Tíminn - 24.01.1976, Qupperneq 12
12
TÍMINN
Laugardagur 24. janúar 1976.
25
cP
Övelkominn qeskir
Kannski var hann þreyttur, hugsaði Jane. En þegar
hann var ennþá úrillur tveimur dögum síðar, fór henni
að líða illa. Hefði hún átt aó fara? Það var eins og Dick
kærði sig kollóttan um, hvort hún væri þarna, eða ekki
En Neil hafði beðið hana að líta eftir David og hana lang
aði ekki að fara, fyrr en hún hafði frétt meira af Neil
Nú var komin þriðja vika hennar á búgarðinum og
merking kálfanna var að verða lokið. Þegar hún sagð
Wilmu, að nú færi að líða að því;að hún færi, mótmælti
hún ákaflega.
— Þú getur heldur ekki farið, Jane! Allir kúrekarnir
eiga von á mikilli veizlu í lokin og það er dálítið, sem þú
ættir ekki að missa af, sagði hún og bætti hreinskilnis-
lega við: — Ég gæti líka vel notað hjálp þína.
Jane varánægðyfir að hafa afsökun til að vera lengur
og lét hana tala um fyrir sér að vera fram á laugardag.
Hún átti að koma aftur í vinnuna á mánudag, svo þetta
var síðasta tækifæri. Henni geðjaðist allt í einu illa að til-
hugsuninni um að yfirgefa þennan indæla stað og þótti
leitt að sjá aldrei Neil eða David aftur.
Dick gaf henni aldrei tækifæri til að hitta sig einan.
Eftir f ramkomu hans að dæma og hvernig hann forðað-
ist að tala við hana undir f jögur augu, hugsaði hún með
sér, að hann væri farinn að efast um gildi sambands
þeirra. Það var eins og hann biði þess bara, að heimsókn
hennar tæki enda, svo hann gæti sagt kurteislega bless og
losnað við hana. Síðan kæmi bréf, sem sliti öllu. Ef til vill
væri þetta einfaldasta lausnin...og þægilegust fyrir báða
aðila.
En Jane var ekki alls kostar ánægð með ástandið og
eitt kvöldið sat hún uppi og beið hans. Hann var hættur að
vera heima eftir kvöldmatinn og hvarf stundum meira
að segja, áður en kom að kaffinu.
Hún heyrði verandarhurðina hreyfast og gekk fram í
forstof una. Hann hrökk litið eitt við, þegar hann sá hana
koma á móti sér.
— Halló, Jane. Hvað ert þ.ú að gera á fótum, svona
seint? Það leit ekki út f yrir að honum geðjaðist að því að
hitta hana.
— Ég var að bíða eftir þér, Dick, sagði hún rólega. —
Getum við ekki talað svolítið saman?
Hann yppti öxlum. — Ekki núna. En svo iðraðist hann
og sagði i afsökunartón: — Fyrirgefðu, Jane. Þetta hef-
úr ekki verið skemmtilegt sumarleyfi fyrir þig. Ég hef
haft um svo margt að hugsa....Ef til vill getum við
skemmt okkur betur saman seinna. Eftir tvo mánuði eða
svo kem ég í bæinn og þá lofa ég að þetta verður öðru-
vísi...
Jane hristi höfuðið. — Viltu vera svo góður að vera
hreinskilinn við mig, Dick. Þú ímyndaðir þér bara, að þú
værir ástfanginn af mér, ekki satt? En núna....er allt
breytt. Ég skipti þig engu máli lengur. Er það ekki þann-
ig, sem ástandið er núna?
— Nei. Dick greip harkalega um axlir henni. — Það er
það alls ekki. AAér jáykir mjög vænt um þig, en.hendur
hansféllu niður með síðunum og hann horfði ráðvilltur á
hana. — Ég er svo þreyttur, Jane. Eigum við að láta
þetta duga í kvöld?
— Allt í lagi, Dick, sagði Jane undrandi. — En það er
eitt, sem mig langar til að segja....það er ekki um neina
trúlof un okkar að ræða lengur. Ef þú vilt heimsækja mig
i Vancouver, máttu það, en ég held, að þú skiptir um
skoðun, þegar ég er farin. Þú verður áreiðanlega feginn
að vera f rjáls til að gera það sem þér sýnist.
Dick renndi fingrunum gegn um háriðog var ringlaður
á svipinn.— Ég hef farið laglega að þessu öllu, Jane.
Hann greip um handlegg henni þegar hún ætlaði að fara.
— Gefðu mér annað tækifæri, Jane!
Þegar hún hristi höfuðið hægt, sagði hann næstum
biðjandi: — Ég sleppi þér ekki. Jane. Þetta breytist hér
eftir, vittu til.
Grænu augun hennar voru dapurleg. — Góða nótt,
Dick! Hún slökkti Ijósið og flýtti sér inn í herbergi sitt,
ennþá ringlaðri en áður. Hann virtist ákveðinn í að slíta
ekki sambandinu við hana, en ósjálfrátt skildist henni,
að það var ekki vegna þess að hann elskaði hana. Hann
var óhamingjusamur og þarfnaðist einhverrar
manneskju, hverrar sem var...en hvers vegna? Jane var
of þreytttil að hugsa meira um það. Hún háttaði og fór í
rúmið.
David var ekki sami drengurinn lengur, hugsaði Jane
og leit á hann. Hann var orðinn þreknari, virtist hávaxn-
ari og sjúklingsyf irbragðið var alveg horf ið af andlitinu.
illiilli
I
LAUGARDAGUR
24. janúar
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Kristin Sveinbjörns-
dóttir les „Lisu eða Lottu”
eftir Erich Kastner (16).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. óskalög
sjúklinga kl. 10.25: Kristin
Sveinbjörnsdóttir kynnir.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 iþróttir. Umsjón: Jón
Ásgeirsson.
14.00 Tónskáldakynning Atla
Heimis Sveinssonar.
15.00 Vikan framundan Björn
Baldursson kynnir dagskrá
útvarps og sjónvarps.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir. islenzkt
mál Ásgeir Blöndal
Magnússon flytur þáttinn.
16.40 Popp á laugardegi.
17.30 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Tveir á tali Valgeir
Sigurðsson talar við séra
Gisla, Brynjólfsson fyrrum
sóknarprest á Prestbakka á
Siðu.
20.00 Hljómplöturabb Þor-
steins Hannessonar.
20.45 Gamla Gúttó, horfin
menningarmiC löð.Þáttur i
umsjá Péturs Péturssonar,
annar hluti.
21.45 Gömlu dansarnir De
Nordiske Spillemænd leika
nokkur lög.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Þorradans
útvarpsins. Gömul og ný
danslög leikin af hljómplöt-
um. (23.55 Fréttir i stuttu
máli).
01.00 Dagskrárlok.
itill
LAUGARDAGUR
24. janúar 1976
17.00 iþróttir. Umsjónarmað-
ur Ómar Ragnarsson.
18.30 Dóminik. Breskur
myndaflokkur fyrir börn og
unglinga. 11. þáttur. Heim-
koman. Þýðandi Ellert
Sigurbjörnsson.
19.00 Enska knattspyrnan.
Hié.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Dagskrá og auglýsingar.
20.30 Krossgátan. Spurninga-
þáttur með þátttöku þeirra,
sem heima sitja. Kynnir
Edda Þórarinsdóttir leik-
kona. Umsjónarmaður
Andrés Indriðason.
21.00 Nei, ég er hérna.Bresk-
ur gamanmyndaflokkur.
Aðalhlutverk Ronnie Cor-
bett. Grimudansleikurinn.
Þýðandi Ellert Sigurbjörns-
son.
21.25 Hildarleikur. (The
Deadly Affair). Bandarisk
biómynd frá árinu 1967,
byggð á sögu eftir John le
Carré. Leikstjóri er Sidney
Lumet, en aðalhlutverk
leika James Mason, Maxi-
milian Schell og Simone
Signoret. Myndin gerist i
London. Charles Dobbs
starfar fyrir leyniþjónust-
una. Honum er falið að
rannsaka æviferil manns úr
utanrikisþjónustunni, en
hann er talinn njósnari
kommúnista. Þýðandi
Stefán Jökulsson.
23.10 Dagskrárlok.
AUGLYSIÐ
í TÍAAANUAA