Tíminn - 26.10.1976, Qupperneq 20
20
TÍMINN
Þriðjudagur 26. október 1976
Joe Corrigan sýndi
snilldarleik...
Joe Corrigan er sffellt að sýna
það að hann er einhver bezti
markvörður, sem England á um
þessar mundir. Um það efaðist
a.m.k. enginn, sem staddur var á
Portman Road á laugardaginn.
Hvað eftir annað varði hann á
hinn ótrúlegasta hátt, jafnvel
eftir að áhorfendur voru farnir að
fagna marki. Manchester City
var neytt til að spila algjöran
varnarleik af hinu velspilandi
Ipswich liði, og yfirburöir Ips-
wich voru slikir, að Cooper I
marki þeirra þurfti ekki að taka á
við markvörzluna I eitt einasta
skipti I leiknum.
Staðan í hálfleik var 0-0, en þá
þegar hafði Corrigan hvað eftir
annað komið i veg fyrir meö sinni
frábæru markvörzlu, að Ipswich
tækist að skora mark. En á 52.
minútu kom markið, sem gerði út
um leikinn. Kom það eftir mistök
i vörn City og gat Corrigan ekkert
gert til að koma i veg fyrir, að
skorað yrði. Donnachie átti
slæma sendingu, sem Mills komst
inn i, hann gaf boltann þvert fyrir
markið, þar sem Whymark var til
staðar, og þurfti hann aðeins að
ýta knettinum inn fyrir marklin-
una.
Eftir þetta komust hinir ungu
leikmenn Ipswich hvað eftir
annað i ákjósanlegt færi, en
Corrigan sá við öllum tilraunum
þeirra.
Liðin voru þannig skipuð:
Ipswich: Cooper, Burley,
Hunter, Beattie, Mills, Talbot,
Osborne, Wark, Bertschin,
Whymark, Woods.
Manchester City: Corrigan,
Clements, Doyle, Watson,
Donnachie, Owen, Power.
Hartford, Tueart, Royle, Kidd.
Ahorfendur: 25.041.
0.0.
Q.P.R. KOMIÐ
Á FULLA FERÐ
Einstefna, er Lundúnaliðið vann (2:0) Sunderland
d Loftus Road
— en réði þó
ekki við skot
fró Trevor
Whymark,
sem tryggði
Ipswich
þýðingar-
mikinn
sigur 1:0
gegn City
ó Portman
Road
Þessi leikur Q.P.R. ar ef til vill
þeirra bezti á keppnistimabilinu.
Loksins brá fyrir hinu þekkta og
skemmtilega samspili, sem gerði
Q.P.R. að einu skemmtilegasta
iiði Englands s.i. keppnistimabil.
Förin til Tékkóslóvakiu, þar sem
Q.P.R. gerði 3-3 jafntefli viö
Slovan Bratislava hefur greini-
lega gert leikmönnunum mjög
gott. Nú brá fyrir leikgleði, sem
ekki hefur sést hjá liðinu, það sem
af er keppnistimabiiinu. En enn-
þá skortir liðið það að fullnýta
þau tækifæri, sem gefast.
Sunderland-liðið lék eins og
1. DEILD
Aston Villa — BristolC .... ..3:1
Everton—WestHam ..3:2
Ipswich — Man. City ..1:0
Leeds — Liverpool ..1:1
Leicester — Arsenal ..4:1
Man. United — Norwich ... ..2:2
Middlesbrough—W.B.A. . ..1:0
N ewcastle — Birmingham ..3:2
Q.P.R. — Sunderland ..2:0
Stoke — Derby ..1:0
Tottenham—Coventry ... . .0:1
2. DEILD
Blackburn — Chelsea .0:2
BristolR.— Plymouth .1:1
Cardiff — Blackpool .2:2
Charlton — Sheff. Utd .3:2
Fulham —Hull .0:0
Hereford — Notts. C .1:4
Luton — Southampton .1:4
Nott. For —Burnley .5:2
Oldham — Bolton .2:2
Wolves — Carlisle .4:0
staða þess i deildinni gefur til
kynna. Leikinn var algjör varn-
arleikur, sem dugði skammt gegn
Q.P.R. I þessu formi. En illa gekk
að koma knettinum i markið hið
fyrsta sinni. Það tókst samt loks á
29. minútu, er Hollins átti skot að
marki, sem Si,ddall varði vel, en
náði samt ekki aö halda knfittin-
um, og þarna var til staðar hinn
siungi McLintock og stýrði hann
boltanum i mark af öryggi.
Seinna mark Q.P.R. kom á 66.
minútu og það mark ýtti undir
vonir manna um að lið Q.P.R. sé
nú loks að vakna til llfsins á ný.
Bowles fékk knöttinn eftir frá-
bæra sendingu frá Thomas, siðan
kom einn-tveir við Givens og allt
var opið hjá Sunderland. Bowles
átti þvi auðvelt með að skora.
Eins og fram hefur komið, þá
spilaði Sunderland algjöran varn-
arleik, en samt fékk liöið tvö færi
i leiknum og var þaö tilviljun, að
bæði tækifærin féllu I skaut aft-
asta, varnarmanni, Jim Holton,
en hann skallaði knöttinn yfir i
bæði skiptin eftir hornspyrnur.
Liðin voru þannig skipuð:
Q.P.R.: Parkes, Clement, McLin-
tock, Webb, Gillard, Kelly,
Masson, Hollins, Givens, Bowles,
Thomas.
Sunderland: Siddali, Ashurst,
Clarke, Holton, Bolton, Rowell,
Towers, Train, Foggon, Green-
wood, Lee.
Ahorfendur: 22.408. Ö-°-
Mariner
til
Ipswich
Nú cr taliö fullvist, að hinn
eftirsótti Plymouth Icikmað-
ur, Paul Mariner, fari tii
Ipswich. Hann hefur hafnað
tilboðum frá WBA og West
Ham, en cr nú búimi að sam-
þykkja að fara til Ipswich.
Ipswich bauð 140.000 pund
fyrir Mariner, auk þeirra John
Peddelty og Terry Austin, og
nú cr aðcins eftir að fá sain-
þykki þcssara tveggja leik-
manna fyrir kaupunum, en
þeir eru háðir að veita þvi
fyrirsér ennþá, hvort þeir eigi
að fara til Plymouth.
ó.O.
X, 4
JOE CORRIGAN... varði
oft ótrúlega á Portman
Road. Þessi snjalli mark-
vörður, er nú bezti mark-
vörður Englands.
Létt hjá Chelsea
— sem hefur nú örugga forystu í 2. deild
FRANK McLINTOCK... lætur
ekkert að sér hæða, þrátt fyrir
aldur sinn.
I annarri deildinni jók Chelsea
forystu sina um eitt stig, er þeir
unnu góðan sigur i Blackburn, 2-0.
Það var Finnieston, sem skoraði
bæði mörkin fyrir þá, og greini-
legt er, að Chelsea ætlar sér ekk-
ert minna en 1. deildarsæti á
næsta ári. Lið þeirra er sérlega
skemmtilegt, byggt upp af ungum
ieikmönnum, sem, er þeir hafa
öðlazt einhverja reynslu, eiga án
efa eftir að keppa um Englands-
meistaratitilinn innan fárra ára.
Blackpool náöi jafntefli i Car-
diff 2-2 og hélt þannig 2. sætinu.
Hatton og Spence skoruðu mörk
þeirra, en Evans skoraði tvivegis
fyrir Cardiff.
Sunderland skoraði ,,hat-trick”
i leik Ulfanna á móti Carlisle á
Molineux. Carr skoraði eitt mark,
þannig að lokatölur urðu 4-0,
Wolves i vil.
Southampton er heldur betur að
koma tileftir slæma byrjun. Liðið
þýtur upp töfluna, og á laugar-
daginn vann liðið athyglisverðan
sigur yfir Luton á útivelli 4-1.
Peach skoraði tvivegis, MacDou-
gall og Holmes sitt markið hvor
fyrir „The Saints”, en Brian
Chambers, sem fyrrum lék með
Arsenal, skoraði fyrir Luton.
Notts County vann einnig 4-1 á
útivelli, eða i Hereford. Hereford
liðið er nú komið á botn 2. deildar
eftir mjög góða byrjun i deildinni.
Summs skoraði tvö mörk fyrir
Notts, en Needham og Busby hin
Framhald á bls. 23
VILLA SKAUST I ANNAÐ SÆTIÐ
Eftir 5-1 sigur Aston Villa yfir
Arsenal s.l. miðvikudag, bjuggust
flestir við auðveldum sigri Villa
yfir nýliðunum — Bristol City. En
sú varð ekki raunin á. 37.094
áhorfendur á Villa Park sáu Paul
Ritchie taka forystuna fyrir
Bristol City á 27. minútu. Markið
kom eftir lélega sendingu frá
Alex Cropley, sem Whitehead
komst inn i. Hann sendi knöttinn
til Gillies, sem sendi góða send-
ingu fyrir mark Aston Villa. Þar
var Ritchie til staöar og skallaði
Þrjú mörk í seinni hálfleik gerðu út um Bristol City
hann knöttinn fram hjá Burridge I
marki Villa.
Fram að þessúm tima léku
leikmenn Aston Villa eins og
leikurinn væri fyrirfram unninn
og mörkin kæmu bara að sjálfu
sér. En við það að verða marki
undir kom i ljós, að þeir þyrftu
e.t.v. að berjast fyrir sigri. Og i
lokin tókst Aston Villa að sigra 3-
1, en leikmenn Bristol City sáu
um það, að Aston Villa þurfti að
berjast til siðustu minútu fyrir
sigrinum.
Það var Alex Cropley, sem
lagði fyrir tvö fyrri mörk Aston
Villa og borgaði þannig fyrir mis-
tökin, sem kostuöu markið i fyrri
hálfleik. A 53. minútu tók hann
frispark rétt fyrir utan vitateig,
hitti beint á höfuðChris Nicholl og
knötturinn lá i netinu. A 64.
minútu var Cropley aftur á ferð-
inni er hann sendi nákvæma
sendingu fyrir fætur Gidman,
sem átti auðvelt með að ýta
knettinum inn. Það var svo Gray-
don, sem bætti við þriðja markinu
á 78. minútu. Hann sneri baki i
markið er hann fékk knöttinn,
sneri sér snöggt við og skoraði
gott mark ,,a la Gerd Miíller”.
Greinilegt er, að Aston Villa
kemur til með að keppa um
meistaratignina á þessu keppnis-
timabili, en Bristol City á nú erfitt
uppdráttar eftirgóða byrjun. Það
vantar greinilega traustan
varnarmann i liðið og góðan upp-
byggjara en góðir sóknarmenn
eru til staðar þar sem eru þeir
Cheesley og Ritchie.
Liðin voru þannig skipuð:
Aston Villa: Burridge, Gidman,
Nicholl, Phillips, Smith, Carro-
dus, Mortimer, Cropley, Gray-
don, Little, Gray.
Bristol City: Bond, Sweeney,
Collier, Rogers, Drysdale, Gow
(McNeil), Tainton, Mann, Gillies,
Ritchie, Whitehead. q q