Tíminn - 24.01.1976, Qupperneq 11
Laugardagur 24. janúar 1976.
TÍMINN
n
bmsjón: Sigmundur O. Steinarsson
— Viö erum ákveðnir i að sanna tilverurétt okkar i hinni hörðu keppni
um meistaratitilinn, segir Sölvi Óskarsson, þjálfari ungu strákanna í
Þrótti, sem komu skemmtilega á óvart sl. sumar, þegar þeir skelltu
Vestmannaeyingum á Melaveilinum og tryggðu sér sæti i 1. deildar
keppninni i knattspyrnu — en þá voru 10 ár liðin frá þvi aö Þróttur lék
þar siðast. Þróttarliöið byggist á ungum knattspyrnumönnum — á
aldrinum 17-19 ára. Það bjuggust ekki margir við Þróttar-liðinu góðu
sl. sumar — töldu það of ungt. Sölvi og ungu strákarnir hans voru ekki á
sama máli, þeir börðust hetjulega og uppskáru ríkulegan ávöxt.
Ahuginn er ódrepandi hjá
hinum ungu leikmönnum Þróttar-
liðsins, sem ætla sér stóra hluti —
þeir hafa æft af fullum krafti i
vetur. Margir leikmenn, sem
hafa náð þeim árangri að vera i
liðum, sem hafa tryggt sér sæti i
1. deild hafa séð sér leik á borði að
slaka á og slappa af eftir afrekið.
Hinir ungu leikmenn Þróttar
hugsa ekki þannig: þeir hafa æft
þrotlaust i allan vetur — eða allt
siðan þeir tryggðu sér 1. deildar
sætið með þvi að sigra (2:0) Vest-
mannaeyinga á Melavellinum.
Það er greinilegt, að þeir ætla að
halda 1. deildar sætinu sinu sem
lengst.
Leikmenn Þróttar hafa ekki
verið skikkaðir til að mæta á æf-
ingar i vetur — þeir hafa fundið
það sjálfir, að þeir þurfa að æfa.
Þessi tegund sjálfsögunar er
nauðsynleg hverjum iþrótta-
manni, sem ætlar sér að ná langt.
Maðurinn á bak við árangur
Þróttar-liðsins er Sölvi óskars-
son, þjálfari liðsins. Sölvi gerði
SÖLVI ÓSKARSSON.....„Við ætl-
um að sanna tilverurétt okkar i
deildinni”.
stórbreytingar á Þróttar-liðinu,
þegar hann tók við þvi fyrir sl.
keppnistimabil — hann stokkaði
liðið upp og dró fram i sviðsljósið
unga og efnilega leikmenn. Það
sýnir bezt hvað Þróttar-liðið er
ungt að árum, að Sölvi notaði tiu
leikmenn á aldrinum 17-19 ára sl.
keppnistimabil — allt leikmenn,
sem léku með 2. flokki.
Sölvi óskarsson sagði, að
Þróttarar þyrftu ekki að kviða
framtiðinni. — Við höfum yfir
nógum mannskap að ráða —
spurningin er aðeins, hvernig
tekst honum að laga sig að 1.
deildar keppninni. — Það er stórt
stökk á milli deilda, sagði Sölvi,
sem hefur valið 20 leikmenn til
æfinga með Þróttar-liðinu. —
Næsta verkefni okkar er að binda
okkur deildinni og sanna tilveru-
rétt okkar þar. Við höfum ekki
verið 10 ár fyrir utan deildina til
að falla, sagði Sölvi.
— Nú hafa leikmenn liðsins æft
i allan vetur, Sölvi. Sérð þú enga
þreytu hjá leikmönnunum?
— Nei, kúnstin er að hafa æf-
ingar fjölbreytilegar, svo að leik-
mennirnir verða ekki þreyttir og
leiðir. Strákarnir hafa fundið það
sjálfir, að þeir þurfa að leggja
hart að sér, ef þeir ætla að ná
árangri. Ahuginn er ódrepandi,
og andinn er mjög góður hjá þeim
— þeireinbeita sér að verkefninu,
vegna þess að þeir vita að þeir
verða að taka á honum stóra sin-
um i þeirri hörðu baráttu. sem er
framundan, sagði Sölvi.
— Hverju vilt þú þakka það, að
Þróttur er nú að koma upp með
ungt og efnilegt lið?
— Það er tvimælalaust hið
öfluga unglingastarf, sem Þrótt-
arar hafa lagt mikla rækt við
undanfarin ár. Það sýnir bezt hve
mikinn ávöxt unglingastarfið
hefurborið, að nú korria leikmenn
beint upp úr 3. flokki — og ganga
inn i meistaraflokk. Við höfum nú
t.d. þrjá leikmenn, sem léku með
3. flokki sl. sumar, sem verða
óragir við að banka á dyrnar hjá
meistaraflokki i sumar, sagði
Sölvi.
Þróttarar þurfa ekki að kviða
framtiðinni — þeir eiga stórefni-
legt lið, sem gaman verður að
fylgjast með i framtiðinni. Við
spáum þvi, að Þróttur verði
næsta stórveldi i knattspvrnu.
— SOS
,Áhugmn eródrepandi
hjá strákunum
— sem einbeita sér að verkefninu, því þeir vita, áð
þeir verða að taka á honum stóra sínum,' segir
Sölvi Óskarsson, þjálfari ungu strákanna í Þrótti
AXEL OG ÓLAFUR
Baráttan
STEFNA AÐ EVRÓPU-
MEISTARATITU
— með Dankersen-liðinu, sem er komið í
undanúrslit í Evrópukeppni bikarhafa
AXEI, Axelsson og Ólafur H.
Jónsson, ásamt félögum þeirra i
Dankersen, hafa tekið stefnuna á
Evrópumeistaratitilinn I Evrópu-
keppni bikarhafa i handknattleik.
Dankersen vann yfirburðasigur
(27:13) i leik gegn Kaupmanna-
hafnarliðinu Fredriksborg i siðari
leik liðanna, sem fór fram I Mind-
en i V-Þýzkalandi, en fyrri leikn-
um, sem fór fram i Kaupmanna-
höfn, lauk með sigri Dananna,
17:14.
Dankersen hafði mikla yfir-
burði i leiknum i'Minden, eins og
tölurnar sýna — 14 marka sigur.
Axel Axelssoner nú að verða góð-
■ur eftir meiðslin, sem hafa háð
honum. Hann átti góðan leik og
skoraði6mörk. ólafur.sem hefur
verið veikur, lék litið með i leikn-
um.
Dankersen-liðið er nú komið i
undanúrslit i Evrópukeppninni,
og flestar likur benda til, að liðið
hljóti bikarinn, sem nú er keppt
um i fyrsta skipti. Norska liðið
Oppsal — mótherjar FH — og lið
frá Spáni og Sviss, eru eftir i
keppninni. A þessu sést, að róður-
inn verður ekki sérlega þungur
hjá Dankersen. — SOS.
AXEL AXELSSON.......hefur átt
stórgóða leiki i Evrópukcppninni
og skorað mörg mörk.
um bikarinn
— verður háð á mörgum vígstöðvum í
Englandi, á meðan Geir ræðir við Wilson
ÞAÐ VERÐUR mikið um að vera
i Englandi i dag — ó meðan Geir
Hallgrimsson forsætisráðherra
og fylgdarmenn hans ræða við
Wilson, forsætisráðherra Breta, ó
sveitasetri hans — Chequers —
fyrir utan I.ondon, um fiskveiði-
deilu islendinga og Breta, fjöl-
menna knattspyrnuunnendur víðs
vegar um England á völlinn til að
horfa á leiki i 4. umferð ensku
bikarkeppninnar.
Aðalumræðueíni Englendiriga.
hvar sem þeir hittast: — á götum
úti, lestarstöðvum, eða á bjórkrá
verða leikir bikarkeppninnar.
Fyrir þá mörgu tslendinga. sem
fylgjast einnig spenntir með
leikjum bikarkeppninnar — en
verða að sætta sig við að horfa á
gamla leiki frá Englandi á skján-
um — birtum við hér röðina á
þeim leikjum, sem verða leiknir i
bikarkeppninni ensku. Gjörið svo
vel — þið getið merkt úrslitin inn
á. þegar þau verða lesin upp i
sjónvarpinu.
Bradford—Tooting
Charlton—Portsmouth
Coventry—Newcastle
Derby—Liverpool
Iluddersfield—Bolto n
lpsw ich—Wolves
I.eeds—Crvstal Palace
Leicester—Bury
Man.Utd.—Peterborough
Norwich—Luton
’ Southampton—Blackpool
Southend—Cardiff
St oke—Tottingham
Sunderlan d—Hnll
W.B.A.—Lincoln
York—Chelsea
Þess má geta, að leikur Stoke
og Tottingham er úr 3. umíerð-
inni. en það lið sem ber sigur úr
býtum leikur gegn Manchester
City i fjórðu umferö.