Tíminn - 31.01.1976, Síða 6

Tíminn - 31.01.1976, Síða 6
& TÍMINN Laugardagur 31. janúar 1976. FRUMBYUNGAR VERÐA AÐ FÁ STÓR- AUKNA AÐSTOÐ Oft er um það talað, að íslend- ingar eigi allt sitt undir fisk- veiðum og góðri sölu sjávaraf- urða til annarra landa. Enginn dregur i efa, að með þessari auðlind — fiskinum — verður að byggja upp alla aðra varanlega þætti til undirstöðu fyrir afkomu og göðan efnahag þjóðarinnar. Fiskurinn er þannig fyrir okkur eins og hringurinn Draupnir, sem gat af sér niundu hverja nótt átta gullhringa jafnhöfga. Auðlindir hafsins hafa gefið þjóðinni möguleikana til að búa hér við svipuð lifsgæði og aðrar velmegunarþjóðir hafa eignazt með náttúruauði sinum. En þó að fiskurinn sé tslendingum svona mikils virði, þá væri samt ekki búið hér né byggilegt, ef engin væri gróðurmoldin eða grasið, þvi þá myndi vanta allt dýralif á landi. Þá hefðu menn ekki mjólk eða kjöt til daglegrar fæðu, og ekki skinn eða ull til skæða né klæða. An þessara gæða hefði aldrei getað þróazt hér mannlif, þótt ýmsir láti svo sem þeir viti þetta ekki og telji landbúnaðinn litils virði. Fiskurinn og búpeningurinn i sameiningu héldu lífi i þjóðinni, og hafa gert henni fært að eign- ast hin eftirsóttu lifsþægindi, sem nýöld tæknibyltingarinnar hefur boðið jarðarbúum upp á. Og á tækniöldinni hefur komið i ljós, að ísland á orku, sem er sennilega meiri, miðað við stærð landsins, en vfðast annars staðar. Hér er átt við jarðhitann og vatnsaflið, sem hvorttveggja er óþrjótandi.Þá myndi einnig vera hægtaðvirkja hér og vinda sjávarföll til meiri orkugjafar en flesta grunar nú, þvi litlar rannsóknir liggja fyrir á þvi sviði. Allt er þetta gott og bless- að, og á að geta tryggt farsælt lif i landinu fyrir niðja þeirra, sem hér búa nú um sinn. Þó ber að hafa þann fyrirvara um slika spá, að enginn lifir á þessum orkulindum einum saman. Hita- stig loftsins, gróðurinn á land- inu og fiskurinn i sjónum, allt verður þetta einnig að vara. Siðan þekking á jarðrækt varð almenn meðal bænda hér á landi, og sérstaklega eftir að vélar og tilbúinn áburöur komu til sögu, þá hefur grasrækt auk- izt mjög og heyfengur vaxið. Miklar umbætur hafa um leið orðið á geymslu og verkun heyja. Þessar miklu framfarir hafa leitt af sér stórfjölgun bú- penings i landinu, þrátt fyrir fækkun bænda og vinnufólks við búskap. Bætt meðferö búpen- ingsins og kynbætur hafa á sama tima aukiö afurðirnar. Þetta er allt ánægjuleg þróun og á stóran hlut I hinni auknu vel- megun þjóðarinnar. Þrátt fyrir miklar framfarir, aukna þekk- ingu og tækni, verður þó senni- lega alltaf nokkurt misæri, og þjóðin má ekki láta sér detta i hug, að ekki verði jafnan við meiri og minni erfiðleika að etja, þvi svo er þetta, hvar sem menn búa á hnettinum. Verstu erfiðleikarnir eru þó oftast þeir, sem mennirnir búa sér til sjálfir með allskonar deilum, t.d. veric- föllum, sem lama atvinnuveg- ina og skerða þjóðarhag. Þá má nefna styrjaldir milli þjóða, eða milli stétta og trúflokka, en slik- ar erjur eru algengar viða um lönd. Við íslendingar höfum verið lausir við vigaferli siðan á þrettándu öld, þrátt fyrir þrætu- girni okkar, en hinsvegar er verkfallagleði meiri hér en við- astannarsstaðar, og gifurlegum verðmætum sóað þeirra vegna, næstum á hverju ári. Þá höfum við farið mjög geyst i þvi að æsa verðbólgubálið, og brennt þar jafnharðan verulegan hluta af þvi,sem við höfum meðdugnaði og kappi ausið af auðlindum landsins. Neró keisari lék á hljóðfæri, meðan hann skemmti sér við að horfa á Róm brenna. Hér höfum við þanið efna- hagskerfið til hins Itrasta til að geta þvi betur gefið I verðbólgu- bálið, siðan höfum viö atyrt hver annan fyrir þetta athæfi og kennt hver öðrum um. Neró fór ekki i launkofa með ánægjuna af ikveikjuathæfi sinu, en við lát- um sem við eigum hver fyrir sig engan þátt I verðbólgubálinu, sem við höfum þó verið að æsa i gróðaskyni, þótt niðurstaðan verði auðvitað sú, og sé þegar orðin, að flestir hljóti af verö- bólgunni angur og mein. Þessi óheillaþróun hlýtur að hafa mjög skaðleg áhrif á lif næstu kynslóðar, sem tekur við land- inu, að visu betur búnu fyrir niðjana en nokkru sinni áður vegna allskonar umbóta, en með slikum drápsklyfjum verð- bólgukostnaðar og erlendra skulda, aö þungt verður undir að búa, og erfitt að brjótast úr þeirri herkvi. Ekki er útlit fyrir annað en framleiðendur frumfram- leiöslugreinanna, þeir sem sækja verðmætin I skaut náttúr- unnartil lands og sjávar, verði allra harðast fyrir barðinu á verðbólgunni. Til náttúruauð- lindanna verður þjóðin hér eftir, sem hingað til, að sækja megin- hlutann af öllum þörfum sinum. Ef þær hrökkva ekki til að upp fylla'kröfur fólksins, þá er venj- an sú, að þeir sem við fram- leiösluna fást, eru mergsognir þar til þeir hafa engu lengur að miðla, og er þeim þá oftast sagt, að þeir megi fara til hins vonda. 1 veraldarsögunni eru mörg dæmi um slikt, þó ekki verði rakin hér. Tekið er að bóla á þvi hér, að of nærri er gengið hag þeirra, sem lagt hafa fyrir sig að draga björgina Ibúið hjá þjóðinni, eins og fiskinn úr sjónum og matvör- urnar úr skauti moldarinnar. í framhaldi af þessum hugleið- ingum verður nú litilsháttar rætt um þá framtið, sem bænda- stéttinni virðist búin og bújörð- um ef ekki verður breyting á, svo að með eðlilegum hætti geti orðið stöðug endurnýjun i stétt- inni og framleiðslugeta landsins á sviði landbúnaðar nýtt með eðlilegum afkomuskilyrðum þeirra, er þá atvinnugrein vilja stunda. Hér á landi hefur fjöl- skyldubúskapur þróazt að meg- inhluta alla tið, þvi að meiri hluti bænda á Islandi hefur frá landnámsöld og fram á þennan dag verið einyrkjar, sem með hjálp konu og barna og annars skylduliðs unnu fyrir sér og sin- um með búskap. A þessum grundvelli er landbúnaðarstefn- an mótuð hér, bæði hjá bænda- stéttinni og rikisvaldinu, og hef- ur svo alltaf verið. Sá er þessar linur ritar, er þessari stefnu fylgjandi, enda sjálfur stundað búskap með fjölskyldu minni, ogeru nú að verða 44 ár siðan ég gerðist bóndi. En þó að ég sé fylgjandi einyrkja- og fjöl- skyldubúskap, þá er ég þess sinnis, sem ég hef áður sagt frá á prenti, að ég tel, að einyrkj- arnir eigi að stefiia að félags- vinnu hver með öðrum og fé- lagsbúskap með ýmsum hætti, eftir þvi sem samkomulag getur orðið um og henta þykir við hin- ar mismunandi aðstæður. Ekki dugir að ætla að keyra þá hug- mynd i eitthvert einskorðaö kerfi, þar sem allir verða að haga sér nákvæmlega eins. Til þess að finna þeim oröum hér að framan nokkurn stað, að þeir sem framleiða hin svoköll- uðu hráefni, (t oröiö hráefni, leggja vissir aðilar sérlegan lit- ilsviröingartón, sem á að undir- strika, hvað þeir hafi litla og þurfi litla þekkingu, sem slik framleiðslustörf leggja fyrir sig, eins og kjöt-, mjólkur-, ullar- og skinnaframleiðslu, fiskveiðar og fleira þess háttar, sem fengið er meö beinum við- skiptum við náttúruna.) séu orðnir allhart leiknir af hálfu þess þjóðfélags, sem þeir þjóna með starfi sinu, vil ég nefna, hversu dýrt er orðið að eignast jörð og bú, ásamt húsum, vélum og tækjum, sem til þarf. Verður hér sett upp dæmi um þetta. Hugsum okkur ungan mann, sem ákveður að stofna á næsta vori kúabú af stærð verðgrund- vallarbús, en það eru 20 kýr, þá þarf til þess það sem hér á eftir er upp talið: 1. jörð með 20-30 ha. túni. 2. ibúðarhús. 3. fjós fyrir 30 gripi. 4. heyhlöðu fyrir 500-600 hestburði. 5) votheys- turn eða flatgryfju fyrir 400-500 hestburði. 6. tvær dráttarvélar. 7. jeppa. 8. mjaltavélar og mjólkurtank. 9. sláttuþyrlu. 10. múgavél. 11. snúningsvél. 12. heyhleðsluvagn. 13. heyblásara. 14. sláttutætara. 15. heybindi- vél. 16. færiband. 17. mykju- dreifara. 18. áburðardreifara. 19. súgþurrkunarmótor mefi föstum blásara og blásturskerfi i hlöðugólfi. Ýmislegt fleira en hér er talið, þarf að eignast. Hvað myndi þetta svo kosta, annaðhvort nýtt eða eitthvað notað en i góðu standi? Miðað við verðlag á kúm og vélum á siðasta vori þá myndi bústofn- inn og vélarnar kosta um 8 mill- jónir króna. Jörðin sjálf með til- heyrandi húsum er varla undir 20 milljón króna virði, og þó að likindum miklu meira virði, ef húsin eru ný eða nýlega byggð. Hér virðist þvi þurfa um 30 mill- jónir til að stofna verðgrund- vallarbú með kúm eða bústofni. Yfirleitt gengur ungum mönn- um ekki vel að safna miklu fé, þótt kaup sé talið alihátt. Kem- ur hvort tveggja til, að allt er dýrt, sem menn þarfnast og vilja veita sér, og svo hitt, að helmingur tekna einhleyps manns, og vel það, er tekinn i skatta til rikis og sveitarfélags, svo að seint safnast i milljóna- tugi hjá venjulegum launþega. En hvað geta þá 20 kýr gefið af sér i kaup handa bóndanum og I rentur af 30 milljónunum? Varla er hægt að búast við nema 3500litrum mjólkur eftir hverja kú, eða 70 þúsund litrum alls. Hver verðlagsgrundvöllurinn verður að meðaltali á þessu ári, er ekki vitað, en kannski er óhætt að’ gizka á 55 kr. fyrir mjólkurlitrann i vasa bóndans. Brúttótekjurnar gætu þvi orðið 3,8 til 4,0 millj. kr. Nú mun hafa sannazt við rannsóknir, að hver kýr skilar aðeins að meðaltali 30% af afurðum sinum til per- sönulegra þarfa bóndans, hinn hlutinn (70%) feri kostn. ivi6 að halda kúnni lifandi og láta hana gefa afurðir. Allir hljóta að sjá það, að fjárhagsgrundvöllur fyrir stofnun kúabús, eins og hér Agúst Þorvaldsson hefur verið rætt um, og rdcstri þess, er ekki til að óbreyttu ástandi. Verðbólgan er, ásamt mörgum öðrum þáttum i efna- hagsmálum og sifelldum breyt- ingum á sviði tækninnar, búin að rifa niður möguleikann til að skapa lifsskilyrði á þessu sviði atvinnurekstrar. Þeir einir, sem byrjuðu búskap fyrir fjölda ára, geta enn bjargazt af þessari at- vinnu, en flestir þeirra fara brátt að tinast af starfsvett- vangi aldurs vegna. Nú hugsa menn auðvitað sem svo, að margir byrji búskap með styrk frá foreldrum, þannig að þeir taka við jörð og búi og þurfi litið að borga. Það er auðvitað rétt, að þetta á sér stað, en hitt stendur eigi að siður óhaggað, að grundvöllur tiefur verið grafinn undan heil- brigðri þróun á þessu sviði at- vinnulifs, þvi að auðvitað er ekki annað heilbrigt en að at- vinnurekstur geti staðið undir eðlilegum stofnkostnaði. Með einhverjum róttækum ráðum verðursem allra fyrst að bregðast við til úrbóta á þeim vanda sem hér hefur nokkuð verið rætt um, svo að ungt fólk, sem áhuga hefur á búskap og vill vera kyrrt i átthögum sin- um, geti fengið að njóta hæfi- leika sinna, sjálfu sér og þjóð sinni til sæmdar og gagns við ræktun jarðar og framleiðslu hinna llfsnauðsynlegu landbún- aðarvara. Við öllum vandamálum finn- ast ráð, ef vel er eftir leitað með góðum vilja. Þeir sem nú stjórna málum þjóðarinnar, hljóta að vilja koma i veg fyrir fækkun fólks I sveitum, og að eyðijörðum fjölgi til að fara svo jafnharðan undir sportmennsku og hrossastóð kaupstaðabúa, eða stöðugt fugladráp þeirra skotglöðu orlofsgesta, sem strá- fella fuglahópa með haglabyss- um sinum. Þess má vænta, að landbún- aðurinn og bændastéttin eigi öruggan bakhjarl, þar sem eru núverandi valdhafar þjóðarinn- ar, studdir af 42 þingmönnum — þar af 10 bændum — og að auki er sjálfur landbúnaðarráðherr- ann fyrrverandi bóndi og kunn- ur að traustum stuðningi við landbúnaðinn. Þessari stóru og sterku breiðfylkingu rlkisyalds- ins á Alþingi verður að Hreysta til þess að láta eftir sig liggja, fljótt og vel, varanlegar umbæt- ur á þvi sviði, sem hér hefur verið gert að umtalsefni. Agúst Þorvaldsson .IH ■1 l u sí ww mm wm Brezkur gestasöngvari í CARMEN 17 þúsund manns hafa séð óperuna Á sunnudagskvöldið 1. febr. verö- ur 30. sýning á óperunni CARMEN i Þjóðleikhúsinu og syngur þá brezki söngvarinn Si- mon Vaughan hlutverk nautaban- ans, Escamillos, sem gestur. Simon Vaughan, sem er um þri- tugt, stundaði söngnám i Bret- landi og i Vin. Hann söng um skeið með flokki hljómlistar- manna, CONTRASTE, sem ferðaðist um ítaliu og flutti nú- timatónlist. Vaughan hefur s.l. tvö ár starfað i Bretlandi, haldið sjálfstæða hljómleika, komið fram I sýningum og m.a. sungið með irsku óperunni. Hann kom hingað til lands i fyrravor og kom þá fram á tónleikum og söng i út- varp og sjónvarp. Aðsókn að óperunni CARMEN hefur verið mjög góð. Úm 17 þús- und manns hafa séð óperuna, og er aðsókn þvl orðin jafn mikil og mest hefur orðið áður á óperusýn- ingar leikhússins. Óperur og ópe- rettur hafa verið með vinsælli sýningum leikhússins. Þær sem mestrar hylli hafa notið eru Leðurblakan, sem sýnd var 50 sinnum I hitteðfyrra fyrir 26.290 áhorfendur, en mest sóttu óperu- sýningarnar til þessa eru Rakar- inníSevilla (1958), sem var sýnd I 31 skipti fyrir 17.685 áhorfendur og Rigoletto (1961) en sýningar á þeirri óperu urðu 29 og sýningar- gestir 18.605. Sviösmynd úr CARMEN

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.