Fréttablaðið - 21.11.2005, Síða 80
21. nóvember 2005 MÁNUDAGUR36
FÓTBOLTI Franski framherjinn Thi-
erry Henry segist verða orðinn
þreyttur á því að fjölmiðlar séu
sífellt að orða hann við hin og þessi
lið í Evrópu. Skal engan undra að
sögusagnir séu á kreiki þar sem
Henry á aðeins átján mánuði eftir
af núverandi samningi sem hann
er ekki búinn að framlengja.
Barcelona er nýjasta liðið sem
er orðað við Henry og það reyndar
ekki í fyrsta skipti. Þjálfari Barca,
Frank Rijkaard, er mikill aðdá-
andi Henrys og talið er að Barca
muni bjóða verulegar fúlgur í
hann næsta sumar. - hbg
Thierry Henry:
Þreyttur á
sögusögnunum
THIERRY HENRY Mun ekki þagga niður í
fjölmiðlum fyrr en hann framlengir við
Arsenal.
FÓTBOLTI Tyrkneski landsliðsmað-
urinn Emre Belozoglu gagnrýndi
Roberto Mancini, knattspyrnu-
stjóra ítalska liðsins Inter Milan,
harkalega í viðtali um daginn.
Emre lék með Inter en er nú
genginn í raðir enska liðsins New-
castle. Hann sagðist spá því að
Mancini yrði rekinn innan tíðar
þar sem liðið hefði valdið miklum
vonbrigðum. Mancini er ekki sátt-
ur við þessi orð Emre.
„Ég held að sumir leikmenn
ættu að tala minna og hefðu frekar
átt að sýna eitthvað inni á sjálfum
vellinum. Ef þeir hefðu gert það
væri staða liðsins allt önnur og
betri. Emre er fínn leikmaður og
frábær félagi en hann hefði mátt
leggja meira á sig þegar hann spil-
aði fyrir félagið,“ sagði Mancini.
Mancini svarar Emre:
Ætti að tala
minna
FÓTBOLTI „Þetta var leikur sem
alla dreymir um að eiga, þetta
var fullkomin frammistaða“ sagði
besti knattspyrnumaður heims,
Ronaldinho eftir 3-0 burstið á Real
Madrid um helgina. Ronaldinho
fór gjörsamlega á kostum og skor-
aði tvö glæsileg mörk auk þess að
sýna draumatilþrif út um allan
völl. Ronaldinho var svo góður að
stuðningsmenn Real stóðu upp og
klöppuðu fyrir honum. „Það var
mjög tilfinningarík stund fyrir
mig og ég mun aldrei gleyma
þessu. Þetta er ekki eitthvað sem
maður býst við. Ég vissi ekki að
þetta hefði bara gerst einu sinni
áður hér en þá var klappað fyrir
Maradona,“ sagði Ronaldinho.
„Ronaldinho er besti leikmaður
í heimi. Hann sýndi það í leiknum
eins og hann gerir alltaf,“ sagði
Carlos Puyol, fyrirliði Barcelona
um Brasilíumanninn sem er hælt í
hástert í fjölmiðlum á Spáni þessa
dagana. Ronaldinho bindur enda
á „galacticos“, sagði í fyrirsögn
Marca sem gekk langt í gagnrýni
sinni á Real Madrid um leið og
þeir veðjuðu Spánarmeistaratitl-
inum á Barcelona í nóvember.
- hþh
Ekki oft klappað fyrir
Barcelona og Bernabeau:
Ronaldinho og
Maradona þeir
einu
RONALDINHO Stuðningsmenn Real klöpp-
uðu fyrir honum á laugardag.
SUND Sundkappinn Örn Arnarson
gæti neyðst til að draga sig úr
EM í sundi sem fram fer á Ítalíu
í desember vegna lasleika. Örn
þjáist af of örum hjartslætti en
hann fór upp á spítala í gær í rann-
sóknir en hvort þetta er alvarlegt
ætti að skýrast fljótlega.
Örn hætti þátttöku á meistara-
mótinu á laugardaginn eftir 100
metra skriðsundið þar sem hann
hampaði sigri en hann hefur verið
kvalinn undanfarnar þrjár vikur
og hefur gengist undir ýmsar rann-
sóknir vegna kvillanna. Auk þess að
vera með of háan púls er Örn með
sviða í brjóstholi en þó eru einkenni
Arnar ekki talin vera mjög alvarleg
og eru bundnar vonir við að Örn
muni verða búinn að ná sér þegar
að Evrópumóti kemur. - hþh
Örn Arnarson:
Ekki með á EM?
ÖRN ARNARSON Er með hjartakvilla og
missir væntanlega af EM.
SUND Meistaramót Íslands í sundi í
25 metra laug fór fram um helgina
við glæsilegar aðstæður í Laugar-
dalslaug. Anja Ríkey Jakobsdóttir
í sundfélaginu Ægi, Ragnheiður
Ragnarsdóttir í KR, Jakob Jóhann
Sveinsson í Ægi og Örn Arnarson
í Sundfélagi Hafnarfjarðar stóðu
upp úr á mótinu og unnu sam-
tals 21 grein en Anja og Jakob
settu Íslandsmet á mótinu. Fram-
undan hjá fjórmenningunum er
Evrópumótið sem fram fer á Ítalíu
aðra helgina í desember og gefur
árangurinn á meistaramótinu
þeim byr undir báða vængi fyrir
mótið.
„Ég er rosalega ánægð með
mótið, þetta hefur verið frábært
og búið að ganga vel hjá mér, ég
trúi þessu varla sjálf,“ sagði Anja
Ríkey við Fréttablaðið eftir meist-
aramótið í gær. Anja synti til sig-
urs í sex greinum og var að vonum
ánægð með árangurinn. „Ég er
ánægðust með 100 metra bak-
sundið þar sem ég setti Íslands-
met en annars var allt mótið gott
en þetta stendur upp úr. Ég er
búin að vera að bæta mig mikið í
nokkrum sundum sem ég er mjög
ánægð með og það er bara frábært
og vonandi eru þetta góð fyrirheit
fyrir Evrópumótið í desember. Ég
stefni á að komast í 16-liða úrslit í
100 metra baksundinu og ég á að
geta það. Allt annað er svo bara
bónus,“ sagði sunddrottningin að
lokum.
„Þetta mót hefur gengið allt
í lagi en fyrst og fremst er það
góður undirbúningur fyrir Evr-
ópumótið“ sagði Jakob Jóhann
Sveinsson úr Sundfélaginu Ægi
við Fréttablaðið í gær, en hann
varð hlutskarpastur í fimm grein-
um á mótinu. „Það var gott að ná
Íslandsmetinu í 50 metra bringu-
sundi og ég er búinn að vera að
synda hratt á æfingum og litlum
mótum að undanförnu og það á að
geta skilað sér á Evrópumótinu
þar sem ég stefni á að komast í
úrslitin. Þetta verður mjög sterkt
mót og maður verður að laða fram
það besta í sér allan tímann. Í
fyrra var það 59,90 á pallinn en
sá tími dugir sennilega bara inn
í 16-liða úrslitin í þessu móti sem
sýnir styrk þess,“ sagði Örn sem
á best 1.05 mínútur í 100 metra
bringusundi.
Afreksfólkið stóð upp úr
Besta sundfólk landsins sankaði að sér verðlaunum á meistaramóti Íslands í
sundi sem fram fór í Laugum um helgina.
ANJA RÍKEY JAKOBSDÓTTIR Synti geysilega
vel um helgina og var sátt að móti loknu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN