Tíminn - 11.03.1976, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 11. marz 1976
Hofgyðja ólympíueldsins
sá í fyrsta skipti snjókomu
Griska leikkonan Maria
Moscholiou hefur tendrað
ólympiueldinn fyrir vetrar-
ólympiuleikana siðan þeir
hófustárið 1964. A ólympsfjalli i
Grikklandi kveikir hún eldinn
með þvi að láta sólargeislana
falla i gegn um stækkunargler.
Þetta hefur hún gert á fjögurra
ára fresti, og fyrir utan hana er
enginn atvinnuleikari þátttak-
andi i athöfninni. Hún er fræg
*
leikkona i griska þjóðleikhúsnu,
en það kom upp úr kafinu
skömmu fyrir ólympiuleikana i
Innsbruck, að hún hafði aldrei
séð snjó. Henni var þvi boðið til
Austurrikis, en það sérkenni-
lega atvik kom fyrir, að raf-
magnsljósin i flugvallarbygg-
ingunni slokknuðu i nokkrar
minútur, um það bil sem hún
lenti i Vin.
*
Gimsteinar frá Úral
Hafin hefur verið að nýju
vinnsla gimsteina i Musinnám-
unni i Úral. Náman fannst fyrir
300 árum en hefur legið ónotuð
eftir að hún var tæmd. Áður fór
námugröfturinn fram nokkra
tugi metra undir yfirborði jarð-
ar og unnu menn þarna úr jörðu
topas, ametyst, turmalin, mari-
on og fleiri tegundir gimsteina.
Sovézkir jarðfræðingar hafa nú
rannsakað jarðlög, sem liggja
þarna dýpra, og á 120 og 150
metra dýpi fundust nýjar
gimsteinanámur. Gömlu nám-
unni hefur nú verið breytt i
nýtizkulega námu og er hafin
þar skipuleg vinnsla verðmætra
gimsteina.
í fótspor frændans?
Hún Louise Olivier, sem við sjá-
um héma á myndinni, getur
státað af afskaplega frægum
frænda, sem er enginn annar en
leikarinn snjalli, Sir Laurence
Olivier. Sjálf er hún þekkt og
vellaunuð fyrirsæta, en stóri
draumurinn er að gerast leik-
kona. Varla ætti útlitið að hamla
henni á þeirri braut, og ef þaö er
satt sem sumir segja, að leik-
hæfileikar gangi í ættir, hefur
hún sannarlega betri möguleika
en flestir aðrir. Kunnugir segja
lika, að Louise vanti hvorki
dugnaðinn, áræðið né bjartsýn-
ina, svo að ekki er loku fyrir það
skotið, að við eigum eftir að dást
aö heniii á hvita tjaldinu I fram-
tiðinni.
o
ö I r'
„Trúöu mér, þér er ofaukið á
myndinni, mamma.”
DENNI
DÆMALAUSI
„Getur þú ekki talað hærra? Það
er æpt svo ægilega hérna.”