Tíminn - 03.09.1976, Page 3
Föstudagur 3. september 1976
TÍMINN
3
REYKJAVÍKUR-SKÁKMÓTIÐ
MÓL-Reykjavík. 8. umferö
Reykjavikurskákmótsins var
tefld i gærkveldi. Mikill fjöldi á-
horfenda var saman kominn i
Hagaskólanum og þá sennilega
til að fylgjast með viðureign
þeirra Friöriks og Timmans,
tveggja stigahæstu manna
mótsins.
Skák þeirra, sem birtist hér
að neðan, var að mestu leyti
Iaus við spennu og sömdu kapp-
arnir um jafntefli eftir 22 leiki.
Staðan var þá i fullkomnu jafn-
vægi.
Annarri skák lyktaði með
jafntefli eftir litla baráttu, en
við þvi mátti búast, þar sem i
hlut áttu landarnir Tukmakov
og Antoshin. í 13 leikjum tókst
þeim að skipta uppá drottning-
um og tveimur léttum mönnum,
en þá var samið um jafntefli.
Najdorf og Björn völdu Kató-
lónska byrjun og tefldi Björn
vel, enda uppskar hann jafntefli
i staðinn, þrátt fyrir að hann
tapaöi peði i byrjuninni.
Vukcevich vann Margeir i
nokkuð djarflega tefldri skák af
hálfu Bandarik jamannsins.
Liklega hefði Margeir getaö
farið betur í vörnina.
Skák Hauks og Guðmundar
var vel tefld af beggja hálfu og
jafntefli þvi sanngjörn úrslit.
Helgi og Matera skiptu
snemma upp á drottningum og
virtist Helgi hafa öllu betra tafl.
En þegar skákin var sett I biö,
þá var hún jafnteflisleg, ef ekki
verri fyrir Helga.
Skák Inga og Westerinen fór i
bið og er Ingi peði undir.
Viðureign Gunnars og Keenes
var fjörug og lentu kepp-
endur i hrikalegu timahraki.
Skákin fylgdi lengi vel forskrift
Friðriks frá skák hans við
Keene i 4. umferð. Þegar skákin
var sett i bið, þá var Gunnar
með unnið tafl.
í gærmorgun voru tefldar bið-
skákir, en ekki fengust úrslit
nema í tveimur þeirra. Helgi
gaf án frekari taflmennsku skák
sina við Westerinen og Tukma-
kov vann riddaraendataflið
gegn Matera. Skákir Margeirs/
Gunnars, Antoshins/ Guðmund-
ar og Björns/ Timmans fóru
aftur i bið. Ekki vannst timi til
aö tefla aðrar biðskákir.
Staða efstu manna eftir 8. um-
ferð er þá þessi:
1. Timman
2. Friðrik
3. Tukmakov
4. Najdorf
5. Guðmundur
6. Antoshin
7. -8. Ingi
7.-8. Westerinen
6 + bið
6
51/2
5 + biö
4 + bið
31/2+ 2bið
3 1/2 + bið
31/2 + bið
í dag eiga skákmennirnir fri,
en 9. umferð verður tefld á
morgun og hefst taflið kl. tvö i
Hagaskólanum. Þá tefla sam-
an:
Guðmundur — Friðrik
Timman — Najdorf
Björn — Tukmakov
Vukcevich — Haukur
Antoshin — Helgi
Matera — Gunnar
Keene — Ingi
Westerinen — Margeir.
Hvltt: Friðrik
Svart: Timman
drottningar-indversk vörn.
1. d4 — Rf6
2. c4 — e6
3. Rf3 — b6
4. a3 — c5
5. d5 — Ba6
6. Dc2 — De7
7. dxe6 — Dxe6
8. e3 — g6
9. b3 — Bg7
10. Bb2 — 0-0
fovkiurik /f nrninnnnnnmmwmwjnm
JL Helgi ólafsson □ k 'A ‘Jz 0 a ■ ■ ■ ■ ■ ¥
2 Gunnar Gunnarsson ‘k X O 0 o
1 Ingi R Jóhannsson 'Ix i X O 0 1 i
iL Margeir Pétursson 'Á X o - Hi o 0 !&
r Milan Vukcevich k 1 1 X 0 h Yx o
A. Heikki Westerinen 1 T O O % lL
JL Raymond Keen 1 I i 0 t o Vz Ví
A. Salvatore Matera X '/2. 1 O !L o c
3L Vladimir Antoshin % X h h V± & 1
/6 Björn Þorsteinsson O % X O o 'A o
f/ Jan Timman T 4j 31 % X \ !lú 1
£L Guðmundur Sigurjónsson 3 ‘h Tx !k 1 0 l !A
Friðrik ólafsson % % \ l 1 /í 3 'Æ X
/y Miguel Najdorf 1 1 Vx ÍL lL JL 'A X
/s Vladimir Tukmakov f O 1 I !k 14 fí X
tL Haukur Angantýsson 'Á i o m o ± 0. m X
11. Rc3 -
12. Rxd5
13. cxd5
14. Bxg7
15. Dc3+
16. Hdl -
17. Bxa6
18. Re5 -
19. 0-0 —
20. h3 —
21. Rd3 -
22. Rf4 -
- d5
— Rxd5
- Dxd5
- K*g7
- Kg8
- Df5
- Rxa6
- Ha-d8
De6
f6
- Rc7
- Df7
Friðrik ólafsson og Timman
að tafli I gær. Timamynd:
Gunnar.
Vegaframkvæmdum sumarsins
að Ijúka á Austurlandi
ASK-Reykjavlk — Við erum nú að
ljúka framkvæmdum hér, en yfir-
leitt hefur þeim ekki verið lokið
fyrr en i lok september eða I byrj-
un nóvember, sagði Einar Þor-
varðarson verkfræðingur Vega-
gerðarinnar á Reyðarfirði I sam-
tali við Tímann. — Þetta á eink-
um við um þjóövegi, en vegna
breytinga á lögum um sýsluvegi,
þá hefur staða þeirra batnað mik-
ið frá þvi sem var. Aðalvandamál
okkar felst hins vegar etv. i við-
haldi veganna. Vegir sem byggðir
voru fyrir tiu, tuttugu árum , þola
i dag engan veginn þá umferð
sem á þá er lögð. Það þyrfti þvi að
taka nýbyggingafé til að styrkja
þá. Hvað varðar vegheflun, má
geta þess að við sjáum fram á að
stöðva þurfi hana innan tiöar
vegna skorts á fjármagni. Það er
þvi ekki ósennilegt að einhvers
staðar heyrist hljóð úr horni, þeg-
ar þaö hefur verið gert, en
stöðvunin gæti komið til fram-
kvæmda í byrjun september.
Samkvæmt fjárlögum þá var
gert ráð fyrir 124 milljónum I
þjóðbrautir og landsbrautir.
Austurlandsáætlun gerði ráð fyrir
177 milljónum og fjárveiting til
norður- og austurvegar var 20
milljónir. Hins vegar var ekki
gert ráð fyrir neinu fé til hrað-
brautaframkvæmda, og sagði
Einar að Ibúar kjördæmisins
væru fremur óhressir yfir þvi,
enda mun Austfjaröakjördæmi
vera eina kjördæmið sem varð úÞ
undan.
Stærsta framkvæmdin I
Austurlandskjördæmi er göngin
um Oddsskarð. Þar þurfti að
sprengja fyrir 160 metra löngum
forskála, Norðfjarðarmegin, og
er ætlunin I ár, að steypa 95 metra
kafla af honum. Þegar hefur ver-
ið lokið að steypa um 60 metra.
Næsta ár er svo á döfinni að ljúka
við skálann og fóöra göngin. 1
fyrra var gerður forskáli Eski-
fjaröarmegin og er hann ekki
nema 35 metrar aö Iengd. Það er
vegna þess hve bergið var lélegt,
að lengja þurfti forskálann um
sem svarar rúmum eitt hundrað
metrum.
Ein er sú nýbygging sem æði
margir Austfiröingar vonast eftir
að verði lokið sem fyrst, en það er
vegurinn um Hvalnesskriður. I
það verk var veitt 10 milljónum
króna, en Einar sagði þurfa gott
betur, ef ætti að gera þarna
vandaðan veg. Hins vegar skal
það tekið fram, að um tilraun er
að ræða I ár. Eins og málin standa
i dag, þá nær vegurinn að norðan-
verðu að Þvottá, en að sunnan að
Hvalnesi. Er þvi um 13 kilómetra
kafli á milli sem ólokið er, en I ár
verður unnið við að ýta upp
nokkrum kllómetrum. Hins vegar
taldi Einar að það sé um 30 klló-
metra kafli sem þyrfti að ýta upp
til að koma veginum i sama horf
og öðrum þjóðvegum. Með vegi
um Hvalnesskriður væri hægt að
hætta að miklu leyti akstri um
Lónsheiði, sem er einn mesti
farartálminn á leiðinni I vega-
kerfi Austfiröinga. Einar sagði að
oft væri nær ógjörlegt að koma
við snjómoksturstækjum á heið-
inni vegna bratta, en væri kominn
vegur um skriðurnar, þá væru
slik tæki óþörf.
1 vegaáætlun 1976 voru þrjár
brýr, og sagði Einar tvær þeirra
hafa verið I Vopnafirði. Þeim er
nú næstum lokið. Til brúar yfir
Kolgrlmu var veijt 6 milljónum
og hefur verið unnið að vegagerð
að brúarstæðinu. 1 haust veröur
svo unnið við sprengingar en Ein-
ar gerði ráö fyrir að farið yrði I
sjálfa brúargerðina næsta sumar.
A Breiðamerkursandi hefur
verið unnið við að ýta upp vegi fra
Vattará að Kvlá, og sagði Einar,
að þvl verki væri að ljúka. Þá er
kominn upphleyptur vegur yfir
sandinn, fyrir utan þess aö eftir
er að ýta upp vegi milli Hrútár og
Fjallár. 1 það verk veröur senni-
lega fariö næsta sumar. Vega-
gerðarmenn hafa verið að aka
slitlagi frá Fellsá að Jökulsá og
komið er jöfnunarlag frá Jökulsá
að Fjallsá.
— Þetta er geysimikil sam-
göngubót, sagði Einar, Breiða-
merkursandurinn hefur ætlð ver-
ið mjög erfiður, þvl meðan þarna
var niðurgrafínn vegúr, var
Breiðamerkursandur mikill far-
artálmi, þvl það skefur mikið nið-
ur af jöklinum.
Af öðrum vegaframkvæmdum
má nefna að byggður var um 4
km langur vegur hjá Þuriðar-
vatni I Vopnafirði og veriö er að
ganga frá vegi við Vopnafjarðar-
kauptún. Þá var veitt um 6
milljónum til vegagerðar á
Sunnudalsvegi.
A Jökulsdalsvegi eystri var
byggður upp kafli frá Gili innfyrir
Sandá. 1 Borgarfjarðarveg var
fjárveitingin um 10 milljónir og
sagði Einar að tekinn hefði verið
fyrir kafli frá Hleinagarði að
Bónastöðum. Verkiriu er að ljúka
um þessar mundir. Til vegagerð-
ar um Fjarðarheiði var veitt 23
milljónum, en Einar sagöi aö
bróðurpartur þess fjár hefði fariö
I greiöslu á skuld slðan I fyrra, en
það sem eftir var, 10 milljónir, fór
i að ljúka kafla á eystri hluta
heiðarinnar. Til vegageröar á
Vestdalseyrarveg var veitt 6
milljónum, en þeim framkvæmd-
um var frestað til næsta árs.
Á Mjóafjarðarvegi var tengd
brú sem byggö var I fyrrahaust
og unnið var fyrir 3 milljónir við
Hlauphjallalæk á Fagradal.
— Fyrir utan þessar fram-
kvæmdir sem ég hef nefnt var svo
unnið að fjölmörgum öðrum. —
En öllum vegaframkvæmdum er
sem sagt aö ljúka núna. Við vinn-
um a.m.k. mánuð skemur núna
en til dæmis 1973 og 1974. Ég
myndi ætla, aö þegar sé búið aö
vinna um 90% af þeim fram-
kvæmdum sem áætlaöar voru I
upphafi, sagði Einar Þorvarðar-
son, verkfræðingur á Reyðarfiröi
að lokum.
AAorðið að
Miklubraut 26:
Engin
frímerki
voru í
umslögunum
Gsal-Reykjavik. — Áfram er
unnið að rarinsókn á moröinu,
sem framið var á Miklubraut 26
á fimmtudag i fyrri viku. Rann-
sóknarlögreglan sagði i samtali
við Timann I gær að þar værf
einkum um að ræða sannprófun
á ýmsum atriðum, sem fram
hefðu komið I frainburði Ás-
geirs Ingólfssonar, en einnig
ætti eftir að ræða nánar við
ýinsa aöila, sem viðsögu koma i
inálinu og fá nánari upplýsingar
um einstaka þætti þess.
1 gær kom i ljós, að ,,fri-
merkjasafnið”, sem Asgeir tók
með sér úr ibúðinni hafði ekki
að geyma nein frlmerki, heldur
varum aðiæða sellófansumslög
með hólfum fyrir frimerki og
voru hólfin tóm.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar verður jakki sá sem Ás-
geir Ingólfsson var i þegar hann
framdi morðið, og fór með I
hreinsun sama dag, sendur i
rannsókn til Danmerkur. Á
jakkanum er blettur, sem ekki
hefur farið úr viö hreinsun eöa
pressun hjá efnalauginni og er
ekki ósennilegt að það sé blóö-
blettur. Er ætlunin að fá úr þvi
skorið og jafnframt að láta
kanna hvort eitthvaö annað i
jakkanum gefi vlsbendingu um
morðið.
Þótt morðiö sé upplýst, er
rannsóknarlögreglunni hagur i
þvi að vita, hvort föt kunni að
geyma einhverjar upplýsingar,
sem haldgóðar gætu verið I til-
vikum sem þessum.
Rannsóknarlögreglan hafði,
áður en moröið upplýstist, farið
i allar efnalaugar i Reykjavik
og beðið starfsfólk þeirra að
hafa samband við rannsóknar-
lögregluna, ef það teldi, að föt
moröingjans kynnu að vera i
hreinsun hjá þvi. Ekki varð
starfsfólk efnalaugarinnar, sem
Asgeir setti jakkann sinn I, vart
við neitt athugavert, en það
mundi hins vegar eftir þvi i
fyrradag, þegar málið hafði
verið upplýst, að Asgeir haföi
komiö þangaö inn. Það haföi
einfaldlega ekki áttaö sig á þvi,
að um sama mann væri að ræöa.
Númer eru eingöngu notuð i
þessari efnalaug, og þvi þurfti
Asgeir ekki að gefa upp nafn.
1 gær var haldið áfram aö
leita að töskunni sem Asgeir
hafði farið meö á sorphauga
Reykjavikur eftir morðið, en
morðvopnið er m.a. i töskunni,
svo og hanzkar, sem Ásgeir
hafði á höndum, er hann framdi
moröiö.
Auk fréttamannsstarfa sinna
er Asgeir Ingólfsson kunnur
fyrir þýðingar, en hann mun
einkum hafa fengizt viö þær að
undanförnu. Asgeir játaði glæp
sinn á þýzku fyrir Karli Schutz,
eins og fram hefur komið i frétt-
um.