Fréttablaðið - 28.11.2005, Qupperneq 6
6 28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR
sæ
ti2
.
Me
tsö
luli
sti
Mb
l.15
.-2
1.
nóv
ember
Skáldv
er
k
Yrsa Sigurðardóttir
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
V
ER
3
03
86
1
1/
20
05
YRSA SLÆR Í GEGN!
Væntanleg
um allan heim!
d
„...skilar lesanda vel unninni og
hugsaðri glæpasögu.“
— Páll Baldvin Baldvinsson, DV
„Fersk rödd ... Hröð atburðarás og
hressilegur stíll.“
— Katrín Jakobsdóttir, gagnrýnandi
„Eitthvað alveg sérstakt“
— Suzie Doore, útgáfustjóri
Hodder og Staughton í Bretlandi
„Allt er þetta vel gert ...“
— Halldór Guðmundsson, Fréttablaðinu
„Fléttan er spennandi ...“
— Jón Yngvi Jóhannsson, Kastljósi
sæ
ti5
.
Me
tsö
luli
sti
Mb
l.15
.-2
1.
nóv
e be
a ar bæ
ku
r
KJÖRKASSINN
Á að leyfa hunda á Laugavegin-
um?
JÁ 32,7
NEI 67,3
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Finnur þú fyrir aukinni mengun?
Segðu þína skoðun á visir.is
ÍRAK Mannréttindabrot í Írak fær-
ast sífellt í aukana og er ástandið
orðið svo slæmt að fólk er farið að
bera það saman við tíma Saddams
Husseins.
„Fólk hagar sér nú eins og það
gerði á tímum Saddams, eða jafn-
vel verr,“ segir Ayad Allawi, sem
gegndi störfum fyrsta forsætis-
ráðherra Íraks eftir fall Saddam
Husseins. Þetta kemur fram í
breska dagblaðinu Observer í gær.
„Það er við hæfi að bera þetta
saman, fólk minnist daga Sadd-
ams. Við börðumst við Saddam
vegna þessara ástands, en nú
sjáum við sömu hlutina aftur,“
segir Allawi, sem lét af störfum
í apríl eftir fyrstu lýðræðislegu
kosningar landsins.
Allawi er afar harðorður og
sakar sjíamúslima í ríkisstjórn-
inni um að vera ábyrgir fyrir
aftökusveitum og leynilegum
pyntingabúðum. Meðferð á föng-
um nýju öryggisgæslunnar er
verri en sú sem leynilögregla
Saddams sýndi sínum föngum, að
sögn Allawis.
Allawi var mikill fylgismaður
innrásar Bandaríkjahers og gaf
hann yfirlýsingar sínar á laug-
ardag eftir að frekari vísbend-
ingar bárust um að George Bush
Bandaríkjaforseti ætlaði sér að
fjarlægja allt að 40.000 banda-
ríska hermenn úr Írak á næsta ári
og láta her Íraks taka við öryggis-
gæslu í landinu.
Talið er að yfirlýsingar Allawis
muni grafa undan orðum ríkis-
stjórnar Íraks og Bandaríkjanna
um að hlutirnir fari hratt batn-
andi í Írak.
„Írak er miðpunktur þessa
svæðis. Ef hlutirnir fara úrskeiðis
geta hvorki Evrópa né Bandaríkin
verið viss um öryggi sitt,“ segir
Allawi og bætir við að innanrík-
isráðuneytið sé að miklum hluta
til ábyrgt fyrir ófremdarástand-
inu, en nýverið komst upp um
leynifangelsi ráðuneytisins. Auk
þess hefur þessi fyrsta lýðræðis-
lega kosna ríkisstjórn Íraks verið
sökuð um að eiga aðild að fjöl-
mörgum mannshvörfum, pynting-
um og aftökum.
Allawi segist hafa svo litla trú á
lögum og reglu í Írak að hann hafi
skipað lífvörðum sínum að skjóta
á alla lögreglubíla sem reyni að
nálgast höfuðstöðvar hans án þess
að hafa tilkynnt um komu sína
fyrir fram.
smk@frettabladid.is
Mannréttindabrot
færast í aukana
Fyrrverandi forsætisráðherra Íraks segir ástand mannréttindabrota í Írak vera
orðið jafn slæmt og það var á dögum Saddam Hussein og að allar líkur bendi
til að þetta ófremdarástand versni.
ÓFREMDARÁSTAND Íraskur hermaður og slökkviliðsmenn skoða skemmdirnar sem sjálfsmorðsárás olli á anddyri sjúkrahúss í Írak í síðustu
viku. Þrjátíu manns létust í sprengingunni og 35 særðust. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DANMÖRK Fjöldi kráa, kaffihúsa
og veitingastaða með vínveitinga-
leyfi í Kaupmannahöfn hefur auk-
ist um fimmtán prósent síðasta
áratug. Borgaryfirvöld vilja nú
stemma stigu við þessari þróun að
því greint er frá í dagblaðinu Berl-
ingske Tidende. Ástæðan er meðal
annars sú að áfengisvandi meðal
ungra borgarbúa hefur farið vax-
andi hin síðustu ár.
Margir veitingamenn hafa
brugðið á það ráð að selja áfengi
ódýrt á ákveðnum tímum dags
vegna ört harðnandi samkeppni.
Það er talið hafa ýtt undir drykkju
þeirra yngstu.
Meðal þess sem borgaryfirvöld
setja á stefnuskrána er að auka
fræðslu meðal barþjóna og dyra-
varða með það að markmiði að
koma í veg fyrir ofdrykkju. Haft
er eftir formanni samtaka veit-
ingahúsaeigenda í blaðinu að hann
telji ekki að fækkun vínveitinga-
leyfa minnki drykkju enda muni
þeir sem vilja drekka færa sig á
þá staði sem eru opnir.
Talsmenn borgaryfirvalda
segja hins vegar að alþjóðlegar
rannsóknir sýni að sterk tengsl
séu á milli fjölda vínveitingastaða
og drykkju og því borgi sig að
fækka vínveitingahúsum. - ks
Borgarstjórn Kaupmannahafnar vill fækka vínveitingahúsum:
Áfengisvandinn fer vaxandi
MIÐBORG KAUPMANNAHAFNAR Borgaryfir-
völd hyggjast auka fræðslu meðal barþjóna
og dyravarða til að koma í veg fyrir
ofdrykkju gesta.
SÖFNUN Fermingarbörn um allt
land gengu í hús hinn 7. nóvember
og söfnuðu í bauk Hjálparstofnun
Kirkjunnar.
Í ár náðu fermingarbörnin
að safna 6,6 milljónum króna
og mun féð renna til verkefna í
Afríku. Rúmlega 3.100 börn tóku
þátt í söfnunni en árangur henn-
ar hefur vaxið ár frá ári. Í fyrra
söfnuðust 5,5 milljónir en þá var
þátttakendafjöldi aðeins minni
en í ár. Undanfari söfnunarinna
var fræðsla um aðstæður fólks í
fátækum löndum heims og verk-
efni Hjálparstarfs kirkjunnar
þar. - jóa
Hjálparstofnun Kirkjunnar:
Um sjö milljón-
ir söfnuðust
KÍNA, AP Í gær var opnað fyrir
drykkjarvatn úr kínversku ánni
Songhua í norðausturhluta Kína,
fimm dögum eftir að yfirvöld lok-
uðu fyrir neysluvatn 3,8 milljóna
íbúa borgarinnar Harbin vegna
mengunar.
Mengunin var tilkomin vegna
sprengingar í efnaverksmiðju í
Jilin í Kína um miðjan þennan
mánuð, sem olli því að 100 tonn af
bensóli bárust í ána, helstu upp-
sprettu vatns í borginni. Íbúar
Harbin og nágrennis þvo sér upp
úr vatninu og drekka það og bænd-
ur nota vatnið til áveitu. Bensólið í
vatninu er þrjátíu sinnum yfir það
sem telst vera öruggt, en bensól er
litlaus og rokgjarn vökvi sem er
notaður í efnaiðnaði.
Stærsta olíufyrirtæki Kína
hefur beðist afsökunar á spreng-
ingunni sem olli menguninni. Sam-
kvæmt upplýsingum frá kínversk-
um yfirvöldum hefur enginn veikst
eftir að hafa innbyrt mengað vatn.
Rússar hafa lýst yfir áhyggjum
vegna mengunarinnar og kanna
þessa dagana hvað hægt sé að gera
svo mengun frá efnaverksmiðj-
unni berist ekki til Síberíu í byrjun
desember, en bensólið liggur í um
80 kílómetra löngum hluta árinn-
ar og færist mengunin sífellt nær
Rússlandi. Kínversk yfirvöld segj-
ast hafa sett hreinsibúnað í ána. ■
Vatn í kínversku borginni Harbin drykkjarhæft á ný:
Mengað vatn til Síberíu
BEÐIÐ EFTIR HREINU VATNI Opnað var
fyrir drykkjarvatn í gær úr kínversku ánni
Songhua. FRÉTTABLAÐIÐ/AP