Tíminn - 24.01.1976, Side 7
Laugardagur 24. janúar 1976.
TÍMINN
7
tJtgefandi Framsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
í>órarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón Helgason. Rit-
stjórnarfulltrúi: Freysteinn Jóhannsson. Fréttastjóri:i
Helgi H. Jónsson. Auglýsingastjóri: Steingrimur Gisla-
son. Ritstjórnarskrifstofur i E-dduhúsinu viö Lindargöty,
simar 18300 — 18306. Skrifstofur I Aöal&træti 7, simi 2650Ö
— afgreiöslusimi 12323 — auglýsingasimi 19523. Verö j
lausasölu ár. 40.00. Askriftargjald kr. 800.00 á mánuöi.
Biaöaþrentjr.IJ
Arangurinn frá 1973
í siðasta sunnudagsblaði Timans birtist at-
hyglisverð grein eftir Jón Skaftason alþingismann
um verndun þorskstofnsins. Jón Skaftason sýndi
fram á, að það gæti orðið erfitt verk, jafnvel þótt
útlendingum yrði bægt af miðunum. Jón Skaftason
sagði m.a.:
,,Nefnd, sem skipuð var af sjávarútvegs-
ráðherra, hefur að undanförnu unnið að tillögu-
gerð um nýtingu fiskimiðanna innan 200 milnanna.
Hún mun fljótlega skila tillögum um þessi efni til
ráðherra, sem væntanlega kemur þeim á framfæri
við Alþingi, skömmu eftir að það kemur saman
að loknu jólaleyfi.
Á miklu veltur þá, að alþingismenn taki fram-
sýna afstöðu til þessara vandasömu mála, en láti
stundarhagsmuni ekki sitja i fyrirrúmi og móta
afstöðu sina. Hið langmikilvægasta i þessum efn-
um er að hindra smáfiskaveiði og koma i veg fyrir
eyðileggingu hrygningarsvæða. Um þetta virðast
allir sammála i orði — en þegar að framkvæmd-
inni kemur, skilur fljótt leiðir, og menn rekast á
óliklegustu hindranir, jafnvel þótt spurningin sé
nánast aðeins sú, hvort menn séu reiðubúnir að
þola minni þorskafla i 2 til 3 ár gegn þvi að fá það
margendurgoldið siðar, með meiri og betri þorsk-
afla og bættri afkomu.
Fiskifræðingar telja, að ekki megi veiða meira
en 230 þúsund lestir af þorski á yfirstandandi ári,
ef stofninn á að rétta við á tiltölulega skömmum
tima. Vonir. manna, hvað það atriði snertir, eru
fyrst og fremst bundnar við hinn sterka þorskár-
gang frá 1973.
Af skýrslu Rannsóknarráðs rikisins um þróun
sjávarútvegsins má sjá, að meðalþyngd hvers
þorsks er talin aukast um 0.6 kg frá þriggja til
fjögurra ára aldurs hans, og um 1.2 kg. frá þvi að
hann verður f jögurra ára og þar til hann nær fimm
ára aldri. Samkv. stofnstærðarútreikningi Haf-
rannsóknastofnunarinnar frá þvi i september s.l.
er talið, að um 464 milljónir þorska séu i árgangin-
um frá 1973. Sé fiskur þessi ekki veiddur, fyrr en
hann hefur náð fjögurra ára aldri — i stað þriggja
ára — hefur það i för með sér aflamagnsaukningu
um 278 þúsund lestir, og sé hann veiddur 5 ára i
stað 4 ára, hefur það i för með sér aflaaukningu
um 556 þús. lestir.
Þótt tölur þessar séu grundvallaðar á áætlunum
og geti þvi skeikað, sýna þessi dæmi okkur eigi að
siður, hversu fáránlegt — og með öllu óafsakanlegt
—það er að stunda smáfiskadráp i þeim mæli sem
hér hefur tiðkazt.
Til viðbótar þessu bendi ég á, að þorskurinn
hrygnir almennt ekki fyrr en hann hefur náð sjö
ára aldri, og þvi smærri sem hrygningarstofninn
er, þeim mun lakari verður árgangurinn að öðru
jöfnu.
Framtið sjávarútvegsins veltur að verulegu
leyti á þvi að gerðar séu raunhæfar ráðstafanir
sem fyrst, til þess að draga úr sókninni i
ókynþroska þorsk. Við þurfum að fá 3 skip, sem
fara um miðin og fylgjast með veiðinni og á hverju
þeirra sé maður, sem hefur heimild til skyndi-
lokana veiðisvæða um skamma hrið, verði hann
var við mikinn smáfisk. Við þurfum enn fremur að
gera meiri verðmun á smáfiski og stórfiski og
koma á raunhæfu eftirliti með löndun fiskjar.
Ekkert má til spara til þess að reyna að tryggja,
að þorskárgangurinn frá 1973 komist á kynþroska-
aldur.” Þ.Þ.
ERLENT YFIRLIT
Óljós stefnuskrá
stjórnar Nordlis
Tilgangurinn að vinna fylgi frá hægri
HINN nýi forsætisráðherra
Norðmanna, Odvar Nordli,
kynnti stefnu stjórnar sinnar á
Stórþinginu fyrra föstudag.
Stefnuyfirlýsing hennar var
örstutt og svo loðið orðuð, að
allir flokkar gátu lýst sig
henni samþykka. Vafalaust
hefur þetta verið gert með
ráðnum hug af tveimur ástæð-
um. Onnur er sú^að stjórnin er
minnihlutastjórn, og verður
þvi að geta samið við stjórnar-
andstöðuflokkana á vixl eftir
þvi, hernig málavextir eru
hverju sinni. Hin er sú, að tak-
mark Verkamannaflokksins
virðist nú einkum vera að ná
aftur þvi fylgi, sem hann hefur
misst til miðflokkanna og
hægri flokksins að undan-
förnu.
Stjórnarmyndun Nordlis
vakti hins vegar athygli, að
þvi leyti, að hann lét sex ráð-
herra, sem áttu sæti i stjórn
Brattelis, hætta störfum og
setti nýja menn i stað þeirra.
Af þessum sex mönnum eru
fjórir utanþingsmenn. Meðal
þeirra niu ráðherra, sem áttu
sæti i stjórn Brattelis, og
halda áfram störfum, eru
Knut Frydenlund utanrikis-
ráðherra, Per Kleppe fjár-
málaráðherra, Jens Evensen
hafréttarmálaráðherra, og
Gro Harlem Brundtland um-
hverfismálaráðherra. Þá
verður Bjartmar Gjerde
áfram i stjórninni, en er nú
iðnaðarmálaráðherra, en var
menntamálaráðherra áður.
Undir hann munu heyra m.a.
oliuvinnslumálin.
ENGINN hinna nýju ráð-
herra er verulega þekktur, en
njóta hins vegar álits þeirra,
sem til þekkja, sem mætir
menn. Mesta athygli vakti, að
i sæti verzlunarmálaráðherra
var skipaður ungur maður,
Hallvard Bakke, sem stóð
framarlega i hópi þeirra liðs-
manna Verkamannaflokksins,
sem beittu sér gegn aðild
Noregs að Efnahagsbandalag-
inu. Hallvard Bakke er 32 ára
gamall, verzlunarskólamaður
að menntun og hefur sex sið-
ustu árin verið fjárhagslegur
framkvæmdastjóri við leikhús
i Bergen. Hann hefur átt sæti i
borgarstjórninni i Bergen tvö
kjörtimabil og verið formaður
i fjárhagsráði borgarinnar.
Hann er varaþingmaður.
Nordli og Bratteli
Einn hinna niu ráðherra er
kona, en þrjár konur voru fyr-
ir i rikisstjórninni. Fjórar
konur eiga þvi sæti i rikis-
stjórn Noregs nú, en alls eru
ráðherrar fimmtán. betta var
met þangað til Frakklandsfor-
seti rétt á eftir fjölgaði konum
i stjórn sinni og eiga nú sex
konur sæti i henni. Þess er
hins vegar að geta, að ráð-
herrar eru fleiri i Frakklandi
en Noregi.
-SAMKVÆMT skoðanakönn-
un, sem fór fram rétt áður en
stjórn Nordlis kom til valda,
heföu miöflokkarnir og hægri
flokkurinn fengið meirihlutá á
þingi, ef kosningar hefðu farið
fram þá. Um likt leyti hófust
lika samtöl milli formanna
þessara flokka um væntanlegt
stjornarsamstarf, ef þessir
flokkar verða sigurvegarar i
næstu kosningum. Liklegt
þykir, að samkomulag um
slikt samstarf muni nást fyrir
kosningar, þvi að flokks-
foringjunum þykir sigur-
stranglegra að geta þannig
boðið kjósendum upp á starf-
hæfa stjórn, ef þeir fá meiri-
hluta, en Verkamanna-
flokkurinn hefur löngum alið á
þvi með góðum árangri, að
þessir flokkar gætu ekki kom-
ið sér saman og þvi væri ekki
hægt að stjórna án hans.
Fjarri fer hins vegar þvi, að
allir fylgismenn þessara
flokka fagni sliku samstarfi og
gildir það þó einkum um yngri
menn i Miðflokknum og
Kristilega flokknum. Bersýni-
legt er, að Verkamanna-
flokkurinn stefnir að þvi, að
reyna að ná eyrum þessara
manna. Hins vegar óttast
hann nú minna samkeppni við
norska Alþýðubandalagið, en
það beið mikinn ósigur i
bæjarstjórnarkosningunum
siðastliðið haust. Verka-
mannaflokkurinn fékk þá aug-
ljóslega aftur mikið af þvi
fylgi, sem hann missti til Al-
þýðubandalagsins i þingkosn-
ingunum 1973.
Þ.Þ.
Fjúrar konur eiga sæti i stjúrn Nordlis: Ruth Ryste félagsmálaráðherra, Annemarie Lorentzen neyt-
endamálaráðherra, Gro Harlem Brundtiand umhverfismálaráðherra og Inger Louise Valle dúmsmála-
ráðhcrra.