Tíminn - 06.08.1976, Blaðsíða 8

Tíminn - 06.08.1976, Blaðsíða 8
UNCTAD RAÐSTEFNAN Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um viðskipta- og þróunarmál, UNCTAD, var haldin i Nairobi í Kenya dagana fimmta til þritug- asta og fyrsta mai siðastliðinn. Þetta er i fjórða sinn, að þessi ráðstefna er kvödd saman til funda, eftir að störf hennar voru gerð að föstum lið i starfsemi Sameinuðu þjóðanna með sam- þykkt Allsherjarþingsins frá ár- inu 1964. Fulltrúar 139 rikja tóku þátt i störfum ráðstefnunnar, en segja má i stuttu máli, að störf hennar hafi einkennzt af erfiðum samn- ingaviðræðum, þar sem rákust á sjónarmið iðnvæddu landanna og sjónarmið þróunarlandanna. Þetta átti ekki hvað sizt við um þær tillögur sem fram komu um verzlun og viðskipti meö hráefni, en tiilögur i þeim efnum komu meöal annars frá starfsliði UNCTAD. Um þetta efni var gerö samþykkt á siðasta degi ráöstefn- unnar, og sU samþykkt var gerð án atkvæðagreiðslu, og er hUn talin merkasti árangurinn, sem náöist á þessum fundi. Þar er meðal annars fjallaö um aðgerðir til þess að koma upp varabirgö- um af ýmsum mikilvægum vöru- tegundum og hvernig fjármagna skuli slika birgðasöfnun. Meira en tuttugu lönd létu á ráðstefnunni i ljós áhuga á að leggja fram fé i birgðasjóð af þessu tagi. Noregur og fimm önn- ur lönd buðust til að leggja fram samtals 156 milljónir Bandarikja- dala. Þaf af ætluðu Norðmenn einir að leggja fram 25 milljónir dala. Hin löndin sem þarna áttu hlut að máli voru Indland, Indó- nesia, JUgóslavia, Kenya og Fil- ipseyjar. Segja má aö ástæðan til þess, að þessi fundur var haldinn hafi verið sU efnahagskreppa sem undanfarin tvö, þrjU ár hefur komið illa við mörg riki, raunar velflest riki heims, ef undan eru skilin þau, sem framleiða oliu og notið hafa þar sihækkandi verð- lags. Einkum hefur þetta þó kom- ið illa við þróunarlöndin. Hlutur þeirra i alþjóðaviðskiptum hefur stöðugt orðið lakari, og erlendar skuldir þeirra hafa aukizt jafnt og þétt með þeim afleiðingum, að greiösluhalli þeirra breyttist mjög til hins verra : var tólf millj- arðir dala árið 1973 en varð hins vegar 45 milljaröir dala árið 1975. Þetta er auðvitað óviöunandi þróun en við þetta bætist svo aö tekjur á mann i iðnvæddu löndun- um hækkuðu almennt Ur um það bil tvö þUsund dölum á árabilinu frá 1952 til 1972 i um fjögur þUs- und dali, en á sama tima hækkuöu tekjur á mann i þróunarlöndun- um að meðaltali Ur um 125 dölum i 300 dali á ári til jafnaðar. Um þaðbil 20 prósent af ibúum jarðar eiga heima i iðnvæddu löndunum, og i þeirra hlut koma tveir þriðju hlutar allra tekna jarðarbúa. I þróunarlöndunum búa um 30 prósent ibúa jarðar- innar, það er að segja i allra fá- tækustu þróunarlöndunum, en hluti þeirra i heildartekjum jarð- arbúa er hins vegar ekki nema þrjU prósent. En hvað hafa svo auðugu rikin gert til að aðstoða hin fátækari, þar sem hungur, næringarskortur og atvinnuleysi er hið eina dag- lega brauð? Samkvæmt þeim gögnum, sem fram voru lögð á UNCTAD ráð- stefnunni hefur raungildi aðstoð- ar riku landanna við hin fátæku minnkað um þrjú prósent á sið- astliðnum tiu árum. Ein af afleið- ingum þessarar staöreyndar er að skuldabyrði fátæku landanna hefur stöðugt farið vaxandi. Sjötiu og sjö rikja hópurinn, sem svo er nefndur, en það eru eingöngu. þróunarlönd og eru raunar orðin 111 talsins, þótt upp- haflega hafi þau verið 77, hefur stöðugt reynt að þrýsta á til að koma á efnahagslegri nýskipan i veröldinni. Einkum hafa þessi riki beitt sér á vettvangi Samein- uöu þjóöanna, og frá þeim hafa komið allmargar tillögur um Ur- bætur i þessum efnum. RUmlega 75 prósent af gjald- eyristekjum þróunarlandanna eru til komnar vegna Utflutnings á hráefnum ýmiss konar. Þar á meðal eru ýmiss konar óunnar landbúnaðarvörur og málmar (olia er þar ekki meðtalin). Yfir- leitt hefur að undanförnu verið heldur lækkandi verðlag á þessum vörum og viðskiptin stöðnuð i gömlum viðskiptahátt- um og þar hefur ekki átt sér stað súsamaþróunogaðþvier varðar fullunnar iðnaðarvörur. Fullunnar iðnaðarvörur verða þróunarlöndin yfirleitt að kaupa dýrum dómum frá iönvæddu löndunum, og verðlag á þeim hef- ur stööugt fariö hækkandi að undanförnu. En þetta er siöur en svo auðleystur vandi. Sérfræðing- ar halda þvi fram, að ekki veröi unnt að ráða bót á þessu með við- skiptalegum ráðstöfunum ein- göngu, heldur verði þróunarlönd- in umfram allt að iðnvæðast sjálf, og það var einmitt eitt af megin- umræöuefnunum á UNCTAD ráð- stefnunni i Nairobi. Þar var með- al annars samþykkt yfirlýsing þar sem segir að stefnt skuli að þvi að árið 2000 framleiði þróun- arlöndin að minnsta kosti 25 pró- sentaf öllum iðnaðarvarningi, en nU er hlutur þeirra aðeins um 7 prósent. Þessu marki verður þvi aöeins náð, að til komi verulega aukin aðstoð frá iðnvæddu lönd- unum. Almennu umræðurnar á ráð- stefnunni hófust 6. mai og stóðu fram tii 19. mai. Þátt i þeim tóku fulltrúar 119 landa og 30 alþjóöa- stofnana og samtaka, sem sér- staklega var boðið til ráöstefn- unnar. Fulltrúar 77 rikja hópsins, sem áður er getið fluttu margar tillög- ur i þessum umræðum og iýstu einnig stuðningi við þær tillögur, sem fram voru lagðar og starfslið UNCTAD hafði samið. Iönvæddu löndin vorusammáia um að auka þyrfti aöstoðina viö þróunarlönd- in, en hins vegar voru deildar meiningar um það með hverjum hætti þessi aðstoð skyldi vera. Aöeins tiltölulega fá riki þeirra á meðal Holland og Norðurlöndin lýstu stuðningi við sjóðstofnun til að koma upp varabirgöum af mikilvægum hráefnum. Sósialisku rikin lýstu velflest stuðningi við tillögur þróunar- landanna, en fyrir utan JUgó- slaviu og Rúmeniu studdu þessi riki ekki tillöguna um sjóðstofn- un. Yfirleitt var meginsjónarmið þeirra, að gömlu nýlenduveldin ættu að bera hitann og þungann af aðstoðinni við þróunarlöndin, og þar væri ekki rétt að setja sósiölsku rikin og auðvaidsrikin á sama bás I þvi tilliti hvernig haga ætti aðstoðinni. Eftir lok ráðstefnunnar lét við- skiptaráðherra Kenya, Timothy Mwamunga, sem jafnframt var forseti ráöstefnunnar, svo um- mælt, aö þrátt fyrir það ósam- komulag, sem rikt hefði á ráð- stefnunni hefði hún borið veruleg- an árangur, og nú hefði skapazt betri grundvöUur en áður hefði veriö fyrir hendi til þess aö ná allsherjarsamkomulagi á hrá- efnasviðinu. HráefnasamþyKktin hefur að geyma upptalningu á þeim mark- miöum.sem æskilegust erutalin, þá er þar fjallaö um þær ráðstaf- anir, sem nauðsyniegt sé að gera og i þriðja lagi eru sett timamörk tilsamningagerðar um ýmis mik- ilvæg atriði. Tilgangurinn með þessari sam- þykkt er meðal annars sá að bæta skipulag markaðsmála á alþjóö- legum vettvangi þannig, að þró- unarlöndin njóti i rikari mæli góös af þvi en veriö hafi til þessa. Þetta á meðal annars að gerast með þeim hætti að reynt verði að tryggja hærra verð fyrir hráefni ýmiss konar, sem einkum koma frá þróunarlöndunum, jafnframt, þvi sem leitazt verður viö að auka þessi viðskipti og skapa jafnvægi^ mUli framboðs og eftirspurnar'. Þá er einnig fjallaö um þær vör- ur, sem framleiddar eru i iðn- væddu löndunum og komið geta aö ýmsu eöa öUu leyti i stað ým- issa hráefna, sem koma frá þró- unarlöndunum. Reynt verður að gera Utflutningsvörur þróunar- landanna samkeppnishæfari en þær hafa verið til þessa jafnframt þvi sem þróunarlöndunum veröi veitt aukin hlutdeild i sölu og dreifingu eigin afurða. En hvaða vörur eru það sem hér er einkum um að ræöa? Meðal þess er upp er talið i samþykktinni er eftir far- andi: Bananar, báxit, bómull, kakó, fosfat, gúmmi, sisall, járn- grýti, JUta, kaffi, kopar, kjöt, mangan, sykur, te, timbur og tin. Tekið er fram að fleiri vöruteg- undum megi siðar bæta á þennan lista, ogennfremur að setja megi sérstakar reglur um þær vörur, sem ekki þola langa geymslu. t tillögu starfsliðs UNCTAD er meðal annars gert ráö fyrir eftir- farandi. 1. Komið verði upp varabirgðum af ofangreindum vörutegund- um. Kaupa skal vörurnar, þeg- ar verðlag fer lækkandi og selja þær siðan þegar verðlag hækk- ar að nýju. 2. Koma skal á fót alþjóðlegum sjóði, erhafa skal þaðhlutverk að fjármagna þessi vörukaup. Höfuðstóli stólsins skal vera þrir milljarðir Bandarikjadala. 3. Bæta skal þróunarlöndunum tap, sem þau verða fyrir vegna verulegrar verðlækkunar á Ut- flutningsvörum, sem eru þess eðlis aö þær þola ekki geymslu. 4. Stefna skal að þvi að fjölga við- skiptasamningum milli fram- leiðslu og neyzlulanda frá þvi sem nú er. 5. Stefna skal að þvi að afnema hvers konar viðskiptahömlur og aðrar hömlur sem standa i vegi iðnvæðingar þróunarland- anna, þannig að þau geti i auknum mæli breytt eigin hrá- efnum i fullunnar iðnaðarvör- ur. I tillögunni er einnig komið inn á það, að nauðsynlegt sé að koma á einhvers konar kerfi til að stýra verðlagi hráefna. Er þá helzt rætt um einhvers konar visitölubind- ingu verðlagsins, án þess þó það sé sagt berum orðum. Slik visitölubinding mundi væntanlega hafa það i för með sér, að ef um yrði að ræða verð- hækkun á iðnaðarvarningi, sem þróunarlöndin flytja inn, mundi verðlag á þeim hráefnum, sem viðkomandi land flytur Ut, einnig hækka að sama skapi. í marz á næsta ári verður enn á ný boðað til ráðstefnu um þessi mál og þar verður meðal annars fjallað um ýmis framkvæmda- atriði þessarar samþykktar, og þá ennfremur gert ráð fyrir að samningar um einstök fram- kvæmdaatriði eigi að'geta hafizt strax i september i haust og á þeim að vera lokið i árslok 1978. Að öðru leyti en hvað varðar fyrrnefnda sjóðstofnun er i hinni endanlegu samþykkt verulega komið tii móts við tillögur 77 rikja hópsins. Þar hefðu þróunarlöndin viljað fá ákveðna samþykkt en niðurstaðan varð hins vegar sú, að aðeins var ákveðið að halda samningaumleitunum áfram um það á hvern hátt megi bezt ráða þessu máli til lykta. Eftir samþykkt tillögunnar gerðu fulltrUar ýmissa stórvelda ýmiss konar fyrirvara við sam- þykktina, sem raunar kom ekki á óvart. FulltrUar Bretlands og Vestur-Þýzkalands lýstu sig and- viga þvi að hráefnaverð yrði með nokkrum hætti visitölubundið, og sögðust alls ekki hafa skilið sam- þykkt ráðstefnunnar á þann veg. Henry Kissinger utanrikisráð- herra Bandarikjanna hafði komið fram með eins konar mála- miðlunartillögu.þar sem gert var ráð fyrir að komið yrði á laggirn- ar eins konar hráefnabanka, sagði það alls ekki vist að Banda- rikjamenn mundu á næsta ári taka þátt i umræðunum og samn- ingaumleitunum um stofnun sjóðs til að kaupa ýmiss konar hráefni til geymslu. Bandarikja- -stjórn vildi doka við og sjá hverju fram yndi, áður en hún tæki end- anlega afstöðu til þess máls. Eins og áður hefur komið fram voru fulltrUar Norðurlandanna fylgjandi þvi að sh'kum sjóði yrði komið á fót. Norðmenn lýstu sig strax samþykka slikri sjóðstofn- un, en Danir fóru hins vegar nokkru varlegar i sakirnar og töldu að ræða þyrfti málin frekar áður en af þessu gæti endanlega orðið. Ivar Nörgaard markaðs- málaráðherra Dana sagði meðal annars i' ræðu, sem hann hélt á ráðstefnunni aðallar breytingar i þessum efnum yrðu að gerast smám saman og um þær ráðstaf- anir, sem gerðar yrðu, yrði að vera algjört samkomulag. Timi væri að visu naumur til aðgerða, en þó mætti ekki hraða þessu um of. Iðnvæddu löndin þyrftu ekki siður en þróunarlöndin vissan að- lögunartima í þessum efnum. Halvard Bakke viðskiptamála- ráðherra Noregs sagði meðal annars að Noregur styddi tillögur UNCTAD starfsliðsins heilshug- ar, og UNCTAD ætti aö hafa frumkvæðið um að hrinda þess- um tillögum i framkvæmd. Hann skýrði ennfremur frá þvi að Norðmenn hefðu ákveðið að lækka verulega tolla á margvís- legum hráefnum, sem flutt væru inn frá þróunarlöndunum, og þær tollalækkanir mundu fyrst og fremst koma allra fátækustu þró- unarlöndunum til góða.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.