Tíminn - 14.05.1976, Blaðsíða 4

Tíminn - 14.05.1976, Blaðsíða 4
TÍMINN Föstudagur 14. maí 1976. EuB .ffl mmJ t£ ★ ★ ★ Þægilegur skrifstofustóll Milljónir skrifstofufólks vita hve áríðandi það er að hafa þægilegan stól við vinnuna. A sýningu i Köln, Orgatechnik '76 kom vestur-þýzkur fram- leiðandi með þessa gerð af skrifstofustól og kallar hana „Varitessa Plus”. Með þvi að þrýsta á hnapp er hægt að aðlaga stólinn öllum likams- stellingum. bað er sama hve snöggar hreyfingarnar eru, stóllinn fylgir alltaf eftir. Búið er að vinna að þessum stól i fimmtán ár, en nú fyrst er farið að framleiða hann i fjölda- framleiðslu. ★ Strangar reglur um aukaefni í matvörum Útlendingar furða sig stundum á þvi, að matvæli, sem borin eru á borð i Sovétrikjunum, liti undarlega út. Skýringin er sú, að mjög strangar reglur gilda um notkun litarefna og annarra aukaefna, sem sett eru i mat- væli. Aðeins tvö efni eru leyfð: Tartrazin og insicarmin. öll önnur efni eru bönnuð vegna þeirrar hættu, sem sérfræðing- ar te.lja, að sé samfara notkun þeirra. Hér er þó ekki um að ræða stefnubundna andúð á notkun litarefna. Visindamenn gera tilraunir til þess að finna hættulaus efni til þessara nota, en til þessa hafa þau ekki staðizt hinar ströngu reglur. í staðinn eru notuð náttúruleg litarefni, unnin úr vinberjahýði, sólberj- um og náttúruafuröum, sem bæði bæta bragðið og auka vita- mininnihald fæðunnar. Engar takmarkanir eru á notkun þess- ara efna, að þvi frátöldu, að þau má ekki nota til þess að breiða yfir gæðaskort matvælanna. Akstur leigubíla tölvustýrður Hönnunarskrifstofa i Omsk hef- ur búið til tölvukerfi til þess að stjórna akstri leigubila i borg- inni. Hver bill fær sitt gata- spjald með upplýsingum um bil, og bllstjóra, vinnutima á dag o.s.frv. Með hjálp þessara upp- lýsinga getur stjórnstöðin auð- veldlega séð, hve margir bilar eru lausir og sent þá þangað sem þeirra er þörf. Ferskvatn og hróefni til iðnaðar ur sjonum Tekin hefur veriö i notkun 1 bænum Bekdasj við Kara Bogas Gol-flóa á austurströnd Kaspia- hafs stór verksmiðja til eiming- ar á sjó. Vatnið I flóanum inni- heldur svo að segja öll þekkt frumefni, og hefur risið á legg verulegur efnaiðnaður sem byggist á þessum hráefnum. Landið umhverfis flóann er eyðimörk, og þurfti áður fyrr að flytja allt ferskvatn til héraðs- ins með tankskipum. Eimingar- verksmiðjan vinnur nú 160 þús- und litra af ferskvatni úr sjó á klukkustund og er þar með fundin betri lausn á neyzlu- vatnsvandamálinu samfara þvi að við eiminguna fæst mikið magn af steinsöltum, sem notuð- eru I þágu efnaiðnaðarins. Hefur lært að fyrirgefa Ursulu Andress, hina þekktu leikkonu og þokkadis hefur oft borið á góma i blöðum og tima- ritum vegna fjölmargra ástar- ævintýra hennar, auk margs annars, sem hún er þekkt fyrir. Fyrsti elskhugi hennar sem sögur fara af var James Dean, og si'ðan kom Jean-Paul Belmondo. Nú hugsar hún ekki um annan en Fabio Testi, sem er aðeins 29 ára gamall. Hann sveik hana reyndar og fór aö halda við Madame Súkarnó, sem sögð er „borða drengi” i morgunmat. úrsula segir um þetta: „Þegar maður er orðinn fertugur hefur maður lært það mikið, að maður fyrirgefur nú ýmislegt.” ■■I Úr þvi krakkarnir eru nú flognir úr hreiðrinu og búnir að gifta sig, getum við þá ekki fengið okkur minna húsnæði? Hann getur breytt öllum hús- gögnunum sinum i rúm. DENNI DÆMALAUSI Er þessi einhver, við dyrnar? Nei, það er bara Snati gamli að gera stykkin sin.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.