Tíminn - 24.01.1976, Side 15
Laugardagur 24. janúar 1976.
TÍMINN
15
O
Dagsbrún
einstökum þjóðfélagsgreinum,
sem orðið hafa að stórum félög-
um. Dagsbrún er ekki sama
stærðin hvað f jölda snertir i sam-
tökum alþýðunnar nú og áður. En
Dagsbrún hefur lengst af verið
forystufélag vegna fjölda með-
lima, og vegna þess að það er
verkamannafélag i Reykjavik.
Hérerhvort tveggja, auðurinn og
valdastofnanir þjóðfélagsins, og
það hefur verið hlutverk Dags-
brúnar að vera i návist við höfuð-
andstæðinginn. Kjörin, sem
Dagsbrún samdi um, voru mikið
til kjör annarra verkalýðsfélaga i
landinu, og það kom af sjálfu sér.
Atvinnuþróunin hefur gert það
að verkum, að ungt fólk á úr
meira að velja en áður, og enginn
sættir sig við það markmið að
vera verkamaður. Unga fólkið
leitar i aðrar greinar. Þetta er
eðlilegt og sjálfsagt.
Dagsbrún hefur enn og áfram
forystuhlutverki að gegna, og á
það vil ég leggja sérstaka
áherzlu. Dagsbrún, og önnur
skyld félög, hafa það hlutverk að
sjá til þess, að hér verði aldrei
sérstök láglaunastétt eða undir-
stétt i' landinu, en þróunin i launa-
málum hefur þvi miður verið
nokkuð i þá átt siðustu árin. A
þessu sviði tel ég, að verkalýðs-
hreyfingin og þjóðin öll verði að
beitakröftum sinum,svo að þess-
ir hlutir gerist aldrei i okkar
landi.
— Ég tel, að sú barátta verka-
lýðsins megi aldrei markast af
dægurmálum einum, heldur verði
verkalýðshreyfingin að vinna að
þvi markmiði, að völd alþýðunn-
ar i landinu verði svo mikil, að við
getum á sviði þjóðmálanna, og
með styrkleika á löggjafar-
sviðinu, tryggt það, að ávinning-
urinn f hinni beinu hagsmunabar-
áttu verði betur tryggður en nú
er.
1 tilefni afmælisins hefur stjórn
Dagsbrúnar ,,opið hús” i Lindar-
bæ á mánudaginn á milli klukkan
fjögur og sex.
Félagsmálasáttmáli
Evrópu undirritaður
fyrir hönd íslands
Evrópu
HINN 15. janúar sl. var Félags-
málasáttmáli Evrópu, sem
gerður var i Torino 15. október
1961, undirritaður fyrir Islands
hönd i Strasbourg af Sveini
Björnssyni, varafastafulltrúa is-
landshjá Evrópuráðinu. Hann af-
henti viö sama tækifæri fullgild-
ingarskjal islands að sáttmálan-
um, sem tekur gildi fyrir ísland
hinn 14. febrúar nk.
DATSUN
7,5 I pr. 100 km
Bilaleigan Miðborg
Car Rental | oa oo
Sendum 1-74-*^
li»
fi!1 ftí llí íÍÖÍÍl
y
Ráðstefna um kjördæmismál
S.U.F. gengst fyrir ráðstefnu um kjördæmamál sunnudaginn 8.
febr. Ráðstefnan verður haldin að Hótel Hofi og hefst kl. 10 ár-
degis.
Dagskrá:
1. Setning.
2. Ávarp: Ölafur Jóhannesson ráðherra.
3. Framsöguræður:
a) Þróun kjördæmaskipunar og kosningalaga hér á landi. Tómas
Árnason alþm.
b) Kosningakerfi i nágrannalöndum. Jón Skaftason alþm.
c) Einkenni, kostir og gallar núverandi kerfis hérlendis. Sig-
urður Gizurarson sýslumaður.
c) Valkostir varðandi kjördæmaskipun og kosningalög, Jón Sig-
urðsson varaform. SUF.
4. Umræður og gerð ályktana.
5. Ráðstefnuslit.
Nánari upplýsingar i sima 24480 fyrir hádegi. Vinsamlega til-
kynnið þátttöku þar.
Framsóknarfélag Borgarness
Borgnesingar og nágrannar. Spilakvöldin hefjast aftur föstudag-
inn 30. janúar kl. 8,30 i Samkomuhúsinu.
Gleymið ekki að koma með botna við þessa fyrriparta:
Gæðinga i góðu standi
garpar teygja létt á skeiði.
Astarþrá úr augum brennur
öl um kverkar liðugt rennur.
Allir velkomnir. — Nefndin.
FUF Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður haldinn að Rauðarárstig 18 (Hótel
Hof) miðvikudaginn 28. janúar kl. 20.30.
Dagskrá: I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Lagabreytingar.
III. önnur mál. Stjórnin.
Kortið sýnir Isinn við landið samkvæmt iskönnun 22. og 23. janúar.
Skýringar eru til vinstri á kortinu. Það var TF-Sýr, flugvél Landhelgis-
gæzlunnar sem fór i isflug.
Akranes
Frarftsóknarfélag Akraness heldur Framsóknarvist i félags-
heimili sinu að Sunnubraut 21, sunnudaginn 25. janúar kl. 16.00.
öllumi heimill aðgangur meðan húsrúm leyfir.
Viðtalstímar
alþingismanna , v ^ i
°9 'r
borgarfulltrúa
F ra msók na rflökks i ns
Sverrir Bergmann, varaalþingismaður og Guðmundur G.
Þórarinsson, varaborgarfulltrúi verða til viðtals að Rauðarár-
stig 18, laugardaginn 24. þ.m. kl. 10.00—12.00.
Keflavík
Keflavík — viðtalstími.— Bæjarfulltrúar og fulltrúar framsókn-
arfélaganna i nefndum bæjarins verða til viðtals laugardaginn
24. janúar frá kl. 16—18 i Framsóknarhúsinu Austurgötu 26.
Kaffiveitingar. Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna i Keflavik.
Aðalfundur FR
Aðalfundur Framsóknarfélags Reykjavikur
verður haidinn i Hótel Esju miðvikudaginn
28. janúar kl. 20.30.
Dagskrá:
I. Venjuleg aðalfundarstörf.
II. Ræða, Einar Agústsson, utanrikisráð-
herra.
III. önnur mál.
Tillögur um aðal- og varamenn i
fulltrúaráð liggja frammi á flokksskrifstof-
unni.
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Aðalfundur félagsins verður að Hallveigarstöðum þann 28. jan.
n.k. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. önnur mál
Fjölmennið
Stjórnin.
Kópavogur
Aðalfundur fulltrúaráðs Framsóknarfélag-
anna i Kópavogi verður að Neðstutröð 4
fimmtudaginn 29. janúar kl. 8.30.
Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2.
Halldór E. Sigurðsson ráðherra flytur ávarp
og svarar fyrirspurnum. 3. önnur mál.
Stjórnin.
Kanarí-
eyjar
Þeirsem áhuga hafa á ferðum fil
Kanaríeyja (Teneriffe) i febrú-
ar, gefst kostur á ferð hjá okkur
19. febrúar (24 dagar).
Góðar íbúðir, góð hótel. Sérstak-
ur afsláttur fyrir flokksbundið
f ramsóknarfólk.
örfá sæti laus. Þeir, sem eiga pantaða miða, en hafa ekki
staðfest pöntun sina með innborgun eru beðnir um að gera það
strax, að öðrum kosti eiga þeir á hættu að missa af ferðinni. Haf-
ið samband við skrifstofuna að Rauðarárstig 18, simi 24480.
Skrifstofan er opin frá kl. 9-6 virka daga nema laugardaga frá 9-
12.
Auglýsið í Tímanum