Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 76
[ TÓNLIST ]
UMSÖGN
Á síðustu níu árum hefur Super
Furry Animals frá Wales gefið út
sjö breiðskífur. Allar þeirra hafa
verið vel yfir meðallagi, en engin
þeirra á heldur eftir að teljast
klassík, sem er synd, þar sem þessi
sveit er án efa með athyglisverð-
ari sveitum Breta síðustu ár. Með-
limir hennar eru algjörlega með
sinn eigin stíl, koma þó úr svipaðri
tilraunastofu og The Beta Band,
og síðustu plötur þeirra hafa verið
eyrnakonfekt. Góðar lagasmíðar,
frábærlega fjölbreyttar útsetning-
ar þar sem ólíklegustu áhrifum er
blandað saman. Allt frá The Beach
Boys, The Stone Roses og The
Orb til Sigur Rósar og Gil Scott-
Heron. Aldrei leiðinlegt, en aldrei
heldur nægilega magnað til þess
að sprengja á manni heilann og
skilja mann eftir volandi eins og
smákrakka, blótandi guðunum yfir
því hversu undarlega hann kaus að
skvetta hæfileikagenunum.
Það er eins með þessa nýju
plötu, Love Kraft. Super Furry
Animals er löngu orðin uppáhald
allra freðhausa í Bretlandi. Þeir
vita líka vel af því og helmingur
„tilrauna“ þeirra í tónlistinni er
undarleg eða fyndin hljóð ætluð
til þess að framkalla bros á vörum
manna með fjarrænt augnaráð.
Hér eru þeir í ballöðufílingn-
um og kasta öllu til þegar þarf.
Strengjum, klukkuspili og karla-
kórum. Söngvarinn Gruff Rhys
minnir mig svolítið á hinn andlega
þreytta og þjáða Dennis Wilson,
trommara The Beach Boys. Söng-
upptökur hans hljómuðu alltaf
eins og þær væru gerðar klukkan
sjö að morgni eftir langt djamm,
sem þær líklegast voru.
Magnaðasta lagið á þessari nýju
Super Furry plötu er látið bíða þar
til næstsíðast. Cloudberries, sem
hljómar eins og stutt ferðalag um
ævintýraheim skýjanna.
Það er greinilegt að Super
Furry Animals hefur mjög gaman
af því að búa til plötur, og sveitin
er bara helvít góð í því. En það
væri kannski ekki slæm hugmynd
að skapa einhverja heildarhug-
mynd áður en vaðið verður í gerð
næstu plötu. Því þessi plata er eins
og svo margar aðrar frá loðdýrun-
um, það vantar bara herslumuninn
til þess að hér sé meistaraverk á
ferð. Efniviðurinn er til staðar, en
hann er ekki nægilega vel nýttur.
Mjög gott, en...
SUPER FURRY ANIMALS: LOVE KRAFT
Niðurstaða: Sjöunda breiðskífa Super Furry
Animals er eins og flestar hinar, mjög góð
en ekki nægilega magnþrungin til þess að
teljast til meistaraverka. Ef sveitin fer ekki að
passa sig á hún eftir að hverfa inn í sinn eigin
draumaheim og falla í gleymsku.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Angelina Jolie segir að móður-hlutverkið sé það besta sem hafi
nokkurn tímann komið
fyrir hana. Jolie sem á
soninn Maddox og
dótturina Zahara sem
bæði voru ættleidd.
Hún segist einnig vera
nokkuð viss um
að hún eigi eftir
að ættleiða fleiri
börn í framtíðinni.
,,Börnin eru það
mikilvægasta í
lífi mínu þessa stundina“ segir þessi
geðþekka leikkona.
Kvikmyndaleikkonan undurfagra
Jennifer Aniston hefur að undan-
förnu grínast með það að hún muni
senn gefa út þriggja diska sett
með nafninu ,,Eitt ár í lífi mínu“.
Að sögn hennar finnst henni sem
titlar myndanna sem hún hefur
leikið í undanfarið ár hafi endur-
speglað líf hennar seinustu ár að
nokkru leyti. ,,Stundum hef ég á
tilfinningunni að einhver sé að
elta mig. Þá meina ég ekki í venju-
legum skilningi slúðurljósmynd-
ara og æsifréttamanna. Ég meina,
ef við horfum bara á titla þriggja
seinustu mynda sem ég birtist í þá
kom fyrst Derailed. Síðan var það
The Break Up og loks kom Rum-
our has it. Ef þetta er ekki undar-
legt þá veit ég ekki hvað.“
Sögusagnir hafa verið í gangi
undanfarið um að Jennifer hafi
verið að slá sér upp með leikar-
anum góðkunna Vince Vaughn
en þær fregnir hafa ekki fengist
staðfestar af þeim. Fyrrverandi
eiginmaður Jennifer, Brad Pitt,
hefur að undanförnu sést oft í
fylgd með leikkonunni Angelinu
Jolie eins og frægt er orðið. ■
Listin hermir eftir lífinu
JENNIFER ANISTON
Söngkonan Christina Aguilera
gekk að eiga tónlistarframleiðand-
ann Jordan Bratman á laugardag.
Athöfnin fór fram við sólsetur í
Napa-dalnum í Kaliforníu á laugar-
dag. Brúðurin klæddist dýrðlegum
brúðarkjól sem hannaður var af
hinum fræga franska tískuhönnuði
Christian Lacroix. Að sögn hófust
veisluhöldin strax á föstudags-
kvöld með viðhafnarkvöldverði
þar sem Aguilera og Bratman
hvöttu gesti sína til þess að gefa
í sjóð til styrktar fórnarlömbum
fellibyljanna Katrínu og Ritu.
Bratman og Aguilera trúlofuð-
ust í bænum Carmen í Kaliforníu
þann 11. febrúar á þessu ári. Sam-
kvæmt áreiðanlegum heimildum
tímaritsins People bað Bratman
hennar inni á hótelsvítu sem
hann hafði fyllt af rauðum rósum
og alls kyns gjöfum til hennar.
Christina bjóst alls ekki við bón-
orði. ,,Ég var í þann mund að fara
að opna síðustu gjöfina og þá sá ég
að í pakkanum var hringur. Hann
spurði mig hvort ég vildi gera
honum þann heiður að gerast eig-
inkona hans. Auðvitað sagði ég já.
Ég hef í rauninni verið í skýjunum
síðan.“
Parið hittist fyrst árið 2002
þegar Bratman vann hjá plötu-
fyrirtæki í hennar eigu. Þetta er
fyrsta hjónaband beggja. ■
Christina Aguilera
gengur í hjónaband
CHRISTINA AGUILERA
Nicole Kidman, fyrrverandi eig-
inkona leikarans Tom Cruise,
hefur sagt að hún voni að sam-
band Toms og Katie Holmes gangi
upp. ,,Þegar maður hefur verið í
sambandi með einhverjum jafn
lengi og ég og Tom vorum saman
þá vill maður auðvitað að sá aðili
finni hamingjuna þrátt fyrir að
hann hafi valdið manni sárindum.
Maður verður að hegða sér eins og
fulloðin manneskja, sérstaklega
ef maður á börn. Þau þurfa að vita
að maður styðji pabba þeirra þó að
við séum ekki saman lengur. Sem
betur fer höfum við bæði náð að
komast yfir sambandslit okkar og
haldið áfram að lifa okkar lífi eins
og við getum best“. ■
Óskar Tom og Katie
velfarnaðar
NICOLE KIDMAN
Kvikmyndaleikstjórinn Guy Richie hefur sagt skilið við gerð glæpa-
mynda og ætlar í
framtíðinni að
einbeita sér að
öðrum verkefn-
um. Leikstjórinn
er að sögn að
undirbúa mynd
sem hann segir
vera ævintýra-
mynd fyrir full-
orðna. Seinustu
myndir þessa
hæfileikaríka leikstjóra hafa ekki gengið
sem skyldi.
Leikarinn góðkunni Johnny Depp, hefur bannað börnum sínum
tveimur, hinni sex ára
gömlu Lily og hinum
þriggja ára gamla Jack að
horfa á kvikmyndina The
Libertine næstu tuttugu
árin. Depp, sem leikur
aðalhlutverk mynd-
arinnar, segir að
börn sín verði að
fá að halda í sak-
leysið í eins langan
tíma og mögulegt er
án þess að hinir vondu
hlutir tilverunnar trufli bernsku þeirra og
uppeldi.
Leikar- inn Russell Crowe hefur játað
að hafa hent síma í móttöku-
stjóra hótels í New
York á dögunum.
Var hann dæmdur
til þess að greiða
málskostnað
og má hann
ekki verða
handtekinn í
Bandaríkjunum
næsta árið,
annars á hann á
hættu að missa
atvinnuleyfi sitt
þar í landi. Hafði
hann áður borgað
móttökustjóranum
rausnarlegar bætur.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Þetta var hið fullkomna frí þangað
til þau fundu fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20 B.i. 14 ára Sýnd kl. 8 og 10.40 B.i. 12 ára
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
Sýnd í Lúxus kl. 5, 8 og 10.40
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 B.i. 16 ára
���
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.20
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
- HJ MBL
Þau eru góðu vondu gæjarnir
Frá höfundi Buffy the Vampire Slayer.
Ótrúlegar brellur og svöl átakaatriði.
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Sýnd kl. 10 B.i. 16 ára
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 14 ára
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Þetta var hið fullkomna frí þangað
til þau fundu fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
Sýnd kl. 6 og 8
Ný íslensk
heimildarmynd sem
hefur farið sigurför
um heiminn“MEISTARASTYKKI” H.E. Málið
����
DV
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16 ára
FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM!
ÞAÐ SEM KOM FYRIR EMILY
ROSE ER ÓHUGNANLEGRA
EN NOKKUÐ SEM ÞÚ
GETUR ÍMYNDAÐ ÞÉR
���
„Nokkurs konar Beðmál í Borginni í
innihaldsríkari kantinum.“
„...leynir víða á sér og er rómantísk
gamanmynd í vandaðri kantinum.“
- HJ MBL