Tíminn - 24.01.1976, Side 1
------—--------
Leigu f lug—Neyða rf lua
HVERTSEM ER
HVENÆR SEM ER
FLUGSTÖÐIN HF
Símar 27122-11422
ÆNGIR”
Aætlunarstaðir:
Blönduós — Sigiuf jörður
Búðardalur — Reykhólar
Flateyri — Bíldudalur
Gjögur — Hólmavík
Hvammstangi — Stykkis-
hólmur—Rif Súgandafj.
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Simar:
2-60-60 &
2-60-66
leiguflug um
$2
Brezka ríkisstjórnin
kallar togaraflotann
út fyrir 200 mílurnar
— „rafmagnað andrúmsloft" á miðunum í gær,
þar sem togaraskipstjórarnir neita að hlýða
Gsal-Reykjavik. —- Brezk
stjórnvöld skipuðu i gærdag
brezku togurunum við íslands-
strendur að hlýða fyrirmælum
skipherra islenzku varðskip-
anna og sigla út fyrir 200 milna
mörkin. Enn fremur komu boð
frá brezkum stjórnvöldum til
brezku eftirlitsskipanna, um að
aðhafast ekkert. Brezku togara-
skipstjórarnir neituðu þó að
verða við þessum tilmælum frá
Bretlandi og fóru hvergi.' Af
þessum sökum hefur „and-
rúmsloftið verið rafmagnað” á
miðunum i gærdag, eins og tals-
maður Landhelgisgæzlunnar
orðaði það i samtali við Timann
i gær.
Þegar siðast fréttist i gær-
kvöldi, hafði ekki komið til
neinna átaka milli varðskipa og
brezkra togara, en að sögn
Landhelgisgæzlunnar verður
reynt að klippa á togvira brezku
togaranna, neiti þeir að hlýða
fyrirskipunum skipherra varð-
skipanna.
LANDHELGISVIÐRÆÐUR:
Fvrsti
urinn
FJ-Reykjavik — Geir
Hallgrimsson fer i dag til
viðræðna við Harold Wilson,
forsætisráðherra Breta, og eru 8
ínenn i för með forsætisráðherr-
anum. Með Wilson vcrða niu
menn i viðræðunum, sem fara
fram á sveitasetri Wilsons, Che-
quers. Fyrsti viðræðufundurinn
er ákveðinn i dag en islenzka
viðræðunefndin er væntanleg
heim á þriðjudag.
Með Geir Hallgrimssyni fara :
Þórarinn Þórarinsson, formað-
fund
■ dqg
ur utanrikismálanefndar
Alþingis, Guðmundur H. Garð-
arsson alþingismaður, Einar
Ingvarsson, aðstoðarmaður
sjávarútvegsráðherra, Hans G.
Andersen þjóðréttarfræðingur,
Jón Jónsson, forstöðumaður
Hafrannsóknastofnunarinnar,
Jakob Jakobsson fiskifræðing-
ur, Sigfús Schopka fiskifræðing-
ur og Björn Bjarnason, skrif-
stofustjóri i forsætisráðuneyt-
inu.
Samninganefnd
sjómanna með
fund í dag
BII-Reykjavík. Nei, við boð-
um ekki verkföll i dag, hvað
sem kann að gerast á morg-
un, sagði Jón Sigurðsson,
forseti Sjómannasambands-
ins, þegar Timinn hafði sam-
band við hann i gær. Það er
alveg rétt, að á sinum tima
fór Sjómannasambandið
þess á leit við aðildarfélögin,
að þau miðuðu verkfallsboð-
anir sinar við 1. febrúar og ef
til verkfalls ætti að koma þá,
hefði átt að booa það i dag,
föstudag. En af boðun verður
sem sé ekki, af þvi að ég hef
ekki fengið tilkynningu um
verkfallsheimild frá öllum
aðildarfélögunum. Hins veg-
ar kemur samninganefnd
sjómanna saman á morgun,
laugardag, kl. 14, og það er
að sjálfsögðu i hennar verka-
hring að taka ákvarðanir
um, hvað gert verður i verk-
fallsmálunum.
Tillögur um lánamál
námsmanna tilbúnar
fyrir mánaðamótin
gébé Rvik — Eins og kunnugt er,
hafa lánamál námsmanna verið
ofariega á baugi i fjöimiðlum
undanfarna inánuði. Tlminn hafði
samband við Vilhjálm Hjálmars-
son menntamálaráðherra og
spurði hann hvernig þau mál
stæðu. — Eg hef lagt á það
áherziu að fá tiliögur frá milli-
þinganefnd, sem um mál þetta
hefur fjailað, sem fyrst, svo að
hægt sé að leggja þær fyrir
þingið, sagði hann. t siðasta lagi
vonast ég tii að þær tillögur
nefndarinnar liggi fyrir i janúar-
lok.
m»~ :>«sláÉlÉi.
Vilhjálmur Hjálmarsson
menntamálaráðherra
Kjarabaráttunefnd náms-
manna, sem i eiga sæti fulltrúar
fjórtán námsmannasamtaka,
sendi frá sér tillögur um breyt-
ingar á lánakerfi námsmanna, og
beindist starf endurskoðunar-
nefndar þeirra aðallega að mótun
endurgreiðslukerfis. Nefndin
telur, að óraunhæft sé að ætla, að
öll námslán skuli að fullu endur-
heimt, þar sem launakjör náms-
manna að loknu námi eru mjög
misjöfn. Þjóðfélagið eigi að gera
vægari kröfur um endurgreiðslu á
hendur þeim, sem ekki hafa sjálf-
ir fjárhagslegan ávinning af þvi
að láta þjóðfélaginu i té afnot af
sérþekkingu sinni, en krefja hins
vegar hina, sem verðleggja sér-
þekkingu sina hátt, um fulla
endurgreiðslu.
bpurningu blm. Timans um
hvort þessi tillaga námsmanna
yrði tekin til greina, svaraði
menntamálaráðherra á þessa
leið: — I sjálfu sér tel ég þetta
óaðgengilegt, en tillögur þeirra
munu verða hafðar til hliðsjónar i
milliþinganefndinni. A þessu stigi
málsins er of snemmt að segja
nokkuð um einstök atriði: beðið
verður eftir tillögum milliþinga-
nefndar.
I tillögum námsmanna kemur
einnig fram, að þeir vilja stytta
endurgreiðslutimann, þannig að
greiðslur hefjist þrem árum eftir
námslok, i stað fimm nú, og að
þær standi yfir i tuttugu ár hið
lengsta, og verði þá eftirstöðvar
lánsins óafturkræfar. Þá vilja
þeir, að námslánin skuli verð-
tryggð, þannig að visitölutrygg-
ing verði á öllum lánum, sem
byrjar að verka strax og lánin eru
greidd út.
Níels P.
Sigurðsson:
Rangt eftir
mér haft
— bls. 3
Lúðvík
svarar
starfshópi
Rann-
sóknar-
róðs
— bls. 13