Tíminn - 13.02.1976, Blaðsíða 5
Föstudagur 13. febrúar 1976
TÍMINN
5
Bókmenntakynning í
Garðaskóla
Næg gufuorka
við Kröflu
Nýlega birtist viðtal við
Ingvar Gisiason, alþm. vara-
formann Kröflunefndar, i
blaðinu Degi á Akureyri, þar
sem fjailað er um málefni
Kröfluvirkjunar. M.a. svarar
Ingvar fuiiyrðingum um það,
að engin vissa sé fyrir nægri
gufuorku við Kröfiu á þessa
leið:
— ,,l»cssar sögur cni mikl-
um ýkjum |
hlandnar,
raunar ósann-l
i n d i. II i ð I
sanna er, að|
Orkustofnun
hefur frál
upphafi haftj
þann fyrir-j
vara á, að'
óvistværi að hún gæti látið i té
svo mikla orku um næstu ára-
mót að nægði til þess að knýja
báðar vélasamstæðurnar. En
þetta skiptir ekki meginmáli.
Ef orka er fyrir hendi til þess
að knýja aðra vélasamstæð-
una með viðunandi byrjunar-
afköstum þá er markinu náð.
Iðnaðarráðuneyti og Kröflu-
nefnd hafa aldrei farið fram á
meira i bili. Ég held að aðal-
atriðið við orkuöflunina sé að
leggja sig fram af alefli við
borunarframkvæmdir, bora
sem mest og skjótast m.a.
með þvi að bæta við a.m.k.
einum bor og hafa tiltækan
nógu öflugan iokubúnað á bor-
holurnar. Þvi miður tókst svo
til, að aflmesta borholan
eyðilagðist vegna þess fyrst og
fremst aö lokubúnaður var
ónógur. Hins vcgar held ég að
krafturinn i þeirri holu sé
bezta sönnunin fyrir þvi að
ekki cr orku vant á Kröflu-
svæðinu. Þvert ó móti má
segja að þar sé fólgin i jörðu
ótæmandi orka.”
Tíma æsifrétta
um Kröfluvirkjun
lokið?
Þá ræðir Ingvar um gagn-
rýni þá, sem fram hefur komið
á Kröfluvirkjun, og segir
m.a.:
,,Það er rétt að gagnrýni á
Kröfluvirkjun hefur heyrzt og
e.t.v. komið úr ýmsum áttum
eins og þú segir. Þaö er út af
fyrir sig eðlilegt að menn ræði
þau málefni, sem hæst ber á
hvcrjum tima og scgi skoðun
sina á þeim. Og Kröfluvirkjun
á ekki að vera undanþegin
umræðu og gagnrýni frekar en
önnur stórmál, sem uppi eru.
Trúlega orkar flest tvimælis
þá gert er. Hins vegar tel ég
það tæpast einleikið, að þetta
mikla framtak, sem Alþingi
og rikisstjórn standa að og
sýnt cr i virkjunarmálum
Norðlendinga, skuli hafa orðið
tilefni til þeirra æsifrétta og
öfgamálflutnings, sem raun
ber vitni. Sem betur fer hefur
smám saman dregið úr
þessum ófögnuði. Éghef mina
skoöun á þvi hverjir alið hafa
á æsifréttum og öfgum um
Kröfluvirkjunina, m.a. ' Iagt
sig niður við þaö að mata
fréttamenn á dylgjum og
fölsuðum upplýsingum um
starfseini Kröflunefndar. Ég
ætla ekki að nefna nein nöfn i
þessu sambandi. Hitt veit ég
að þeir inenn, sem staöið hafa
fyrir æsifréttunum, hafa gert
það af iniöur þekkilegum
hvötum. En ég vona, að timi
æsifrétta af Kröfluvirkjun sé
liðinn. Ég hef oröiö þess var
mér til ánægju, að fólk só i
gegnuin moldviðrið, sem þyrl-
að var upp á timabili i sam-
bandi við Kröfluvirkjun. Ég
held að fólk geri sér þcss fulla
grein. að Kröfluvirkjun er
ekkert einkafyrirtæki, og þar
ræður ekki eins manns vilji
eða duttlungar, heldur samráð
margra manna, þar sem loka
ákvörðunarvald i meiriháttar
málum er hjá ríkisstjórn og
Alþingi."
Tryggvi Helgason
lætur af formennsku
AÐALFUNDUR Sjómannafélags
Eyjafjarðar var haldinn á Akur-
eyri sunnudaginn 8. febrúar.
Fram kom i skýrslu formanns, að
mikið starf hefur verið hjá félag-
inu á siðasta ári, einkum að
samningamálum. Yfirleitt hafa
náðst fram nokkrar hækkanir á
kaupi, nema á loðnuveiðum, þar
hefur orðið veruleg lækkun. Sjó-
menn á stóru togurunum áttu i
verkfalli i 82 daga á fyrri hluta
ársins til að ná fram leiðréttingu
á sinum kjörum, en aðrar vinnu-
stöðvanir hafa ekki orðið. Hins
vegar blasir nú við vinnustöðvun
á bátaflotanum náist ekki fram
nýir samningar fyrir 15. þ.m.
Reikningar félagsins sýna all-
góða afkomu á árinu, nema hjá
Vinnudeilusjóði, en eignir hans
eyddust upp að kalla i togara-
verkfallinu. Rekstrarafgangur i
Jón Rósmundsson
borgarg jaldkeri
SJ—Reykjavik— Borgarráð hef-
ur samþykkt að ráða Jón Rós-
mundsson i stöðu borgargjald-
kera frá 1. febrúar 1976 að telja.
Jón Rósmundsson hefur starfað i
borgarbókbaldinu i um 30 ár.
Hann tekur við störfum Jóns B.
Jónssonar borgargjaldkera, en
hann lézt 20. janúar sl., 65 ára að
aldri. Jón B. Jónsson hafði starf-
að hjá Reykjavikurborg i yfir 40
ár.
Orkukreppa hefur
ríkt á Norðurlandi
Um einstaka gagnrýni telur
Ingvar, að gagnrýni Knúts
Otterstedts rafvcitustjóra á
Akureyri, hafi að sumu leyti
veriöá rökum reist, cn að öðru
ieyti ekki. Um gagnrýni Knúts
segir Ingvar:
„Hann hefur m.a. talið það
ámælisvert, að ekki hafi legið
fyrir rökstuðningur fyrir
nauðsyn svona stórs orkuvers,
þegar I það var ráðizt og að
ekki sé rekstráráætlun fyrir
hendi. Iivað þessa rekstrar-
áætlun varðar, þá má vera, að
á þvi máli sé einhver mis-
brestur. En enga ástæðu sé ég
til þess að gera mikiö úr þvi i
sjálfu sér, enda má úr þvi
bæta næstum að segja hvenær
sem er. i þvi sambandi yrði
nauðsynlegt aö leita til Knúts
Otterstcdts sem fram-
kvæmdastjóra Laxárvirkjun-
ar, þvi að ekki kemur annað til
mála en að allar orkustöðvar á
Norðurlandi, og raunar
Austurlandi lika, verði rcknar
i sameiningu og undir einni
stjórn. Um hitt atriðið, að
Kröfluvirkjun sé of stór, er ég
Knúti allsendis ósammála.
Það er min skoðun og sam-
starfsmanna minna við
Kröfluvirkjun, að ekki sé
minnzt á iðnaöarráðherra, að
Knútur hætti til að vanmeta
orkuþörf i Norðlendingafjórð-
ungi. Það er raunar ckki nýtt
að orkuþörf Norðuriands sé
vanmetin. Þannig hefur það
verið siðustu 10-15 ár að
minnsta kosti. Sannleikurinn
er sá, að Norðurland hcfur
verið i orkusvelti árum
saman. Hér hcfur rikt sann-
kölluð orkukreppa.”
— a.þ.
Bókm enntaky nning veröur i
Garðaskóla n.k. mánudagskvöld
16. febrúar kl. 8.30. Kynnt verður
Þorpið eftir Jón úr Vör, skáld. t
Garðaskóia hefur farið fram leik-
iistarkennsia um nokkurra ára
skeið. Kennslan er á vegum sjálfs
skólans, en er þó vaifag. Nú eru
þrir leiklistarhópar i skóianum.
Edda Þórarinsdóttir leikkona
hefur undanfarin ár unnið þarna
hið merkasta starf og verið drif-
f jöður hvað þessa kennslu snertir.
1 skólanum er bókasafn Garða-
bæjar og hefur Erla Jónsdóttir
bókavörður umsjón með þvi.
A vegum bókasafnsins og með
aðstoð nemenda og leiklistar-
kennarans hafa verið haldnar
bókmenntakynningar innan skól-
ans. Meðal annars hafa verið
kynnt verk Hallgrims Pétursson-
ar, William Heinesen, Steins
Steinars og fleiri ágætra skálda.
Þessar kynningar hafa farið fram
innan skólans og fyrir nemendur
hans, en þær hafa lika verið sýnd-
ar ibúum Garðabæjar. Núverandi
leiklistarkennari i skólanum,
Nina Björk Árnadóttir, hefur ný-
lega æft með hópi nemenda sinna
kynningu á Jóni úr Vör skáldi og
bók hans Þorpinu. Um tuttugu
nemendur koma fram i dag-
skránni, en sviðsteikningu annast
nemendur i listanefnd með aðstoð
teiknikennara sins Kristján Jó-
hannssonar.
Á eftir fara fram umræður um
ljóðlist og mun skáldið sjálft taka
þátt i þeim umræðum. Benedikt
Axelsson skólabókavörður mun
stjórna þessum umræðum. Bóka-
safnið verður kynnt og veitingar
verða á boðstólum. Ráðgert er að
halda þessari starfsemi áfram og
verða væntanlega fleiri bók-
menntakynningar i Garðaskóla
siðar i vetur. Bókmenntakynn-
ingin er öllum opin, sem áhuga
hafa.
Fréttatilkynning
Verkalýðsfélagið Baldur
MÓTMÆLIR OF
BELDI BRETA
Eftirfarandi tillaga var sam-
þykkt á fundi i Verkalýðsfélagi
Norðfirðinga 30. janúar sl.
„Fundur haldinn i Verkalýðs-
félagi Norðfirðinga 30. janúar
1976 mótmælir harðlega hugsan-
legum samningum við Breta um
veiðar innan islenzku fiskveiði-
lögsögunnar. Fundurinn telur, að
þar sem ástand fiskstofna við
landið er þannig að við erum ekki
aflögufærir fyrir útlendinga sé
það tilræði við kjör alþýðunnar i
landinu að veita útlendingum að-
gang að fiskveiðilögsögu okkar.
Sizt sé ástæða til að semja við
Breta sem beitt hafa okkur
hernaðarofbeldi til að þeir geti
haldið uppi rányrkju á miðunum
og þar með verið að stefna efna-
legri afkomu Islendinga i voða.
Nóg sé að gert með samningum
við Vestur-Þjóðverja þótt annarri
smán sé ekki við þann samning
bætt.”
heild er 2.18 millj. og bókfærðar
eignir i árslok rösklega 8 milljón-
ir. Á árinu nutu 18 félagar dag-
peninga úr sjúkrasjóði félagsins,
að upphæð alls kr. 693 þúsund.
Samþykkt var að hækka dagpen-
ingagreiðslur sjúkrasjóðs á þessu
ári nokkuð frá þvi sem verið hef-
ur. Félagsgjald fyrir yfirstand-
andi ár var ákveðið kr. 8.000,-
Á fundinum var lýst kjöri
stjórnar. Auglýst var eftir fram-
boðslistum til allsherjar-
kosningar innan félagsins, en
aðeins einn listi kom fram og varð
þvi sjálfkjörinn. Samkvæmt þvi
er aðalstjórn félagsins nú þannig
skipuð:
Guðjón Jónsson, formaður,
Ragnar Árnason varaformaður,
Armann Sveinsson ritari,
Matthias Eiðsson gjaldkeri og
Jón Hjaltason meðstjórnandi. 1
varastjórn eru Brynjar Sigfús-
son, Stefán Óskarsson og Stefán
Snælaugsson. Auk þess voru
kosnir 7 menn i trúnaðarmanna-
ráð og á fundinum var kosið til
ýmissa annarra trúnaðarstarfa
fyrir félagið.
Tryggvi Helgason lét nú af for-
mennsku félagsins að eigin ósk,
og voru honum i fundarlok þökk-
uð mikil og gifturik störf i þágu
félagsins og sjómannastéttarinn-
ar, en Tryggvi var formaður
félagsins i samfleytt 40 ár.
Félagsmenn i Sjómannafélagi
Eyjafjarðar eru nú 303 og hafa
ekki áður verið fleiri.
Tilkvnning
frá oliufclögunum
Vegna sívaxandi erfiðleika við útvegun rekstursfjár til þess að fjár-
magna stöðugt hækkandi verð á olíuvörum, sjá olíufélögin sig knúin til
þessað herða allar útlánareglur. Frá og með 16. febrúar næst komandi
ganga i gildi eftirfarandi greiðsluskilmálar varðandi lánsviðskipti:
0
0
0
Togarar og stærri f iskiskip skulu hafa heimild til að skulda aðeins
eina úttekt hverju sinni. Áður en að frekari úttektum kemur skulu
þeir hafa greitt fyrri úttektir sínar, ella verður afgreiðsla á olíum
til þeirra stöðvuð. Greiðslufrestur á hverri úttekt skal þó aldrei
vera lengri en 15 dagar.
Önnur f iskiskip skulu almennt hlýta sömu reglu. Hjá smærri bát-
um, þar sem þessari reglu verður ekki við komið, skal við það mið-
að að úttekt sé greidd um leið og veðsetning af urða hjá f iskvinnslu-
stöð fer fram.
Þeir viðskiptamenn, sem hafa haft heimild til lánsviðskipta í sam-
bandi við olíur til húskyndingar, hafi greiðslufrest á einni úttekt
hverju sinni. Þurfa þeir þvi að hafa gert upp fyrri úttekt sína áður
en til nýrrar úttektar kemur.
Um önnur reikningsviðskipti gilda hliðstæðar reglur.
rcssoi
Olíufélagið hf.
Olíuverzlun
Islands hf.
\ y Olíufélagið
shén Skeljungur hf.