Fréttablaðið - 21.11.2005, Síða 4
4 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
KJARAMÁL Halldór Ásgrímsson
forsætisráðherra gerir ráð fyrir
að á yfirstandandi þingi verði
lagt fram og lögfest frumvarp um
atvinnuleysisbætur í samræmi
við nýtt samkomulag ríkisstjórn-
arinnar og aðila vinnumarkað-
arins. Atvinnuleysisbætur verði
þar í fyrsta skipti tekjutengdar og
180 þúsund króna þak sett á þær
í samræmi við nánari útfærðar
reglur. Halldór segir að hér sé um
grundvallarbreytingu að ræða.
Um helmingur atvinnuleysis sé
í þrjá mánuði að minnsta kosti
og niðurstaða nefndar á vegum
félagsmálaráðherra sé að þeir
sem fyrir því verði geti notið allt
að sjötíu prósenta launa fyrstu
þrjá mánuðina.
Halldór sagði jafnframt á fundi
með blaða- og fréttamönnum í
fyrradag að vilji væri til þess að
samræma reglur um örorkubæt-
ur úr almannatryggingakerfinu
og lífeyrissjóðakerfinu. Fram
kom að skipuð yrði nefnd á næstu
dögum til þess að fara yfir málið.
Halldór sagði að skýra þyrfti regl-
ur, samræma og ef til vill herða
þær. Sjálfur skipar hann formann
nefndarinnar en ætlunin er að hún
skili niðurstöðum sem fyrst.
Kostnaður ríkisins vegna máls-
ins verður í fyrstu 1,5 milljarðar
króna en allt að tveir milljarðar
árið 2009.
Halldór taldi samningana í
vikunni afar mikilvæga og þeir
mörkuðu ákveðin tímamót. - jh
www.lyfja.is
- Lifið heil
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
2
95
05
09
/2
00
5
Líttu eftir húðinni!
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
FEDTCREME®
• Á þurra og sprungna húð
• Inniheldur ekki ilm- eða litarefni
REPAIR®
• Á mjög þurra og illa farna húð
• Inniheldur ekki rotvarnar-,
ilm- eða litarefni
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 18.11.2005
Gengisvísitala krónunnar
61,84 62,14
105,89 106,41
72,21 72,61
9,684 9,74
9,177 9,231
7,531 7,575
87,61 88,13
87,73 88,25
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
102,0777
SKOÐANAKÖNNUN 82,3 prósent
Íslendinga segja að það eigi að
heimila samkynhneigðum konum í
sambúð að eignast börn með því að
gangast undir tæknifrjóvgun með
gjafasæði. 17,7 prósent þeirra sem
tóku afstöðu, voru því andvíg.
Fyrir helgi kynnti ríkisstjórnin
nýtt frumvarp til laga sem bæta
á réttarstöðu samkynhneigðra
til jafns við gagnkynhneigða. Í
frumvarpinu felst meðal annars
að samkynhneigðir geti fengið
óvígða sambúð skráða í þjóðskrá,
að samkynhneigðum verði heimilt
að ættleiða börn og að kona, í stað-
festri samvist með annari konu,
hefur rétt til að gangast undir
tæknifrjóvgun með gjafasæði líkt
og gagnkynhneigð pör.
Nokkur munur er á afstöðu
karla og kvenna í skoðanakönnun
Fréttablaðsins. Konur voru heldur
jákvæðari gagnvart því að lesbíur
í staðfestri samvist hefðu rétt á
að gangast undir tæknifrjóvgun,
og töldu 85,6 prósent þeirra að
slíkt ætti að heimila. 14,4 prósent
kvenna voru því andvígar. Hins
vegar töldu 79 prósent karla að
slíkt ætti að leyfa, en 21 prósent
karla voru því andvígir.
Þá var einnig munur á afstöðu
þeirra sem búa á höfuðborgar-
svæðinu og þeirra sem búa á
landsbyggðinni. Þeir sem búa á
höfuðborgarsvæðinu voru frekar
jákvæðari gagnvart því að heim-
ila lesbíum í sambúð að gangast
undir tæknifrjóvgun, eða 86,1
prósent. 13,9 prósent íbúa höfuð-
borgarsvæðisins voru því andvíg.
77,0 prósent íbúa landsbyggðar-
innar vildu heimila lesbíum þenn-
an rétt, en 23 prósent voru því
andvíg.
Hringt var í 800 manns 19.
nóvember, og skiptust svarendur
jafnt milli kynja og hlutfallslega
eftir kjördæmum. Spurt var: Á
að heimila lesbíu í sambúð að
gangast undir tæknifrjóvgun með
gjafasæði? 88,5 prósent þeirra
sem spurðir voru tóku afstöðu til
spurningarinnar. svanborg@frettabla-
Mikill stuðningur við
rétt til tæknifjóvgunar
Samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins styðja rúm 82 prósent
Íslendinga rétt lesbía í sambúð til að gangast undir tæknifjóvgun með
gjafasæði. Konur eru því hlynntari en karlar.
Á AÐ HEIMILA LESBÍU Í SAMBÚÐ AÐ GANGAST
UNDIR TÆKNIFRJÓVGUN MEÐ GJAFASÆÐI?
Skoðanakönnun Fréttablaðsins 19. nóvember
23
,0
%
Höfuð-
borgar-
svæðið
Lands-
byggðin
86
,1
%
JÁ NEI
77
,0
%
13
,9
%
JÁ
79
,0
%
21
,0
%
NEI
85
,6
%
14
,4
%
NEI
17
,7
%
JÁ
82
,3
%
EFTIR KYNI
Karlar
Konur
EFTIR BÚSETUALLS
MIKIL JÁKVÆÐNI
Mikill meirihluti
Íslendinga er fylgj-
andi því að lesbíur
í sambúð eigi þess
kost að eignast börn
með tæknifjóvgun.
NORDIC PHOTOS
/GETTY IMAGES
SVEITARSTJÓRNARMÁL Valgerður Sig-
urðardóttir hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér á lista Sjálfstæðis-
flokksins í Hafnarfirði fyrir kom-
andi sveitarstjórnarkosningar.
Valgerður sóttist eftir að leiða
flokkinn en mátti lúta í lægra haldi
fyrir Haraldi Ólasyni í prófkjöri á
laugardaginn. Þýðir þetta að átta
efstu færast upp um eitt sæti. ■
Sjálfstæðismenn í Hafnarfirði:
Valgerður mun
draga sig í hlé
STJÓRNMÁL Brýnt er að Reykja-
víkurflugvöllur verði áfram í höf-
uðborginni að mati framsóknar-
manna í Norðausturkjördæmi, en
kjördæmisþing þeirra var haldið á
Akureyri og lauk í gær.
Á þinginu voru samþykktar
fjölmargar ályktanir, til dæmis
að eðlilegt sé að við endurskoðun
stjórnarskrárinnar verði opnað
fyrir þjóðaratkvæðagreiðslur og
skýrar reglur mótaðar þar um.
Þá lagði þingið áherslu á áfram-
haldandi uppbyggingu Háskólans
á Akureyri og lýsti yfir stuðningi
við stofnun framhaldsskóla við
utanverðan Eyjafjörð. - bs
Kjördæmaþing Framsóknar:
Flugvöllurinn
verði um kyrrt
VALGERÐUR SIGURÐARDÓTTIR
FRÉTTABLAÐIÐ / STEFÁN
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Ráðherrann boðaði tekjutengingu atvinnu-
leysisbóta.
Nýtt frumvarp til laga um atvinnuleysisbætur í samræmi við nýgerða samninga:
Grundvallarbreyting á bótakerfinu
Útafakstur á Hellisheiðinni Bíll
keyrði út af á Hellisheiði laust
fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Er
talið að ökumaður hafi misst
stjórn á bílnum en töluverð hálka
var á heiðinni. Var ökumaðurinn
í bílbelti og varð það honum til
happs en hann reyndist ómeidd-
ur. Bíllinn er hins vegar mikið
skemmdur ef ekki óökufær.
LÖGREGLUFRÉTTIR
VIÐSKIPTI Avion Group fékk
afhenda viðurkenningu fyrir að
vera annað framsæknasta fyrir-
tæki Evrópu árið 2005 í Barcelona
á laugardaginn.
Meðal þeirra sem voru við-
staddir voru þeir Al Gore, fyrr-
verandi varaforseti Bandaríkj-
anna, og Joseph Borrell, forseti
Evrópuþingsins. Það var Magnús
Þorsteinsson, stjórnarformaður
Avion Group, sem veitti viður-
kenningunni viðtöku og sagði
meðal annars við þetta tilefni
að stefnt væri að skráningu fyr-
irtækisins á hlutabréfamarkað
strax í upphafi næsta árs. -fgg
Framsækin fyrirtæki í Evrópu:
Avion Group
í öðru sæti
FRAMKVÆMDARSTJÓRN AVION GROUP Fyr-
irtækið þykir annað framsæknasta fyrirtækið
í Evrópu
LISTI SJÁLFSTÆÐIS-
FLOKKSINS Í HAFNARFIRÐI
1. Haraldur Ólason
2. Almar Grímsson
3. Rósa Guðbjartsdóttir
4. María Kristín Gylfadóttir
5. Bergur Ólafsson
6. Skarphéðinn Orri Björnsson
7. Gurún Jónsdóttir