Tíminn - 14.05.1976, Blaðsíða 24
brnado
þeytidreifarinn
góö vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guðbjörn Guöjónsson
Heildverzlun Síöumúla 22
Simar 85694 & 85295
Saltsteinar
fyrir hesta, sauðfé
og nautgripi
blár ROCKIE hvítur KNZ rauður KNZ
SAMBANDIÐ ^S,
INNFLUTNINGSDEILD
Páfi hvetur fjölmiðla
til að verja mannrétt-
indi
Reuter, Vatikaninu. Páll páfi
hvatti i gær fjölmiöla i heimin-
um til þess, að gerast virkir
varnaraðilar fyrir mannrétt-
indi.
t tilkynningu sem hann lét
frá sér fara i gær hvetur hann
fjölmiðla til þess að „vera i
raun þjónar og verjendur
mannréttinda og mannlegrar
skyldu.”
Hlutverk fjölmiöla er ekki
aöeins aö vera tæki til aö
koma á samböndum og dreifa
fregnum .... umfram alit er»
fjölmiðlar tæki sem sérlega
eru fallin til kennslu og
þjálfjölmiölar tæki sem sér-
lega vel eru fallin til kennslu
og þjálfunar, sagði páfi.
Samkvæmt tilkynningu páfa
eru réttindi þau sem verja
þarf þessi, Rétturinn til aö
lifa, til aö nema, til aö vinna,
til aö fæðast, til ábyrgöar I for-
eldrahlutverki, til friösam-
legrar tilveru, til frelsis og
þjóöfélagsiegs réttlætis, svo
og til þess að játa tril og starfa
aö trúmálum.
Þá sagði páfi, að þaö verk
sem væri algerlega á valdi og
ábyrgö fjölmiðla væri aö sjá
til þess, að fólk nyti réttar
sins, aö fá réttar og fuilnægj-
andi upplýsingar.
Friðað svæði
fyrir seli....
Reutcr, Hannover.— Hópur v-
þýzkra visindamanna, sem
starfandi eru viö háskóla,
krafðist þess i gær aö komiö
yröi upp friöuðu svæöi fyrir
seli á Noröursjávarströnd
Þýzkalands.
t skýrslu, sem byggð er á
fimm ára athugunum segir, að
fjöldi sela muni enn fara mjög
minnkandi, ef ekki komi til
sérstakar neyöarráðstafanir.
Visindamennirnir kenna
mengun og feröamönnum
einkum upn þá miklu fækkun,
sem oröiö hefur á selum viö
strönd Þýzkalands, A árunum
1953 til 1963 voru skráðir þar
allt aö þrjú þúsund selir, en
áriö 1973 var tala þeirra rétt
•ÍÉSHORNA
IVIILLI
tæplega eitt þúsund og fimm
hundruö.
Fara visindamennirnir
fram á bann viö veiðum á sel.
Verkföll i Frakklandi
Reuter, Paris— Vinstrisinnuö
verkalýösfélög I Frakklandi
efndu i gær til verkfalla um
allt landið, til þess að leggja
áherzlu á kröfur sinar um
launahækkanir, styttingu
vinnutimans og lækkun eftir-
launaaldurs meðal verka-
manna.
Vegna verkfalla þessara fór
rafmagn af stund og stund og
haföi þaö áhrif á störf flestra
stofnana og fyrirtækja, þar á
meðal sjúkrahúsa, kolanáma,
banka, opinberra þjónustu-
stofnana, svo og samgangna.
tltsendingar útvarps og sjón'
varps trufluðust vegna orku-
fallsins og sorphreinsun fór
ekki fram I París i gær.
Verkföll þessi, sem efnt var .
til aö undirlagi kommúnista
og annarra vinstrisinna meðal
verkalýðsforystunnar, náðu
hámarki, þegar haldin var
kröfuganga um miðborg
Parisar, en i henni tóku þátt
um tuttugu þúsund manns.
Ekki sama hvort er,
dýr eða menn.
Reuter, Oxford.— Dýralæknir
nokkur i Oxford lézt nýlega
eftir að hafa vegna mistaka
sprautað sjálfan sig meö
dýralyfi og þrem dögum siöar
framdi unnusta hans sjálfs-
morö, með þessu sama lyfi.
Lyf þetta er deyfilyf.
Fyrir rétti kom fram, aö
dýralæknirinn, Ian Denly,
heföi látiztskyndilega.eftir aö
sprauta meö lyfinu Immobilon
rispaöi handlegg hans, meöan
hann reyndi aö sprauta folald
meö henni.
Bandaríkjamenn uggandi um þróun móla í Ródesíu:
Hvetja bandaríska borgara
þar til flóttaundirbúnings
Reuter, Salisbury.
Bandariskum ibúum Ródesiu
hefur verið fyrirskipað að búa
sig undir neyðarflutninga úr
landi og bandariskum feröa-
mönnum er nú ráðiö frá þvi aö
fara til Ródesiu eöa að ferðast
þar innanlands. Orsökin fyrir
þessu er hið aukna mannfall
sem orðiö hefur I baráttunni
milli svartra skæruliða i landinu
við stjórnarherinn og ótti
manna um að átök þessi geti
innan tiðar leitt til algerrar
borgarastyrjaldar.
Sendiráð Bandarikjanna
sendi nýlega frá sér hvatningu
til bandariskra Ibúa Ródesiu um
að þeir búi sig undir flutninga úr
landi. Þeir eru taldir vera á
milli átta hundruð og eitt
þúsund.
Talsmaður rikisstjórnar hvita
minnihlutans i Ródesiu sagði i
gær, að hvatning þessi sýni aö
Bandarikjamenn fylgdust ekki
með þvi sem væri aö gerast i
landinu, en I 'tilkynningum frá
stjórnarhernum undanfarið
hefur mátt fylgjast meö þvi aö
mannfall hefur aukizt til muna
og átökin harðna og breiðast út.
Þrjátiu og sjö manns féllu i
átökunum i siðustu viku og
þótt tilkynningar hersins feli
ekki I sér nánar lýsingar á
ástandinu er greinilegt að
hernaðarumsvif við landamæri
Ródesiu og Mósambik þar sem
skæruliðar og stjórnarherinn
eigast við hafa aukizt til muna.
Bandariskir ibúar Ródesiu
hafa tekið fyrirmælum um
flóttaundirbúning misjafnlega:
sumir telja að stjórnin muni
ráða við skæruliðana og vilja sig
ekki hreyfa, en aðrir segjast sjá
fram á algera borgarastyrjöld
og vilja flytjast á brott.
Nokkur fjöldi Banda-
rikjamanna, mest fyrrverandi
hermenn úr Vietnam, ber jast nú
með stjórnarhernum i Ródesiu,
en ekki er vitað hve margir þeir
eru. Herinn er i uppbyggingu og
er nú verið að kalla hermenn frá
vigstöðvunum til þess að þjálfa
nýliða.
Endurskoðun dómsmóla
í Bretlandi að hefjast
Reuter, London. — Sérstakur
áfrýjunarréttur mun fjalla um
mál þeirra, sem dæmdir hafa
verið I Bretlandi á grundvelli
þess að einhver hefur talið sig
bera kennsl á þá sem afbrota-
Þetta var tilkynnt I gær, en
þessi aðferð, sem beitt er bæði i
Bretlandi og Bandarikjunum,
sem og viðar, hefur verið gagn-
rýnd harðlega undanfarna
mánuði.
Búizt er við að áfrýjunar-
réttur þessi taki til meðferðar
að minnsta kosti þrjú mál, þar
sem saksakborningar voru
dæmdir á grundvelli þess að
sjónvitni á afbrotastað þóttist
siöar bera kennsl á þá sem
afbrotamennina.
Nýlega hafa tveir menn verið
látnir lausir, eftir að hafa hlotið
dóma fyrir rán, vegna þess að
forsendur dómanna hafa þótt of
veikar til þess að láta þá sitja af
sér fangelsisvist. Búizt er viö að
sá þriðji verði látinn laus fljót-
lega, en hann var á sinum tima
dæmdur til lifstiðar fangelsis
fyrir morð.
Virðast ætla að berjast til þrautar í Líbanon:
Sýrlendingar sakaðir um samsæri
með USA, gegn vinstri mönnum ....
Reuter, Beirút. — Bardagar á
mörgum vigstöðvum i Libanon I
gær juku enn á ótta manna um
það, að sveitir hægri- og
vinstrisinna væru ákveðnar i þvi,
að reyna til hins ýtrasta að ná
hernaðarlegum yfirburðum i
landinu, áður en þær samþykkja
að ræða hugsanlegar stjórnmála-
legar lausnir á deilum sinum.
Rockefeller tii jarðskjálftasvæðanna
USA veitir 25 milljónir til hjálpar
Reuter, Udine.— Nelson Rocke-
feller, varaforseti Bandarikj-
anna, kom I gær til ttaliu og
mun hann þar feröast um svæði
þau, sem illa urðu úti i jarö-
skjálftunum I siðustu viku.
Heimsókn hans bar að, skömmu
eftir að Bandarikjaþing hafði
samþykkt að veita tuttugu og
fimm milljónir dollara til
hjálparstarfs á jarðskjálfta-
svæöunum.
Embættismenn á jarð-
skjálftasvæðunum tilkynntu i
gær, að tala látinna i jarð-
skjálftunum værienn áætluö um
niu hundruð, særðir væru um
eitt þúsund og sex hundruð.
Talið er að um 23.650 hús hafi
eyðilagzt eða skemmzt mikið i
jarðskjálftunum, en þau eru i
fjörutiu bæjum og þorpum, og
um eitt hundrað og fimmtíu
þúsund manns eru talin
heimilislaus.
Björgunarsveitir eru enn viö
leit i rústunum og segir i opin-
berum tilkynningum, að talið sé
að enn eigi hundruð lika eftir að
finnast.
Nelson Rockefeller sagði við
blaðamenn, þegar hann kom til
Italiu i gær, að hann ætlaði i ferð
sinni um jarðskjálftasvæðin að
safna upplýsingum um það
hverjir hjálparstarfsþættir
væru mikilvægastir og afhenda
þær Ford Bnadarikjaforseta.
— Bandariska þjóðin vill
vinna með ykkur að björgunar-
starfi og endurbyggingu, sagði
hann.
Svo sem verið hefur lengst af,
þá þrettán mánuði sem borgara-
styrjöld hefur nú staðið i Libanon,
dró nokkuð úr bardögum þar i
gærdag, eftir aö þeir höfðu verið
miklir yfir nóttina, bæði i Beirút,
á fjallasvæðunum fyrir austan
hana og i hafnarborginni Tripoli i
norðurhluta landsins.
Astandinu i Tripoli var I gær
lýst sem „spennuþrungnu” eftir
að til endurtekinna átaka hafði
komiö milli vopnaðra Libanona,
sem fylgjandi eru Irak og skæru-
liða úr Saiqa, sem er samtök
Palestinumanna með aðalstöðvar
i Sýrlandi. Þessi átök endur-
spegla spennuna, sem rikir milli
Iraksog Sýrlands, en siöarnefnda
rikið hefur flutt mikinn herafla
inn i Libanon, undir yfirskini frið-
arumleitana.
Elias Sarkis, sem fyrir sex dög-
um var kjörinn eftirmaður
Franjiehs forseta Libanons, átti i
gær viðræður við Pierre
Gemayel, leiðtoga hægrisinna i
LlDanon, um ástandið i landinu,
en viðræöur þessar voru liöur i
tilraunum Sarkis til að koma á
friði með þvi að ráðgast við leið-
toga beggja deiluaðila.
Ennsjástþessþóenginn merki,
að honum hafi miðað nokkuð I átt
til samkomulags.
Hægri menn segja, að til
samningaviðræðna geti ekki
komið fyrr en öryggi hafi verið
komið á að nýju i landinu, en
vinstrisinnar setja meðal annars
það skilyrði, að hersveitir
Sýrlands verði fluttar brott, áður
en þeir setjast að samningaborði.
Talið er óliklegt, að Sýrland flytji
hermenn sina frá Libanon á næst-
unni.
Forystumenn vinstrisinna,
undir forsæti Kamals Junblatts,
sendu i gær frá sér harðorða yfir-
lýsingu, þar sem þeir saka
Sýrlendinga um að vera meginafl
i samsæri Bandarikjamanna
gegn vinstri mönnum i Libanon
og þeim sveitum Palestinuaraba,
sem barizt hafa við hlið þeirra.
Sagði i yfirlýsingunni, að
vinstri menn myndu beita öllum
tiltækum baráttuaðferðum til að
neyða Sýrlendinga til að draga
hersveitir sinar til baka, en talið
er að þær telji um tiu þúsund her-
menn, sem hafi yfir að minnsta
kosti fjörutiu skriðdrekum aö
ráða.
OPIÐ TIL
og 9—12 laugardag
Komið í Kaupgarð
og lótið ferðina
borga sig
10 í KVÖLD
__MKLABRAUT WM MK
• Kaupgarður
.... á leiöinni heim
/ | Smiöjuvegi 9 Kopavogi