Fréttablaðið - 28.11.2005, Side 58
28. nóvember 2005 MÁNUDAGUR36
DRAUMAHÚSIÐ MITT BERGLIND MARÍA TÓMASDÓTTIR
Sólgula húsið hennar Ingibjargar ÞorbergsMelaskóli við Hagatorg vartekinn í notkun 1946 og
verður hann því sextugur á
næsta hausti. Einar Sveins-
son, arkitekt og húsameist-
ari Reykjavíkur, teiknaði
upprunalegu skólabygging-
una og voru listamennirnir
Barbara Árnason og Ás-
mundur Sveinsson fengnir
til þess að myndskreyta
hana. Haustið 1999 var ný
skólabygging tekin í notkun
og þá varð skólinn jafn-
framt einsetinn. Arkitekt
nýju byggingarinnar er Ögmundur Skarphéðinsson.
Nemendur í Melaskóla eru á aldrinum 6 til 12 ára og í haust eru þeir um
580 talsins og starfsmenn skólans um 70. Skólastjóri er Ragna Ólafsdóttir
og hún á lokaorðin í þessum stutta pistli. „Við segjum alltaf að skólinn ali
börnin upp með okkur því hann sé svo fallegur og kalli á svo góða um-
gengni.“
MELASKÓLI
Berglind María Tómasdóttir, tónlistarmaður, þáttagerðarkona og
framkvæmdastjóri, var smástund að gera upp á milli tveggja mögu-
legra draumahúsa. „Draumahúsið mitt er annaðhvort barbapabba-
húsið eða húsið sem Ingibjörg Þorbergs er í utan á plötunni sinni Í
sólgulu húsi. Ég er einmitt með diskinn í höndunum núna og hann
er ótrúlega góður. Húsið lítur út eins og húsin í bókunum um
krakkana í Ólátagarði eftir Astrid Lindgren og það vantar bara
snúru yfir í næstu hús til að tala saman eins og í síma. Það er
sennilega ákveðinn draumur að vera bara eins og söngkonan sjálf
þegar ég er orðin gömul og sitja við gluggann í svona húsi. Það
væri dásamlegt að eldast eins og Ingibjörg Þorbergs.“
Afborganir
hækka
Íbúðalán eru nú með 4,15 til
4,60 prósenta vexti.
Vextir á íbúðalán hækkuðu hjá
Íbúðalánasjóði, Sparisjóðunum
og Íslandsbanka í liðinni viku og
eru nú 4,35%. Íbúðalánasjóður er
líka með lánaflokk á 4,60% vöxt-
um á lánum sem unnt er að
greiða upp að hluta eða í heild
fyrir lok lánstímans án sérstakr-
ar uppgreiðsluþóknunar og
stytta eða lengja lánstíma
hvenær sem er. Hjá Landsbank-
anum eru vextirnir 4,45 prósent
en hjá KB banka eru vextirnir
enn 4,15 prósent.
Miðað við tíu milljóna króna
íbúðalán þarf að borga tæplega
21 þúsund krónum meira í af-
borganir á ári ef tekið er lán á
4,35 prósenta vöxtum í stað 4,15
prósenta.
Guðmundur Bjarnason, for-
stjóri Íbúðalánasjóðs spáir því að
ávöxtunarkrafa íbúðabréfa muni
lækka og þá verði hægt að lækka
vexti af íbúðalánum aftur.
Heimild: visir.is
Tími rusla-
pokans li›inn
Nýjar ruslatunnur inn á heim-
ili á Suðurlandi.
Á næstunni mun hvert heimili í
Árborg, Ölfusinu og Hveragerði
fá nýjar 240 lítra plastsorptunn-
ur, sem losaðar verða aðra
hverja viku. Tími ruslapokans er
því liðinn á þessum stöðum. Um
er að ræða 3.600 nýjar tunnur.
Tunnunum fylgir blað með
helstu upplýsingum um notkun
þeirra. Það kom í hlut Einars
Njálsonar, bæjarstjóra í Árborg
og formanns stjórnar Sorpstöðv-
ar Suðurlands, að taka á móti
fyrstu tunnunni við heimili sitt í
Lóurimanum á Selfossi í morg-
unn, en það voru þeir Guðmund-
ur Tryggvi Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Sorpstöðvarinnar
og Jón Frantzon, framkvæmda-
stjóri Íslenska gámafélagsins,
sem komu færandi hendi með
tunnuna.
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
11/11-
17/11
180
7/10-
13/10
210
14/10-
20/10
158
21/10-
27/10
194
28/10-
3/11
168
4/11-
10/11
166
Berglind María vildi eldast eins og Ingi-
björg Þorbergs og sitja inni í sólgulu húsi.
36 Fast bak efni-lesið 26.11.2005 15:29 Page 2