Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 86
 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR42 Ari Alexander Ergis var nýkom- inn heim frá Los Angeles þegar Fréttablaðið náði tali af honum. Þar hefur hann dvalist í tvær vikur og tekið þátt í AFI-hátíðinni með heimildarkvikmynd sinni Gargandi snilld. „Ég á reyndar að vera í Newcastle en gat ekki meir,“ viðurkennir hann en gat þó ekki farið leynt með ánægju sína yfir ferðinni til kvikmyndaborgar- innar. „Ég fór reyndar til Rómar í millitíðinni en það var svona til að blanda geði við ýmsa aðila,“ segir hann en gefur ekkert meira uppi um þá ferð. Ferðalögunum er þó hvergi nærri lokið því á föstudaginn held- ur leikstjórinn til Amsterdam þar sem hann tekur þátt í einni stærstu heimildarmyndahátíð heims. „Það krefst jafn mikillar orku að búa til mynd og kynna hana,“ segir Ari en grætur eflaust ekki allt heims- hornaflakk þessa árs. Það er enda talað um að stærstur hluti ferils kvikmyndaleikstjóra fari í hand- tök og kynningar. Ferðin til L.A var að sögn Ara ógleymanleg en þetta var í fyrsta skipti sem hann heimsótti borg- ina. „Ég fann nánast lyktina af möguleikunum,“ segir hann en fannst sum augnablik vera hálf súrrealísk. „Maður stóð kannski allt í einu við hliðina á Johnny Depp,“ útskýrir hann en hápunkt- urinn hafi þó verið hádegisverð- ur með Andy Garcia. „Hann er mikill áhugamaður um tónlist og ég stóðst ekki mátið og smellti mynd af okkur saman,“ segir Ari og hlær hálf skömmustulega. „Ég hef alltaf verið mikill aðdáandi hans,“ bætir hann við. Gargandi Snilld gekk mjög vel og var valin ein athyglisverðasta myndin á hátíðinni. „Þetta var rosalegt skipulag og það var haldið vel utan um okkur. Búið var að setja saman dagskrá frá átta á kvöldin til miðnættis þannig að þetta var ekki bara partístand,“ segir Ari. „Þarna er alltaf verið að fylgjast með nýjum nöfnum í von um að uppgötva næstu stjörnu.“ - fgg Snæddi hádegismat með átrúnaðargoðinu ARI ALEXANDER Gísli Örn Garðarson hefur verið ráðinn í aðalhlutverk hjá Knee- high-leikhópnum en hópurinn ætlar að segja upp leikgerð eftir bók Angelu Carter „Nights at the Cirkus“ hjá Lyric Hammersmith leikhúsinu í London. Hópurinn var nú síðast með Tristan & Isold sem var á fjölum Þjóðleikhússins ekki alls fyrir löngu. Gísli heldur út til æfinga 12. desember en frumsýning á verkinu verður í janúar. „Ég skrifaði undir samning til apríl,“ segir Gísli sem segist þó ekki vita mikið út í hvað hann er að fara. „Mér skilst að leik- hópurinn sé meðal þeirra virtustu í leikhúslífi Breta og að höfund- urinn sé mjög mikilvægt skáld,“ útskýrir leikarinn. Lyric Hamm- ersmith leikhúsið er aðeins fyrir utan miðborg Lundúna og tekur um sjö hundruð manns í sæti. Árið hefur verið mjög anna- samt hjá Vesturporti en leikverkið Brim hefur verið á ferð og flugi að ógleymdri sigurför Woyzeck í London. „Við stöndum í samn- ingaviðræðum um að það fari til Ludwigshaven í Þýskalandi,“ segir Gísli og reiknar ennfremur með því að Rómeó & Júlía verði sett upp hjá St. Pauli leikhúsinu í Hamborg. Gísli getur ekki neitað því að árið hafi verið mjög strembið og viðurkennir að hann hlakki til að fá bara að vera leikari í London. Hann er nýbúinn að kveðja Nick Cave sem dvaldist hér um nokk- urra daga skeið. „Hann var mjög ánægður með ferðina og var mjög hrifinn af snjónum og kuldanum,“ segir Gísli en meðal þess sem Cave gerði var að fara í útreiðartúr sem hann hreifst mjög af. „Hann ætlar að koma hingað aftur í desember og þá með alla fjöskylduna.“ Þrátt fyrir kvikmyndina Kvikyndi, upp- setningar og leik á sviði segist Gísli ekkert vera að kvarta. „Þetta er mjög gjöfult og við erum að gera það sem við viljum gera.“ freyrgigja@frettabladid.is GÍSLI ÖRN: HLAKKAR TIL AÐ VERA BARA LEIKARI Í LONDON Stígur á svið með einum virtasta leikhópi Breta GÍSLI ÖRN Mun leika aðalhlutverkið í uppfærslu Kneehigh-leikhópsins á bók Angelu Carter, Nights at the Cirkus. SÉRFRÆÐINGURINN SNÆFRÍÐUR INGADÓTTIR KANN FRAMANDI RÉTTI 13 ÞJÓÐLANDA Kolkrabbi og langvinn pólsk eldamennska Á Íslandi búa nú einstaklingar frá 140 þjóðlöndum sem allir hafa gert Íslendinga ríkari þegar kemur að framandi menningu og siðum sinna heimalanda. Snæfríður Inga- dóttir rithöfundur er ein þeirra heppnu sem á árinu fékk persónulegt heimboð í eldhús þrettán nýrra Íslendinga frá öllum heimsálfunum, en afraksturinn er matreiðslu- bókin Opið hús - menning og matur á Íslandi nútímans, sem Snæfríður vann í samvinnu við Þorvald Örn Krist- mundsson ljósmyndara. „Það voru algjör forréttindi að skrifa þessa bók því ég er búin að vera í standandi matarveislu mánuðum saman,“ segir Snæfríður, en bókin geymir auk uppskrifta ástarsögur og örlög fólksins í eldhúsinu. „Þegar kemur að framandi eldamennsku er Asía auðvitað mest framandi heimsálfan, en þó hefur mat- armenning hennar hvað lengst verið við lýði hjá Íslend- ingum, enda til mikið af austurlenskum matsölustöðum hérlendis. Hins vegar er Íslendingum enn framandi sá siður Asíuþjóða að fá sér heita kjötrétti í morgunmat, en víða eru bornar kjötkássur á borð um leið og menn eru risnir úr rekkju að morgni dags,“ segir Snæfríður og telur landsmenn einna ókunnasta matreiðsluháttum Pólverja og þjóða af Balkanskaganum. „Í bókinni er til dæmis pólskur réttur sem tekur hvorki meira né minna en fjóra daga að útbúa. Það er án efa fyr- irferðarmesta eldamennskan, en þennan klassíska rétt, Bigos, hafa Pólverjar eldað allt frá fimmtándu öld,“ segir Snæfríður sem efar að hún leggi í slíka eldamennsku sjálf í bráð. „Rétturinn er eldaður í tilefni þess að súrkálsupp- skera er komin í hús og veiðimenn búnir að skjóta bráð sína. Því er blandað saman nauta-, svínakjöti og villibráð ásamt ýmsu grænmeti en ekki síst súrkáli,“ segir Snæfríð- ur sem þótti einna mest framandi að gæða sér á spænsk- um kolkrabba. „Mér fannst óskaplega spennandi að smakka loksins risakolkrabba. Hann er eldaður í heilu lagi með örmum og öllu saman, en hægt er að kaupa þannig skepnu frosna hjá Snæfiski. Kolkrabbanum er skellt í pott og soð- inn í heilu lagi, armar skornir af og í bita sem hellt er yfir olía, salt og paprikuduft. Með rauðvíni og brauði er þetta herramannsmatur, og minnti mig eilítið á beikon,“ segir Snæfríður hláturmild. „Það stingur líka í stúf við okkur Íslendinga hvað eldabusk- ur þessara þjóða eru hagsýnar í innkaupum og kaupa stórt inn af öllu. Það er eitthvað sem maður getur lært mikið af,“ segir Snæ- fríður ákveðin í bragði, þar sem hún gengur um í framandi angan erlendra veitingastaða í miðborg Reykjavíkur. Ofurtala 12 18 26 28 32 13 15 25 40 42 44 33 39 22 9 3 5 4 8 9 9 3 8 7 19. 11. 2005 16. 11. 2005 Þrefaldur 1. vinningur næsta laugardag Einfaldur 1. vinningur næsta miðvikudag Fyrsti vinningur gekk ekki út. Fyrsti vinningur gekk ekki út. 6 HRÓSIÐ ... fær Steinunn Sigurðardóttir fyrir að klára loks skáldsögu sína Sólskinshest eftir margra ára vinnu. FRÉTTIR AF FÓLKI Sturla Böðvarsson, samgöngu-ráðherra, verður sextíu ára þann 23. nóvember og af því tilefni bauð hann til glæsilegrar afmælisveislu á Hótel Stykkishólmi á laugardaginn. Þar var vitaskuld múgur og margmenni, ekki síst drjúgur hluti þingheims en Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra, og Einar Oddur Kristjánsson, flokksfélagi Sturlu, settu svip sinn á samkvæmið. Eins og við var að búast var töluvert um ræðu- höld yfir afmælisbarninu en Hrafn Jökulsson, forseti skákfélagsins Hróksins, var í hópi þeirra sem tóku til máls og þakkaði samgönguráðherra fyrir stuðninginn sem hann hefur sýnt skák- vakninguni á Íslandi. Hrafn og Helgi Árnason, skólastjóri í Rimaskóla, notuðu svo tækifærið og færðu ráðherr- anum forláta skáksett að gjöf. Mörður Árnason kveður Alfreð Þorsteinsson á heimasíðu sinni um helgina þó enn sé nokkuð í að Alfreð hverfi af vettvangi borgarstjórn- málanna. „Þótt hann sitji kyrr fram á næsta vor er núna við hæfi að kasta kveðju á Alfreð Þorsteinsson eftir árin tólf sem hann að lokum hefur setið sem borgarfulltrúi okkar sem studd- um Reykjavíkurlist- ann 1994, 1998 og 2002,“ segir Mörður og bætir við að Alfreð hafi „allan þann tíma verið lykil- maður í samstarfinu og staðið sig með prýði við ráðsmennskuna á þeim hluta búsins sem í hans hlut kom. Og var ekki sísti jarðarparturinn. Að loknum löng- um pólitískum ferli tekur hann við mikilvægu verkefni fyrir borgar- búa og landsmenn: Að koma Landspít- alanum fyrir í nýju húsnæði og þar þarf einmitt krafta manns af tagi Alfreðs.“ LÁRÉTT: 2 munaður 6 kringum 8 hversu 9 ögn 11 rykkorn 12 mat- arílát 14 tákn 16 í röð 17 tillaga 18 umhyggja 20 tveir eins 21 halda brott. LÓÐRÉTT: 1 im 3 tveir eins 4 ógæt- inn 5 fjór 7 gera upp á milli 10 gerast 13 dýrahljóð 15 innyfla 16 frestur 19 númer. LAUSN 1 5 6 87 9 12 15 10 13 16 17 11 14 18 2 3 4 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 51 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 A B C LÁRÉTT: 2 óhóf, 6 um, 8 hve, 9 fis, 11 ar, 12 askur, 14 merki, 16 tu, 17 ráð, 18 önn, 20 rr, 21 fara. LÓÐRÉTT: 1 gufa, 3 hh, 4 óvarkár, 5 fer, 7 mismuna, 10 ske, 13 urr, 15 iðra, 16 töf, 19 nr. [ VEISTU SVARIÐ ] 1 Haraldur Ólason. 2 Bradford. 3 óna Hrönn Bolladóttir. 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.