Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 77
Leikkonan Jennifer Aniston hefur
viðurkennt að hún hefði ekki átt
að tala eins opinskátt og hún gerði
um samband sitt við hjartaknús-
arann Brad Pitt þegar þau voru
gift.
Hún segist jafnframt ætla að tala
minna við fjölmiðla um ástalíf
sitt í framtíðinni. Ekki er langt
síðan Gwyneth Paltrow, fyrrver-
andi kærasta Pitts, gagnrýndi þau
fyrir að hafa verið svo opinská
um sambandið. „Hlutirnir hefðu
verið mun auðveldari fyrir þau ef
þau hefðu ekki talað við fjölmiðla
um hvort annað til að byrja með,“
sagði Paltrow.
Aniston, sem undanfarið hefur
verið orðuð við leikarann Vince
Vaughn, segist skilja gagnrýni
Paltrow vel í samtali við tímaritið
GQ. „Hún hefur hárrétt fyrir sér.
Mér finnst eins og það sé heill
grafreitur til af frægum pörum
sem núna hafa lært sína lexíu,“
sagði Aniston. ■
Viðurkennir mistök sín
ANISTON OG PITT Leikarahjónin fyrrverandi þóttu bera af öðrum pörum. Ekki er langt síðan
þau slitu samvistum.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Hótelerfinginn Paris Hilton er ekki að spara það. Sankvæmt heima-
síðu News of the World sást hún í
undirfatabúð í glam-
úrborginni Las Vegas
þar sem hún á að
hafa mátað nánast
öll undirföt sem til
sýnis voru í búðinni.
Að mátuninni lokinni
skellti hún kreditkort-
inu á búðarborðið
og keypti allt sem
hún hafði mátað.
Ljóst er að nóg er af
peningum á þeim
bænum.
Ofurfyrirsætan Naomi Campbell og söngv-
arinn Robbie Williams,
eiga að sögn að hafa átt
í leynilegu ástarsam-
bandi í um það bil
eitt ár. Samkvæmt
heimildum fyrrum
upplýsingafulltrúa
Naomi Campbell
á sambandið að hafa
verið í gangi þegar
Naomi var ennþá í
tygjum við ítalska millj-
onamæringinn og eig-
anda kappakstursliðsins
Renault, Flavio Briatore.