Fréttablaðið - 21.11.2005, Page 23
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Heimild: Almanak Háskólans
ER ÞÍN EIGN AUGLÝST HÉR? MEST LESNA FASTEIGNABLAÐ LANDSINS
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Fasteignasalan Lundur er með til
sölu fallegt þriggja hæða einbýlishús
í miðbæ Reykjavíkur. Húsið er byggt
árið 1927 og hefur yfir sér rómantískt
yfirbragð eldri tíma.
Á Öldugötu í Reykjavík er til sölu tvöhundr-
uð og sjötíu fermetra einbýlishús á þremur
hæðum. Fjórar stofur eru í húsinu, þrjú
baðherbergi og sjö svefnherbergi.
Á aðalhæð hússins er forstofa og þrjár
rúmgóðar teppalagðar stofur. Eldhúsið er
rúmgott með korkflísum og viðarinnrétt-
ingu og gestasnyrting er við bakinngang.
Af aðalhæð liggur lakkaður timburstigi
upp á efri hæð hússins. Þar eru fjögur rúm-
góð svefnherbergi. Tvö svefnherbergjanna
eru með innbyggðum skápum og í öðru
þeirra er vaskur í skápnum. Baðherbergið
er nýlega innréttað með hita í flísalögðu
gólfi og með baðkari. Af efri hæð liggur
lakkaður tréstigi upp á 30 fermetra rishæð
sem ekki kemur fram í skráningu eignar-
innar. Á rishæðinni er tvö herbergi, annað
með vaskinnréttingu. Parkett eða hefluð
gólfborð eru á flestum herbergjum.
Af aðalhæð er einnig gengið niður í kjall-
ara. Þar er hol og stórt þvottahús með skáp-
um og sturtu. Tvær geymslur eru í kjallara,
önnur þeirra ekki kynt, og geymsla er undir
útitröppum og þaðan er útgangur í garð
sem er bakvið húsið. Í kjallaranum er einn-
ig tveggja herbergja íbúð með sér inngangi
og sér hita og rafmagni. Bílskúrinn er upp-
hitaður, með rafmagni, heitu og köldu vatni
og sjálfvirkum opnara fyrir hurð og hlið.
Hellulagnir við húsið eru upphitaðar.
Húsið er í einstaklega góðri umhirðu og
viðhaldi. Glæsileg eign á frábærum stað.
Tilboð óskast.
Einbýlishús á falleg-
um stað í miðbænum
Góðan dag!
Í dag er mánudagur 21. nóvember
325. dagur ársins 2005.
Reykjavík 10.16 13.14 16.11
Akureyri 10.18 12.58 15.38
Trésmiðjan Höfði á Hólmavík
hefur keypt eignir bygginga-
fyrirtækisins Grundaráss á
sama stað. Eigendur hins nýja
fyrirtækis eru Haraldur V.A.
Jónsson og Jón Gísli Jónsson á
Hólmavík og eru þeir bjartsýn-
ir á reksturinn að
því er fram kemur
á vefnum www.
strandir.is. Starfs-
menn Grundaráss
vinna áfram hjá
hinu nýja fyrirtæki.
Tillögur um nýjan
miðbæ Akureyr-
ar voru kynntar
umhverfisráði
bæjarins nýlega.
Tillögurnar falla vel
að þeim áherslum sem komu
fram á fjölmennu íbúaþingi á
sínum tíma. Helstu niðurstöð-
ur þess lágu til grundvallar
útboðsgagna í alþjóðlegri
hugmyndasamkeppni sem
haldin var um verkefnið. Alls
barst 151 tillaga frá um 40
þjóðlöndum.
Bygging fjölbýlishúss á Sól-
mundarhöfða á
Akranesi stendur
fyrir dyrum.
Tillaga frá Pálma
Guðmundssyni
arkitekti f.h.
Laugarness
þykir álitlegasti
kosturinn af þeim
sjö sem bárust og
hefur bæjarráð
samþykkt að velja
hana. Tillagan
þykir nútímaleg
og vönduð og fella bygging-
una vel að staðnum ásamt því
að leysa allar innri tengingar.
LIGGUR Í LOFTINU
[HÚS FASTEIGNIR]
[
VEGGFÓÐUR[ Í þættinum íkvöld BLS. 4
Uppáhaldshús Ragga
Bjarna BLS. 2
Seyðisfjörður í vetrar-
búningi BLS. 29
FASTEIGNASÖLUR
Atlas 27
Ás 14-16
Draumahús 21-24
Eignastýring 26
Fasteignamarkaðurinn 7
Fasteignam. Grafarvogs 10
Fasteignasala GÓ 37
Fasteignastofan 11
Fasteignastofa Suðurnesja 17
Foss 13
Fyrirtækjasala Íslands 33
HB fasteignir 37
Hof 6
Hóll 20
Hraunhamar 30-31
Húsalind 11, 18
Klettur 14-15
Lundur 28-29
Lyngvík 19
Remax 6
Smárinn 8-9
X-hús 7
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
BI
3
02
61
11
/2
00
5
Kynntu þér kostina við fasteignalán Landsbankans.
Fáðu ráðgjöf hjá sérfræðingum okkar og veldu leiðina
sem hentar þér best. Með faglegri ráðgjöf og
fjölbreyttum fasteignalánum hjálpum við þér að
eignast þitt draumaheimili. Hafðu samband í síma
410 4000 eða á fasteignathjonusta@landsbanki.is
410 4000 | landsbanki.is
Fasteignalán
Við hjálpum þér
að eignast
draumaheimilið