Tíminn - 11.03.1976, Page 1

Tíminn - 11.03.1976, Page 1
Leiguflug—Neyðarf lug HVERT SEM ER HVENÆR SEM ER FLUGSTÖÐIN HF Simai-27122-11422 56. tölublað —Fimmtudagur 11. marz 1976 — 60. árgangur. TKNGIR" Aætlunarstaðir: Blönduós — Sigiuf jörður Búðardalur — Reykhólar Flateyri — Bíldudalur Gjögur — Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- hólmur — Rif Súgandafj; Sjúkra- og leiguflug um allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 t2 Brezku freigáturnar lögðu enn einu sinni til atlögu við is- lenzkt varðskip i gær, og varð Baldur að þessu sinni fyrir barðinu á freigátunni Dio- mede, en sú freigáta hefur áð- ur vegið að Baldri og munaði þá minnstu að varðskipið sykki. SYNING A HANDRITUM, MYNDLIST OG KYNLEGUM GRIPUM ÚR FÓRUM KARLS EINARSSONAR DUNGANONS SJ—Reykjavik. A listahátið i sumar mun Listasafnið efna tii sýningar á verkum Dunganons, Aðför að Baldri: Ásígl i 23j ■ng iu tilraun Gsal-Reykjavik —Brezka freigátan Diomede sigidi i gær á mikl- um hraða á varðskipið Baidur og iaskaði það nokkuð. Engin siys urðu á mönnum. t skeyti til stjórnstöðvar Landhelgisgæzlunnar frá Höskuldi Skarphéðinssyni, skipherra á Baldri, segir m.a. að það, sem sérstaklega hafi einkennt siglingu freigátunnar, hafi verið liinn mikli hraði, og telur Höskuldur að það beri vott um heift. bað var kl. 14.40 i gær, að freigátan Diomede sigldi á Baldur, en skipin voru þá stödd á friðaða svæðinu á Þistilfjarðargrunni um 31 sjómilu frá Langanesi. Fyrir ásiglinguna hafði freigátan Mermaid gert harðsnúnar ásiglingartilraunir, en alls urðu ásigl- ingartilraunir Mermaids 18 að tölu, að sögn skipherrans á Baldri, Höskuldar Skarphéðinssonar. Diomede hafði gert fjórar árangurslausar ásiglingartilraunir á Baldur, en það var i fimmtu tilrauninni sem ásiglingin varð. Diomede sigldi á bakborðshorn varðskipsins, og urðu helztu skemmdir þær, að afturgálgi og keðjubraut eru nú undin, og á efra þilfari, þar sem gálgafótur er festur, hafa einnig orðið nokkrar skemmdir. Skemmdir á Diomede virðast ekki miklar að sjá, að sögn Höskuldar, en það var ankeri freigátunnar sem komu á bakborðshorn varðskipsins. Um tima tóku þátt i aðförinni að Baldri, auk freigátnanna tveggja, dráttarbátarnir Euroman og Statesman, ásamt togar- anum Primella. Að sögn talsmanns landhelgisgæzlunnar er áhöfn á þessum brezku skipum á sjötta hundrað manns, en skip- verjar á Baldri eru aðeins 23. eða Karls Einarssonar. Dunganon lézt fyrir nokkrum árum og eftirlét Listasafninu og Þjóðskjalasafni Islands mikið af teikningum, handritum og öðrum hlutum. Dunganon var skáld og orti á ótal tungum, listmálari og söngvari. Hann tók sér nafnbótina hertogi af St. Kilda og veitti einnig öðrum heiðursnafn- bætur, og er trúlegt að ein- hverjar slikar verði á sýning- unni á Listahátið. Hann gaf út ljóðabókina Corda Islandica. Halldór Kiljan Laxness, hefur skrifað smásögu með sama nafni um Dundanon, sem hann nefnir Karl Einfer, en það nafn notaði Karl i Færeyjum. Sú saga er i Sjöstafakveri. 1 Völu- spá á hebresku segir Laxness einnig frá Karli Einfer. Dunganon fæddist á Seyðis- firði, átti unglingsár i Færeyjum, en dvaldist lengst af i Danmörku. t Brussel rak hann þó um skeið hjónabandsmiðlun, ásta stjörnufélag. Hann var út- varpsþulur i Þýzkalandi nazista, og á þá einhverju sinni að hafa sagt út yfir ljósvakann: Svo kem ég aftur með sömu lyg- ina á sama tima á morgun. Björn Th. Björnsson og Stein- þór Sigurðsson hafa umsjón með sýningunni á verkum Karls Einarssonar Dunganons, sem eflaust marga fýsir að sjá. Dunganon i heimsókn á tslandi Reglur um meðhöndlun olíu þverbrotnar: „Algjört skipulags- og hugsunarleysi virðist hafa ráðið ferðinni" — SEGIR í SKÝRSLU FRÁ SIGLINGAAAÁLASTOFNUN HHJ-Rvik —Engu er likara en al- gjört skipulags- og hugsunarleysi hafi að mestu ráðiö ferðinni þegar oliubirgðageymarnir á flestum þeim stöðum, sem skýrslan fjall- ar um hafa verið settir niður. Viða standa oliubirgðageymar i miðjum ibúðahverfum, bröttum fjallshiiðum og á svæðum, sem vitaöer að fallið liala snjóflóð eða aurskriöur og viða eru svæðin sem oliubirgðageymarnir standa á allt að þvi eins mörg og geym- arnir. Má i þvi sambandi nefna Sevðisfjörö, Neskaupstað og Fá- skrúðsf jörð. Þetta er orðrétt tilvitnun i skýrslu um ástand oliustöðva á Austfjörðum, sem tveir starfs- menn Siglingamálastofnunar rik- isins, þeir Stefán Bjarnason og Magnús Jóhannesson, hafa tekið saman. Ætlunin er að athuga á næstunni hvernig ástatt er i þess- um eínum i öðrum landshlutum, en búizt er við þvi að ástandið sé viðast jafn slæmt og á Austfjörð- unum. 1 skýrslunni kemur fram að ■tjög viða er ölium umbúnaði iugeyma áfátt og þvi ljóst að :glur um þessi efni eru þver- urotnar, en þar segir m.a. að svo skuli um hnútana búið að olía komist ekki til sjávar. t lysingum á oliubirgðastöðvunum á Aust- fjörðum kemur fram að viða er um oliumengun að ræða og þess jafnvel dæmi að olia hafi borizt i saltgeymslu fiskverkunarstöðvar i nágrenni oliugeyma, en slikt henti á Breiðdalsvik. 1 skýrslu þeirra tvimenning- anna eru auk lýsinga á núverandi ástandi lagðar fram tillögur um bætt skipulag oliubirgðastöðv.- anna. ORVÆNTING BRETA kemur æ betur í Ijós Tío Sjó tilviljanir Víðavang -*■ o =iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiæ FJ-Reykjavik. Örvænting brezku togarasjómannanna á islands- miðum er nú sifellt betur að sýna sig. i gær birtist i brezka blaðinu Daily Express skeyti frá einum skipstjóra, Michael Paterson að nafni, þar sem hann krafði rikis- stjórnina um raunverulega vernd — að öðrum kosti væri rikis- stjórninni bezt að segja af sér. Ef fjórum litlum varðskipum á að leyfast að eyðileggja allt fyrir djúpsjávarflota Breta, vegna þess að brezka rikisstjórnin hefur ekki manndóm i sér til að verja hagsmuni okkar — þá er bezt að ráðherrarnir hverfi allir með tölu úr ráðherrastólunum. Paterson segir i skeytinu, að hann sé ekki einn um þessa skoðun, heldur sé það samdóma álit allra brezkra togaramanna á tslandsmiðum, að brezka rikisstjórnin sé einskis álits verð fyrir linkind sina i land- helgisstriðinu. Paterson þessi er skipstjóri á Primellu frá Huli, og hefur hann ekki farið varhluta af árangursrikum aðgerðum varð- skipanna. Jack Evans, forseti sambands togarasjómanna i Grimsby, tekur undir framangreind orð skip- stjórans og segir þau endurspegla viðhorf allra. — Okkur er þröngv- að til að leggja upp laupana, og ekki virðist rikisstjórnin hafa minnstu áhyggjur af þvi, segir Evans. Hann segir og, að gremja brezkra togaramanna á Islands- miðum sé nú slik, að senn verði mælirinn fullur og þá muni togarasjómenn sjálfir taka upp ásiglingar á varðskipin. Þriðji hluti Opins dómsmálaráðherra, Ólafs Jóhannessonar, til Þorsteins Pálssonar, ritstjóra, birtist í Tímanum á morgun

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.