Tíminn - 10.08.1976, Qupperneq 5

Tíminn - 10.08.1976, Qupperneq 5
ÞriOjudagur 10. ágúst 1976 TÍMINN 5 á víðavangi Útflutningsbætur d landbúnaðar afurðir t grein eftir Asgeir Bjarnason, forseta Al- þingis, sem nýlega birtist hér í blaðinu, var vikið að útflutnings- uppbótum á landbúnaðarafurðir. Asgeir Bjarnason taldi, að þetta mál þarfnaðist sérstakrar athug- unar. Halldor E. Sigurðsson landbúnaðarráðherra vék að þessu máli á aðalfundi Stéttarsambands bænda og sagði m.a: „Eins og kunnugt er hefur •sú regla verið notuðs.l. 15 ár, að greiða útflutningsbætur á þær landbúnaðarafurðir, sem út hafa verið fluttar og ekki hafa náð þvi verði, sem skráð var hér innanlands. Sam- kvæmt lögunum þar um er heimild til þess að greiða þannig sem nemur 10% af landbúnaðarframleiðslunni. A þeim 15 árum, sem þessi regla hefur verið notuð, eru 8 ár, sem þessi réttur hefur verið notaður að fullu, og var það samfleytt á árunum 1965-1971, en sjö árin hefur þessu marki ekki verið náö. Það var sérstaklega fyrstu árin eftir að útfiutningsbætur voru upp teknar, að þær voru hverfandi litlar. Aárunum 1971-’72náðu þær ekki þvi að vera 10%, en gerðu það áftur á árinu 1974”. Nauðsynlegt endurmat Landbúnaðarráðherra sagði ennfremur við áöurnefnt tæki- færi: „A hinu vii ég vekja athygli, að hér er nú orðið um veru- legar fjárhæðir að ræða. Það gerir það aðverkum, að þjóðin verður að vega það og meta, hvort hún getur iraun og veru fylgt þeirri stefnu, að láta erlendum neytendum i té neyzluvörur á svo lágu verði, sem raun ber vitni. 1 land- búnaði sem á öörum sviðum, verður að meta þaö, hvernig þvifjármagni er bezt varið, er til ráöstöfunar er á hverjum tima. Auðvitað hafa þessar greiðslur áhrif á aðrar fjár- veitingar rikissjóðs til land- búnaðarins. Ég efast ekki um að þetta veldur bændum i landinu mikium áhyggjum, og öllum þeim, sem að land- búnaðarmáium vinna og vilja landbúnaðinum vel, og þjóð- inni i heild. Það er þvi mitt mat, að hjá þvi verði ekki komizt, að endurmeta þennan þátt og leita eftir nýjum leiðum að einhverju leyti til þess að tiyggja afkomu bændastéttar- innar, meðöðrum hætti heldur en þarna er gert. Ég tel lika, að þessi regla um útflutnings- bætur feli i sér þá veilu, ekki sizt þegar til lengdar lætur, að hún hvetji ekki til þess að leita hinna hagkvæmustu markaða, þegar það skjól er fyrir hendi, að útflutningsbótakrafan til rikissjóðs er ekki að fullu notuð. Ég vara við þeirri hugsun, að lita á þennanrétt sem eign sem þurfiað hagnýta sér að fullu. Slikt gæti leitt til þess, að hann glataðist.” Tillaga Brattelis Bratteli, fyrrverandi for- sætisráðherra Norðmanna, varpaði fram þeirri hugmynd á stúdentafundi, sem haldinn var i Osló I fyrra, hvort það gæti verið gagnlegt fyrir þá, sem legðu stund á langskóla- nám að taka sér ársfri frá náminuog vinna við einhvern af undirstöðuatvinnuvegum þjóðarinnar. Hugmynd þessa rökstuddi Bratteli með þvi, að Kennari — Borgarnes Kennara vantar að barnaskólanum i Borgarnesi. Umsóknarfrestur til 20. ágúst. Upplýsingar gefa Sigurþór Halldórsson skólastjóri og Jón Einarsson formaður skólanefndar. Laus staða Kennarastaöa I stærðfræði við Menntaskólann I Kópavogi er laus til umsóknar. Laun samkv. launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráöuneytinu, Hverfis- götu 6, Reykjavík fyrir 25. ágúst n.k. Menntamálaráðuneytið, 5. ágúst 1976. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 6. ágúst 1976. Lyfsöluleyfi, sem forseti Islands veitir Lyfsöluleyfið i Neskaupstað er laust til umsóknar. Um- sóknarfreslur er til 3. september 1976. Umsóknir sendist landlækni. Samkvæmt heimild i 32. gr. lyfsölulaga nr. 30 29. april 1963 er viðtakanda gert skylt að kaupa vörubirgöir og áhöld lyfjabúðarinnar. Einnig skal viðtakandi kaupa húseignina Egilsbraut 7, þar sem lyfjabúðin og ibúð lyfsala er. Leyfið veítist frá 1. október 1976. tengslin milli stúdenta og annarra þegna þjóðfélagsins virtust vera að rofna. Ef sú öfugþróun héldist áfram, gæti það leitt til óheppilegrar ein- angrunar og aukið bilið milli stétta og kynslóða. Stúdentar vildu ef til vill ekki viðurkenna þetta og teldu sig ekki vera i einhverjum lokuöum fila- beinsturni. Bratteli sagðist ekki heldur vera að fullyrða það. Eigi að siður teldi hann nauðsynlegt að koma á nánari tengslum milli hinna stóru menntasetra og annarra þátta þjóðfélagsins. Hættan væri sú, að háskólarnir yrðu einangraöar stofnanir, i ónógum tengsium við atvinnu- vegina og þjóðlifið, og þetta gæti hæglega leitt til alvarlegs klofnings, sem hægt væri að afstýra með meiri snertingu uppvaxandi menntamanna við atvinnuilfið og vinnandi al- menning. Fordæmi Kínverja Areiðanlega er það rétt hjá Bratteli, að aukið langskóla- nám miklu fleiri ungmenna en áður, ásamt lengri namstfma, getur leitt til vissrar ein- angrunar og sambandsleysis milli menntamanna og annarra starfshópa þjóðfé- lagsms. Þess vegna er það áreiöanlega mikilsvert, að ungt fólk, sem stundar lang- skólanám, viðhaldi vissum tenglsum við atvinnuvegina og aiþýðu manna. Klnverjar ganga nú þjóða lengst i þessum efnum og er vissulega ástæða til þess að kynnast reynslu þeirra. í vestrænum löndum mun þó langt i land, að fylgt verði fordæmi Kinverja i þessum efnum. Hins vegar má vel hugsa sér hér nokkurn meðalveg, t.d. eins og þann, sem Bratteli hefur vakið máls á. Þ.Þ. MF 70 Sláttuþyrlan MF Massey Ferquson # Þyngd: 352 kg. # Lengd í flutningsstöðu: 342 sm. # Vinnslubreidd: 170 sm. # Aflþörf, hestöfl: 45DIN. # Hnífafjöldi: 6 # 4 Smurstútar. # Góð sláttuhæfni, því drifsköft eru ofan á þyrl- unni. # Styrk bygging því dráttarátakið kemur neðst á þyrluna. MF Gæðasmíð. Leitið uþplýsinga um verð og greiðsluskilmála í næsta kaupfélagi eóa hjá okkur. SUDURLANDSBRAUT 32* REYKJAVlK* SlMI 86500* SiMNEFNI ICETRACTORS Bændur. Safnið auglýsingunum. Eignist þannig heimildaskrá. Auglýsing nr.11-’76. AUGLÝSIÐ í TÍMANUM VESTUR-ÞÝZK GÆDAFRAMLEIÐSLA ® Passat STÍLHREINN OG VANDAÐUR VW Passat er meira en óvenjulega glæsilegur og þægilegur fólksbíll. Hann er vestur-þýzk gæðaframleiðsla, frá Volks- wagenverksmiðjunum. VW Passat er sparneytinn, öruggur í akstri og býður upp á hina viðurkenndu Volkswagen vara- hluta- og viðgerðarþjónustu. PASSAT — bíllinn sem hentar yður — FYRIRLIGGJANDI HEKLA HF. Laugavegi 170—172 — Simi 21240

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.