Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 14
14 21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Ný rannsókn leiðir
í ljós að þeir sem stunda reglu-
bundna hreyfingu á yngri árum
njóta ekki hreyfingarinnar, með
tilliti til hættu á hjartaáföllum
síðar, hætti þeir að hreyfa sig.
Til að minnka líkur á hjartaáfalli
þarf að halda áfram að hreyfa sig.
Þeir sem hafa verið kyrrsetumenn
ungir, geta hins vegar minnkað
líkurnar á hjartaáfalli með því að
byrja að hreyfa sig reglulega.
Rannsóknina gerði Hildur
Thors, heilsugæslulæknir á Heil-
brigðisstofnun Suðurlands, í
meistaranámi í lýðheilsufræðum
við Karolinska Institutet í Sví-
þjóð. Hún skoðaði hvernig munst-
ur hreyfinga hjá ákveðnum hópi
breyttist yfir ævina.
Í frétt Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands kemur fram að rann-
sóknin hafi staðfest mikilvægi
þess að hreyfa sig reglulega alla
ævina. „Hún sýnir einnig að það
er vandamál hvað margir hætta
að hreyfa sig með hækkandi aldri
og það hefur áhrif á tíðni hjarta-
áfalla hjá þjóðinni. Við þurfum
því að rannsaka nánar hvað veld-
ur og hvernig hægt er að koma í
veg fyrir þessa breytingu.“
Hópurinn sem Hildur skoðaði
samanstóð af 3.696 einstakling-
um, bæði konum og körlum, á
aldrinum 45 til 70 ára. Allir gáfu
upplýsingar um hve mikið þeir
höfðu hreyft sig á mismunandi
aldri. Hluti af hópnum hafði feng-
ið hjartaáfall og var borinn saman
við hina.
Með hækkandi aldri minnk-
aði hlutfall þeirra sem hreyfa
sig reglulega, sérstaklega meðal
karla. Á aldrinum 15 til 24 ára
hreyfðu tæplega 60 prósent sig
reglulega, jafnt þeir sem fengu
hjartaáfall síðar og hinir. „Með
hækkandi aldri lækkaði hlutfall
þeirra sem hreyfðu sig reglulega
jafnt og þétt en marktækt meira
hjá þeim hópi sem fékk hjartaáfall
síðar á ævinni.“ - óká
DV
HILDUR THORS Hildur er læknir við Heilbrigðisstofnun Suðurlands og gerði nýverið rann-
sókn á sambandi hreyfingar og hjartaáfalla. MYND/GUÐFINNA ÓLAFSDÓTTIR, HSU
Ný rannsókn á tengslum hreyfingarmunsturs og hættunnar á því að fá hjartaáfall:
Ávinningur hreyfingar tapast
VIÐSKIPTI Sigurður Einarsson,
stjórnarformaður KB banka,
hefur verið skipaður formaður
nefndar sem á að skoða hvernig
Ísland geti orðið alþjóðleg fjár-
málamiðstöð. Halldór Ásgríms-
son forsætisráðherra tilkynnti
þetta í gær. Ekki er búið að skipa
aðra nefndarmenn en samkvæmt
upplýsingum Fréttablaðsins
verður það væntanlega gert í
næstu viku.
Forsætisráðherra hefur í
nokkurn tíma talað um þenn-
an möguleika, meðal annars á
viðskiptaþingi Verslunarráðs
Íslands, sem þá hét, í febrúar
síðastliðnum. „Ég á mér þann
draum að í framtíðinni verði
Ísland þekkt um víða veröld
sem alþjóðleg fjármálamiðstöð,“
sagði Halldór í ræðu sinni.
Sagði hann það tækifæri vera
vegna þess að á Íslandi störfuðu
kraftmikil alþjóðleg fyrirtæki,
sem hefðu kosið að eiga hér höf-
uðstöðvar vegna ákjósanlegra
skilyrða af hálfu stjórnvalda.
Einnig vegna mannauðs sem
hér er og mikils og góðs stöðug-
leika.■
FORSÆTISRÁÐHERRA
Halldór talaði um alþjóðlega fjármála-
miðstöð á Íslandi á síðasta flokksþingi
Framsóknarflokksins.
Sigurður Einarsson stjórnarformaður KB banka skipaður formaður nýrrar nefndar:
Ísland verði alþjóða fjármálamiðstöð
MEÐ STÆKKUNARGLER Í KALKÚTTA
Þessi kristna nunna á Indlandi brá stækk-
unargleri fyrir auga sér þegar hún hlýddi
á messu í Kalkútta í gær. Innan við tvö
prósent Indverja eru kristinnar trúar.
MYND/AP
HÁTÆKNISJÚKRAHÚS Jón Kristjáns-
son heilbrigðisráðherra hefur
skipað framkvæmdanefnd um
byggingu hátæknisjúkrahúss.
Alfreð Þorsteinsson framsókn-
armaður mun veita nefndinni
formennsku. Aðrir nefndarmenn
eru Inga Jóna Þórðardóttir, Árni
Gunnarsson, Magnús Pétursson,
Kristín Ingólfsdóttir, Ragnheið-
ur Haraldsdóttir og Björn Ingi
Sveinsson.
Nefndin er skipuð í kjölfar
þeirrar ákvörðunar ríkisstjórn-
arinnar að veita átján milljörðum
af söluandvirði Landsímans til
byggingar sjúkrahúss af þessu
tagi. - saj
Framkvæmdanefnd skipuð:
Nefnd um bygg-
ingu sjúkrahúss
JÓN KRISTJÁNSSON Heilbrigðisráðherra
hefur skipað framkvæmdanefnd um
hátæknisjúkrahús.
SJÁVARÚTVEGUR „Það vita það allir
sem eru til sjós að það er varla
nokkurt æti til fyrir fiskinn lengur,
maður sér það best á því að allur
sjófugl er alveg horfinn og svo er
fiskurinn svo horaður að hann er
ekkert nema hausinn,“ segir Níels
Ársælsson, útgerðarmaður frá
Tálknafirði. Hann er einn þeirra
fjölmörgu Vestfirðinga sem hafa
miklar áhyggjur af þessari þróun.
Þeir benda á að varp sjófugla hafi
að miklu leyti misfarist í sumar
vegna fæðuskorts.
„Það er greinilegt að það er mik-
ill fæðuskortur því hrefnan sem
við veiddum í sumar var horuð og
vannærð og enginn sjófugl sjáan-
legur nokkurs
staðar. Miðin
eru alveg líf-
laus,“ segir
Guðmundur
Konráðsson,
sjómaður frá
Ísafirði.
Hafrann-
sóknarstofn-
un rannsakar
nú spiklag og
mataræði hrefnanna sem veiddar
hafa verið tvö síðustu sumur en
ekkert hefur enn komið úr þeim
rannsóknum og er niðurstöðu ekki
að vænta fyrr en í vor.
Ársæll segir skýringuna vera
loðnuveiði manna undanfarin ár
með flottrollum en ekki hringnót
eins og áður tíðkaðist. „Með þess-
um flottrollum tvístra þeir göng-
unum og svo byrja þeir austast og
þar með taka þeir sterkustu loðn-
una og stráfella hana.“ Níels segir
að þar sem þorskurinn hafi varla
nokkra loðnu lengur á matseðlin-
um hafi hann gengið á sandsílin
sem nú séu að hverfa við landið og
svo éti þorskurinn undan sér, það
er að segja afkvæmi sín, og það
hafi bitnað á nýliðuninni.
Hann segir ennfremur að
þessi loðnuveiði hafi orðið til þess
að skelfiskveiði hafi lagst af í
Breiðafirði og að innfjarðar- sem
og úthafsrækja sé nú nær með
öllu horfin.
Aðrir sjómenn og útgerðar-
menn sem Fréttablaðið hafði
samband við segja fæðuskortinn
stafa af hlýnun sjávar. Nefna þeir
í því sambandi að ýsunni hefur
stórfjölgað en hún sækir frekar í
hlýrri sjó en þorskurinn. Einnig
nefndu menn að skötuselurinn og
annar fiskur sem venjulega fannst
aðeins sunnan við land er nú orð-
inn mun algengari fyrir norðan.
jse@fettabladid.is
Segja fiskimiðin vera dauð
Vestfirskir sjómenn segja að varla nokkurt æti sé á miðunum fyrir fisk og fugl. Hvalur og þorskur eru
vannærðir. Sumir telja þetta stafa af hækkun hitastigs sjávar. Aðrir kenna um loðnuveiðum í flottroll.
AF MIÐUNUM Vestfirskir sjómenn segja æti svo lítið á miðunum að fuglinn láti ekki sjá sig þar og fiskurinn sé horaður og hvalurinn líka.
NÍELS ÁRSÆLSSON.
Stefán geimverkfræðingur
svæfir stúlkur og nauðgar þeim
Svefn-
nauðgari
gengur
laus
DV2x15 20.11.2005 20:47 Page 1