Fréttablaðið - 21.11.2005, Blaðsíða 24
[ ]
El
ÁRMÚLA 42 - SÍMI 553 4236
BÍLSKÚRS OG IÐNAÐARHURÐIR
• Hurðir til á lager • Smíðað eftir máli
• Eldvarnarhurðir • Öryggishurðir
Arinbúðin
Stórhöfða 17 v/Gullinbrú (fyrir neðan húsið)
Sími 567 2133 · www.arinn.is
ELISSE
Verð 124.900
br. 105.5 cm.
h. 93.5 cm
DRYDEN
Verð 139.800
breidd 101.1 cm
hæð 108.8 cm
Rafmagns
-arnar
SKIPHOLTI 21 (NÓATÚNSMEGIN)
SÍMI 561 0847
TEXTÍLGALLERY
getur verið erfiður á veturna. Það er best að grípa tækifærið þá daga sem
ekki er frost úti til þess að þvo gluggana þurfi þeir á þvotti að halda.
Gluggaþvottur
Ragnar Bjarnason heldur upp
á tvö hús í Reykjavík. Bæði
eiga þau sér langa sögu og eru
afar glæsileg.
„Húsin bera merki um svo mikla
framsýni miðað við þann tíma
sem þau voru byggð á,“ segir
stórsöngvari þjóðarinnar, Raggi
Bjarna, um uppáhaldshúsin sín.
Annað húsið er á Fríkirkjuvegi 11
en hitt er Höfði.
Þessar stóru og reisulegu bygg-
ingar eiga ýmislegt sameiginlegt.
Þær eru byggðar með árs millibili
í byrjun síðustu aldar og hafa hvor
um sig vissa sérstöðu. Húsið við Frí-
kirkjuveg var fyrsta húsið í Reykja-
vík sem lagðar voru vatnslagnir í
og Höfði var lengi vel eitt stærsta
einbýlishús Reykjavíkur, fyrir utan
að vera staðurinn þar sem lagður
var grunnurinn að lokum kalda
stríðsins. „Ég hef sungið nokkrum
sinnum í Höfða og mér finnst það
bara alveg stórkostlegt hús. Einar
Ben bjó þarna um tíma ásamt fleiri
fyrirmennum og síðan komu þang-
að Reagan og Gorbatsjov.“
Ragnar tengist Fríkirkjuvegin-
um nokkru meira þar sem hann bjó
ekki ýkja langt frá. „Ég ólst upp í
Lækjargötunni í húsi sem Ólafur,
faðir Flosa Ólafssonar, átti. Ég bjó
þar frá því ég var nokkurra vikna
gamall og var mikið úti við Tjörn-
ina og í kringum þetta flotta hús.“
Ragnar segist hafa virkilega
gaman af arkitektúr og flottum
byggingum. „Ég hef náttúrulega
ekkert vit á þeim, ég fer bara eftir
því sem augað segir mér!“ segir
hann að lokum.
mariathora@frettabladid.is
Hefur gaman af arkitektúr
og flottum byggingum
Ragnar ólst upp í Lækjargötunni og hefur því lengi þekkt húsið á Fríkirkjuvegi 11. FRETTABLAÐIÐ/HARI