Tíminn - 20.02.1976, Side 20
20
TÍMINN
Föstudagur 20. febrúar 1976
GORDON HILL er nú talinn einn hættulegasti sóknar-
leikmaöur á Bretlandseyjum. — Þessi snjaili útherji,
sem Tommy Docherty keypti frá Millwall, þarf örugg-
lega lengi að bíða, þar til Don Revie velur hann í enska
landsliðið. Hill, sem má segja að sé sfðasta stykkið í hinu
frábæra „púsluspili" Tommy Docherty á Old Trafford,
er óstöðvandi, þegar hann kemst á skrið. Hann elskar
það að tef la á tvær hættur, og er oft mikill ævintýramað-
ur, þegar hann á við sterka varnarmenn að etja. Þetta
kunna áhorfendur að meta og hinn frábæri einleikur
hans hef ur af lað honum geysilegra vinsælda. Þegar hon-
um tekst upp, þá rísa áhorfendur upp úr sætum sínum af
spenningi. Hill hefur einnig næmt auga fyrir samspili og
sendingar hans fyrir markið eru stórhættulegar.
Tommy Docherty hefur horfið
aftur i timann, til að fullkomna
Manchester United-liðið. — Með
þvi að kaupa Gordon Hillfrá Mill-
wall á 70 þús. pund, hefur hann
snúið aftur i þann tima, sem tveir
útherjar eru notaðir. Docherty
hefur tekið upp útherja-leikað-
ferðina aftur, með þvi að láta
Gordon Hillleika á vinstri kantin-
um og Steve Coppell á þeim
hægri. Þessi leikaðferð var mjög
árangursrik fyrir nokkrum árum
— eða þar til farið var að nota
þrjá miðherja. Hverjir muna ekki
eftir gömlu útherjunum, eins og
George Armstronghjá Arsenal og
Liverpool-leikmönnunum Ian
Callaghan og Peter Thompson,
sem voru kallaðir ,,orthodox-út-
herjar”, eða hinir einu og sönnu
útherjar.
Mönnum er enn ofarlega i
minni leikur KR og Liverpool á
Laugardalsvellinum 1964, þegar
Peter Thompson sýndi stórkost-
legan leik á kantinum — hann
gabbaði þá Hreiðar Ársælsson
upp úr skónum, svo að Hreiðar
vissi ekki hvort hann var að fara
eða koma. Islendingar hafa átt
mjög góða útherja, eins og örn
Steinsen úr KR, Skagamanninn
Þórð Jónssonog Elmar Geirsson,
svo einhverjir séu nefndir. En nóg
með þessar vangaveltur, bregð-
um okkur aftur á Old Trafford.
— Ég hafði augastað á Gordon
Hillog fylgdist með honum leika
12 leiki. Ég var öruggur um, að
þetta væri maðurinn fyrir mig,
sagði Tommy Docherty.sem enn-
þá er að hrósa sér af nýjustu og
siðustu kaupum sinum. Gordon
— síðasti
hluturinn
á Old
Trafford
púslu-
spilinu
ég get, sagði Hilleftir sinn fyrsta
leik á Old Trafford. Nú hefur
hann svo sannarlega sýnt getu
sina — hann hefur leikið hvern
leikinn öðrum betri og skorað 5
mörk fyrir United.
Manchester United-liðið, með
þá GordonHiliog Steve Coppellá
köntunum — skapar ógurleg
vandræði og usla i vörnum and-
stæðinganna, og ógna hvaða vörn
sem er. — Þessi drengur er
ákveðinn og hann trúir á sjáifan
sig. Hann mun verða i miklu
uppáhaldi á Old Trafford, ef ég
þekki áhangendur Manchester
United rétt, sagði Docherty, um
Gordon Hill. — Þetta er mikii-
fenglegasta félag i heimi og ég er
þakklátur fyrir, að fá að keppa
undir merkjum þess. Ég hef nóg
sjálfstraust, til að geta barizt fyr-
ir félagið, sagði Gordon Hill.
— Margt fólk talar um, að ég sé
rogginn og öruggur með mig. —
Já, þannig er ég. Ef maður hefur
ekki sjálfstraust, þá er alveg eins
gott að leggja knattspyrnuskóna
á hilluna. Það eru ekki margir
varnarmenn, sem geta stöðvað
mig — ekki nema með þvi að
bregða mér, sagði Hill.
Það er ekki að efa, að Man-
chester United-liðið — með þá
STEVE COPPELL...einn af hin-
um stórefnilegu strákum hans
Docherty.
Manchester United-liðið leikur
knattspyrnu að minu skapi —■
hratt, örugglega og góðan
sóknarleik. Mér fannst, að ég
hefði ekkert annað gert um ævina
en að leika með strákunum. Þeg-
ar ég er búinn að átta mig á
hlutunum, þá skal ég sýna hvað
Coppellog Hilláköntunum, hefur vinna „Double” — bæði deildar-
tekið stefnuna á meistaratitilinn og bikarkeppnina.
og iiðið á góða möguleika á, að — SOS
Hilllék fyrsta leik sinn með Unit-
ed-liðinu gegn Aston Villa á Old
Trafford, þar sem 52 þús. áhorf-
endur voru saman komnir. Hill
hafði aldrei fyrr leikið fyrir svo
marga áhorfendur, en hann átti
stórgóðan leik. Þessi snjalli 21 árs
leikmaður, lék eins og hann hefði
aldrei leikið með öðru liði en
Manchester United. Gordon Hiil,
sem er frábær einleikari ög mjög
góður með knöttinn, sagði: —
Þetta er stórkostlegur staður og
GORDON HILL
ANDRÉS KRISTJANSSON...... hinn efniiegi linumaður úr FH, er
einn af unglingalandsliðsmönnum okkar.
„Mikill áhugi
hjá strákunum"
— segir Viðar Símonarson, sem er byrjaður
að undirbúa unglingalandsliðið fyrir
Norðurlandamótið í Reykjavík
— Við stefnum að Norðurlandameistaratitlínum, við
gerum okkur ekki ánægða með annað, sagði Viðar
Símonarson, landsliðsþjálfari í handknattleik, sem er nú
byrjaður að undirbúa unglingalandslið pilta af fullum
krafti, fyrir Norðurlandamótið, sem fram fer i Reykja-
vík 2.-4. apríl.
— Strákarnir koma saman
tvisvar sinnum i viku — þ.e.a.s. á
sunnudögum er æfing og siðan
eru leiknir tveir æfingaleikir, þar
sem farið er yfir það, sem tekið er
fyrir á æfingum, sagði Viðar.
Viðar sagði að áhuginn væri mik-
ill hjá þeim 16 strákum, sem hafa
verið valdir til æfinganna og and-
inn i hópnum væri mjög góður. Þá
sagði hann, að lokaundirbúning-
urinn hæfist upp úr miðjum marz
— þá yrði æft 5 sinnum i viku, eða
jafnvel alla daga vikunnar.
Strákarnir, sem fá það hlut-
verk, að endurheimta Norður-
landameistaratitilinn, sem við
unnum 1972, eru:
Markverðir:
Kristján Sigmundsson, Þrótti... 4
EgiII Steinþórsson, Ármanni.... 0
Ólafur Guðjónsson, FH..........0
Aðrir leikmenn:
Pétur Ingólfsson, Ármanni.....4
Jón Árni Rúnarss., Fram........8
Theódór Guðfinnss., Breiðablik .0
Jón Hauksson, Haukum ..........o
Friðrik Jóhannsson, Arm........0
Andrés Kristjánsson, FH........0
Gústaf Björnsson, Fram.........0
Sigurður Sigurðss., Víking.....0
Halldór Arason, Þrótti.........0
Jón Viðar Sigurðss., Armanni... 0
BjarniGuðmundsson, Val.........8
óskar Ásgeirsson, Val..........3
Kristinn Ingimarsson, KR.......0
Eins og sést á þessu, þá eru
margir nýliðar i unglingalands-
liðinu. Bjarni Guðmundsson og
Jón Arni Rilnarsson hafa leikið
flesta unglingalandsleikina, eða 8.
— SOS