Tíminn - 11.03.1976, Blaðsíða 2

Tíminn - 11.03.1976, Blaðsíða 2
2 TÍMINN Fimmtudagur 11. marz 1976 Listahátíð - Listahátíð - Listahátíð Listahátíð - Listahátíð - Listahátíð dansflokkurinn sýnir með hon- um, ef til kemur. Þvi framlagi islenzkra lista- manna að gefa vinnu sina við hátiðina fylgir það skilyrði að stjórnvöld láti ekki fresta henni oftar og Listahátið verði haldin i Reykjavík á tveggja ára fresti svo sem verið hefur frá 1970. Það er nýtt um þessa Listahátið að nú hefur verið leit- að meira en áður til erlendra aðila, sem hagsmuna eiga að gæta hér á landi, svo sem sendi- ráðanna, um fjárhagslegan stuðning, þar sem stjórn Lista- hátiðar hefur nú úr litlu að spila. Samvinna hefur tekizt á þess- um vettvangi. Þýzka sópran- söngkonan fræga Annelise Rothenberger kemur t.d. og syngur á tónleikum 11. júni i Háskólabiói fyrir tilstilli sendi- ráðs Vestur-Þýzkalands hér á landi. Franska sendiráðið hefur stuðlað að komu Ars Antica, fjögurra manna, sem leika á hljóðfæri frá miðöldum. Koma þeirra verður efalaust fengur fyrir mikla séráhugamenn um tónlist. Sendiráð Aust- ur-Þjóðverja á þátt i þvi að Gisela May, kunn Brechtsöng- kona, verður meðal þátttakenda á Listahátið i Reykjavik. Fleiri dæmi eru um góðar undirtektir þeirra erlendu aðila, sem leitað hefúr verið til. 1 kjallara Norræna hússins verður sýning á islenzkri nytja- list. Norræna húsið mun bjóða á hátiðina hönnuði i einhverri grein nytjalistar frá einhverju hinna Norðurlandanna með tilliti til hugsanlegs útflutnings á islenzkri nytjalist. Þekkt danskt flaututrió, Michalatrióið, kemur og leikur i Norræna húsinu. Frá Færeyjum koma þau Annika Haydal og Eyðunn Jó- hannesson ásamt hljóðfæraleik- ara og flytja leik, söng og fleira. Norrænn gestaleikur verður i Þjóðleikhúsinu og verður afráð- ið innan fárra daga hvaða lista- menn þar verða á ferð. Portúgalskur leikflokkur Communa, sem tók þátt i hátið- inni i Nancy i vor ásamt Inúk-hópnum, og gat sér þar góðan orðstir, hefur sýningu hér. Fjallar hún um ógnir fang- elsa og pyntinga og er sögð áhrifamikil i meira lagi. I Listasafni Islands verður sýning á verkum austurriska málarans Hundertwasser. Hann hefur verið kallaður málari rika fólksins. Hann málar ekki mikið en selur öll verk sin þegar i stað háu verði. Listasafnið hefur haft hug á að eignast mynd eftir Hundertwasser en ekki tekizt enn sem komið er. Að Kjarvalsstöðum verður sýning á verkum eins mikils frumkvöðuls franskrar nútima- listar Gérards Schneider. Þar heldur félagið Islenzk grafik einnig sýningu um sögu is- lenzkrar grafiklistar. Stefnt verður að þvi, að á Kjarvalsstöðum verði jafnan eitt eða tvö dagskráratriði hvern dag meðan Listahátið stendur — auk sýninganna tveggja. Koma þar m.a. fram portúgalski leikflokkurinn Communa, Gisela May og maður að nafni Gunnar Walkare. Sá siðastnefndi hefur ferðazt mikið um Afriku og kynnt sér tónlist þeirra, erþar búa. Flytur hann það sem hann nefnir tón- listar „Workshop”, er með hálf- smiðuð og fullsmiðuð hljóðfæri, leikur tónlist o.s.frv. Tónlist þessi er sögð til þess fallin að vekja frumhvatir mannsins. Sagt er, að kunnum islenzkum tónlistarmanni hafi orðið á að Frh. á bls. 15 íslenzkir listamenn gefa vinnu sína, svo að ekki þurfi að fresta Listahátíð UNGUR ÍSLENZKUR FIÐLU- SNILLINGUR EINLEIKARI Á FYRSTU TÓNLEIKUNUM — sem verða undir stjórn þekkts bandaríks hljómsveitarstjóra SJ-Reykjavik. A fyrstu tónleik- um Listahátiðarinnar i vor, i Háskólabió 4. júni, leikur Unnur Maria Ingólfsdóttir einleik á fiðlu, en stjórnandi Sinfóniu- hljómsveitar islands á tón- leikunum verður Paul Douglas Freeman, sem er upprennandi hljómsveitarstjóri i Banda- rikjunum nú. Unnur Maria Ingólfsdóttir er 24 ára gömul, og hefur náð frá- bærum námsárangri. Hún stundaði nám i Tónlistarskólan- um samhliða menntaskólanámi og var Björn Olafsson fiðluleik- ari aðalkennari hennar. Hún lauk einleikaraprófi 1972 og fór um haustið til náms i Curtis Institute i Philadelpia, þar sem fiðluleikarinn frægi Rudolf Ser- kin er skólastjóri. Serkin bauð Unni Mariu skólavist, en hann er góðkunningi Björns Ólafsson- ar fiðluleikara, kennara hennar. Haustið 1975 hóf hún nám i Julli- ard tónlistarskólanum i New York að afloknu samkeppnis- prófi. Lýkur hún námi þar i vor. Aðalkennari hennar er Dorothy DeLay. Unnur Maria hefur leikið á tónlistahátiðinni i Aspen i Colo- rado, og tekið þátt i sumar- skólastarfi þar ásamt völdum tónlistarnemendum frá Banda- rikjunum og annars staðar að úr heiminum. Siðastliðið sumar var hún á námskeiði fyrir frá- bæra tónlistarmenn, sem fiðlu- leikarinn Nathan Milstein held- ur i Sviss á sumrin. Mikil sam- keppni er að komast á þessi námskeið. Áður hafði hún á sumrin tekið þátt i tónlistarmótum i Inter- locken i Michigan og i Lundi i Sviþjóð. Á þeim árum lék hún m.a. einleik i Tivoli i Kaup- mannahöfn, fiðlukonsert Beet- hovens. Á opnunartónleikum Lista- hátiðarinnar mun Unnur Maria leika einleik i fiðlukonserti Mendelsohns Bartholdy op. 64 i Emoll. Að öðru leyti vitum við ekki enn um efnisskrá tónleik- anna. Þau Paul Douglas Freeman hafa hitzt i New York og haft samráð um tónleikana. Paul Douglas Freeman, sem er blökkumaður, er stjórnandi De- troit Symphony Orchestra. Victor B. Olason hjá Upplýsingastofnun Bandarikj- anna á þátt i þvi að tekizt hefur að fá Freeman á Listahátið. Unnur Maria Ingólfsdóttir hefur náð frábærum árangri i námi sinu. Sigurveig Jónsdóttir og Saga Jónsdóttir i hlutverkum sinum i Glerdýrunum. LA sýnir glerdýrin SJ—Reykjavik. — Það hefur verið endanlega ákveðið að Leikfélag Akureyrar sýni Gler- dýrin eftir Tennessee Williams á Listahátíð, sagði Hrafn Gunn- laugsson framkvæmdastjóri Listahátiðar 1976. Þessi sýning Akureyringanna er ákaflega vel gerð. — Ég hef séð sýninguna, sagði Hrafn, og ég var satt að segja aiveg hlessa, hve góður árangur hefur náðst. — Það er viðurkenning fyrir Leikfélag Akureyrar að vera boðið á Listahátið og vonandi verður það til þess að Akureyringar læra að meta leikfélag sitt betur en hingað til. Saga Jónsdóttir og Sigurveig Jónsdóttir fara með aðalhlut- verkin i Glerdýrunum. Leik- stjóri er GIsli Halldórsson. — fjöldi erlendra listamanna væntanlegur SJ—Reykjavik. — Listahátið verður haldin i Reykjavik i fjdrða sinn dagana fjóröa til sextánda júní i sumar. Til stóð að fresta hátíðinni um eitt ár vegna fjárhagserfiðleika en fyrir mótmæli frá Bandalagi is- lenzkra listamanna og aðildar- félögum þess var ákveðið að halda hana þrátt fyrir allt. Flest aðildarfélög aðhátiöinni ákváðu siðan, að gefa alla þá vinnu, sem meðlimir i þeim leggja fram viðListahátíðina. Þar skal fremsta telja tónlistarmenn, en þetta framlag Félags islenzkra tónlistarmanna lækkar kostnað- inn við Listahátið um milljónir. Félag Islenzkra dansara gefur einnigsina vinnu. HelgiTómas- son kemur e.t.v. á hátiðina, og mun það ráðast á næstunni. Ekki er vitaðhvort annar dans- ari kemur einnig, eða Islenzki Benny Goodman 67 ára William Walker óperusöngvari. Pascal Rogé pianóleikari.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.