Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 10
10 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR HERJÓLFSBÆRINN Hér má sjá tölvugerða mynd af Herjólfsbænum eins og hann mun líta út. Hugmynd félagsins er að húsið verði öllum opið. Safnvörður í Byggðasafni Vestmannaeyja efast um gildi hússins og óttast um fornminjar sem eru órannsakaðar. VESTMANNAEYJAR „Þetta er á órann- sökuðu svæði. Það hefur ekki farið fram endurmat á minjum í dalnum en fornleifanefnd ríkis- ins er komin í það mál,“ segir Hlíf Gylfadóttir, safnvörður í Byggða- safni Vestmannaeyja. Herjólfs- bæjarfélagið vinnur nú að því að reisa hús í Herjólfsdal í Vest- mannaeyjum. Húsið er byggt eftir hugmyndum um hvernig bygging- ar litu út á landnámstíma. Hlíf hefur ritað greinargerð þar sem hún lýsir miklum efasemdum um ágæti framkvæmdarinnar og telur að hugsanlegar mannvistar- leifar í Herjólfsdal kunni að vera í hættu. Í greinargerðinni segir Hlíf að sögulegt gildi hússins sé ekki til staðar og fullyrðir að það gefi svæðinu ekki aukið menning- arlegt gildi. „Það er rík ástæða til þess að skoða Herjólfsdalinn nákvæm- lega og fara vel yfir það hvort þarna kunni að vera einhverjar mannvistarleifar,“ segir Árni Johnsen, en hann er forsvarsmað- ur Herjólfsbæjarfélagsins. „Það var gerð úttekt á svæðinu fyrir átta eða níu árum og í kjölfarið var gefið út deiliskipulag þar sem samþykkt var að byggja á tveim- ur reitum. Þetta er annar þeirra,“ segir Árni. Árni segir að þegar farið var út í jarðvegsskipti undir Herj- ólfsbænum hafi ekkert komið upp úr krafsinu annað en urð, grjót og mold. „Því miður fund- ust engar beinagrindur. Ef við hefðum fundið einhverjar rústir undir húsinu þá hefðum við nátt- úrulega tilkynnt það og stöðvað framkvæmdirnar,“ bætir hann við. Árni kveður hugmyndina að bænum ekki vera nýja af nálinni. Þarna eigi að byggja í anda þeir- ra rústa sem fyrir eru í dalnum sem hann segir vera einar af best geymdu rústum landsins. „Herjólfsbæjarfélagið er áhugamannafélag samsett af ein- staklingum og fyrirtækjum. Bær- inn kemur þarna hvergi nálægt,“ útskýrir Árni. Hann er ekki til- búinn til að gefa upplýsingar um kostnaðinn við bygginguna að svo stöddu. saj@frettabladid.is Telur bæinn ógna fornminjum Herjólfsbæjarfélagið byggir nú landnámsbæ í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum. Formaður Byggðasafns Vestmannaeyja finnur framkvæmdinni flest til foráttu og óttast að þarna geti glatast merkar fornminjar. Árni Johnsen telur öllu óhætt, ekkert hafi fundist þegar farið var út í jarðvegsskipti undir landnámsbænum. ÁRNI JOHNSEN Árni telur ríka ástæðu vera til að rannsaka frekar Herjólfsdalinn en bendir á að deiliskipulag hafi verið tilbúið fyrir reitinn sem húsið er byggt á. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Á FLUGSÝNINGU Elísabet II Englands- drottning fylgist með flugsýningu breska flughersins á herflugvellinum Coltishall á fimmtudag, en þá var þess minnst að 65 ár voru síðan völlurinn var tekinn í notkun. MYND/AP TÆKNI Digital Ísland hóf formlega útsendingar á Akureyri síðastliðinn föstudag og var mikill handagangur í öskjunni í verslun Og Vodafone á Glerártorgi og hjá Radíónausti við að afhenda áskrifendum nýja myndlykla. Útsendingar Digital Íslands á Akureyri eru á UHF-tíðni og því geta Akureyringar ekki nýtt sér efni erlendra sjónvarpsstöðva sem Digital Ísland dreifir en samkvæmt lögum er bannað að dreifa erlendu sjónvarpsefni á UHF-tíðni. Þær stöðvar sem standa Akur- eyringum til boða til að byrja með eru: Stöð 2, Stöð 2+, Stöð 2-Bíó, Sýn, Sirkus, NFS og Rúv. - kk 365 ljósvakamiðlar: Digital Ísland á Akureyri MYNDLYKILL AFHENTUR Bergsveinn Snorra- son, rekstrarstjóri Og Vodafone á Akureyri, afhendir óþreyjufullum viðskiptavini nýjan myndlykil. FRÉTTABLAÐIÐ/KK MENNTAMÁL Ólína Þorvarðardótt- ir, skólameistari Menntaskól- ans á Ísafirði, hefur fengið frá menntamálaráðuneytinu und- irskriftalista með nöfnum 22 starfsmanna skólans sem fylgdi áskorun þeirra til ráðherrans um að bregðast við stjórnunarvanda skólans. Í niðurlagi áskorunar- innar er ráðherra beðinn um að gæta trúnaðar við undirritaða. Frá þessu var greint á fréttavef Bæjarins bestu í gær. Í framhaldi af þessari áskor- un skipaði menntamálaráðherra nefnd sem nú gerir úttekt á stjórnunarháttum menntaskól- ans. - jse Menntamálaráðuneytið: Virðir ekki trúnað MENNTASKÓLINN Á ÍSAFIRÐI Hópur kennara skoraði á menntamálaráðherra að bregðast við stjórnunarvanda. UPPLÝSINGATÆKNI Um þessar mundir eru að minnsta kosti þrjú ný afbrigði af Sober-tölvuormin- um í umferð á internetinu. Sober er sú tegund af óværu sem berst í tölvupósti. Ormurinn grefur sig í tölvuna þegar notandi opnar sýkt við- hengi sem borist hefur í tölvu- pósti. Björn Davíðsson, þróunar- stjóri Snerpu á Ísafirði, segir afbrigðin þrjú sem mest ber á núna geta aftengt vírusvarnar- forrit ef þau hafa ekki verið rétt uppfærð með nýjustu upplýsing- um um netóværu. „Því er rík ástæða til að leggja áherslu á það við tölvunotendur að þeir haldi veiruvarnarforritum rétt upp- færðum,“ segir hann og bætir við að Kaspersky Lab veiruvarn- arfyrirtækið hafi tilkynnt um mikinn fjölda af sýktum pósti sem hafi verið stöðvaður af hug- búnaði þess, KAV Antivirus. „Það hefur verið staðfest að sú alda sem nú gengur yfir sé af völdum Sober-ormsins, nánar tiltekið afbrigða sem gefin hafa verið nöfnin Sober.u, Sober.v og Sober.w.“ - óká Vírusvarnafyrirtæki varar við skaðlegri óværu sem berst í tölvupósti: Sober aftengir varnir tölva BJÖRN DAVÍÐSSON Þróunarstjóri tölvuþjónustunnar Snerpu á Ísafirði varar við skaðlegri netóværu. DÓMSMÁL Prentsmiðjan Gutenberg þarf að borga bílstjóra rúmar 7,3 milljónir króna í bætur vegna ólögmætrar riftunar á samningi við hann. Þetta var ákveðið með dómi Hæstaréttar á fimmtudag. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður dæmt manninum 1,7 milljón- ir króna í bætur. Upphaflegur samningur bíl- stjórans var við prentsmiðjuna Grafík í desember árið 2000, upp- segjanlegur með þriggja mánaða fyrirvara ef upp kæmi ágreining- ur í samstarfi. Í nóvember 2001 var samningn- um sagt upp vegna þess að Grafík væri að sameinast Gutenberg. Bíl- stjórinn mótmælti og kvað engan ágreining hafa verið uppi sem réttlætti riftun. - óká Gutenberg tapar dómsmáli: Þarf að borga milljónabætur GVATEMALA Eitthvert hlé verður gert á baráttu yfirvalda í Gvatemala gegn sölu og smygli á fíkniefnum. Æðsti yfirmaður stofnunar þar í landi, sem sett var á fót til að sporna við sölu og smygli á fíkniefnum, var handtekinn í Bandaríkjunum nýlega vegna gruns um að hafa ætlað að smygla tvö þúsund kílóum af kókaíni til landsins. Málið er hið vandræðalegasta fyrir stjórnvöld í Gvatemala. Inn- anríkisráðherrann hefur nú lofað að opinber rannsókn muni fara fram á málinu og að allt verði gert til að svona muni ekki endurtaka sig. ■ Spilling í Gvatemala: Lögreglan stóð í kókaínsmygli GARÐABÆR Gunnar Einarsson, bæj- arstjóri í Garðabæ, segir að þróun Sjálandsskóla hafi gengið sam- kvæmt áætlun og ánægja ríki með skólann og skólastarfið. Húsnæðið sé nýtt mjög vel og í samræmi við áætlun. Það sé rangt að alltof fá börn séu í skólanum. Það sé frekar þvert á móti. „Við sáum fyrir að fjölgunin yrði mjög hröð og að það væri hagkvæmt að byggja skólann eins og við gerðum. Aðsóknin á fyrsta ári er meiri en við reiknuðum með og við reiknum með 130 börnum á næsta ári. Það er að ganga eftir. Það væri verra ef við værum að byggja skólann núna á miðju skólaári. Fréttablaðið greindi frá því á föstudag, að þriðjungi færri börn væru í Sjálandsskóla en ættu að vera. Nú eru tæplega 80 börn en skólinn getur tekið við 240 börn- um. Ástæðan er sú að mun færri börn eru í hverfinu en búist hafði verið við. Sigurður Björgvinsson, bæj- arfulltrúi Samfylkingarinnar í Garðabæ og skólastjóri Víðistaða- skóla í Hafnarfirði, staðfestir að mun færri börn séu í Sjálands- skóla en gert hafi verið ráð fyrir. Hann segir að ástæðan sé meðal annars sú að mörg börn fari úr leikskóla Hjallastefnunnar sem er í Sjálandshverfi í grunnskóla stefnunnar á Vífilsstöðum. - ghs Of fá börn í Sjálandsskóla í Garðabæ: Börnin fara í Hjallaskóla SIGURÐUR BJÖRGVINSSON Sigurður Björgvinsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar- innar, segir að mörg börn haldi, eftir nám í leikskóla Hjallastefnunnar, í grunnskólann á Vífilsstöðum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.