Tíminn - 03.09.1976, Page 14
14
TÍMINN
Föstudagur 3. september 1976
Ingi
Björn
— lék ekki með
Valsliðinu
í gærkvöldi
★ Asgeir er að
nd sér
INGI BJÖRN ALBERTSSON og
Magnús Bergsson léku ekki meb
ValsIiOinu gegn Blikunum I gær-
kvöldi i Kópavogi, þar sem þeir
eiga viO veikindi aO strlOa. Ingi
Björn slæmur af kvefi, og taldi
hann ekki ráOlegt aO leika gegn
Blikunum, þar sem tveir lands-
leikir eru framundan.
Asgeir Sigurvinsson, Guðgeir
Leifsson og Marteinn Geirsson
komu frá Belgíu i gærkvöldi. As-
geir er aö verða góður eftir
meiðslin, sem hann hlaut á Spáni.
Hann tók þátt i æfingaleik meö
Standard Liege á miövikudags-
kvöldið og fann hann þá ekki til
eymsla i bakinu.
Matthias Hallgrimsson kemur
heim i dag, en Jóhannes Eðvalds-
son ekki fyrr en á sunnudaginn.
Belgiska landsliðið kemur til
landsins i dag.
Ormond
velur
— 18 manna
landsliðshóp
Willie Ormond, einvaldur skozka
landsliOsins, hefur valiO 18 manna
landsliOshóp, sem mun mæta
Finnum i vináttulandsleik i Glas-
gow á miOvikudaginn. Þetta er
upphitunarleikur fyrir leik Skota
gegn Tékkum i HM-keppninni,
sem fer fram i Prag 13. október.
Landsliðshópur Ormond er
skipaöur þessum leikmönnum:
John Blacklay, Hibs
Kenny Dalglish, Celtic.
Willi Donachie, Man. City
Martin Buchan, Man. United.
Tommy Forsyth, Rangers
Archie Gemmill, Derby
Andy Gray, Aston Villa
Eddie Gray, Leeds
Asa Hartford, Man. City
David Harvey, Leeds
Stewart Houston, Man. Utd.
Sandy Jardine, Rangers
Derek Johnstone, Rangers
Joe Jordan, Leeds
Don Masson, Q.P.R.
Danny McGrain, Celtic
Bruce Rioch, Derby
Allan Rough, P. Thistle
Valur og Akranes berjast um bikarinn
„Við ætlum
okkur
bikarinn"
— sagði Hermann Gunnarsson, sem
skoraði gullfallegt mark,
þegar Valsmenn ruddu Blikunum
úr vegi í gærkvöldi — 3:0
— NÆST veröa það Skagamenn og síðan tökum við á móti bikarnum,
sagði Hermann Gunnarsson, eftir að hann og félagar hans úr Val höfðu
lagt Blikana að velli (3:0) í Kópavogi í gærkvöldi. Valsmenn tryggðu sér
þar með farseðilinn í úrslitin á Laugardalsvellinum, þar sem þeir mæta
Akurnesingum. — Við erum ákveðnir að vinna tvöfalt í ár, og við munum
endurtaka leikinn f rá 1974, þegar við unnum sigur (4:1) á Skagamönnum,
sagði Hermann, sem var hetja Valsmanna í gærkvöldi.
KRISTINN BJÖRNSSON.... lék Blikana oft
grátt.
Hermann, sem hefur oft skorað
falleg o’g þýöingarmikil mörk
fyrir Val, færði Valsmönnum
fljúgandi start i Kópavogi, með
stórglæsilegu marki. Hermann
skoraði örugglega, beint úr auka-
spyrnu á fyrstu minútu leiksins
— þrumuskot hans hafnaði upp
undir samskeytum Breiðabliks-
marksins, algjörlega óverjandi
fyrir Ólaf Hákonarson, markvörð
Blikana. Þetta mark Hermanns
virkaði eins og vitaminssprauta á
Valsmennina, þeir öðluðust
sjálfstraust til þess að gera út um
leikinn. Leikmenn Valsliðsins
tóku leikinn i sinar hendur, og það
var aldrei spurning um hver
myndi sigra, heldur hvað Vals-
menn myndu skora mörg mörk til
viðbótar.
Ahangendur Valsliösins þurftu
að biða lengi eftir næsta marki —
það var ekki fyrr en á 70. min-
útu, að knötturinn lá aftur I
marki Blikana og það var sann-
kallaður heppnisstimpill á þvi.
Guðmundur Þorbjörnsson komst
þá upp að endamörkum, sendi
knöttinn fyrir markið, þar sem
Kristinn Björnsson var rétt stað-
settur. Kristinn skaut slöku skoti
að marki Blikana, og knötturinn
hafnaði hjá Ólafi Hákonarsyni,
markveröi, sem á ótrúlegan hátt
missti hann fram hjá sér og i net-
ið.
Aðeins minútu siðar bæta Vals-
menn við marki, þegar Atli Eð-
valdsson gefur góða sendingu
fyrir mark Blikana. Kristinn tók
á móti knettinum og skaut við-
stöðulausu skoti að marki —
knötturinn skall i þverslánni og
hrökk þaðan til Hermanns, sem
tók knöttinn með „hárfinum”
snúningi, þannig að hann sigldi
fram hjá varnarmönnum Breiða-
bliks og f netið — 3:0.
Valsmenn voru allan timann
betri aðilinn, og keppnisskap
þeirra, sem var ekki fyrir hendi i
fyrri leik liðanna, var svo sannar-
lega fyrir hendi i þessum leik.
Valsmenn börðust vel og létu
knöttinn ganga manna á milli —
og notuðu kantana óspart. Þetta
réðu Blikarnir ekki við og áttu
þeir ekkert svar viö ákveönum
Valsmönnum. Hermann Gunn-
arsson og Grimur Sæmundsen
voru mjög góðir — og það sama
má segja um þá Albert, Kristinn,
Guðmund og Dýra Guðmundsson.
Blikarnir léku langt frá sinu
bezta. Það var aðeins einn maður
sem barðist hjá þeim, Þór Hreið-
arsson, sem var alltaf á ferðinni
með ódrepandi keppnisskap.
Annars er höfuðverkurinn hjá
Blikunum hvað miðjan er slök hjá
þeim, sömuleiðis vörnin, sem er
ekki traustvekjandi.
HERMANN GUNNARSSON................skoraði gullfallegt mark I byrjun og siðan annað með „hárfinu” skoti.
Jóhannes ekki
nógu góður?
— var settur út hjú Celtic úsamt Kenny Dalglish
★ Hart barizt um stöður í Celtic-liðinu
JOHANNES Edvaldsson var ekki látinn leika með Celtic
gegn Dundee United í skozku deildarkeppninni. Jock
Stein, framkvæmdastjóri Celtic, setti Jóhannes og
skozka landsliðsmanninn Kenny Dalglish út úr liðinu
fyrir leikinn á Parkhead.
Astæðan??? —Stein sagði I við-
tölum i skozku blöðunum, sem
slógu þessu upp meö striðsletri,
að hann væri ekki nógu ánægður
með þá Jóhannes og Dalglish sem
hafa sýnt mjög slaka leiki að
undanförnu. — Ég hef ekkert við
leikmenn að gera i liðinu, ef þeir
sýna ekki, aö þeir séu þess verð-
ugir að leika, sagði Stein, sem á
við vandamál að striða, þar sem
Celtic-liðið er ekki nógu sterkt um
þessar mundir til að vinna til
verðlauna.
Stein er greinilega að sýna leik-
mönnum Celtic fram á, að ef þeir
sýna ekki sitt bezta, eru þeir ekki
öruggir I lið hans. — Ég hef ekki
verið ánægður með leik liðsins aö
undanförnu. Ef leikmenn liösins
taka ekki á honum stóra sinum,
verðum við ekki með i baráttunni
um Skotlandsmeistaratitilinn i
ár, sagði Stein i viðtali við skozka
blaðið „The Scotsman”.
Þess má geta, að meöan á móti
blæs hjá Celtic, taka erki-
fjendurnir i Glasgow, Glasgow
Rangers, lifinu með ró, þvi að lið
þeirra hefur aldrei verið eins gott
og um þessar mundir.
Celtic gerði aðeins jafntefli
(1:1) við Dundee United á Park-
head, og mátti liðið þakka fyrir
jafnteflið.
íþróttir
Umsjón:
Sigmundur Ó.
Steinarsson