Tíminn - 11.03.1976, Blaðsíða 12

Tíminn - 11.03.1976, Blaðsíða 12
12 TÍMINN Fimmíudagur 11. marz 1976 A FLOTTA FRA ASTINNI Eftir Rona Randall - — Þrátt fyrir na,fnið? spuröi hann og brosti — brosi, sem hún skildi ekki. Hún leit undrandi á hann og það var í fyrsta sinn, sem hún skipti um svip. — Hvað kemur nafnið mitt málinu við? — Það er svo fallegt og kvenlegt, það er allt og sumt. Hún dró sig inn i skelina aftur. Ef hann ætlaði að fara að slá henni gullhamra, gat hann sparað sér fyrirhöfn- ina. Hún hafði ekki áhuga á smjaðri. Hún hafði alls eng- an áhuga á karlmönnum......lengur. Hún hafði tekið þessa stöðu til að gleyma öllu, sem hét karlmenn — eða réttara sagt ákveðnum karlmanni — Brent. Allir gull- hamrar í heiminum gætu ekki f ramar vakið áhuga henn- ar á karlmanni. — Hvers vegna vildi faðir yðar, að þér yrðuð læknir? — Vegna þess að hann vildi eignast son, sem gæti tekið við af honum, en svo f æddist ég í staðinn. — Starfar hann enn? — Já. — Hvers vegna starf ið þér þá ekki með honum? Hún svaraði ekki spurningunni. Hvers vegna ætti hún að segja bláókunnugum manni frá ástæðunum fyrir því aðhúnyfirgaf England? Þessi ungi maður virtist forvit- inn — eða var hún bara svona tortryggin? David fann, að hún kærði sig ekki um að ræða þetta mál, svo hann skipti um umræðuefni. Hann var ákaflega góðhjartaður og hann grunaði, að eitthvað alvarlegt lægi að baki þvi að hún var komin til Parísar, svo hann ákvað að spyrja ekki meira um það. En hún vakti áhuga hans. Þrátt fyrir þá staðreynd, að hann vildi hafa konur fjörugar og veraldarvanar, var eitthvað við Myru Henderson, sem gerði hann forvitinn. Þegar þau komu inn í borgina og hann varð að draga úr hraðanum, fékk hann tækifæri til að virða hana betur fyrir sér. Honum geðjaðist vel að því, sem hann sá. Dálitið óreglulegir andlitsdrættir, skær augu og munnur, sem henni var óhætt að leggja áherzlu á með varalit. Auðvitað var hún ekki Mimi, en hún var áreiðanlega það bezta, sem borizt hafði til Si. Georgessjúkrahússins í langan tíma. — Þér voruðað segja mér frá yf irlækninum, sagði hún stuttlega. — Ó, já. Mark Lowell. Ég hugsa, að yður muni geðjast vel að honum. Okkur líkar öllum vel við hann, þótt hann sé svona niðursokkinn í starf sitt. Líf hans byrjar og end- ar með St. Georges... 3 - — Ætlast hann til sama áhugans hjá öðrum, að þér haldið? — Einmitt. En þér megið ekki misskilja — hann er fyrirtaks yfirmaður. Gætið þess bara, að hann gangi ekki fram af yður. Eins og hann gæti það, hugsaði Myra. Engin vinna gat orðið of erfið, enginn vinnutími of langur, ef henni átti að takast að fylla þetta gínandi tómarúm, sem Brent hafði skilið eftir. Vinna, vinna og meiri vinna var það sem hún þarfnaðist, það var rétta lækningin handa hjarta, sem var neitað um ást. — Þér skuluð heldur. ekki búast við að fá eigin íbúð. Það er ekki einu sinni hjúkrunarkvennabústaður þarna. Við búum utan sjúkrahússins, öll saman og ég hugsa, að þér kjósið það heldur. Ég býst við að yf irhjúkrunarkonan hafi útvegað yður herbergi, að minnsta kosti til bráða- birgða, þar til þér finnið sjálf íbúð. Ég hef eins konar íbúð við Boulevard Saint Michel, tvö herbergi uppi yfir brauðgerð. Þér eruð velkomnar í heimsókn, ef yður langar til. — Takk, svaraði hún stuttlega. — Mér datt svona í hug, að yður kynni að langa i bolla af ensku tei, eða fá heimþrá. Nú tók hún í f yrsta sinn eft- ir vingjarnlegu brosi hans og leið betur. — Takk, sagði hún aftur og í þetta sinn hlýlegar. — Það er vingjarnlegt. Hann brosti. Þetta var í fyrsta sinn, sem kona hafði sagt, að hann væri vingjarnlegur. Venjulega var hann eitthvað annað í þeirra augum. — Eruð þér nýbúin að Ijúka próf i? spurði hann. Að vísu var þetta óþörf spurning, hugsaði hann, því hún var svo ung. — Já, frá St. Bedes. — Einmitt. Ég útskrifaðist líka þaðan! Á samri stundu var eins og tengsl mynduðust milli þeirra. Tengsl, sem eru milli allra, sem útskrifazt hafa frá sama skóla. — Það var gaman, sagði hann. — Nú getið þér ekki neitað að koma og fá yður tebolla hjá mér fyrsta síðdeg- ið, sem þér eigið frí. Að sjálfsögðu þó ekki nema ég eigi líka f rí. Það er aldrei hægt að vita við St. Georges. Mark Lowell er hreinasti þrælapískari. Ég....hann varð hugsi, en hélt svo áf ram: — Ég varð satt að segja hissa, þegar ég heyrði að það hefði verið ráðinn kvenkyns læknir að Fimmtudagur 11. marz 7.00 Morgunútvarp Veður- fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10. Morgunleikfimi kl. 7.15 og 9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr. dagbl), 9.00 og 10.00. Morgunbæn kl. 7.55. Morgunstund barnanna kl. 8.45: Vilborg Dagbjarts- dóttir heldur áfram sögunni „Afsakið, ég heiti Trana” eftir Gunvor Hakansson (4). Tilkynningar kl. 9.30. Þing- fréttirkl. 9.45. Létt lög milli atriða. Við sjóinn kl. 10.25: Ingólfur Stefánsson sér um þáttinn. Morguntónleikar kl. 11.00: Hljómsveit Rikis- útvarpsins leikur „Ur myndabók Jónasar Hall- grimssonar” eftir Pál Isólfsson, Hans Antolitsch stj./ Benny Goodman og Sinfóniuhljómsveitin i Chi- cago leika Klarinettukon- sert nr. 1 i f-moll eftir Weber, Jean Martion stj /Kammersveitin i Prag leikur „La Jolla”, sinfóniettu eftir Martinu. 12.00 Dagskráin. Tónleikar Tilkynningar. 12.25 Fréttir og veðurfregnir. Tilkynningar. A frivaktinni Margrét Guðmundsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 14.30 Guð þarfnast þinna handaDagskrárþáttur i til- efni af æskulýðs- og fórnar- viku kirkjunnar, helgaðri málefnum þroskaheftra barna hélendis, siðari þátt- ur. Umsjónarmenn: Guð- mundur Einarsson og Jó- hannes Tómasson. 15.00 Miðdegistónleikar Trieste-trióið leikur Trió i a- moll eftir Maurice Ravel. Félagar I Vinaroktettinum leika Sextett i D-dúr eftir Felix Mendelssohn. 16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15 Veðurfregnir). Tón- leikar. 16.40 Barnatimi: Gunnar Valdimarsson stjórnar Samfelld dagskrá úr verk- um Erlu skáldkonu: Þulur, kvæði og tvö gömul ævin- týri. — Flytjendur auk stjórnanda: Svanhildur óskarsdóttir, Þorsteinn V. Gunnarsson, Þorbjörg Valdimarsdóttir og Guðrún Birna Hannesdóttir. 17.30 Framburðarkennsla i ensku 17.45 Tónleikar. Tilkynningar. 18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til- kynningar. 19.35 Lesið i vikunni Haraldur Ólafsson talar um bækur og viðburði liðandi stundar. 19.50 Pianóleikur i útvarpssal: Edda Erlendsdóttir leikur Sónötu i As-dúr eftir Josehp Haydn. 20.05 Leikrit: „Konu ofaukið” eftir Knud Sönderby Þýð- andi: Andrés Björnsson. Leikstjóri: Sveinn Einars- son. Formálsorð flytur Vé- steinn Ólason. Persónur og leikendur: Frú Tang: Guðrún Stephensen. Eirik- ur, sonur hennar: Hákon Waage. Ester, dóttir hennar: Edda Þórarins- dóttir. Klaus, unnusti Esterar: Sigmundur Orn Arngrimsson. Jörgen: Pét- ur Einarsson. Nina: Geir- laug Þorvaldsdóttir. Karlsen: Klemenz Jónsson 22.00 Fréttir 22.15 Veöurfregnir Lestur Passiusálma (21) 22.25 Kvöldsagan: „í ver- um”, sjálfsævisaga Theó- dórs Friðrikssonar Gils Guðmundsson les siöara bindi (30). 22.45 Létt músik á síðkvöldi Ungverskt listafólk flytur þætti úr „Kátu ekkjunni” eftir Franz Lehár. 23.30 Fréttir. Dagskrárlok. Auglýsið í Tímanum

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.