Fréttablaðið - 21.11.2005, Side 72
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR28
Stóra svið
Salka Valka
Fi 24/11 kl. 20 Fö 25/11 kl. 20
Su 4/12 kl. 20 Su 11/12 kl. 20
Mi 28/12 kl. 20
Woyzeck
Lau 26/11 kl. 21 Su 27/11 kl. 21
Þr 29/11 kl. 20 UPPS Fi 1/12 kl. 20
Fö 2/12 kl. 20 Mi 7/12 kl. 20 UPPS
Fi 8/12 kl. 20 Fö 9/12 kl. 20
Fi 29/12 kl. 21 Fö 30/12 kl. 21
Kalli á þakinu
L au 26/11 kl. 14 Su 27/11 kl. 14
Su 4/12 kl. 14 Su 11/12 kl. 14
Má 26/12 kl. 14
Id - HAUST
Wonderland, Critic ´s Choice?
og Pocket Ocean
Mi 23/11 kl. 20
ATH síðasta sýning!
Nýja svið/Litla svið
Lífsins tré
Fö 25/11 kl. 20 Lau 26/11 kl. 20
Fö 2/12 kl. 20 Lau 3/12 kl. 20
Þr 27/12 kl. 20
Alveg brilljant skilnaður
Su 27/11 kl. 20 UPPSELT
Má 28/11 kl. 20 UPPSELT
Su 4/12 kl. 20 UPPSELT
Fi 29/12 kl. 20 AUKAS. UPPSELT
Fö 30/12 kl. 20 AUKAS. UPPSELT
Síðustu sýningar!
Manntafl
Fi 24/11 kl. 20 Mi 30/11 kl. 20
Mi 28/12 kl. 20
GJAFAKORT
GEFÐU EFTIRMINNILEGA
UPPLIFUN
GJAFAKORT Í BORGARLEIKHÚSIÐ GILDA
ENDALAUST
����������������������������������������������������������������������� �����������
������������ �������������� �� �����������
��������������������������������������������������������
������������������������������������������ �������
������������������������������������������������
������ �� ���������
��������������������� �������������
������������ ���������������������������
����������������������������������������������������������
������������������������������� �����
Miðar í síma 511 4200 og á www.kabarett.is
EKKI MISSA AF KABARETT!
Allra síðustu sýningar
25. nóv. kl. 20 (aukasýning)
26. nóv. kl. 20 ALLRA ALLRA SÍÐASTA AUKASÝNING
18. sýn fös 18. nóv. - örfá sæti laus
19. sýn lau 19. nóv. - örfá sæti laus
20. sýn fös 25. nóv. - Nokkur sæti
21. sýn lau 26. nóv. - Nokkur sæti
22. sýn. 2. des.
23. sýn. 3. des.
Vegna gífurlegrar aðsóknar
Fim. 17. nóv. kl. 19
Lau. 26. nóv. kl. 14
Sun. 27. nóv. kl. 14
BÆKUR
UMFJÖLLUN
Jón Hallur Stefánsson kemur
ferskur inn með Krosstré, hans
fyrstu skáldsögu. Þetta er býsna
skemmtilega skrifaður krimmi
sem gefur fullt tilefni til að ætla
að Jón Hallur muni skipa sér í
fremstu röð íslenskra reyfarahöf-
unda haldi hann áfram á glæpa-
brautinni. Jón Hallur sigraði í
glæpasagnakeppni Grand Rokks
og Hins íslenska glæpafélags árið
2004 með smásögunni Enginn eng-
ill þannig að það er ljóst að glæp-
irnir liggja vel fyrir honum.
Miðaldra arkitekt, sem virðist
vera sjálfselskur skíthæll, finnst
nær dauða en lífi við sumarbústað á
Þingvöllum. Ekki bætir svo úr skák
þegar sonur arkitektsins á unglings-
aldri finnur lík ungrar konu í sum-
arbústaðnum og tekur upp á því upp
á sitt einsdæmi að fela líkið til þess
að hlífa fjölskyldu sinni við frekari
hremmingum.
Rannsóknarlögreglumaðurinn
Valdimar Eggertsson rannsakar
líkamsárásina á arkitektinn og er
fljótur að tengja hvarf ungu kon-
unnar og árásina á arkitektinn
saman.
Þessi tvö mál eru miklu flóknari
en virðist í fyrstu og hvorki Valdi-
mar né lesendur geta látið sig óra
fyrir hvert rannsóknin mun leiða þá.
Það kemur slatti af kúnstugum og
skemmtilegum persónum við sögu
fyrir utan arkitektinn og son hans
og ber þar helstan að nefna japansk-
an leigumorðingja sem er staddur á
Íslandi í annarlegum tilgangi og er
til alls líklegur, fyrrverandi kær-
asti týndu stúlkunnar á einnig eftir
að láta til sín taka, þrælkomplexað-
ur klámfíkill og besti vinur sonar
arkitektsins er heldur ekki allur þar
sem hann er séður.
Jóni Halli tekst að draga upp
skýrar myndir af persónunum án
þess að eyða í það of miklum tíma og
plássi og það verður að segjast eins
og er að flestar vekja þær forvitni
og áhuga og maður hefði ekkert á
móti því að kynnast þeim betur,
ekki síst löggunni Valdimar sem
burðast með ýmsar beinagrindur í
pokahorninu.
Jón Hallur færir sjónarhornið
á milli persónanna og brýtur frá-
sögnina upp og bætir kjöti á beinin
með því að hleypa lesandanum inn
í missjúk hugarfylgsni þess fólks
sem keyrir atburðarásina áfram og
hleður söguna öllum þeim tilfinn-
ingum sem gefa sakamálasögum
kraft og fólki tilefni til að fremja
morð. Hér krauma heitar ástríður,
hatur, þráhyggja, afbrýðisemi og
smá slatti af geðveiki.
Jón Hallur hrærir þessu öllu
saman í ákaflega vel skrifaðan reyf-
ara og Krosstré er bæði afskaplega
læsileg og spennandi bók.
Lýsingar á atburðum eru oft á
tíðum mjög myndrænar þannig að
þeir rúlla eins og kvikmynd fyrir
augum lesandans. Þetta verður
sérstaklega áberandi í krassandi
lokauppgjöri sem tekur á sig klisju-
kennda mynd lokaatriða amerískra
spennumynda. Þetta kemur þó ekki
að sök enda hefur höfundurinn lagt
svo vandlegan grunn að endinum
með því að slá ryki í augu lesand-
ans og afvegaleiða hann frá fyrstu
blaðsíðu þannig að allt fellur þetta
saman í glæsilega og sannfærandi
heild. Það er því óhætt að mæla með
Krosstré handa þeim sem kunna að
meta almennilega krimma og ég
leyfi mér að vona að Jón Hallur hafi
ekki sagt skilið við lögguna Valdi-
mar Eggertsson. Þórarinn Þórarinsson
Krosstré sem
ekki bregst
KROSSTRÉ
HÖF: JÓN HALLUR STEFÁNSSON
ÚTG: BJARTUR
Niðurstaða: Hér krauma heitar ástríður,
hatur, þráhyggja, afbrýðisemi og smá slatti af
geðveiki. Jón Hallur hrærir þessu öllu saman
í ákaflega vel skrifaðan reyfara og Krosstré er
bæði afskaplega læsileg og spennandi bók.
Jón Hallur Stefánsson.
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI