Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 71
MÁNUDAGUR 21. nóvember 2005 27
Á miðvikudaginn kemur heldur
Lúðrasveit Reykjavíkur tónleika í
Neskirkju. Þessi 83 ára gamla lúðra-
sveit skartar á þessum tónleikum
einleikara úr eigin röðum, Sóleyju
Þrastardóttur, sem leikur einleik á
þverflautu í verkinu Divertimento
for Flute eftir Alfreed Reed.
Auk flautukonsertsins verða
leikin tvö önnur verk eftir Alfred
Reed, Wapawekka (White Sands)
og Russian Christmas Music sem
er, eins og nafnið gefur til kynna,
syrpa af eldri jólasöngvum frá
Rússlandi, upprunalega samið
1944. Alfred Reed var mikilhæfur
tónsmiður og stjórnandi sem er nú
nýlega látinn.
Önnur verk sem verða flutt á
tónleikunum á miðvikudag eru Tri-
colore eftir hollenska tónskáldið,
básúnuleikarann og útsetjarann
Peter Kleine Schaars, en LR hefur
varla haldið svo tónleika að ekki
beri fyrir eitt af verkum hans eða
útsetningum. Einnig verður flutt
Overture to „Candide“ eftir tón-
skáldið og stjórnandann Leonard
Bernstein í útsetningu Walters
Beeler og Nuoveo Cinema Paradiso
eftir Ennio Morricone í útsetningu
Peters Kleine Schaars.
Sóley hóf þverflautunám í skóla-
lúðrasveit í Bandaríkjunum, 10 ára
gömul, en hefur síðan haldið áfram
námi sínu hér á landi. Hún stundar
núna þverflautunám í Listaháskóla
Íslands hjá Martial Nardeau og
stefnir að því að útskrifast í vor.
Hún hefur verið meðlimur í
Lúðrasveit Reykjavíkur frá haust-
inu 2000. Auk þess hefur hún spilað
með Kammerhljómsveit Austur-
lands, Óperustúdíói Austurlands,
Norrænu blásarasveitinni, Íslenska
flautukórnum og Sinfóníuhljóm-
sveit unga fólksins.
Stjórnandi sveitarinnar er Lárus
Halldór Grímsson en hann hefur
sveiflað sprota fyrir Lúðrasveit
Reykjavíkur síðan 1998. Aðgang-
ur að tónleikunum á miðvikudags-
kvöldið er ókeypis og öllum frjáls
meðan húsrúm leyfir.
Lúðrar þeyttir í Neskirkju
LÚÐRASVEIT REYKJAVÍKUR Fimmtíu manna rúmlega áttræð hljómsveit verður í rokna stuði
í Neskirkju.
NÝJAR BÆKUR
Bjargið okkur nefnist ný bók eftir Hugleik Dagsson, sem JPV ÚTGÁFA
er að senda frá sér. Í bókinni er að finna
yfir 200 nýjar myndasögur Hugleiks.
Bjargið okkur
er fjórða
myndasögubók
hans, en áður
hafa komið út
Elskið-, Drepið-
og Ríðið okkur
sem JPV gaf út
í haust í einni
bók sem ber
heitið Forðist
okkur. Leikrit
byggt á Forðist okkur var frumsýnt í októ-
ber og var uppselt á allar sýningar.
Myndasögu-bókin
Rakkarapakk
– Með kveðju
frá jólasveina-
fjölskyldunni,
eftir Sigrúnu
Eddu Björns-
dóttur og Jean
Pozok, er komin
út hjá JPV
útgáfu. Þar er
að finna nýjustu fréttir, nýjasta slúðrið
og nýjustu myndirnar af jólasveinafjöl-
skyldunni.
Hjá Vöku Helgafelli
er komin út
bókin Skugga-
börn eftir Reyni
Traustason.
Höfundurinn
gekk með
skuggabörnum
niður í dýpstu
myrkur þar sem
neysla fíkniefna
leiðir til glæpa.
Hjá Iðunni er komin
út Heimur
hryggleysingj-
anna, ný bók
eftir Sir David
Attenborough í
þýðingu Höllu
Sverrisdóttur.
Smágerðir
hryggleysingj-
arnir byggðu
jörðina áður en
mennirnir komu til og þeir munu verða
hérna áfram þó að mannskepnan líði
undir lok.
Bókaútgáf-an Hólar
hefur sent frá
sér sænsku
spennusöguna
Svik eftir Karen
Alvtegen. Bókin
var tilnefnd sem
besta sænska
glæpasagan
árið 2003.
�����������
�� �����������������
�������� ���
���������
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI