Tíminn - 11.03.1976, Side 3
Fimmtudagur 11. marz 1976
TÍMINN
3
Árásarmað-
urinn gaf
sig fram
— eftir að hafa
lesið frétt Tímans
Gsal-Reykjavik — Frétt i
Timanum i fyrradag um árás
á ungan pilt i veitingahúsinu
Klúbbnum s.l. föstudagskvöld,
varö til þess að árásarmaður-
inn gaf sig fram við rann-
sóknarlögregiuna, en eins og
greint var frá I fréttinni varð
að flytja piltinn á gjörgæzlu-
deiid Borgarspitalans eftir
árás mannsins.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar gat maðurinn gefið litl-
ar skýringar á framferði sinu.
Hann var ölvaður er atvikið
gerðist.
Ungi pilturinn er nú talinn
úr lifshættu og á góðum bata-
vegi.
Happdrætti
Háskólans:
Dregið um
110 milli.
Miðvikudaginn 10. mars var
dregið i 3. flokki Happdrættis Há-
skóla Islands. Dregnir voru 8640
vinningar að fjárhæð 110.070.000
krónur.
Hæsti vinningurinn kr. ein
milljón kom á miða nr. 33.996
Trompmiðinn og þrir aðrir voru
seldir i Aðalumboði , Tjarnar-
götu 4. 1 miðinn var seldur i um-
boðinu Djúpavogi.
500.000 króna vinningur kom á
miða nr. 2.321. Allir miðarnir
voru seldir i umboði Frimanns
Frimannssonar, Hafnarhúsinu.
200.000 króna vinningur kom á
miða nr. 19.054. Trompmiðinn og
tveir aðrir voru seldir i umboði
Þóreyjar Bjarnadóttur, Kjör-
garði. Einn miðinn var seldur á
Akureyri og einn á Skagaströnd.
50 þús. kr. vinningar komu á
miða númer:
1164 3389 8196 8198 10400
13346 14635 16516 17783 22572
22729 23544 24708 25069 32915
33995 33997 37095 45026 46236
46664 46958 52041 53112.
Fiðlukonsert eftir
Stravinsky frum-
fluttur í kvöld
Tólftu reglulegu tónleikar
Sinfóniuhljómsveitar Islands
verða haldnir i Háskólabiói
fimmtudaginn 11. marz kl. 20.30.
Stjórnandi er Karsten Andersen
aðalhljómsveitarstjóri, og ein-
leikari er Guðný Guðmundsdóttir
konsertmeistari. Guðný leikur
einleik i fiðlukonsert eftir Stra-
vinsky og er það frumflutningur á
þvi verki hér á landi. önnur verk
á efnisskránni eru Bacchus og
Ariadne eftir Roussel og Sinfónia
nr. 6 eftir Tsjaikovsky.
Sáttafundur
útgefenda og
blaðamanna
gébé—Rvik. — Samningafundur
hófst klukkan þrjú i gær hjá
sáttasemjara rikisins milli full-
trúa blaðamanna og útgefenda.
Um kvöldmat var fundinum siðan
frestað til klukkan ellefu i gær-
kvöldi. Starfsmenn kjara-
rannsóknarnefndar mættu á
fundinn sáttasemjara til full-
tingis. — Reiknað var meö að
fundurinn i gærkvöldi myndi
standa fram eftir nóttu.
Ásgeir Bjarnason í þingslitaræðu:
KJARNFOÐURFRAMLEIÐSLA, ORKU-
MÁL OG LÁNAMAL LANDBÚNAÐARINS
MERKUSTU MAL A BUNADARÞINGI
MÓ—Reykjavik. — Búnaöarþingi
lauk I gær. Þingið stóð i 17 daga
og voru 20 fundir haldnir. Alls
voru 53 mál lögð fyrir þingið, og
eru það fleiri mál en oftast áður.
Af þessum máium voru 48 af-
greidd.
Ásgeir Bjarnason, formaður
Búnaðarfélags Islands, sleit þing-
inu með ræðu. Þar gat hann nokk-
urra mála, sem hann taldi að
væru merkust þeirra, sem
búnaðarþing hefði fjallað um. 1
fyrsta lagi ályktun um kjarn-
fóðurframleiðslu innanlands. 1
þeirri ályktun skorar búnaðar-
þing á landbúnaðarráðherra að
hann skipi nefnd til að gera
heildaráætlun um eflingu fóður-
iðnaðar innanlands, er fullnægt
geti að mestu fóöurbætisþörf
landbúnaðarins.
Þá eru talin upp í niu liðum þau
atriði, sem sérstaka áherzlu ber
að leggja á.
1 öðru lagi nefndi Asgeir
Bjarnason i ræðu sinni orkumál-
in. Þarerum að ræða að ljúka
rafvæðingu sveitanna, leggja
þangað þriggja fasa rafmagn og
jafna orkuverðiö. Einnig að
kanna möguleika á aukinni nýt-
ingu jarðhitans.
Áralangri baréttu
lokið með athyglis-
verðum úrslitum:
Bóndi sviptur
rétti til að
eiga fénað
JH—Reykjavík. — Fyrir nokkr-
um dögum lét Asgeir Pétursson,
sýslumaður i Borgarnesi flytja
brott allt búfé af einum bæ i lög-
sagnarumdæmi sinu, Heynesi i
Innri-Akraneshreppi. Var þetta
gert að undangengnum hæsta-
réttardómi þess efnis, að hlutað-
eigandi bóndi var sviptur rétti til
þess að hafa lifandi pening undir
höndum næstu fimm ár, auk þess
sem honum var gert að greiða
sektir fyrir vanfóðrun búfénaðar
og illa meðferð á honum.
Bóndiþessi hefur lengi verið al-
ræmdur fyrir hörmulega umhirðu
á fénaði sinum, og hafa yfirvöld
hvað eftir annað hlutazt til um
mál hans á liðnum árum. En hann
hefúr ekki látið sér segjast, og
jafnan sótt aftur i sama horf. Var
þá hafin sakamálarannsókn, og
að þvi búnu höfðað mál gegn
bóndanum, er þó hefur þráazt unz
málið var loks til lykta leitt með
hæstaréttardómi.
Þessi dómur markar timamót
að þvi leyti, að hér mun maður i
fyrsta skipti hafa verið sviptur
rétti til þess að eiga fénað eða
hafa hann undir höndum. Hann er
áfangi i sögu dýravemdunar i
landinu og hefur mikið gildi, ef til
þess kemur, að sækja þarf slikt
mál á hendur öðrum mönnum,
sem ekki búa svo aðfénaði sinum,
að við verði ekki unað.
... \
Gsal-Reykjavik — Miklar raf-
magnstruflanir voru á
Reykjavikursvæðinu I gær-
kvöldi og var i einstaka bæjar-
hluta rafmagnslaust i u.þ.b.
hálfa klukkustund. Orsök raf-
magnstruflananna var sam-
sláttur á háspennulinum við
Búrfell, en þar var um tima i
gærkvöldi ofsaveöur eða tólf
vindstig.
Sfðan ræddi hann um lánamál
landbúnaðarins, en gerðar .voru á
þinginu itarlegar tillögur um lán
til jarðakaupa og lán til fram-
kvæmda i landbúnaðinum.
Fyrir þingið voru lögð nokkur
lagafrumvörp, og má þar nefna:
Frumvarp til byggingalaga og
frumvarp til skipulagslaga og
taldi forseti þau hafa mikla þýð-
ingu fyrir framkvæmdir i sveit-
um landsins. Þá var frumvarp
um fjallskilamál og fjallskil af-
greitt, og sagði Asgeir, að þing-
fulltrúum væri vel ljóst að þar
væri stefnt i rétta átt. Nýting
landsins og ræktun væri undir-
staða þess að landbúnaður bless-
ist og blómgist.
Þessu næst nefndi formaður
búnaðarfélagsins, að mikið hefði
verið rætt um ræktunarsam-
böndin, sem viðast hvar eru sá
félagslegiaðili, sem sér um fram-
kvæmd ræktunarmála. Þessi
sambönd standa höllum fæti fjár-
hagslega, þvi að vélvæðingin
kostar mikið fjármagn.
Þá gat formaður um þær
breytingar, sem gerðar hefðu
verið á lögum Búnaðarfélagsins,
þar sem konur og karlar hafa nú
fengið jafnan félagslegan rétt.
Einnig minnti hann á, að rætt
hefði verið um Bændaskólann á
Hólum og samþykkt ályktun um
að hann yrði efldur I tilefni aldar-
afmælis skólans.
Þá gat formaður þess einnig að
rætt hefði verið um það mikla
vandamál, sem skapazt hefði hjá
mjólk'urframleiðendum i sam-
bandi við nýafstaðið verkfall og
ályktanir verið gerðar þar um.
Siðan sagði Asgeir Bjarnason:
,,Mörg fleiri mál voru rædd og
afgreidd, þótt þau verði hér ekki
talin. Umræður um mál á þessu
þingivoru meiri en oftastáöur, og
voru menn hispurslausir i tali,
eins og vera ber. Þá vil ég á það
minna, að á þessu þingi voru flutt
5 erindi, sem öll voru fróðleg,
gagnleg og skemmtileg.”
1 lok ræðu sinnar sagði Asgeir
Bjarnason:
,,Það er nauðsynlegt að horfa
fram á veginn, en þó er alltaf við
og við holltað staldra við, og gera
gébé Rvik — Sáttasemjari rikis-
ins hefur boðað samningafund
með með konum úr Kvennadeild
Verkalýðsfélags Akraness og at-
vinnurekendum, sama stað,
klukkan tiu fyrir hádegi i dag.
Má þvi búast við að einhver
sér grein fyrir fortíðinni. Það eru
sannindi sem Hjálmar frá Bólu
sagði i kvæöinu Dreplingur:
Mikið sá vann, sem vonarfsinn
braut með súrum sveita.
Hægra mun síðar að halda þýðri
heilla veiðivök.
Það var gæfa islenzkra bænda
þegar þeir mynduðu hreppa-
búnaðarfélögin og siðar búnaðar-
sambönd og Búnaðarfélag
íslands. Það er okkar allra, að
halda þýðri þeirri heillaveiðivök
bændastéttarinnar, það eru
búnaðarsamtökin.
Það er ósk min og von, að sú
stefna i landbúnaði, sem
Búnaðarþing þetta markar, megi
verða til gæfu og gengis fyrir
bændur, landbúnaðinn og þjóðina.
skriður fari að komast á
samninga á Akranesi. — Allt var
með kyrrum kjörum á Akranesi i
gær, engin verkfallsbrot og að
sögn kvenna i verkalýðsfélaginu:
Allt er friðsamlegt og rólegt hjá
okkur.
SÁTTAFUNDUR Á
AKRANESI í DAG
RÁÐSTEFNA UM EFNA-
HAGS- OG ATVINNUAAÁL
— sem Framsóknarfélag Reykjavíkur heldur á laugardaginn
um hugmyndum um þau mál,
sem þar verða rædd.
Markús Stefánsson, formaður
Framsóknarfélags Reykjavikur,
mun setja ráðstefnuna og Ölafur
Jóhannesson dóms- og viðskipta-
ráðherra mun fiyt ja ávarp. Siðan
veröa flutt fjögur framsöguer-
indi:
Jakob Magnússon fiskifræðing-
"ur, mun sérstaklega ræða hin
breyttu viðhorf að þvi er sókn og
sóknartilhögun snertir i fiski-
stofnana. En einnig mun hann
drepa á framtiðarnýtingu karfa-
miöa og 6 fleiri fisktegunda. en
karfinn er sérgrein dr. Jakobs,
sem kunnugt er.
Kristján Friðriksson, iðnrek-
andi mun telja upp nokkur
iðnaðartækifæri, en einnig ræða
um fyrirgreiðslur annars vegar
og hindranir hins vegar. sem i
gildi eru af opinberri hálfu að þvi
er snertir vöxt iðnaðar.
Ásmundur Stefánsson. hag-
fræðingur, mun leitast við að
sundurliða viðskiptahallann svó
auðveldara verði að átta sig á þvi
hvernig hann hefur myndazt. og
siðan mun hann drepa á hugsan-
lega valkosti til úrbóta.
Páll Pétursson alþingismaöur
mun svo ræða stefnufhörkunina i
efnahagsmálum af hálfu
Alþingis, væntanlega bæði að þvi
er snertir skammtima úrræði. en
einnig gera forráðamenn ráð-
stefnunnar sér vonir um að
stefnumörkun miðuð við nokkur
næstu ár komi fram.
Alþingi er um þessar mundir af
sumum legið nokkuð á hálsi fvrir
forystuleysi. Að hve miklu levti
kunna þessar ásakanir að vera á
rökum reistar? A framkvæmdar-
vald og löggjafarvald þarna e.t.v.
ekki óskilið mál?
Ráöstefnustjóri verður Jón
Abraham Ölafsson sakadómari.
MÓ-Rcykjavik. — A laugardag
gengst Framsóknarfélag Reykja-
vikur fyrir ráðstefnu um efna-
hags- og atvinnumál og verður
ráðstefnan haldin að Rauðarár-
stig 18 i Reykjavik, og hefst kl.
9.00. Þar verður fjallað um
breytta tilhögun fiskveiða vegna
nýrra viðhorfa, val nýrra iðn-
greina, viðskiptahalla við útlönd
og stefnumótun Alþingis i at-
vinnu- og efnahagsmálum. Siðan
verður fjallað um málaflokkana i
umræðuhópum.ogmá fullyrða að
þeir, sem ráðstefnuna sækja,
munu kynnast að nokkru ákveðn-
Sýningu þeirri á islcnzkri popplist, sem staðið befur yfir i Listasafni
islands, átti að Ijúka 14. þ.m. en sökum mikillar aðsóknar befur
sýningin nú verið framlengd til mánaðamóta. Listasafnið er opið
gestum, sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga frá
bálftvö til fjögur. Mvndin er tekin á sýningunni. Timamynd Itóbert.