Tíminn - 04.06.1976, Page 23
Föstudagur 4. júnl 1976.
TÍMINN
23
Framsóknarfélag
Hveragerðis og
Ölfuss
heldur aöalfund sinn fimmtudaginn 10. júni. Dagskrá: Venjuleg
aöalfundarstörf, lagabreytingar, önnur mál. Þórarinn Sigur-
jónsson alþingismaður mætir á fundinum.
Áformaö er að á undan aðalfundi verði haldinn almennur
stjórnmálafundur, enn er óákveðið hverjir verða formælendur á
þeim fundi. Nánar auglýst siðar. F.H.Ö.
Stærsta sýning á
íslenzkri nytjalist
Gestir sýningarinnar víðfrægir
mótendur finnsks listiðnaðar
SJ-Reykjavik. — A laugardag
kl. 19 veröur sýningin Islenzk
nytjalist opnuð almenningi 1
sýningarsalnum I kjallara Nor-
ræna hússins. Þetta er um-
fangsmesta sýning á islenzkum
listiðnaði, sem haldin hefur ver-
ið hér á landi, og verða þar yfir
200listiðnaðarmunir eftir um 50
hönnuði og framleiöendur. Þar
á meöal húsgögn, skinnavörur,
keramik, auglýsingateiknun,
fatnaður, ljósmyndir, lampar,
silfur og vefjarlist. Auk þess
hefur tveim þekktum listhönn-
uðum frá Finnlandi verið boðið
að taka þátt i sýningunni, þeim
hjónunum Vuoko og Antti Nur-
mesniemi, en þauhafa mjög látið
til sin taka á ýmsum sviðum
finnskrar nytjalistar, sem þykir
einkennast af sérstakri reisn og
glæsibrag.
Þau Vuoko og Antti Nur-
mesniemi sýna hér húsgögn,
vefjarlist, fatnað, búsáhöld o.fl.
Fatnaöurinn verður sýndur á
sérstökum tízkusýningum i sýn-
ingarsal undir stjórn Vuoko.
Fyrstu tvær sýningarnar verða
við opnunina og kl. 16 sunnudag-
inn 6. júni, hvitasunnudag.
Auk þess heldur Antti Nur-
mesniemi fyrirlestur með
skuggamyndum i Norræna hús-
inu þriöjudaginn 8. júni kl. 17,
sem hann nefnir „Vöru og um-
hverfishönnun i Finnlandi”.
Fyrirlesturinn veröur á ensku
og er opinn almenningi.
Vuoko er leirkerasmiður að
mennt og starfaði fyrst hjá
Arabla. Siðan sneri hún sér að
hönnun vefjarlistar og fatnaðar
var aðalhönnuður Marimekko
um nokkurra ára skeið. Hún
stofnaði eigiö fyrirtæki 1964,
sem framleiðir eftii og tizku-
fatnaö. Hún starfar einnig I fyr-
irtæki manns sins Studio Mur-
mesniemi, en þar eru hannaðar
hvers konar framleiðsluvörur,
húsgögn og innréttingar. Hún
hefur jöfnum höndum hannað
leir og gler, veggfóður, teppi og
annan vefnaö, og hefur m.a.
unnið fagra vefjarlist i nokkrar
kirkjur i Finnlandi.
Antti Nurmesniemi er hús-
gagnaarkitekt. Hann hefur séð
um innréttingar i opinberar
skrifstofur, kirkjur, veitingahús
og banka. Hann hefur mótað
stefnu i finnskri húsgagnalist og
unniö tilraunastörf i lýsingar-
tæknioghúsgagnagerð.Hann er
einnig hönnuður járnbrautar-
vagna og eldhústækja, og sér-
stakur þáttur i starfi hans hefur
frá upphafi veriö hönnun ýmiss
konar sýninga um allan heim.
Félagiö Listiðn stendur að
sýningunni Islenzk nytjalist, en
það hefur áður efnt til fjögurra
sýninga einstaklinga. Félag Is-
lenzkra iðnrekenda, Útflutn-
ingsmiðstöð iðnaðarins, Lista-
hátíð 1976 og Norræna húsiö
hafa veitt sýningunni stuöning.
Formaöur framkvæmdanefnd-
ar sýningarinnar er Jón ólafs-
son húsgagnaarkitekt.
® Bætur
Iþróttir
skaparland heldur sem væntan-
legt þéttbýlisland með tilliti til
þess að þéttbýli fer mjög vaxandi
I Mosfellssveit. Ætti þvi að meta
landið meö hhðsjón af þvi, á
hvaða veröi væri hægt að selja
landið undir byggingalóðir.
Vegageröin hélt þvi fram, að
ekki væri hægt að meta landiö
sem lóöir, sem keyptar væru til
áð byggja á þeim innan skamms
tima, og kraföist þess að matið
tæki tillit til áðurnefndrar greinar
I vegalögunum.
Lögmenn landeigenda mót-
mæltu þessu og töldu hraðbraut-
ina valda truflun, óþægindum við
skipulagningu landsins og verð-
lækkun i nágrenni vegarins.
Matsmenn töldu, að taka bæri
tillit til þeirra sjónarmiöa land-
eigenda, að ekki bæri að meta
lönd á þessum stað meö hliðsjón
af búrekstri, þar sem allir land-
eigendur á umræddu svæði eru
hættir búskap, heldurbæri að llta
á löndin sem væntanlegt þétt-
býlissvæöi. Bent er á að Ibúatala
Mosfellssveitar jókstum 20% 1974
ogá siðasta sumri voru þar hafn-
ar byggingar á rúmlega þrjú
hundruö lóöum. En þeir töldu, aö
hin nýja steinsteypta hraöbraut
væriein af helztu forsendum fyrir
þvi, hve margir sækjast eftir aö
reisa ibúðarhús þarna, og væri
mikill munur á henni og hinum
gamla, frumstæða malarvegi.
Heföi mikil verðhækkun orðiö á
landi i Mosfellssveit meö tilkomu
hraðbrautarinnar.
100 m grindarhlaupi I gærkvöldi
— hljóp vegalengdina á 14.5
sekúndum.
Kúluvarparinn snjalli „ _ .
UuOm
Halldórsson var einnig I sviðs-
ljósinu I gærkvöldi, hann kastaöi
kúlunni 17.59m.—Égfinn það, að
ég er búinn að ná góðum tökum á
köstum yfir 17 m, sagöi þessi
sterki KR-ingur, sem stefhir að
þvl, að bæta sig sem mest. Það er
ekki aö efa, að hann nái aö kasta
vel yfir 18 m i sumar. Guðni sigr-
aði einnig i kringlukasti — kastaði
50.56 m.
Friðrik Þór óskarsson varö
sigurvegari í þristökki — stökk
14.85 m. — Ég náöi mér ekki á
strik, enda ekki sem bezt aö
stökkva hér á Melavellinum,
sagði Friðrik Þór, eftir stökkiö,
en hann náði að stökkva sitt
lengsta stökk i siðustu átrenn-
unni.
Gamla kempan Valbjörn
Þorláksson var sigurvegari i 110
m grindarhlaupi — 15.5 og Val-
björn varð einnig sigurvegari i
stangarstökki — 3,70m.
Bjarni
Stefánsson, spretthlauparinn
sterki úr KR, sem tók þátt I sinu
fyrsta móti i sumar, sigraði í 200
m hlaupi - 22.17 sek. Magnús
Jónassonúr Armanni sigraði i 100
mhlaupi-U.5sek.ÞórdigGigia
dóttir (14 ára) sigraöi i hástökki,
stökk 1.65 m.jnýtt meyjamet.
—sos
Eitt veggspjaldanna, gert 1906
Trúður sýnir töfrabrögð
og veggspjöld
I anddyri Norræna hússins er
óvenjuleg sýning sett upp á Lista-
hátlð 1976. Þar veröa sýnd vegg-
spjöld úr eigu finnsks sjón-
hverfingameistara Solmu
Mákela, en hann á eitt merkasta
safn, sem til er af myndum úr
sirkusheiminum og veggspjöld-
um töframanna og trúða. Segja
má, aö sirkusfólk, töframenn og
trúöar hafi fyrst komizt að raun
um auglýsingamátt veggspjalds-
ins, plakatsins, — sem sifellt ryö-
ur sér meira og meira til rúms.
Úrval úr þessu einstæða vegg-
spjaldasafni veröur nú sýnt hér.
Solmu Makela kemur sjálfur til
tslands með myndirnar, og sýnir
töfrabrögð af og til meðan á sýn-
ingunni stendur.
Solmu Mákelá sýnir töfrabrögö
i samkomusal Norræna hússins
sem hér segir:
laugard. 5. júni kl. 16
sunnud 6. júni kl. 15
mánud 7. júni kl. 15
laugard. 12. júni kl. 16
sunnud. 13. júnl kl. 15.
„Nauðsynlegt að fylgjast með
hvað er að gerast"
M.M. Vlnarborg —Mikil endur-
skipulagning stendur nú fyrir
dyrum hjá Iðnþróunarstofnun
Sameinuðu þjóöanna, og var það
aðaltilefni þessa stjórnarfundar I
Vln, sem er aðsetur þessarar
N stofnunar. UNIDO er ein af aðal-
stofnunum Sameinuðu þjóðanna,
og nú er I byggingu húsnæöi fyrir
UNIDO og eina af hliöarstofnun-
um S.Þ., Atómrannsóknarstöð
S.Þ. i Vin.
Af hálfu Islands sátu Árni Þ.
Árnason og Steinar Berg Björns-
son fundinn. I viötali viö blaða-
mannTimanssagðiArniÞ. Arna-
son:
— Island hefur, sem kunnugt
er, notiö aöstoðar ýmissa sér-
fræðinga Iðnþróunarstofn-
unarinnar við þá iðnþróun, sem
unniö hefur veriö við á tslandi á
undanförnum árum. Nánar tiltek
iö siðan ’72. Við islenzku fulltrú-
arnir, Steinar Berg Björnsson og
ég ræddum þessi mál sérstaklega
I aðalstöövum Iðnþróunarstofn-
unarinnar jafnhliöa fundinum.
Fundurinn átti sér stað i fund-
arsetri Vinarborgar ikeisarahöll-
inni.
Arni Þ. Árnason og Steinar Berg Björnsson