Tíminn - 30.10.1976, Page 3
Laugardagur 30. október 1976
TÍMINN
3
Þetta er algjörlega
heimamál ísfirðinga
— segir Haildór E. Sigurðsson
Gsal-Reykjavík. — Ég mun ekki blanda mér inn í bæjar-
mál á (saf irði, en ég lít svo á, að þet+a sé algjörlega mál
heimamanna, sagði Halldór E. Sigurðsson samgöngu-
ráðherra í samtali við Tímann í gær, en svo sem greint
hefur verið frá í fréttum, kærði bæjarráð (safjarðar
uppsögn talsímakvenna á þjónustu varðandi brunaboðun
til samgönguráðuneytis.
Raðuneytið hefur svarað, og
kemur fram i svari þess að sögn
ráðherra, að ráðuneytið telji, aö
þær tilvitnanir i lög, sem bæjar-
ráðsmenn setja fram, eigi ekki
við rök að styöjast og forsendur
kærunnar séu þvi brostnar.
— Bæjarstjóri stóð að gerð
samkomulagsins, og þar með á-
ieit ég, að málið væri leyst. Ég gef
alla vega engar fyrirskipanir til
þessara kvenna, enda hef ég ekk-
ert vald til þess, sagði ráöherra.
Bæjarráð felldi sem kunnugt er
samkomulag það, sem bæjar-
stjóri stóð að fyrir hönd bæjarins,
og Félag Isl. simamanna fyrir
hönd talsimakvennanna.
Talsimakonur hafa sagt upp
neyðarþjónustunni, en hafa þó i
þvi eina tilviki, sem eidur hefur
kviknað á isafirði siðan þær hættu
þessari þjónustu, kvatt slökkviliö
út.
Stór og
feit loðna
vecðist fyrir
vestan
gébé Rvík. — Tvö skip fylltu sig á
loðnumiðunum út af Straumnesi í
fyrrinótt, Hrafn með400tonnog Helga
Guðmundsdóttir með 450 tonn, en bæði
skipin lönduðu af la sínum á Bolungar-
vík. — Þetta er ágæt loðna, sem þeir
fá, bæði stór og feit, en mælingar á
fituinnihaldi hennar liggja þó ekki
fyrir enn, sagði Andrés Finnbogason
hjá Loðnunefnd í gær.
í gærdag voru GIsli Arni og Helga II á leiðinni
á loðnumiðin og áætlað, að þau hæfu veiðar sl.
nótt, ef veður leyfði, en veðurútlit var ekki mjög
gott i gærdag fyrir vestan. Rannsóknarskipið
Bjarni Sæmundsson heldur sig enn á sömu slóð-
um út af Straumnesi viö loönuleitina. Það vantar
fleiri skip til loðnuveiðanna, því nóg er af loðn-
unni. Það eina, sem hamlar, er veörið, sem oft
er ærið misjafnt á þessum slóðum, þegar svo
langt er liðið á haustið.
-
Viku eftir að störbruni varð á
skemmtistaönum Óðali i Reykja-
vik byrjaði dansinn aðduna þar á
nýjan leik. Húsið var opnað gest-
um i gærkvöldi og þá var ekki
hægt að sjá, að eldur hefði fariö
þar um nokkrum dögum áður.
Eigendur óðals sögðu strax eftir
brunann, að þeir myndu opna
aftur að viku iiðinni — og við það
stóðu þeir.
Þessa mynd tók Gunnar i gær af
fyrstu geslum Óðals, sem voru
slökkviliðsmenn þeir sem slökktu
eldinn i veitingahúsinu fyrir viku.
Húnaflói:
23 bátar stunda
rækjuveiðarnar
gébé Rvik.— Heildarkvót-
inn á rækju á Húnaflóa er
1500 tonn, auk 200 tonna,
sem leyfilegt er að veiða í
Ófeigsfirði. Alls stunda 23
bátar frá fimm stöðum
þessar veiðar.
Að sögn Þoröar Eyþórssonar i
sjávarútvegsráðuneytinu er ekki
búið að skipta heildarkvótanum
niður á staðina, en þaö verður
gert fljótiega. — Við trúum ekki
öðru en aö við fáum meira en i
fyrra sagði Kári Snorrason i
Rækjuvinnslunni á Blönduósi i
gær, en þá fengum við 10% af
heildarkvótanum. Viö viljum fá
1/3 af þeim kvóta, sem úthlutaður
er Húnavatnssýsluhöfnunum, eða
um 250 tonn.
I fyrra skiptist rækjukvóti þess-
ara hafna við Húnaflóa þannig, að
Blönduós fékk 10% af heildar-
kvóta, Hvammstangi 18%, Skaga
strönd 22% og Hólmavik og
Drangsnes samtals 50%. Á rækju-
vertiðinni i ár verða 2 bátar gerð-
irútfrá Blönduósi,4 frá Hvamms-
tanga, 4 frá Skagaströnd og 13 frá
Hólmavik og Drangsnesi.
--------------\
Alafoss
selur
Rússum
trefla
Undirritaðir hafa veriö
samningar milli Alafoss h/f og
v/o Raznoexport I Moskvu um
sölu á ullartreflum fyrir rúma
1.4 milljón dollara.
Er þetta I fyrsta skipti sem
Álafoss h/f gerir söiusamning
við Sovétrikin. Afhending
treflanna mun fara fram á
næsta ári, segir í frétt frá Ala-
fossi.
7
ávíðavangi
Sérsköttun hjóna
Viö fyrstu umræðu fjárlaga-
frumvarpsins gerði Matthias
A. Mathiesen fjármálaráð-
herra grein fyrir ýmsum fyr-
irhuguðum breytingum i
skattamálum. A vegum fjár-
málaráöuneytisins hefur verið
unnið að endurskoöun laganna
um tekjuskatt og eignaskatt,
og verður að þvi stefnt, að nýtt
frumvarp um tekjuskatt og
eignaskatt veröi lagt fyrir AI-
þingi fljótiega. Fjármálaráð-
herra gat helztu nýmæianna,
m.a. um sérsköttun hjóna.
Hann sagöi:
„Skattlagningu hjóna veröi
breytt á þann veg, að tekin
veröi upp tekjuhelmingaskipti
millihjóna og skattur lagður á
hjónin hvort i sinu iagi. Sér-
stakur skattaafsláttur verður
veittur fyrir kostnað vegna
útivinnu eiginkvenna, sem
miðaður við unnar vinnuvikur
utan heimilis. Afsláttur þessi,
sem nefna mætti útivinnuaf-
slátt, kemur annars vegar
fram i barnabótaauka og hins
vegar i auknum persónuaf-
slætti óháð barnafjölda.”
Þessi breyting, sem fjár-
málaráðherra boðar, á sjálf-
sagt eftir að vekja umræður.
Raunar hefur þetta mál vcriö
lengi á döfinni, enda Ijóst að
núverandi fyrirkomulag er
ranglátt gagnvart ýmsum.
Áætluð laun
Þá g a t
Matlhias A.
Mathiesen
fjármálaráð-
herra þess, að
gjöld og tekj-
ur vegna eigin
ibúöar verði
tekin út úr
framtali bæði tekna- og
gjaldamegin. Vmsir frádrátt-
arliöir verði ennfremur felldir
niður, en aðrir sameinaðir i
fastan afslátt til einföldunar.
Þessu næst vék hann að skatt-
lagningu einstaklinga, sem at-
vinnurekstur stunda, og
sagði:
„Skattlagningu einstakl-
inga, sem stunda atvinnu-
rekstur fyrir cigin reikning,
verður breytt á þann hátt, að
þeini skulu áætluð laun fyrir
starf sitt að eigin atvinnu-
rekstri, er séu ekki lægri en
launþegar i sömu starfsgrein-
um bera úr býtum, og þeim
gert að grciða skatt af þessari
áætlun. íiin áætluðu laun fær-
ast siðati sem kostnaður hjá
atvinnurekstrinum, en jaty-
framt verði tryggt, að at-
vinnurekstrartöp hafi ekki á-
hrif á skattlagningu annarra
tckna sjálfstæðra atvinnurek-
enda.”
Réttlátari
skattalöggjöf
Þá ræddi fjármála ráöherra
um ýmis önnur atriöi I sam-
bandi viö skattamál og sagði:
„Reglutn um söluhagnað og
fyrningar veröur breytt á
þann veg, að engar verðbreyt-
ingar eru reiknaðar I
fyrningum. Lausafé skal fyrnt
af bókfæröu veröi og söluverö
eigna fært til lækkunar fyrn-
ingargrunni. Heimild verði til
endurfjárfestingar, en að ööru
leyti vcrði söluhagnaður
skattskyldur. Um mannvirki
og aörar eignir gildi svipaöar
rcglur, þó er ekki gert ráö fyr-
ir, aö skattlagning söluhagn-
aðar af ibúöarhúsnæði verði
aukin, né heldur að íbúöarhús-
næöi vcrði fyrnanlegt. Söiu-
hagnaður af landi og náttúru-
auðæfum, sem er umfram
verðbólguvöxt, verði skatt-
lagöur að fullu, enda sé and-
virðið ekki endurfjárfest i at-
vinnutækjum. Um stað-
greiðslu opinberra gjalda eru
ekki ákvæði i frumvarpinu.
Framhaid á bls. 15