Tíminn - 24.01.1976, Side 3
Laugardagur 24. janúar 197C.
TÍMINN
3
Piltarnir fimm með áhöfn landhelgisvélarinnar SÝR, á Reykjavíkurflugvelli áður en lagt var upp i
gæzluflug. Tímamynd: Gunnar.
Skólanemar í starfskynningu:
Ákveðnir í að komast á varðskip
— 5 piltar kynntu sér störf Landhelgisgæzlunnar í 3 daga
gébé—Rvik —Fimm ungir piltar,
nemendur úr Hagaskóia, fengu
þá hugmynd, þegar starfskynn-
ing fór fram í skóla þeirra, að
fara fram á að fá að kynnast
störfum Landhelgisgæzlunnar,
bæði fyrr og nú. Var þeim vel tek-
ið, og um miðjan janúar eyddu
þeir þrem dögum með starfs-
mönnunt gæzlunnar og urðu það
hrifnir og hugfangnir af störfum
þeirra, að þeir eru allir ákveðnir i
að reyna að komast að sem létta-
drengir á varðskipunum næsta
sumar. Þessir tilvonandi starfs-
kraftar Landhelgisgæzlunnar
heita: Sigurður Indriðason, Guð-
bergur Ástráðsson, Garðar Jó-
hannsson, Valgarður Júliusson og
Eirikur Þórðarson og náði Tim-
inn taii af þeim og bað þá að lýsa,
hvers þeir urðu visari um Land-
helgisgæzluna þessa þrjá daga.
— Fyrsta morguninn tók Pétur
Sigurðsson forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar á móti okkur og sýndi
okkur stjórnstöðina, auk þess
sem hann skýrði fyrir okkur störf
og hlutverk gæzlunnar fyrr og nú,
sögðu þeir. Urðu þeir margs fróð-
ari þá tvo tima, sem þeir nutu
leiðsagnar Péturs. — Eftir hádegi
fengum við að fara i reynsluför
með Óðni hér út á sundin, héldu
piltarnir áfram. — Sigúrður
Árnason var skipherra og sýndi
hann, og áhöfn hans, okkur allt
skipið og skýrði fyrir okkur
tækjabúnað. Hrifnastir urðu pilt-
arnir af „leynivopninu” klippun-
um frægu, sem skelft hafa marg-
an brezkan togaraskipstjórann.
— Annan daginn fengum við að
fara i eftirlitsflug með landhelg-
Kínversk kvikmyndasýning í
Stjörnubíói i dag kl. 14
MÓ-Reykjavik — Kinversk-is-
lenzka félagið efnir til kvik-
myndasýningar i dag kl. 14 i
Stjörnubiói. Sýnd verður kin-
verska kvikmyndin „Skinandi
rauða stjarnan”, sem gerð er
eftir samnefndri skáldsögu.
Myndin fjallar um atburði, sem
gerðust á árum styrjaldarinnar
við Japani og er baráttan milli
kommúnista og Kuomingtang
stór þáttur söguþráðarins.
Aöal söguhetjan er litill piltur,
sem tekur virkan þátt i barátt-
unni, ásamt fjölskyldu sinni.
Mynd þessi hefur notið gifur-
legra vinsælda i Kina, segir i frétt
frá Kinversk-islenzka félaginu,
og eru þess dæmi, að kinverskur
almenningur fari 3-4 sinnum til að
sjá myndina. Þessi mynd er sú
fyrsta sinnar tegundar, sem Kin-
verjar framleiða með ensku tali.
Ollum er heimill ókeypis aðgang-
ur að sýningunni.
isvélinni SÝR, en þar var Bjarni
Helgason skipherra, en auk hans
var 5 manna áhöfn á vélinni og i
förinni voru einnig erlendir ljós-
myndarar, ásamt ljósmyndara
Timans. Fyrst var flogið norður i
land, og yfir Kópasker og jarð-
skjálftasvæðin, en siðan haldið á
togaramiðin fyrir austan land.
— Þar sáum við marga brezka
togara, svo og brezk herskip.
Varðskipin Týr og Þór voru þar
einnig á siglingu og fannst okkur
einna eftirminnilegast, þegar
SÝR flaug iágt yfir skipin, sér-
staklega þar sem Týr var, þvi
varðskipinu fylgdi brezkt herskip
eftir. Nimrod-þotu sáum við einn-
ig, hún sveimaði yfir SÝR meiri
hluta timans, sem við vorum
þarna.
— Þriðja og siðasta daginn,
sem við vorum með Landhelgis-
gæzlunni, var farið með okkur
niður að höfn, og okkur sýnd
varðskipin Ægir, Albert og Ár-
vakur. Okkur leizt mjög vel á
þau, en eftir að hafa séð stóru
brezku herskipin, finnst okkur Al-
bert t.d., hafa litið i þau að segja.
Um borð i varðskipunum var okk-
ur sýndur allur björgunarbúnað-
ur þeirra, og byssur. Svo fengum
við að sigla i höfninni á gúmmibát
eins varðskipsins og höfðum
mikla ánægju af.
Að lokum vildu piltarnir fimm
koma á framfæri beztu þökkum
til Landhelgisgæzlunnar og þá
sérstaklega forstjórans, Péturs
Sigurðssonar, fyrir mjög alúðleg-
ar móttökur og skemmtilega
samveru.
„Spurning
okkar og
um þrautseigju
þolinmæði"
— segir Kristjón Ragnarsson framkvæmdastjóri LÍÚ
Gsal-Reykjavik — Við teljuin
þetta vera spurningú um þolin-
mæði, og við erum þess fullvissir,
að fyrr en siðar muni deilan taka
enda að obreyttu ástandi, sagði
Kristján Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenzkra útvegsmanna I viðtali
við Tfmann í gær, en stjórn LÍÚ
hefur sent frá sér ályktun um
landhelgismálið, þar sem varað
er við samningum við Breta og
aðrar þjóðir um veiðar á tslands-
miðum. — Við teljum betra að
taka þann kost, sagði Kristján, að
sýna þrautseigju i málinu en að
semja sérstaklega með tilliti lil
þess, að talað hefur verið um að
semja til tveggja ára, en við
væntum þess, að malinu Ijúki á
þessu ári.
Kristján sagði, að sér hefði
fundizt lslendingar of bjartsýnir
strax eftir úrfærslu fiskveiðilög-
sögunnar i 200 sjómilur. — Stjórn-
málamennirnir gáfu fólkinu til-
efni til þess að vera bjartsýnt með
þvi að tala aljtaf um sigur i þvi
sambandi. Sá sigur er hins vegar
engan veginn öruggur ennþá,
Málið þarf að fá að þróast, og við
vinnum það ekki nema með
þrautseigju, sagði Kristján Ragn-
arsson.
Álvktun stjórnar Ltú fer hér á
eftir:
Fundur stjórnar Lt.U. haldinn
22. janúar varar við. að samið
verði við Breta og aðra um veiðar
á tslandsmiðum.
Vegna lélegs ástands þoi-sk-
stofnsins liggur fyrir, að settur
verði aflakvóti fyrir árið 1976 og
mun því hver lest af fiski, sem
samið er um við erlenda aðila
dragast frá þvi magni. sem is-
lendingum verður leyft að veiða,
en þeim afla kann að verða náð
siöari hluta sumars.
Stjórn L.t.Ú. telur með öilu
óviðunandi að viðræður fari nú
fram við erlenda aðila um veiði-
heimildir á tslandsmiðum, þegar
fyrir liggur að leggja þurfi hluta
af fiskiskipaflotanum og loka
fiskimiðum fyrir islenzkum fiski-
mönnum i' þeim tilgangi. að koma
i veg fyrir of mikla sókn i fiski-
stofnana.
Dagsbrún 70 óra:
HÉR VERÐI ALDREI
TIL SÉRSTÖK
LÁGLAUNASTÉTT
— rætt við Eðvarð S
formann félagsins
BH—Reykjavik — Verkamanna-
félagið Dagsbrún verður 70 ára
nk. mánudag, 26. febrúar, en fé-
lagið var stofnað þann dag árið
1906. Fyrsti'formaður Dagsbrún-
ar var Siguröur Sigurðsson, en
núverandi formaður félagsins er
Eðvarð Sigurðsson, og hefur liann
gegnt formennsku inanna lengst i
félaginu, eða alls i 15 ár, og var
endurkjörinn i 16. sinn nú fyrir
skömmu. Áður haföi Héðinn
Valdimarsson lengst gegnt for-
mennsku félagsins, en hann var
kjörinn formaöur fimmtán sinn-
um.
Blaðamaður Timans hitti Eð-
varð Sigurðsson að máli i gær og
bað hann að segja nokkuð frá
starfsemi félagsins þessa sjö ára-
tugi, sem félagið hefur starfað.
— Starfstimi Dagsbrúnar er
mesti byltingatimi i islenzku
þjóðlifi. Um aldamótin höfðu eng-
ar stórvægilegar breytingar orðið
á þjóðlifinu, en siðan hafa breyt-
gurðsson,
ingarnar nánast verið byltingar-
kenndar á öllum sviðum þjóðlifs-
ins — og það er enginn vafi á þvi,
að verkalýðshreyfingin er aflvak-
inn i þeim breytingum. Kröfur
fólksins um betri kjör. betra lif i
öllu tilliti. er sterkasta framþró-
unaraflið, sagði Eðvarð Sigurðs-
son. v
— Ef við litum á stöðuna, verð-
um við að hafa það hugfast, að Al-
þýðusambandið er stof nað 1916 og
á áratugunum þar á eftir er Al-
þýðusambandið samband al-
mennu verkalýðsfélaganna, sam-
taka verkamanna, verkakvenna
og sjómanna fyrst og fremst, og
svo nokkurra iðnaðarmannafé-
laga. Á þessum árurn, sem liðin
eru, hafa orðið gjörbreytingar.
Atvinnulifið, sem var tiltölulega
einhæft, er orðið fjölbreytt, og á
seinni árum hafa orðið til verka-
lýðsfélög i ýmsum starfsgreinum.
vegna tækniþróunarinnar. Nú er
krafizt meiri sérmenntunar, og
vaxið hafa upp verkalýðsfélög i
Frh. á bls. 15
Þessi mynd af Eðvarð Sigurðssyni var tekin i skrifstofu Dagsbrúnar í
Sær- —Tlma'mynd: Gunuar
Átti ekkert viðtal við
fréttamann Reuters
— segir Níels P. Sigurðsson
sendiherra
BH-Reykjavik. — Það er afskap-
lega einkennilegt, að
Reuter-fréttastofan skuli senda út
„viðtal” við mig, sem átti að hafa
verið tekið i fyrradag. Ekki birt-
ist neitt slikt i brezkum fjölmiðl-
um í gær, og i fvrradag liélt ég
kveðjuboð, en ekki ncinn blaða-
mannafund. ftg hafði boðið
þangað 35 manns, það komu að
vísu um 60 og þar á meðal piltur
frá Reuter, sem ég eða sendiráöið
hef ekki haft nein samskipti við.
Þessi piltur, Goodman aö nafni,
hlustaði á samtöl min við ýmsa,
en spurði mig einskis, og skrifaði
ekkert niður á staðnum. ftg bjóst
þvi alls ekki við, að neinar fréttir
kæmu eftir þetta, sizt fréttir
byggðar á vankunnáttu, skrifaðar
eftir á eftir ininni.
Þannig komst Niels P. Sigurðs-
son, sendiherra i London að orði
við Timann i gær, þegar við höfð-
um samband við hann og inntum
hann eftir fréttaskevti Reuters.
sem hingað barst i fvrrakvöld og
Timinn skýrði frá i gær. Kvaðst
Niels P. Sigurðsson hafa sent
utanrikisráðunevtinu skeyti i
gærmorgun. strax og hann vissi
um þetta furðulega skeyti. með
fullnægjandi útskýringum.
Ýmislegt kvað Niels P.
Sigurðsson hafa borið á góma
manna á meðal. og hefði hann
vissulega látið ýmsar skoðanir i
ljós. en ekki búizt við að sjá þær
orðræður sem afskræmdan
.fréttamat. Sem dæmi nefndi hann
jafn augljóst atriði og það. að
hann hefði sagt að tveggja ára
friðun þorskstofnsins hlvti að
auka hann. en kvaðst aldrei hafa
látið orð falla i þá átt. að þá væri
það sjállsagður hlutur. að Bretar
fengju að veiða hann hér. Væri öll
fregnin bvggð á forsendum. sem
blaðamaðurinn þekkti ..hvorki
haus né sporð á”. og væri ekkert
um þetta að segja annað en
harma að slikt hefði komið fyrir.
Alþingi kemur
saman að nýju
á mánudaginn
Alþingi kemur saman á mánu-
dag að loknu jólalevfi. Boðað
hefur verið til fundar i sam-
einuðu þingi klukkan tvö þann
dag.