Tíminn - 24.01.1976, Síða 2
2
TÍMINN
Laugardagur 24. janúar 1976.
Eitt þúsund vél-
sleðar á
— flestir í eigu bæn
Gsal—Reykjavík — Sala á vél-
sleAum hefur aukizt mikið hin sfð-
ari ár og munu nú vera um eitt
þúsund vélsleðar á landinu öllu og
eru þeir flestir i eigu bænda, enda
hefur vélsleðinn reynzt þarfur
þjónn i snjóþungum héruðum.
Björgunarsveitir eiga einnig stór-
an hluta af vélsleðaeign lands-
manna, en vélsleðar hafa komið
að góðum notum við leit að fólki.
Nýlega kynnti fyrirtækið Þór
landinu
la
h.f. tvær gerðir af Evinrude vél-
sleðum, en fyrirtækið hefur selt
u.þ.b. helming allra snjósleða á
Islandi. Fyrirtækið kynnti tvær
nýjar gerðir Evinrude-snjósleða,
Quiet Flite, sem er 30 ha sleði
með 20,4 þumlunga breiðu belti og
mun hljóðlátari en aðrir sleðar,
sem hafa verið á markaðinum til
þessa, og Skimmer 440 árgerð
1976, 40 ha sleða með 15,5 þuml-
unga breiðu belti. ..
Vonzkuveðurá
ioðnumiðunum
BH-Reykjavik. — Hér er ekkert
hægt að athafna sig. Við erum
búniraðvera hérna ivonzkuvcðri
i tvo sólarhringa, og það hefur
ekkert verið hægt að skoða, sagði
Hjálmar Vilhjálmsson, leiðang-
ursstjóri um borð i Arna Friðriks-
syni, þegar Timinn hafði sam-
band við hann i gær og innti hann
l'rétta.
Sagði Hjálmar, að þeir hefðu
veriðkomnirút á slóðina og leitað
norður með kantinum austur af
Dalatanga, en nú væru þeir stopp
og biðu átekta.
— Ég held, að hún sé ekki kom-
in sunnar en rétt suður fyrir
Digranessgrunn, en petta er bara
ágizkun, þvi að það er ekkert
hægtað skoða. Við erum núna um
30 milur út af Gléttinganesi, i
norðvestan garra, sjö vindstig-
um.
Við spurðum Hjálmar. hvort
margt báta væri á miðunum, og
sagði hann, að þeir virtust fáir
úti, enda væri ekkert að gera. Þá
spurðum við hann eftir Bretan-
um. hvort hann hefði orðið var við
hann á þessum slóðum.
— Nei, svaraði Hjálmar, hann
hefur ekkert orðið á leið okkar
núna.
Þessi mynd er tekin I kennslustund i 4. bekk Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi, og sýnir Boga Agnars-
son, stýrimann hjá Landhelgisgæzlunni, i hlutverki kennara. Að beiðni Stefáns Halldórssonar kenn-
ara og ólafs H. óskarssonar skólastjóra komu tveir starfsmenn Landhelgisgæzlunnar I heimsókn i
skólann. Það voru þeir Jón Magnússon, talsmaður Landhelgisgæzlunnar, og Bogi Agnarsson stýri-
maður. Bogi tók að sér eina kennslustund og kynnti nemendum starfsemi Landhelgisgæzlunnar á sjó
og lofti. Bogi er um þessar mundir stýrimaður á gæzluvélinni TF-Sýr.
Víðihóll bíður niðurrifs
Ibúðarhúsið Viðihóll á Kópaskeri skemmdist það mikið I jaröskjálftanum mikla, að matsmenn töldu
það óibúðarhæft og skemmdirnar það miklar aö ógerlegt væri að lagfæra þær. Vlðihóll, sem er aust-
ast I kauptúninu, er eina húsið á Kópaskeri, sem talið er gjörónýtt eftir jarðskjálftann og þess bfður
nú ekkert annaðen niðurrif. Tlmamynd: Gsal
Fjárhagsáætlun Njarðvíkurbæjar
1976:
Niðurstöðutölur
192 milljónir
BH—Reykjavík — Bæjarstjórn
Njarðvikur hefur afgreitt fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1976, og
gerðist það á fundi bæjarstjórn-
arinnar þann 20. janúar sl. Niður-
stöðutölur fjárhagsáætlunarinnar
eru kr. 192.125.000,00.
Helztu tekjuliðir eru:
Útsvör kr. 83.125.000. Aðstöðu-
gjöld kr. 25.800.000. Fasteigna-
skatlur kr. 20.250.000. Jöfnunar-
sjóður kr. 17.000.000.
Helztu gjaldaliðir eru:
Til heilbrigðis- og trygginga-
mála 20 milljónir. Fræðslumál
þ.m.t. til skólabyggingar 32 millj.
Styrkir til félags- og menningar-
mála 11,5 millj. Rekstur iþrótta-
mannvirkja 12 millj. Til vatns-
veituframkvæmda 10 millj. Til
undirbyggingar gatna 24. millj og
stjórn bæjarins 10 millj.
Nú eru um eitt þúsund vélsleðar I landinu öllu. Þessi vélsleði, sem á
myndinni sést, nefnist Skimmer 440 (árgerð 1976) og er af Evinrude-
gerð.
Útvarpsþáttur Péturs Péturssonar:
Þegar
stúku
Þórbergur gekk í
og dróttsetinn hló
Nlna Sveinsdóttir.
PÉTUR Pétursson út-
varpsþulur hóf um síð-
ustu helgi nýjan út-
varpsþátt, sem hann
nefnir Gamla Gúttó —
horfin menningarmið-
stöð. Annar þátturinn
verður i kvöld, og hefst
þegar klukkuna vantar
fimmtán minútur i niu.
I þessum þætti verður meðal
annars sagt frá þvi, er Þórbergur
Þórðarson gekk istúku, og verður
rætt við annan dróttsetann —
stúlkuna i upphlutnum, sem Þór-
bergi þótti býsna álitleg. Þetta er
Guðrún Sigurðardóttir, kona
Guðgeirs Jónssonar bókbindara.
Hún skellti upp úr, þegar Þór-
bergur var tekinn i stúkuna, svo
að ekki þótti Þórbergi einum
þetta atvik fyndið.
Af öðru má nefna, að lesið
verður bréf frá Jóhanni Sigur-
jónssyni, sem var i stúkunni Bif-
röst og flutti þar ræðu i bundnu
máli, Nina Sveinsdóttir syngur
visur eftir Plausor frá þeim tima,
er óðaverðbólgan var slik, að
kaffið fór i krónu, og Þóra Borg
segir frá móður sinni.
Árvakur tekur við
vitaþjónustunni
af Baldri
Gsal-Reykjavik. —Þessa dagana
er verið að vinna að viðgerð á
varðskipinu Þór i Rcykjavíkur-
höfn, en skipið er sem kunnugt er
nokkuð laskað eftir ásiglingar
hrczkra freigáta á það siðustu
vikur. Ahöfn Þórs er nú komin
yfir á annað varðskip — Arvakur
— en skipið hélt nýlega úr höfn.
Helgi Hallvarðsson, skipherra á
Þór, er nú i leyfi, en skipherra á
Arvakri er Þorvaldur Axelsson.
Árvakur mun að öllum likind-
um taka við þvi hlutverki, sem
varðskipið Baldur hefur haft sið-
ustu vikur, þ.e. þjónustu við vita
og önnur störf, sem falla undir
Landhelgisgæzluna við strendur
landsins.
Nú geta Akur-
eyringar lært
að hætta
að reykja
Mó-Reykjavik. — Akureyr-
ingum gefst nú tækifæri til að
fara á námskeiðtilaðhætta að
reykja. Slikt námskeið, sem
ísl. bindindisfélagið gengst
fyrir, hefst i Gagnfræðasköla
Ákureyrar sunnudagskvöldið
25. jan. og stendur i fimm
daga. Slikt námskeið hafa far-
ið fram viða um land og borið
mikinn árangur.
Að vanda verður þetta nám-
skeiðókeypis, en þátttakendur
þurfa að greiða 500,00 fyrir
handbók. Námskeiðið hefst kl.
20.30, og innritun fer fram i
sima 227.78.
Leiðbeinendur á námskeið-
inu verða Úlfur Ragnarsson
læknir og Jón Hj. Jónsson,
sem sér um sálræna þáttinn,
glimir við reykingavandann
og veitir námskeiðinu for-
stöðu.
Námskeiðiö er öllum .opið,
og vona forráðamenn þess að
sem flestir sæki það og noti
þetta tækifæri til að losna við
reykingavandamálið.