Tíminn - 26.10.1976, Blaðsíða 18

Tíminn - 26.10.1976, Blaðsíða 18
18 TÍMINN Þriöjudagur 26. október 1976 i stýrishúsi nýja togarans: Frá vinstri: Haukur Haröarson bæjarstjóri, Benjamin Antonsson skipstjóri og Tryggvi Finnsson framkvæmdastjóri. Nýjum skuttogara fagnað á Húsavík manni Þingeyinga og bæjarfó- geta á Húsavik. Július sýslu- maöur var landskunnur maöur. Á sinni tið beitti hann sér af miklum áhuga fyrir hafnar- framkvæmdum og fleiri fram- faramálum á Húsavik. Togarinn Július Havsteen er rúmlega 285 lestir að stærð, fallegt skip að sjá. A heimleið- inni hreppti það slæmt veður og skipverjar létu mikið yfir þvi, hve það hefði farið vel i sjó. Skipiðerhið vandaðasta að allri gerð og er búið fullkomnum fiskileitartækjum, m.a. attants- lóran með skrifara, sem er litil tölva. Hún getur teiknað upp á kort ákveðið veiðisvæði og skipt þvi i punkta. Verði góð veiði i togi, er hægt að stilla svo til, aö skipið geti rakið nákvæmlega sömu togleið aftur, án þess að mannshöndin stýri þvi. Verði það óhapp, að skipið missi troll- ið á einhverjum stað, staðsetur tölvan þann stað nákvæmlega á kortinu, svo auðvelt er aö finna trollið aftur til aö ná þvi upp. A skipinu er 15 manna áhöfn, skipstjóri er Benjamin Antons- son, fyrsti stýrimaður Hermann Ragnarsson, og fyrsti vélstjóri Steingrimur Arnason. Stefnt er að þvi, að skipið geti farið á veiðar á miðvikudagskvöld. Með komu togarans hefst nýr þáttur i sögu útgerðar á Húsa- vik, og er þess vænzt, að hann efli atvinnulif i bænum og tryggi öflun á hráefni til fiskiðnaðar á Húsavik. O Ræða Geirs tekninga, sem lýsir sig ekki fylgj- andi lýðræöisskipulagi. t lýöræöi felst verkaskipting milli stjórn- valda, hagsmunasamtaka og ein- staklinga. Þessir aöilar verða aö virða starfssvið hvers annars og fara aö lögum i samskiptum sin á milli. Framkvæmd lýðræðislegra stjórnarhátta getur verið sein- virk. Þótt slikt seinlæti komi oft á tiðum illa við menn, mega þeir ekki gripa til ólöglegra starfs- hátta, og hverfa frá lýðræðis- legum vinnubrögðum. Úrræðin hljóta að felast i þvi að hafa uppi rökstudda gagnrýni á rikjandi skipan mála, upplýsa efnisatriði og leita ráða til að flýta framkvæmd endurbóta og einfalda stjórnkerfið, i þeim tilgangi að gera lýðræðið virkara. Olympíuskákmótið: Vinningur á öllum borðum íslenzka sveitin tefldi viö sveitina frá Hong Kong f fyrstu umferð á Olympluskákmóti I tsrael I gær. Guðmundur Sigurjónsson vann skák sfna á fyrsta boröi og einnig þeir Björn Þorsteinsson og Magnús Sólmundarson á þriöja og fjóröa boröi. Skák Helga Ólafssonar á ööru boröi fór íbiö, en Helgi var talinn eiga biöstöö- una unna. Sveitunum var skipaö I töfluröö samkvæmt styrkleika fjög- urra bcztu mannanna, og er tsland I nfunda sæti. ÞJ Húsavik — Togari Húsvík- inga, Július Havsteen, kom i fyrsta skipti til heimahafnar sinnar laust fyrir klukkan átján á sunnudagskvöld. t tilefni af komu hans var Húsavíkurbær fánum skrýddur, einnig voru fánum skreytt skip og bátar, sem fyrir voru i höfninni. Fjöldi Húsvikinga var samankominn á bryggjunni til aö fagna skipinu, er þaö lagðist aö. Lúörasveit lék, og séra Björn Helgi Jónsson sóknarprestur á Húsavik flutti ávarp og bað skipi og skipverj- um allrar blessunar. Þá flutti ávarp Tryggvi Finnsson fram- kvæmdastjóri, og greindi hann frá þvi að nú væri rétt um ár lið- ið frá þvi, er Húsvikingar fóru aö leita fyrir sér um kaup á skuttogara. Um þær mundir útilokuðu stjórnvöld möguleika á kaupum á togara erlendis frá. Niður- staðan varð sú, að ákveðið var aö festa kaup á skipi, sem þá var i smiðum hjá Skipasmiða- stöð Þorgeirs og Ellerts á Akra- nesi. Landsbanki Islands veitti góöa fyrirgreiðslu viö togara- kaupin. Eigandi togarans er hlutafélagið Höfði, Húsavik. Stærstu hluthafar eru Fiskiðju- samlag Húsavikur, Húsavikur- bær, og Kaupfélag Þingeyinga. Formaður stjórnar félagsins er Tryggvi Finnsson, en fram- kvæmdastjóri útgerðarinnar er Kristján Asgeirsson. Skipið var látið heita eftir Júliusi Havsteen, fyrrum sýslu- Skuttogarinn Júlfus Havsteen kemur I fyrsta skipti til heima- hafnar á Húsavik. Hver stal vélhjóli? Gsal-Rvík. — Ungur piltur varö fyrir þvi óláni s.l. föstu- dag, aö vélhjóli hans var stolið fyrir utan Hampiöjuna I Reykjavik. Hjóliö er af gerö- inni Suzuki, rautt aö Iit, og hefur einkennisstafina N-7. Hjóliö er árgerö 1971. Ef einhverjir geta gefið upp- lýsingar um það, hvar þetta hjól er niður komiö nú, eða geta gefið aðrar upplýsingar um hvarf hjólsins eru þeir vin- samlegast beðnir að hafa tal af rannsóknarlögreglu. Stjórn- móla- umræður Stefnuræöu forsætisráö- herra var útvarpaö I gær- kvöldi og birtist ræöan I blaö- inu I dag. Af hálfu Fram- sóknarflokksins tóku Ingvar Gislason og Tómas Árnason þátt I umræöum um stefnu- ræöuna og veröur greint frá ræöum þeirra I Tlmanum á morgun. Aörir ræöumenn voru Matthias Bjarnason (S), Ragnar Arnalds (Ab>, Helgi F. Seljan (Ab), Benedikt Gröndal (A), Gylfi Þ. Glslason (A), Karvel Pálmason (SFV) og Magnús Torfi Ólafsson (SFV) Alvarlegt slys í Kópavogi Gsal-Reykjavik. — Alvarlegt umferöarslys varö I Kópavogi á laugardagsmorgun, er drengur á niunda ári varö fyr- ir strætisvagni á gatnamótum Suöurbrautar og Kópavogs- brautar. Drengurinn hlaut m.a. höfuöhögg og heilahrist- ing, og var fluttur á gjör- gæzludeild Borgarspitalans. Drengurinn mun úr llfs- hættu. © Þörungavinnslan aukningu fjármagns í fyrirtækið, ef það á aö komast á laggirnar, en þrátt fyrir nokkra óvissu um hvernig ganga mun að koma rekstri í viðunandi form, telur stjórnin sterkar llkur á, aö það takist, og aö framtlðarverðmæta- sköpun fyrirtækisins sé svo mikil I útflutningsverömætum og at- vinnutekjum á efnahagslega van- þróuðu svæði, að góð rök séu fyrir ákvörðun um framhald og þeirri ráðstöfun fjármuna, sem af sllkri ákvörðun leiðir. Auglýsið í Tímanum Hagkvœmt er heimanám Helstu kennslugreinareru: Bókfærsla I. 2 bréf. Færslubækur og eyðublöð fylgja. Námsgjald 5.700,00. Bókfærsla II. 2 bréf. Færslur og eyðublöð fylgja. Reikningur. 10 bréf. Má skipta í tvö námskeið 2.900,00. Ensk verslunarbréf. 8 bréf. Nokkur enskukunnátta nauðsynleg. Námsgjald 2.900,00. Danska. 7 bréf + lesbók Bkr. 4.500,00. Enska I. 7 bréf og ensk lesbók. Námsgjald 2.900,00 + bækur 200,-. Enska II. 7 bréf og ensk lesbók II., oröabók og málfræði. Námsgjald 2.900,00 + bækur 800,00. Þýzka. 5 bréf. Námsgjald 2.900,00. Franska. 10 bréf. Námsgjald 2.900,00. Spænska. 10 bréf. Námsgjald 2.900,00. Sálar- og uppeldisfræði. .4. bréf. Námsgjald 1.800,00. Póstið úrklippuna vel útfyllta — eða komið, hringið, skrifið — og skólinn sendir yður allar nánari upplýs- ingar. Undirritaður óskar að gerast nemandi i eftirt. námsgr: □ Vinsaml. sendið gegn póstkröfu. □ Greiðsla hjálögð kr □ Vinsaml. sendið ókeypis kynningarbækling. (Nafn) (Heimilisfang) Klippið auglýsinguna úr blaðinu og geymið! Bréfaskólinn °SUÐURLANDSBRAUT32 REYKJAVÍK SÍMI 81255

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.