Tíminn - 14.05.1976, Page 15
Föstudagur 14. mai 1976.
TÍMINN
15
Á tilraunastigi
Eimreiðin 3.-4. hefti
1975
Þess er geti& i upphafi þessa
heftis, aö meö þvi séu komnir út
aöfullu 80 árgangur af Eimreið-
inni. t þvi sambandi eru birt 5
erindi úr upphafsljóði timarits-
ins: Brautin, eftir Þorstein
Erlingsson. Einnig er vitnaö til
þess,sem Sveinn Sigurösson rit-
stjóri sagöi um tilgang Tima-
ritsins þegar Eimreiöin var
fimmtug:
„Eimreiöin hefur jafnan bar-
izt gegn múgmennsku, þessari
ófreskju hinnar blekkjandi
hópsefjunar, sem hvilir á þjóð-
lifinu og gerir þaö i ýmsum
greinum andlega fátækt, dregur
úr manngildinu og hneppir
sjálfstæ&a hugsun i fjötra.”
Undir þetta tekur núverandi
ritstjóri, Magnús Gunnarsson,
og segir til áréttingar, aö
Eimreiöin sé „málgagn þess
hóps manna, sem vilja efla
frelsi og dáðir islenzku þjóöar-
innar.” Þar meö viröist hann
slá þvi föstu, aö þaö sé ekki
nema hópur manna á hverjum
tima sem vill efla frelsi og dáö-
ir.
Eimreiöin birtir nokkuö langt
og rækilegt viötal við Ragnar i
Smára.. Hann gerir þar grein
fyrir lifsskoöun sinni. Þetta er
merkilegt viötal og myndarlegt.
Ragnar segir margt, sem vert
er athygli og umhugsunar.
Hann er Hka svo sérstakur mað-
ur, sjálfstæður i skoðunum og á
svo merkan feril, aö verðugt er
að viöhorf hans geymist, og það
engu siöur, þó að sumt kunni að
þykja hæpið I ályktunum hans.
Hins er svo alltaf að vænta, aö
þegar aldraöur maður lýsir við-
horfum sínum á yngri árum
verði annar blær á þvi, en verið
heföi á samtiöa frásögn, enda
segir máltækið, að fár vill sina
barnæsku muna.
Ýmsum mun finnast aö Ragn-
ar hafi ofmat á listum almennt,
þvi aö margir eigum við erfitt
með aö finna gildi og göfgandi
áhrif sums þess, sem höfunda
langar aö telja til lista. Óhætt
mun aö segja, þegar horft er úr
nokkrum fjarska á feril Ragn-
ars i Smára, að stundum hafi
hann lagt þvi lið, sem var og er
litils viröi, en þessi lotning hans
og a&dáun á listinni hafi lika
orðið til hjálpar svo að mikils sé
vert.
Ég er ekki i Sjálfstæöisflokkn-
um, en vissulega stanzaði ég
viö, þegar ég las þau orö Ragn-
ars, aö Sjálfstæðisflokkurinn sé
eini tiltölulega frjálsi vettvang-
urinn, sem nú sé til i landinu. Og
svo er eftir honum haft rétt á
eftir, að Sjálfstæðismaður geti
ekki sloppið með það svar, að
hann trúi á bibli'una.
Þetta þykir mér allt nokkuð
torskilið. 011 vitum viö þó, að
menn eru frjálsir feröa sinna
milli flokka, hvar sem þeir eru
vistaðir. Og blinda bókstafstrú
finnum við hjá Sjálfstæðis-
mönnum llka, þó að Ragnari
kunni að finnast að hún sé þeim
ósamboðin.
Dr. Gunnlaugur Þórðarson
skrifar örstutta grein um Karl
Kvaran málara og birtar eru lit-
myndiraf sex málverkum hans.
1 þessum fáu orðum sinum segir
dr. Gunnlaugur m.a. að list-
skoðandi þreytist „óhjákvæmi-
lega á að fá myndlistina fram-
reidda þannig, að hún krefjist
einskis átaks til skilnings.”
Gakktu með sjó eða sittu við
eld,
svo kvað völvan forðum
segir Grimur Thomsen. Það
voru heilræði fyrir hnugginn
mann. Skyldi honum hafa verið
ætlað að skilja hafið eða eldinn?
Þegar menn tala um að skilja
málverk verður mér oft að
hugsasemsvo: Skil ég sólarlag-
ið? Eða skýjafarið? Vist má
segja að við skiljum stundum
blíðu náttúrunnar, hamramman
tröllskap og sitt hvað þar á
milli. Þó vildi ég heldur tala um
að skynja það en skilja. Eins
megum við muna það, sem Guð-
mundur Guðmundsson þýddi
eftir Viktor Rydberg, þar sem
segir frá göngusveininum:
Kennir samræmis sál hans við
svarrandi, stjarnvana nætur-
klið?
Deyr hans angur sem ómur
veikur
haustsins volduga sorgarsöngs?
Að sál okkar kenni samræmis
við það, sem við sjáum eða
heyrum finnst mér að nái oft vel
yfir það, hvernig listar er notið.
Atakamiklum skilningi verður
ekki alls staðar við komið.
Einglyrnið og krossinn er rit-
gerð Halldórs Laxness um Vef-
arann mikla frá Kasmir, samin
handa danska blaðinu Politiken
i tilefni af útkomu danskrar
þýðingar Vefarans fyrir
skemms^.
Gaman er að hafa þessa
greinargerð-skáldsins um það
hvernig Vefarinn varðtil. Ýmsu
skemmtilegu er hér komið að,
en vitanlega sér skáldið sitthvað
i öðru ljósi er það horfir yfir
hálfa öld til æsku sinnar.
Hvemig ræða skuli heitir rit-
gerð eftir Halldór Guðjónsson.
Hún mun eiga að vera fræðileg,
en sitthvað er þar skritið.
Höfundur leegur áherzlu á það,
að á stjórnmálasviðinu verði að
skilja á milli vits og vilja.
Þetta er auðvitað rugl. Vitan-
lega á og þarf hver viti borinn
maður að láta vitið leiða og
móta vilja sinn. Nafni minn ætl-
ast til þess að vitlaus vilji setji
þjóðum lög og svo sé unnt að
stjórna samkvæmt þeim með
viljalausu viti.
Nú halda menn eðlilega að
þetta sé hártogun, annað eins
kæmi hvergi á bók. Höfundur
nefnir tvo þætti stjórnmálanna:
,,a) að setja þjóðfélaginu
starfsreglur og starfsleiðbein-
ingar,sem gilda eiga um langan
tima og oft um alla framtið.
b) að finna eða búa til aðila til
að standa fyrir og hafa á hendi
framkvæmdir, þjónustu eða
framleiðslu i þágu þjóöar-
heildarinnar.”
Höfundur segir siðan, að þess-
ir þættir fléttist saman en samt
verður þessi flokkun aö vera.
„Astæðan fyrir þvi, að slika
greiningu verður að viöhafa, er
að a) og b) höfða I mismunandi
mæli til ólikra þátta mannlegs
eðlis. a) höfðartil vilja, en b) til
vits.”
Seinna i heftinu kemur i ljós,
að þessi speki er fundin til að
rökstyðja það að almennir
kjósendur eigiekkiaðskipta sér
af stjórnarframkvæmdum.
Ég held að ungir mennættu að
prófa hugmyndir sinar á þann
hátt að athuga þær i sambandi
við einstök fyrirbæri þjóðlifsins
ekki seinna en um leið og þeir
semja ritgerðir um þær. Það er
ekki nóg að nota almenn orð, þó
stór séu, eins og þessi t.d.:
„Afleiðingar þessarar skipun-
ar eru hraksmánarlegar.
Alþingismenn og rikisstjórn
fikta viö tæknileg smáatriði,
sem þeir hafa ekkert vit á, en
embættismenn sitja auöum
höndum eða eyöa orku sinni i að
yfirvinna innri núning kerfisins
eða i að framfylgja ákvörðun-
um, sem þeir vita vera tækni-
lega rangar.”
Um hvað er maðurinn að
tala? Þvi' nefnir hann engin
dæmi?
Höfundur segir að hagsmunir
geti varla verið til nema i and-
stöðu við aöra hagsmuni. Ég
hélt að nefna mætti margt sem
væri öllum fyrir beztu. Þar má
t.d. nefna öryggismál. Það eru
hagsmunir okkar að hafa
heilbrigðisþjónustu, löggæzlu og
slökkvilið. Við hvaða hagsmuni
er þetta i andstöðu?
Einhver kann að segja aö allt
sem kostar opinbert fé sé i and-
stöðu við hagsmuni skattgreið-
andans — almennings — þvi að
allir greiða söluskatt. Svo er þó
ekki. Ef vel er stjórnað er engu
fé betur varið til hagsmuna okk-
ar en þvi sem heimt er I opin-
bera sjóði.
Auðvitað togast hagsmunir
oft á. Þannig verða forréttindi
til. Og stundarhagsmunir reka
skammsýna sjómenn til
landhelgisbrota. En það þarf
bæði vit og vilja til að skipa
mannfélagsmálum og stjórna
svo að vel fari.
Lengsta greinin I heftinu heit-
ir: Leikmaður spjallar um lýð-
ræði,og er eftir HannesH. Giss-
urarson, sem er blaðamaður
timaritsins. Hann segir þar, að
islen2k blöð og timarit hafi
engin sinnt alvarlegri
stjórnmálaumræðu, en
Eimreiðin sé tilraun til að gera
þar á bragarbót. Ræöir blaða-
maðurinn um þetta af nokkru
yfirlæti. Hann segir, að Alþingi
sé alræmd málrófssamkoma
loddara og lýðskrumara, er lært
hafa þá list a& beina máli sinu til
hins heimskasta i hópnum.
Rikisfjölmiðlarnir tveir, helzta
athvarf fávisra fleiprara og
þess lággróðurs andans, sem
þrífst bezt i loðmullulegu lofts-
lagi svonefnds hlutleysis, hafa
einnig brugðizt.
Hérerfariðaf staðmeötals-
verðu yfirlæti. Nú á aö hefja
stjórnmálaumræður á hærra
svið en þessi þjóö hefur þekkt.
Og v æntanlega hefur greinin um
aðskilnað viljans og vitsins ver-
ið valin út frá þvi sjónarmiði.
Höfundur ræðir alllengi um
það hvað lýðræöi sé. Hann vill
ekki fallast á að kúgunarstjórn
meirihluta sé lýðræði: „Lág-
mark mannréttinda er jafn
réttur allra manna til frelsis. Og
ekki er lýðræði, þar sem þessi
réttindi eru ekki I heiðri
höfð”.... „Lýðræði er hér skilið
sem óbein stjórn fjöldans eða
fulltrúastjórn, þar sem öllum
eru tryggð tiltekin mannrétt-
indi.”
Nú skal ég ekki þrefa hér um
merkingu orðsins lýöræði. Hins
vegar sýnist mér að samkvæmt
þessari skilgreiningu Hannesar
gæti verið lýðræði, þar
sem er einveldi, að minnsta
kosti ef rikið er kjörriki
en ekki erfðariki. Einvaldurinn
getur stjórnað frjálslega. Kosn-
ing stjórnanda er aö áliti
Hannesar framsal valds i
hendur honum. Með kosning-
unni afsalar kjósandinn sér
valdi I hendur hins kosna um
tiltekinn tima. Það gæti eins
verið meðan stjórnandinn lifir.
Hin fræðilega skilgreining á
framsali valdsins er auövitað
rétt að vissu marki. Þaö geta
ekki allir ráðið öllu. Við þurfum
stjórnhæft fyrirkomulag.
Hannes ræðir talsvert um
það, að kjósendur séu misvitrir
og takmarkaðir. Út frá þvi fer
hann að hugleiða þjóöarat-
kvæðagreiðslu. Þar kemst hann
aðþeirri niðurstöðu, að „flestar
— ef ekki allar — ákvarðanir,
sem taka verður i stjórnmálum.
eru slikar, að þær eiga ekki er-
indi til almennings.”
Guðmundur Finnbogason
sagði, að almennur kosninga-
réttur væri aðferð til að láta
hnefaréttinn ráða án ofbeldis.
Hann vissi, að almennur
kosningaréttur var alls engin
trygging þess að beztu og vitr-
ustu menn væru látnir ráða. En
það eru engin ráð til að tryggja
það. Hins vegar eru miklar lfk-
ur til þess að meirihlutinn hafi
sitt fram fyrr eða siðar. Og þá
er gott hjá öðru verra að kunna
ráð til að láta það gerast frið-
samlega.
Þetta sagði Guðmundur
Finnbogason efnislega. Það
hefur nefnilega verið skrifað um
stjórnmál á Islandi fyrr en nú.
Svo treystum við þvi, að þar
sem menn hafa málfrelsi sé
möguleiki til að tryggja öllum
nokkur mannréttindi, þar sem
kosningaréttur er almennur.
Sizt má skilja þessi ummæli
min svo, að mér finnist allt vit-
leysa sem þarna er sagt. Það er
t.d. athyglisvert, sem höfundur
segir af manninum, sem i heita
kerinu i laugunum var að
bölsótast yfir ófrelsinu á
Islandi. Margt sem hann segir
um ófrelsi og kúgun i framandi
löndum er rétt, og yrði sú upp-
talning seint tæmandi. Trotsky
sá rétt, þegar hann sagði, að það
alræði öreiganna, sem Lenin
boðaði og kom á i Ráðstjórnar-
rikjunum myndi leiöa til
einræðis og kúgunar. En um þau
efni hefur verið skrifað áöur á
íslandi, þó að það afsanni sizt að
aldrei sé góð visa of oft kveðin.
Rétt er að geta þess, að i heft-
inu er stutt grein eftir Baldur
Hermannsson. Hún heitir
Fréttaskeyti og er skrifuð i
tilefni af hryðjuverkum i
Sviþjóö. Þar segir að það sé
opinber stefna sænsku stjórnar-
innar að taka á mannræning jum
með silkiklæddum fingrum.
Vinstri öflin valdi þvi, að Svi
þjóð sé orðin glæpaflokkum
griðastaður á ákjósanlegur
vettvangur. Niðurlagsoröin eru
þau, að gegn pólitiskum niður-
rifsöflum dugi aðeins ein að-
ferð: Láta hart mæta hörðu.
Þvi miður eru viðar unnin
hryðjuverk en i Sviþjóð — og
sums staðar eru þau bæði ægi-
legri og tiðari. Pólitisk hryðju-
verk eru hörmulega tiö á
Noröur-írlandi. Það eitt er
engin lækning að mæta ofbeldi
með ofbeldi, þóað þess þurfi oft.
Skáldskapur er i þessari
Eimreiö, bæði ljóð og sögur. Um
það má sitthvað segja, þvi að
vert er það umhugsunar. Hér
læt ég nægja að visa til einnar
linu úr ljóði eftir Matthias
Johannessen: Ófriðar konur
eiga einnig rétt á að vera kysst-
ar.
H.Kr.
£q uus í Iðnó:
SÝNINGAR HÆTTA
UM HELGINA
SÝNINGUM á leikritinu EQUUS
veröur hætt nú um helgina vegna
forfalla eins leikarans. Mjög
mikil aðsókn hefur verið að sið-
ustu sýningunum á verkinu, það
svo að selzt hefur upp á þær
mörgum dögum fyrirfram og
margir raunar misst af sýning-
unni fyrir bragðið. — Allar likur
eru á að verkið verði tekið upp
aftur og sýnt nokkrum sinnum
næsta haust.
Islenzkir leikhúsgestir eru ekki
einir um áhugann á bessu verki,
það hefur vakiö mikla athýgli um
heim allan, verið leikið i flestum
löndum Evrópu og vestur í New
York, þar sem Richard Burton
fer með annað aðalhlutverkið
sem frægt er orðið. — t sýningu
Leikfélagsins fer Jón Sigur-
björnsson með þetta hlutverk,
Dysart lækni, en Hjalti Rögn-
valdsson leikur strákinn Alan
Strang.
Myndin sýnir þau Jón og Helgu
Bachmann i hlutverkum sinum.
FYRSTU KAPPREIÐAR ÁRSINS
Vorkappreiðar Fáks á sunnu-
daginn verða að vanda fyrstu
kappreiðar ársins. Munu margir
frægir hestar taka þátt i þeim, en
alls taka 60-70 hestar þátt i hlaup-
unum. Vegna mikils og vaxandi
áhuga unglinga á hestamennsku
efnir FAKUR nú i fyrsta skipti til
sérstakrar keppni i unglinga-
deild. Unglingarnir munu sýna
ýmsar þrautir, sem þeir hafa æft
sérstaklega undir stjórn KOL-
BRÚNAR KRISTJANSDÓTTUR.
Keppt verður i 800metra, 350 og
250 metra stökki. 1 siðasttalda
hópnum taka aðeins þátt ung
hross, þ.e. 5 vetra eða yngri. Þá
verðurkeppt i 250 metra skeiði og
1500 metra brokki, þar sem 8
hestar verða ræstir i hverjum
riðli.
Keppnishrossin koma viðsveg-
ar að. Af frægum skeiðhestum má
nefna FANNAR Harðar G. Al-
bertssonar, sem reyndist snjall-
asti vekringur landsins i fyrra-
sumar. ÓÐIN Þorgeirs i Gufunesi
og HRIMNI Eyjólfs ísólfss- frá
Stóra Hofi. Af stökkhestum má
fræga telja LOKU Harðar G. Al-
bertssonar, ÁSTVALD Gunnars
Sveinbjörnssonar frá Sandgerði
og ÞJALFA Sveins Sveins- 'nar.