Tíminn - 13.10.1976, Side 5
Miövikudagur 13. október 1976
TÍMINN
5
Hann fer aftur þangaöi
sem hann stal bókinni
upphaflega.
Um eittorðerég "’KFólk viss um aö hann vissi) haldiö í sjálfur, þaö var gullæöi, , „gull”. Ý^gefst aldrei upp! „Þjófur” og „guii”'.) Ég get Mynd af termita /'lausiega og kort, hvernig^tengt þetta skal skilja þetta'i saman_ en ‘ spurningin \ er hvar?
áfellill mSEíÍS
I MIÐPUNKTI K*0 VIDSKIPTANNA
Raudararstig 18
Vetrarverð i sólar-
hring með morgunverði:
Eins manns kr. 2.500
2ja manna kr. 4.200
Vetrarverð í viku
með morgunverði:
Eins manns kr. 13.500
2ja manna kr. 22.600
HÓTEL HOF
BILALEIGAN
EKILL
Ford Bronco
Land-Rover
Blazer
Fíat
VW-fólksbílar
íPi-aa-aq
28340-37199
Laugavegi 118
Rauðarárstígsmegin
LOFTLEIDIR
71 2 1190 2 11 88
Hreint
^land
fagurt
land
LANDVERIMD
*
Olympíumótið í Israel:
„Vorum við ekki að biðja um vandræði?"
— spyr dr. Euwe í ársskýrslu sinni
— ÉG lét I ljós þá von mina 1 siö-
ustu ársskýrslu, aö eftir vand-
ræöin, sem hrjáöu heimsmeist-
arakeppnina 1975, mætti FIDE
auönast aö eiga rólegt starfs-
timabil. Hins vegar kom á dag-
inn, aö sil von min brást hrapal-
lega.
Þannig komst Max Euwe for-
seti alþjóöaskáksambandsins
aö oröi f upphafi ársskýrslu
FIDE. Euwe gerir að umtals-
efni hve starfsemi sambandsins
liöi fyrir aukin stjórnmálaleg á-
hrif. 1 þvf sambandi bendir hann
á, aö sú ákvöröun aö halda
ólympiuskákmótiö i Israel, hafi
ekki aöeins veriö til ögrunar,
heldur og til þess aö útiloka
Arabarfkin frá þátttöku. — Þvf
erum viö aö halda ólympiumót-
ið f Israel? spyr Euwe. — Vor-
um viö ekki einungis aö biöja
um vandræöi?
Sföar f skýrslu sinni segir
Euwe, aö mótiö f ísrael heföi
einfaldlega leitt til þess, aö
Arabarikin vildu koma á sfnu
eigin ólympiuskákmóti. En
skoöun FIDE á þvf máli væri sú,
aö ekki væri hægt aö halda
nema eitt ólympiumót I skák og
alls ek'kert ef þvf væri beint sér-
staklega gegn Israel.
— Ég vona, segir dr. Euwe,
aö þeir atburöir, sem gerzt hafa
á árinu, muni ekki skaöa FIDE
á neinn hátt, eöa aöildarfélögin
missi trúna á forvigismenn
samtakanna. Einkunnarorö
okkar — sameinaðir stöndum
vér, sundraöir föllum vér — hef-
ur vitanlega ekki sama hljóm og
áöur, en meö samtakavilja er
eflaust hægt aö endurvekja þaö.
Skáksambandi Islands barst
skeyti vegna ársskýrslu dr.
Euwes frá Libýu, þar sem mót-
mælt er ýmsum fullyröingum i
skýrslu forsetans.
Libýumenn segja t.d., að rök
dr. Euwes þess efnis, aö Araba-
rikin og riki þriöja heimsins geti
haldiö skákmót sin á milli, sýni
aögreiningarstefnu forsetans og
þetta sé skömm og ögrun, sem
þeim bæri að benda á.
Þá segja Líbýumenn, að
Ólympiunefndin og UNESCO
hafi f raun bannað þeim þátt-
töku af pólitiskum ástæöum,
enda þótt þaö sé ekki sagt ber-
um oröum. Segja þeir, aö öll
skáksambönd ættu aö fordæma
slfkt.
—ASK
Áfengisvarnanefnd Siglufjarðar
Meðferð og neyzla áfengis eitt stærsta vandamál okkar
FJ-Reykjavik. Afengisvarna-
nefnd Siglufjaröar hélt fund i Ai-
þýöuhúsinu 26. september sl., þar
sem mættu Björn Stefánsson,
fulltrúi áfengisvarnaráös, Indriöi
Indriöason, stórtemplar og
Arnfinnur Arnfinnsson, um-
dæmisteinplar. Formaöur áfeng-
isvarnanefndar Siglufjarðar er
Jóhann Þorvaldsson.
Fundurinn bendir á eftirfar-
andi:
Afengismál þjóöarinnar eru
komin á þaö stig, aö telja veröur
meöferö og neyzlu áfengis eitt
stærsta vandamál þjóðarinnar i
dag. Sá hópur einstaklinga, sem
áfengisneyzla er að eyöileggja,
stækkar með ári hverju.
Þvi auðveldara og viöar sem
hægt er að ná i áfengi, þvi meiri
verður neyzla þess. Þvi meiri
neyzla, þvi meira áfengisböl.
Þessa skaölegu óheillaþróun
verður að reyna að stööva með
auknum og endurbættum áfengis-
vörnum.
Eftirfarandi eru samþykktir
fundarins:
1) Fundurinn beinir þvi til
stjórnvalda; rikis, kaupstaða og
sveitarfélaga, að algjörlega verði
stöövaö að hafa um hönd, eða
veita áfengi i móttökum eða fund-
um opinberra aðila.
2) Fundurinn skorar á Alþingi
og rikisstjórn, aö stööva öll verö
og tollfriðindi á áfengi og tóbaki.
Friðindi þessi stuðla aö aukinni á-
fengisneyzlu. Þá telur fundurinn
nauðsynlegt, að hið opinbera
stórauki stuöning sinn við öll þau
félagasamtök, sem vinna að bind-
indi.
3) Fundurinn heitir á Alþingi,
og alla opinbera aðila, að vinna
markvisst að þvi aö fækka þeim
stöðum, sem leyfi hafa til aö selja
og veita áfengi. Og auka eftirlit
með þvi, að áfengislögum sé þar
framfylgt.
4) Fundurinn beinir þeirri á-
skorun til menntamálaráðherra
og annarra forráðamanna skóla,
að þeir hlutist til um að bindindis-
fræðsla og bindindisboðun, i öll-
um skólum, sé stóraukin og gerð
virk meö staðreyndafræöslu og
félagsmálastarfsemi.
5) Fundurinn heitir á öll fé-
lagasamtök i Siglufirði, aö sækja
ekki um vinveitingaleyfi á fund-
um sinum eða árshátiöum, og
stuðla á þann veg að minnkandi
áfengisneyzlu.
6) Fundurinn skorar á alla á-
byrga aöila: heimili, skóla og fé-
lagasamtök, að vinna markvisst
að ýmsum fyrirbyggjandi að-
gerðum gegn sivaxandi áfengis-
neyzlu, einkum meðal ungs fólks.