Tíminn - 06.08.1976, Side 10
10
TÍMINN
Föstudagur 6. ágúst 1976.
Föstudagur 6. ágúst 1976.
SVARTI PARDUSINN
DÆMDUR í LÍFSTÍÐAR-
FANGELSI - 5 SINNUM
Veröldin hafði verið grimm við Neilson. Hvers
vegna ætti hann ekki að vera grimmur við
veröldina? í hernum hafði hann lært að skjóta,
þegar róðizt var á hann. Hvers vegna ætti
hann ekki að skjóta í borgaralegu lífi eins og
í hernaðarlegu?
Donald Neilson, hættulegasti moröingi Bretlands siöustu ár. Myndin er
tekin skömmu eftir handtöku hans. Honum mistókst aö skjóta sér leið
frá handtökunni og fólk I fiskbúö réöist aö honum meö þeim afleiöing-
um, sem andlitsmyndin sýnir.
A mánudag i síöustu viku var 39
ára gamall Breti, Donald Neilson
að nafni, dæmdur til ævilangrar
fangelsisvistar og það hvorici
meira né minna en 5 sinnum. Áð-
gerðir brezku lögreglunnar, sem
að lokum leiddu til handtöku
Neilsons, voru gifurlega dýrar
og er kostnaðurinn metinn á tæp-
lega 2 milljónir punda (um 650
millj. isl. kr.). 200 lög-
reglumenn og — konur störfuöu
Stöðugt að lausn málsins. 250 þús.
yfirheyrslur voru geröar, 32 þús.
simtöl voru skráð, 1 5 milljón kort
voru útfyllt af 35 lögreglukonum
fyrir ,,bókhaldið” og svona mætti
lengi telja.Eöaeins og einn rann-
sóknarlögreglumaðurinn sagði:
Ég hefði getað látið sniða föt á
manninn. Ekkert vantaði nema
nafnið. Svo vel voru þeir farnir að
þekkja Neilson áöur en upp-
götvaðist hver maðurinn var.
En hver er þessi Neilson, hvað
hafði hann til sakar unnið og
hvaða orsakir lágu þar að baki?
Vildi losna við fátæktina
Donald Neilson fæddist á fá-
tækraspitala i námabæ i Yorks-
hire 1. ágúst 1936, þannig að s.l.
sunnudag hefur hann átt 40 ára
afmæli. Upphaflega hét hann
Donald Nappey og það nafn átti
eftir að hafa mikil áhrif á uppeldi
háns og þroska.
Faðir hans var fátækur verka-
maður og fjölskyldan bjó i li'tiili
tveggja herbergja ibúö i fátækra-
hverfi. Það var þetta umhverfi,
sem Neilson reyndi alla sina æfi
að losna' frá, en árangurslaust.
Nafnið Nappey varð fljótlega
að skotspæni grimmra félaga
hans. f skóla var Neilson þekktur
undir nafninu „Nappey-rash”,
sem er eitt af hinum fjöldamörgu
dæmum um tvöfalda merkingu
sama orðs i enskri túngu, og þvi
erfitt að þýða á islenzku. (gæti
þýtt bráðláti-Nappey og eins
kláðabólan og jafnvel i skozku sá
ölóði). En alla vega er það vist. að
uppnefniö hafði mikil áhrif á
Neilson, enda var hann aldrei
andlega sterkur. Hann breytti
nafni sinu i Neilson áriö 1960.
Þegar hann lauk skólaskyldu
sinni 15 ára gamall, hóf hann nám
hjá snikkara, en árið áður haföi
móðir hans látizt úr krabbameini.
En þetta var á dögum herskyld-
unnar i Bretlandi, svo að 18 ára
var Neilson kallaður i herinn,. Og
það var lif, sem honum féll vel.
Þar lærði hann hvernig á að með-
höndla alls konar vopn, allt frá
skammbyssum og upp i stærri
manndrápstæki.
Flestir gleyma þvi sem þeir
hafa lært i hernum mjög fljótlega
eftir að herskyldunni lýkur, en
Neilson gleymdi aldrei hvernig
vel agaður manndrápari á að
haga sér. ÞÞEGAR R$ETTAR-
haga sér. Þegar rhöldin stóðu yfir
honum, þá sagði hann alltaf ,,já
herra” eða ,,með virðinguherra”
o.s.frv.
Að visu gekk lærdómurinn
ekkert sérstaklega vel inn i
Neilson. Hann þurfti að taka
sumar æfingarnar tvisvar til aö
verða fullnuma i listinni. Eða eins
og einn félagi hans frá þessum
tima sagði: — Nappey var aldrei
neitt sérstaklega klár i kollinum.
Hann var svo
óvingjarnlegur
Aður en Neilson tók herskyld-
una, þá trúiofaðist hann stelpu úr
sama hverfi, en þau giftust ekki
fyrr en hann hafði lokið herskyld-
unni Það virðist þó ekki hafa
verið mikil ánægja með brúö-
gumann hjá fjölskyldu brúðar-
innar. Alla vega kvartaði tengda-
móðir hansyfir þvi hvað hann var
alltaf óvingjarnlegur.
Aðeins fjórum mánuðum eftir
giftinguna, þá kvaddi hann
konuna sina til að þjóna föður-
landinu i hinum raunverulega
her. Hann var sendur til Kenya,
þar sem hann barðist við upp-
reisnarmenn. Seinna fór hann til
annarra vandræðastaða i Aden og
á Kýpur.
Tveimur árum siðar kom hann
afturheim og ungu hjónin fóru að
búa i fyrsta sinn af einhverri al-
vöru. Nokkrum árum siðar
eignuðust þau sitt eina barn, —
stúlku, sem nú er 16 ára. Neilson
þótti alltaf óhemjulega vænt um
hana og brast ævinlega i grát,
þegar minnzt var á hana i réttar-
salnum. Eins og að framan segir,
þá breytti hann nafni sinu árið
1960, en það er einmitt árið sem
hún fæddist. Hann vildi ekki, aö
hún þyrfti að þola sama upp-
nefnið og hann.
Misheppnað borgaralegt
lif.
Neilson byrjaði sitt borgara-
lega lif með sölumennsku. Hann
gekk frá húsi til húss og bauð fóiki
alls konarbursta.Ekki gekk það,
eins og reyndar flest annað sem
hann tók sér fyrir hendur, þvi
hann skorti hlýlegt viðmót. Þessu
átti Neilson eftir að kynnast
betur.
Hann reyndi að þjálfa hunda til
varðgæzlu. Hann reyndi sig i iðn
sinni sem snikkari. Hann reyndi
að byggja hús. En alltaf mistókst
Neilson.
En þegar hann tók við stjórn
litils leigubilafyrirtækis, þá áleit
hann að nýtt lif væri að hefjast.
Þá breytti hann um nafn.
Leigubilafyrirtækið átti vel við
Neilson, þangað til viðskiptavin-
irnir hættu að koma. Einn ná-
granni hans sagði að hann hefði
verið góður og ákafur vinnu-
maður, en einhvern veginn þá
misheppnaðist allt sem hann tók
sér fyrir hendur.
Striðsyfirlýsing
Eftir allar þessar misheppn-
uöu tilraunir og margar aðrar,
sem ekki var minnzt á hér, þá fór
hugur hans að beinastað glæpum.
Hann þjáðist af slæmu magasári
(og gerir enn), allt virtist vera
honum óhagstætt og þá hvers
vegna ekki aö lýsa yfir stríöi á
hendur þjóðfélaginu.
Hann fór að haga lifi sinu eins
og hann gerði i hernum, þar sem
honum hafði liðiö langbezt. Hann
æfði sig lengi á hverjum degi, fór i
langar göngur, synti mikið, reykti
ekki og fór aldrei á krárnar. Hann
klæddist jafnvel fötum svipuðum
þeim, sem notuð eru i hernum.
Svo keypti Neilson sér jeppa eins
og herinn notar.
1 húsi sinu kom hann sér upp
„aðgerðarherbergi” með kortum
og öllum tilheyrandi útbúnaði,
þar sem glæpir voru skipulagðir,
en að visu ekki framkvæmdir á
þessu stigi málsins.
Neilson gerist
Náttfari
En brátt urðu draumarnir að
veruleika og hann geröist at-
vinnuþjófur, en lét fólk halda, aö
hann væri sjálfstæöur iðnaöar-
maöur.
A heimili sinu haföi Neilson útbúiö aögeröaherbergi eins og þeir geröu i hernum. Þar fundust
vopnabirgbir, kort og margt fleira I slikum dúr.
Þannig var Neilson klæddur i
ráns- og drápsferöum sinum.
Fyrir vikiöhlaut hann nafngiftina
Svarti Pardusinn.
var settur i að undirbúa gildruna.
Mannránið mistókst, en það
gerði gildran einnig, þvi Neilson
hafði auðvitað skipulagt undan-
komuleiðir. En það hörmulega
við þetta mannrán var, að stúlkan
dó. Neilson segir, að hún hafi dáið
af slysni, en hann hlaut dauða-
dóm fyrir, þvi dómarinn taldi
Neilson hafa þurft að losna við
hana, þar sem Whittle hafði séð
andlit hans og þvi hefði hann
myrt hana.
Svarti pardusinn
liandsamaður — af
tilviljun
Strax eftir fyrsta morðið grun-
aði lögregluna að morðinginn og
þjófurinn, sem hafði valdið þeim
svo miklum heilabrotum, væri
sami maðurinn. Eins og segir i
upphafi greinarinnar, þá var gerð
gifurleg leit að manninum. En
þrátt fyrir að meira en 200 lög-
reglumenn hefðu unnið stöðugt að
lausn málsins, þá var Neilson
handsamaður af tveimur ungum
lögreglumönnum, sem voru á
venjulegri eftirlitsférð.
Neilson ók bil sinum á ósköp
eölilegum hraða, þegar hann
tók eftir að lögreglubill var fyrir
aftan hann. 1 einhverri óskiljan-
legri hræðslu, þá tók hann upp á
þvi að auka hraðann. Lögreglu-
mennirnir, sem vissu ekki hvað
var á seyði hertu einnig hraðann
til að athuga málið. Þá stanzaði
Neilson bilinn, hljóp út og beindi
byssu sinni að lögreglumönnun-
um. Með miklu hugrekki réðust
lögreglumennirnir að Neilson og
tókst þeim að afvopna hann. Neil-
son tók þá á rás, en fólk, sem stóð
i röð fyrir utan fiskbúð, sá hvað
gerzthafði og náði morðingjanum
og yfirbugnði hann.
Samianirnar
óvéfengjanlegar
Þegar lögreglunni hafði loks
tekizt að klófesta hann, þá var
auðveltaðfá hann dæmdan. 1 að-
gerðarherberginu fundu þeir
vopnin, búninginn og margs kon-
ar innbrotstæki falin bak við
falskan vegg. Enneitt misheppn-
að starf Neilsons varð að veru-
leika.
(Tekið saman af MÓL.)
Skotmörkin, eins og hann kall-
aði innbrotsstaðina, voru vel val-
in. Hann fór inn um glugga og
notaði haglega gerða vira til þess
aö opna þá. Brátt var hann vel
þekktur af lögreglunni um allt
Norður- og Mið-England, þvi
hann notaði alltaf svipaðar að-
ferðir.En lögreglunni tókst aldrei
að komast að hver hann væri, þvi
skotmörkin voru á svo víðu s væði,
að útilokað var að staðsetja
heimabæ þjófsins.
Náttfari verður að
eins-manns her
t einu af sinum fjöldamörgu
innbrotum komst Neilson yfir
riffil og það gaf honum hugmynd-
ina að eins-manns hernum. 1
timariti fyrir skotáhugamenn sá
hann nafn skotfærasala nokkurs i
Manchester og brauzt Neilson inn
til hans og stal miklu magni af
margs konar vopnum.
Innbrotsstaðir Neilsons voru
einkaheimili og skrifstofur fyrir-
tækja, en helzt kaus hann þó að
brjótastinn i litlar póststofur, þvi
þar komst hann yfir peninga, en
ekki aðeins hluti, sem siðan þurfti
að koma i verð. I raun vildi hann
ekki beint drepa. Hann var
hreykinn af hreinum innbrotum,
þar sem enginn sá til hans. En til
öryggis var hann vopnaöur, ef út
af skyldi bera. I ránsferðum sin-
um var hann klæddur að her-
mannasið og hafði þar að auki
grimu, sem huldi allt andlitið
nema augun.
En þó hann hafi ekki beinlinis
viljaö drepa, lágu kaldar, hernað-
arlegar röksemdir að baki hverr-
ar áætlunar. Ef einhver yrði hans
var meðan áætlunin var i fram-
kvæmd, þá varð hinn sami að
hverfa.
Þannig skaut hann til bana þrjá
starfsmenn póstþjónustunnar,
sem trufluðu aðgerðir hans og þar
að auki barði hann konu eins
þeirra svo hrottalega, að hann
hafði ekki hugað henni lif.
Fyrsta morðið var framið i
febrúar 1974. Neilson hafði brotizt
inn i litla póststofu, en fann ekki
lyklana að peningaskápnum. Þá
fór hann inn i herbergi póst-
mannsins, en maðurinn heyrði til
Neilsons og kallaði til sonar sins.
Réöust þeir feðgarnir að honum,
en Neilson skaut þegar póst-
manninn og hljóp á brott. Sonur-
inn tilkynnti lögreglunni strax um
morðið, en Neilson slapp i gegn-
um farartálma lögreglunnar
vegna þekkingar sinnar á vegun-
um, sem hafðifengið meðanhann
rak leigubilafyrirtækið.
Annað morð kom svo 7 mánuð-
um siðar og það þriðja 8 vikum
eftir það.
Vegna klæðnaöar sins, kænsku
og grimmdar, þá gaf lögreglan
honum nafnið Svarti pardusinn.
Mannránið
14. janúar á siðasta ári fram-
kvæmdi Neilson mannrán, sem
hann hafði haft i undirbúningi í
mjög langan tima. Mannránið
var skipuiagt út i yztu æsar eins
og um hernaðaráætlun væri að
ræða. Fórnarlambið var 17 ára
gömul stúlka, Lesley Whittle að
nafni, en hún var erfingi mikilla
eigna.
Þrátt fyrir aðvaranir Neilsons,
þá settu ættingjarstúlkunnarsig i
samband við lögregluna, sem
grunaði strax, að hér væri um
sama mann að ræða og hafði
myrt póstmennina, þannig að
gifurlegur fjöldi lögreglumanna
TÍMINN
Elzta teikning af Kaupmanna-höfn, sem sýnir umsátriö 1523-
1524, eða 1535-36.
Hinir Olympíuleikarnir
Þegarnú leikunum i Montreal
lýkur, hefjast seint i ágúst aðrir
slikir, og annars. staðar. Fri-
merkjasöfnun getur vist ekki
talizt iþróltagrein, en engu að
siður er hún keppnisgrein á
heimsmælikvarða. Þvi er það
að alþjóðlegar frimerkjasýn-
ingar hafa oft verið kallaðar,
„Ólympiuleikar frimerkjasafn-
aranna.”
Að þessu sinni eru þeir háðir i
Kaupmannahöfn, undir nafninu
„HAFNIA-76”. Hafnia er hið
forna nafn Kaupmannahafnar,
þ.e. hið latneska heiti borg-
arinnar, sem Absalon byggði i
Höfn fyrir meira en 800 árum
siöan.
Og hér er keppt til verðlauna.
Hver eru svo þessi verðlaun?
Æðstu heiðursverðlaun eru i
þessum flokkum: Heiðursdeild
F.I.P. Samkeppnideild, en þar
eru veitt heiðursverðlaun i
þessum flokkum: Deild þjóð-
arinnar er að sýningunni
stendur fyrir Evrópsk söfn og
Alþjóðlegri deild eöa söfn frá
hverri heimsálfu fyrir sig. I
heiðurdeild mega aöeins þeir
sýna, sem hafa hlotiö guli þrisv-
ar, eða gull og heiðursverðlaun.
I samkeppnisdeild aöeins þeir
sem minnst hafa hlotiö silfur i
„undanrásum” þaö er á sýning-
um i meölimalöndum, eða á al-
þjóölegum sýningum.
1 samkeppnideildinni er svo
keppt til eftirtalíjra verölauna:
Gull-stórt, litið ’ull og veröa
þeir peningar al era úr 14 kar-
ata gulli. Gyllt silfur. Silfur,
silfrað brons, brons, heiðurs-
skjal og þátttökuskjal.
Af þessu má sjá, að mun fleiri
verðlauna er til að keppa en
jafnvel á Olympiuleikum. Þess
skal getið, al allir þeir sem
fengiöhafa ákveðinn stigafjölda
skv. úrskuröi dómnefndar fá
stórt gull, eða litiö gull o.s.frv.
Þannig fá kannske 5-10 sömu
verðlaun, jafnvel fieiri þegar
neðar dregur.
En þessi keppni er hörð, engu
siður en i Montreal. Hér dugir
ekki að standa i stað. Sá sem
einu sinni hefir fengið gull, fær
það ekki aftur nema að hafa
bætt safn sitt. Þaö gildir þvi aö
vera i stöðugri framför. Gull-
safn i undanrás fær aðeins silfur
á „Frimerkjaólympiuleikum”,
eða kannskt gyllt silfur ef vel er
aö unnið. En takist aö halda þvi
á þrem alþjóðlegum sýningum,
sem gullsafni, þá er það hafið
yfir hina venjulegu samkeppni
og fer i heiðursdeild, þar fær
það gull, en keppir jafnframt
um æöstu verðlaun sýning-
arinnar. Heiöursverölaunin eru
alltaf listverk, t.d. eftir Salva-
dor Dali eöa aðra álika. Þaö eru
þvi hlutir, sem eru þess virði að
eiga. En i þvi eru lika öll pen-
ingaverðmæti verðlaunanna
fólgin. Fémunir eru aldrei til
verðlauna á frimerkjasýningum
og atvinnumennska þekkist þar
ekki. (Frekar en á Ólympiu-
leikum?).
1 undanrásum hefir eitt safn i
eigu Islendings hlotið gyllt
silfur. Það er safn Helga Gunn-
laugssonar, sem hlaut það i
Færeyjum. Er nú spennandi að
sjá hversu fer á HAFNIA-76.
Undirritaður spáir þvi safni
silfurverölaunum. Auk þess eru
tvö önnur söfn á sýningunni
héöan að heiman og fjögur sýn-
ingarefni i bókmenntadeild. Þá
er safn Póststjórnarinnar i
opinberri deild. I heiöursdeild
mun svo Folmer östergaard
syna, en hann er einn af dómur-
unum og má því ekki sýna i
samkeppnideildinni. Auk þessa
verða mörg Islandssöfn i sam-
keppnideildinni. Hefir undirrit-
aður reynt að gera sitt til að
góðum Islandssöfnum verði
smalað hvaðanæva úr heimi til
aö Island sé virkilega vel kynnt
á sýningunni. Þvi að enn biðum
við þess dags, aö héöan að
Merki Ólympiuleikanna
og Hafnia.
Svona lítur Margrét II. dana
drottning út á frímerki.
heiman sé hægt að senda nóg af
glæsilegum söfnum sem sóma
sér á alþjóðlegum sýningum.
Það tekur langan tima að
byggja það upp.
Sigurður H. Þorsteinsson.