
Portúgaískir ræðismenn gengu
um á meðal flóttamannanna, sem
komu i fyrradag, og völdu þá úr,
sem máttu ganga i land. Hætta er
á að sjúkdómar breiðist út meðal
flóttamannanna vegna lélegrar
hreinlætisaðstöðu þeirra.
Sækir stjórn S.-Afríku
brótt um aðild að OAU?
Reuter/Jóhannesarborg.
Áreiðanlegar fregnir frá Jóhann-
esarborg herma, að stjórn Suð-
ur-Afriku ihugi það nú af mikilli
37 kg. af hassi
fundust á pakist-
önskum herforingjum
Reuter/Norrköping, Sviþjóð.
Sænska lögreglan tók 20 foringja i
pakistanska hernum til yfir-
heyrslu i gær, eftir að sænskir
toliverðir fundu 37 kg af hassi um
borð I c-130 Hercules-flutninga-
fiugvéi, sem Pakistanirnir komu
á til Sviþjóðar. Það voru hundar
lögregiunnar, sem fundu hassið i
fórum mannanna, á flugvellinum
i Nörrköping.
Pakistanirnir eru i Sviþjöð
þeirra erinda að sækja varahluti i
46 Saab-vélar, sem nýlega voru
keyptar frá Sviþjóð. Lögreglan
telur, að þau 37 kg sem fundust i
gær, séu aðeins hluti þess magns,
sem i vélinni sé að finna.
Heimildirherma, að lögreglan i
Sviþjóð sé þess reiðubúin að taka
vélina úr umferð um stundarsak-
ir til þess að geta grandskoðað
hana i þessu tilliti. Þrir Pakistan-
ir, sem búa I Sviþjóð eru grunaðir
um að vera við tnál þetta riðnir,
og að hafa ætlað að veita eitur-
lyfjunum viðtöku, og sjá um
dreifingu þeirra.
Pakistanska sendiráðið i Stokk-
hólmi hefur opinberlega krafizt
þess, að foringjarnir 20 verði
látnir lausir. Fregnir herma, að
einn foringjanna sé mjög hátt-
settur, en lögreglan hefur ekki
viljað gefa upp stöðuheiti og nöfn
mannanna.
Óstaðfestar fregnir herma, að
vélin hafi haft viðkomu á Möltu
og i París, enda fannst mikið
magn af stereohljómflutnings-
tækjum i henni við fyrstu leit.
alvöru að sækja um aðild að
Einingarsamtökum Afrikurikja
OAU. í fréttum frá Suður-Afrfku
segir, að stjórnin geri sér grein
fyrir þvi, að umsókn hennar um
aðild verði hugsanlega hafnað,
vegna stefnu hennar i kynþátta-
málum, en ætli engu að siður að
hætta á og sækja um aðiid, þar
sem stjórn iandsins telji sig hafa
márgt til málanna að ieggja á
vettvangi OAU.
Það mun áiit stjórnar
Suður-Afriku, að hinn misheppn-
aði fundur OAU i Addis Ababa um
helgina, þar sem rætt var um
Angola, auki Hkurnar á þvi að að-
ild þeirra verði samþykkt.
McGovern heimsækir
S.- og N.-Vietnam
Reuter/Saigon. Bandariski
öidungadeiidarþingmaðurinn
George McGovern, sem var
ákafur andstæðingur ihlutunar
Bandarikjanna I strfðið i Viet-
nam á sinum tima, lauk seint i
gærkvöldi 24 klukkustunda
heimsókn sinni til Saigon. Hann
átti m.a. viðræður við Huynh
Tan Phat, forseta bráðabirgða-
byltingarstjórnarinnar I
Suður-Vietnam.
McGovern er formaður Suð-
austur-Asiunefndar öidunga-
deildar Bandarikjaþings. Frá
Saigon hélt hann til Hanoi,
höfuðborgar Norður-Vietnam. í
Saigon skoðaði þingmaðurinn
margar opinberar stofnanir og
sjúkrahús. Þetta er i annað
skiptið sem hann kemur tii Sai-
gon, fyrst kom hann þangað I
september 1971.
Spitzbergen:
Norðmenn
á móti
eigin
konum
Rússanna
Reuter/Osló. Knut Frydeniund,
utanrikisráðherra Noregs, mót-
mælti formlega við sovézku
stjórnina i gær ólöglegri dvöl
rússneskra kvenna á hinu aiþjóð-
iega landsvæði Spitzbergen.
Utanrikisráðherrann kvaddi
Smirnov, sendifulltrúa sovézka
sendiráðsins 1 Osló á fund sinn i
gær og skýrði fyrir honum álit
stjórnar sinnar á máli þessu.
Hinn 23. desember sl. kom mik-
ill fjöldi sovézkra kvenna tii
Spitzbergen til aðdvelja þar með
eiginmönnum sinum, en þetta
telja Norðmenn ólöglegt fram-
ferði, sem brjóti gegn Parisar-
sáttmálanum um Spitzbergen frá
1920, en þá var fullveidi Norð-
manna yfir eyjunni viðurkennt á
alþjóða vettvangi. Norðmenn
segja, að samkv. samningnum
megi aðeins yfirmaður Sovét-
mannanna hafa eiginkonu sina
hjá sér, en aðrir ekki.
í eftir
talin
hverfi
Víðimelur
Ljósheimar
Hóteigsvegur
Tunguvegur
Símar: 1-23-23 og
26-500