Tíminn - 13.10.1976, Blaðsíða 7

Tíminn - 13.10.1976, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 13. október 1976 TIMINN 7 ■ 'TSf AAEIRI KJÖT- BIRGÐIR TIL EN AAÖRG UNDAN- FARIN ÁR 1 upphafi sláturtiðar f haust var meira til af diikakjöti en mörg undanfarin ár, segir I frétt frá Upplýsingaþjónustu landbúnaðarins. Samtals voru birgðir af dilkakjöti 1. september 1.200 tonn en af kjöti af fullorðnu voru til 700 tonn. Nokkuð hefur gengið á birgðir af hrossakjöti siðustu mánuði, en 1. september voru til um 100 tonn af því. Nautakjötssala hefur verið nokkuð jöfn og 1. september var tiltölulega litið til af 1. fl. nautakjöti, en samtals voru til um 600 tonn, aðallega var það kýrkjöt. Talið er, að nokkru minna framboð verði á ungnautakjöti i haust en verið hefur siðast- liðin tvö ár. Þó má reikna með, að það verði fullnægj- andi fyrir innlenda markað- inn. Aftur á móti mun draga verulega úr framboði á ung- nautakjöti á næstu þrem ár- um, þegar tekið er tillit til þess fjölda ungkálfa, sem slátrað var i sumar. Spari- sjóður Dala- sýslu 85 óra LAUGARDAGINN 2. þ.m. var aðalfundur Sparisjóðs Dalasýslu haldinn f félagsheimilinu Dalabúð i Búðardal. Voru þá liðin 85 ár frá stofnun sjóðsins. Fyrsti fundur hans var haldinn I Hjarðarholti 2. okt. 1891. Þar voru samþykktir sjóðsins undirritaðar . af 21 ábyrgðarmanni úr Dalahéraði. Fyrsti formaður sjóðsstjórnar var Björn Bjarnarson, sýslumað- ur i Sauðafelli, en með honum i stjórn voru séra Kjartan J. Helgason i Hvammi og Kristján Tómasson hreppstjóri á Þor- bergsstöðum. Sögu sjóðsins fyrstu 50 árin skráði séra Asgeir Ásgeirsson fyrrum prófastur i Hvammi. Birtist hún i timariti Breiðfirð- ingafélagsins, Breiðfirðingi, 1947. Aðsetur sjóðsins var mjög lengi i Asgarði, en frá 1956 i Búðardal. Arið 1965 stofnsetti Búnaðarbanki Islands útibú i Búðardal i sam- vinnu við sparisjóðinn. Hætti sjóðurinn þá inn- og útlánastarf- semi, en ábyrgðarmenn hans geyma varasjóðinn á vöxtum i útibúi bankans. Koma þeir saman árlega og ráðstafa vöxtunum. Með þeim hætti eru ýmis fram- faramál styrkt, sem til heilla horfa i sýslunni. Nefna má sem dæmi, að fé hefur verið veitt til kaupa á sjúkrabil, til skóla, fé- lagsheimila og sundlaugar, tón- listarmála og kirkjubygginga. En hæsta fjárveitingin hefur runnið til heilsugæzlustöðvar i Búðardal, sem nú er i byggingu. Afmælisfund þennan sóttu 17 ábyrgðarmenn, en þeir eru nú nær 30. Reikningshaldari sjóðsins er Skjöidur Stefánsson, útibús- stjóri, en stjórn hans skipa al- þingismennirnir Friðjón Þórðar- son og Asgeir Bjarnason, ásamt Ólafi Jóhannssyni, bónda á Skarfsstöðum. Leiðrétting Missögn varð i myndatexta á baksiðu blaðsins i gær. Var það reyndar Elías Jónsson, löggæzlu- maður á Höfn i Hornafirði sem á myndinni sást bregöa sér á leik við háhyrninginn. Frakkinn var hvergi nærri. Beðið er velvirðing- ar á þessum mistökum. BEO SYSTEM 1800 Hljómtæki sem allir vilja eignast Útvarp meö FM stereo, 4 stöðvar fast- stillanlegar, Mjög hagkvæmt þegar jarðstöð kemur. Magnari 2x22 sín vött. Bjögun minni en 0,5%. Plötuspilarinn er með Magnesium armi, sem er léttari, en aluminum, og gæðin eru einstök, með léttasta tón- haus í heimi. 2 Uni-Phase hátalarar fylgja. Kynnið yður hvað Uni-Pase er. Verð 219.965. BUÐIRNAR NÓATUNI, SÍMI 23800 KLAPPARSTÍG 26, SÍMI 19800

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.