Tíminn - 11.03.1976, Blaðsíða 15

Tíminn - 11.03.1976, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 11. marz 1976 TÍMINN 15 Félagsmálanámskeið 3 Félagsmálaskóíi Framsóknarflokksins gengst fyrir almennu félagsmálanámskeiói tvær helgar i marz. 19. til 21. marz verður fjallað um félagsstörf og ræðumennsku. Stjórnandi verður Pétur Einarsson. 26. til 28. marz verður fjallað um ýmsa þættiásviði þjóðmála. Stjórnandi verður Magnús ólafsson. Námskeiðið er öllum opið, og eru flokksmenn hvattir til að taka með sér gesti. Námskeiðið verður haldið á Rauðarárstig 18 i Reykjavik. Tilkynnið þátttöku i sima 24480. Félagsmálaskólinn Viðtalstímar alþingismanna og borgarfulltrúa Framsóknarflokksins Kristján Benediktsson borgarfulltrúi verður til viðtals á skrif- stofu Framsóknarflokksins, Rauðarárstig 18 laugardaginn 13. marz frá kl. 10 til 12. Framsóknarvist Framsóknarvist, Hótel Sögu, Súlnasal, þriðjudaginn 16/3 kl. 20,30. Glæsileg þriggja kvölda spilakeppni i Framsóknarvist Súlnasal Hótel Sögu. Önnur vistin verður þriðjudaginn 6/4 og sú þriðja sumardaginn fyrsta fimmtudaginn 22/4. Sérstök verðlaun eru veitt fyrir hvert kvöld en heildarverðlaun fyrir þrjú kvöld er flugfar fyrir 2 til Austurrikis. Mætið stundvislega, allir velkomn- ir, verið með frá byrjun. Framsóknarfélag Reykjavikur. Ráðstefna Framsóknarfélag Reykjavikur gengst fyrir ráðstefnu um efnahags- og atvinnumál laugardaginn 13. marz að Rauðarárstig 18. Ráðstefnan hefst kl. 9.00. Ráðstefnustjóri verður Jón Abraham Ólafsson, sakadómari. Dagskrá: Kl. 9.00 Markús Stefánsson, formaður Framsóknarfélags Reykjavikur setur ráðstefnuna. Kl. 9.05 Avarp, ólafur Jóhannesson, dóms- og viðskiptamála- ráðherra. Kl. 9.15 Jakob Magnússon fiskifræðingur, flytur erindi um breytta tilhögun fiskveiða vegna nýrra viðhorfa um nýtingu haf- svæða umhverfis landið. Kl. 9.45 Kristján Friðriksson, iðnrekandi, flytur erindi um val nýrra iðngreina fyrir dreifbýli og þéttbýli. Kl. 10.15 Ásmundur Stefánsson, hagfræðingur, flytur erindi um viðskiptahalla við útlönd og hugsanleg úrræði til bóta i þeim efn- um. Kl. 10.45 Páll Pétursson, alþingismaður, ræðir um stefnumót- un alþingis i atvinnu- og efnahagsmálum. Kl. 11.15 Þátttakendum skipt i fjóra umræðuhópa undir stjórn sérstakra umræðustjóra. Kl. 13.30 UMræðuhópar starfa. Kl. 15.30 Kaffihlé. Kl. 16.00 Umræðustjórar gera grein fyrir þvi helzta sem fram hefur komið i umræðuhópunum. Frjálsar umræður. Alþingismönnum Framáoknarflokksins er sérstaklega boöin þátttaka i ráðstefnu þessari. Allir áhugamenn um efnahags-og atvinnumál eru velkomnir. Þátttöku er æskilegt að tilkynna til skrifstofu Framsóknarflokksins að Rauðarárstig 18. Simi 24480. Umræðustjórar umræðuhópanna verða Jón Skaftason alþingis- maður. Arni Benediktsson framkvæmdastjóri, Jón Aðalsteinn Jónasson framkvæmdastjóri og Björgvin Jónsson framkvæmda- stjóri. Undirbúningsnefnd. Fulltrúaráð Framsóknar- félaganna í Reykjavík Fundur verður að Hótel Esju 11. marz kl. 20:30. Fundarefni: Fjárhagsáætlun Reykjavikurborgar fyrir árið 1976 og önnur borgarmál. Framsögumenn: Kristján Benediktsson borgar- fulltrúi óg Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi. A fundinum verða einnig kynntar lagabreytingar. Hafnarfjörður Framsóknarfélögin i Hafnarfirði hefja þriggja kvölda spila- keppni fimmtudaginn 11. marz kl. 20.30 i Iðnaðarmannahúsinu. Hin tvökeppniskvöldin verða fimmtudagana 25. marz og 8. april. Heildarverðlaun verða sólarflug á komandi hausti, þar að auki verða veitt kvöldverðlaun. öllum heimill aðgangur meðan hús- rúm leyfir. Framsóknarfélögin. Borgnesingar, nærsveitir Félagsvistin hefst aftur 12. marz kl. 21 i samkomuhúsinu. Tvö siðari kvöldin verða 26. marz og 9. april. Allir velkomnir. Mætið stundvislega. Framsóknarfelag Borgarness. SUF Miðstjórnarfundur Sambands ungra Framsóknarmanna verður haldinn að Rauðarárstig 18 Reykjavik 3. og 4. april. Fundurinn hefst á laugardag kl. 14,00. Miðstjórnarmenn eru beðnir að hafa samband við flokksskrif- stofuna, ef þeir geta ekki mætt. Stjórn SUF. Húsavík Framsóknarfélag Húsavikur hefur opnað skrifstofu á miðhæð verzlunarhússins Garðar, Húsavik. Fyrst um sinn verður hún opin á þriðjudögurrí, miðvikudögum og fimmtudögum kl. 18—19 og á laugardögum kl. 17 — 19 Bæjarfulltrúar Framsóknarfélags- ins á Húsavik verða til viðtalsi skrifstofunni á miðvikudögum. Bæjarmálaneínd Framsóknarfélagsins á Húsavik mun koma saman á skrifstofunni annan hvorn mánudag kl. 17—19. Simi verður settur i skrifstofuna strax og hægt verður að fá hann. Framsóknarfélag Húsavikur Páskaferðin 10. apríl til Vínarborgar Þeir, sem eiga pantaða miða i páskaferðina til Vinar eru beðnir vinsamlega að greiða þá sem fyrst á skrifstofu fulltrúaráðsins Rauðarárstig 18, simi 2 44 80. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Hvetur félagskonur til þess að taka þátt i ráðstefnu um efnahags- og atvinnumál, sém Framsóknarfélag Reykjavikur gengst fyrir næstkomandi laugardag 13. marz. Stjórnin. Hafnarfjörður, fulltrúaráð Fundur verður i fulltrúaráði Framsóknarfélaganna miðviku- daginn 5. nóv. kl. 20.30aðStrandgötu 11. Fundarefni: Ragnheiður Sveinbjörnsdóttir bæjarfulltrúi ræðir bæjarmál. Markús A. Einarsson skirir starfsemi bæjarmála- ráðs. Skirt verður frá störfum i nefndum á vegum bæjarins. Stjórnin. © Listahátíð spyrja þegar hann heyrði þaö: — Hvenær sofnuðu þær?! Þá er ákveðið aö freista þess VEGNA innheimtu blaðgjalda fyrir febrúarmánuð 1976 skal tekið fram, að þar sem útskrift mánaðarreikninga var lokið fyrir verkfall, verður leiðrétting á mánaðargjaldinu gerð i næsta mánuði. Æ SKIPAUTGCRB RfKISINS M/s Hekla fer frá Reykjavik miðviku- daginn 17! þ.m. austur um land i hringferð. Vörumóttaka föstudag og mánudag til Austfjarðahafna, Þórshafn- ar, Raufarhafnar, Húsavik- ur og Akureyrar. aö fá hingað eitthvert heims- þekkt „poppnúmer”,: hljóm- sveit einleikara eða söngvara. Benny Goodman, konungur sveiflunnar leikur á tónleikum i Laugardalshöll 12.6. ásamt sex- tett. Benny Goodman er nú 67 ára, og er enn virkur tónlistar- maður, kemur fram á um 100 tónleikum á ári, með sinfóniu- hljómsveitum, kammersveitum og djasshljómsveitum og leikur á klarinettu sina. Benny Good- man öðlaðist heimsfrægð sem djassleikari á fjórða áratugnum og hefur oft verið nefndur i sama orðinu og Louis Arm- strong, konungur djassins. Fyrstu kynni sin af tónlist fékk hann i Gyðingakirkju i Chicago, en hann var sonur fátækra innflytjenda og einn af ellefu systkinum. Snjallir tónlistarmenn hafa margir sótt okkur heim á lista- hátið og svo verður einnig nú. Auk þeirra sem þegar hafa ver- ið nefndir kemur ungur mjög efnilegur pianóleikari Pascal Rogé og leikur á tónleikum i Háskólabiói 16. júni. Rogé fædd- ist 1951 I Paris. Hann er nem- andi Júliusar Katchen, hann hefur unnið mörg tónlistarverð- laun. Hann lék nýlega með Sinfóniuhljómsveit Lundúna undir stjórn André Previn i brezka sjónvarpið og i Royal Festival Hall i London. Fimmta júni syngur William Walker aðalbaritónsöngvari Metropolitanóperunnar I New York á tónleikum i Háskólabiói,- Um þessar mundir syngur hann hlutverk Germonts i La Traviata undir stjórn Söruh Caldwell hljómsveitarstjórans fræga og sérkennilega. Og var það i fyrsta sinn, sem kona stjórnar flutningi á óperu hjá Metropolitan. Beverly Sills og Stuart Burrows óperusöngvarar syngja einnig aðalhlutverk i óperunni. Walker hefur hlotið frábæra dóma fyrir frammi- stöðu sina i La Traviata. Hér hefur ekki veriðgreint frá öllum atriðum Listahátiðar. Annars staðar og siðar verður greint frá öðrum þáttum hátiðarinnar en heita má að nú sé fastráðið hverjir koma þar fram og hvað þar verður sýnt © Borgarbúinn rýnd á opinberum vettvangi, blöðin birta reglulega umsagnir um bækur, um málverka- og höggmyndasýningar, en um byggingarlist, gerð og útlit húsa, sem er svo mikilvægur þáttur i umhverfi okkar, skrifar enginn. Mér finnst að blöðin þyrftu endilega að fá fólk tii að skrifa um þessi mál og veita þannig skipu- lagsyfirvöldum og þeim sem teikna hús aðhald.” (Siðan ég las þetta hefur birzt athyglisverð grein i Lesbók Mbi. um byggingarlist eftir G.S.). Þvi vitna ég i þessi orð hér. að þau eru i tima töluð, og sýna. að ekki eru allir arkitektarnir blindirfyrir þvi, sem gera þarf til að skapa hollt og viðkunnanlegt umhverfi, og að ekki eiga þeir alla sök á þvi, sem úrskeiðis hefur farið i þessum efnum. En hvar er þá að leita orsak- anna? Hverjir eru hinir seku? Orsakirnar eru margar, en hér skulu aðallega tilnefndar tvær. og er þó hvorug þeirra óyfirstigan- legur þröskuldur, ef menn taka á vandamálinu með róttækni og djörfung. Sú fyrri er peningalegs eðlis. svo hjákátlega. sem það kann að hljóma. þvi 1 auðvitað kostar peninga að skapa manneskjulegt og lifandi umhverfi, en hér er um svo sjálfsagða hluti að ræða, að peningaleg gróðasjónarmið eiga ekki að koma til greina. Þvi verði ekki hér úr bætt, verður sköpuð hér ný tegund fátæktar, fátækt. sem er þeim mun sárari og hættu- legri sem hún snertir minna þá hluti.sem i aska verða látnir og á verður þreifað, og liggur þvi ekki i augum uppi. Sé seinni orsökin sú, að borgin hafi ekki nóg landrými, og að landið sé dýrt. Ekki er það heldur viðhlitandi afsökun, það er yfrið nóg landrými á tslandi, og aö okra á landi undir mannabústaði er jafnfráleitt og óliðanlegt og að okra á lifsloftinu, sem við öndum að okkur.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.